Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fjölnir
0
0
Grindavík
21.06.2019  -  19:15
Extra völlurinn
Inkasso deild kvenna
Aðstæður: Ágætis veður, sól og smá vindur. Völlurinn lítur vel út!
Dómari: Tómas Úlfar Meyer
Áhorfendur: Það eru u.þ.b. 60 manns í stúkunni
Maður leiksins: Shannon Simon
Byrjunarlið:
1. Hrafnhildur Hjaltalín (m)
Hlín Heiðarsdóttir ('74)
Kristjana Ýr Þráinsdóttir
Íris Ósk Valmundsdóttir
4. Bertha María Óladóttir (f)
4. Mist Þormóðsdóttir Grönvold
7. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('80)
10. Aníta Björg Sölvadóttir ('61)
11. Sara Montoro
13. Vala Kristín Theódórsdóttir
19. Hjördís Erla Björnsdóttir ('80)

Varamenn:
12. Helena Jónsdóttir (m)
3. Ásta Sigrún Friðriksdóttir
5. Hrafnhildur Árnadóttir ('74)
14. Elvý Rut Búadóttir
20. Eva María Jónsdóttir ('80)
21. María Eir Magnúsdóttir
22. Nadía Atladóttir ('61)
29. Lilja Nótt Lárusdóttir ('80)

Liðsstjórn:
Páll Árnason (Þ)
Magnús Haukur Harðarson (Þ)
Rósa Pálsdóttir
Axel Örn Sæmundsson
Hrefna Lára Sigurðardóttir
Ása Dóra Konráðsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Tómas flautar hér til leiksloka. Virkilega skemmtilegur leikur, sérstaklega síðustu 20 mínúturnar. Hreint ótrúlegt að þetta hafi endað 0-0
Viðtöl og skýrsla síðar í kvöld!
93. mín
SHANNON SKÝTUR Í ÞVERSLÁNNA. Boltinn dettur aftur í teiginn og á ótrúlegan hátt ná Fjölniskonur að koma boltanum í burtu
92. mín
Grindavík fær aukaspyru á stórhættulegum stað!
90. mín
+1
Við erum komin í uppbótartíma. Ætli við fáum dramatík í lokin?
90. mín
Nadía nær að prjóna sig inn fyrir vörn Grindavíkur en skotið ekki nægilega gott
89. mín Gult spjald: Nihad Hasecic (Grindavík)
Þjálfari Grindavíkur mjög æstur því hann vill fá innkast sem hann fær ekki. Tómas stoppar leikinn og gefur honum gult spjald
89. mín
Inn:Borghildur Arnarsdóttir (Grindavík) Út:Margrét Hulda Þorsteinsdóttir (Grindavík)
88. mín
Leikurinn síðustu mínúturnar einkennist af mikilli baráttu. En lítið um færi
81. mín
Kristjana með frábæra sendingu á Hlín sem skallar beint á Veronicu í markinu. Leikurinn mjög opinn þessa stundina. Bæði lið vilja stigin 3
80. mín
Inn:Lilja Nótt Lárusdóttir (Fjölnir) Út:Hjördís Erla Björnsdóttir (Fjölnir)
Fjölnir gerir tvöfalda skiptingu
80. mín
Inn:Eva María Jónsdóttir (Fjölnir) Út:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Fjölnir)
79. mín
Margrét Hulda á hér skot í þverslánna! Þarna voru Fjölnisstúlkur heppnar
78. mín
Shannon reynir hér skot langt utan af velli sem fer vel framhjá. Ágætis tilraun samt
75. mín
Færi! Grindavík nær sendingu inn fyrir vörn Fjölnis og þar er Birgitta ein á móti markmanni en Hrafnhildur ver meistaralega! Birgitta nær boltanum aftur en Íris nær að renna sér fyrir boltann. Langbesta færi leiksins
74. mín
Inn:Hrafnhildur Árnadóttir (Fjölnir) Út:Hlín Heiðarsdóttir (Fjölnir)
74. mín
Inn:Birgitta Hallgrímsdóttir (Grindavík) Út:Nicole C. Maher (Grindavík)
Nicole búin að vera hættulegust í Grindavík ásamt Shannon. Birgitta er þó markahæst í liði Grindavíkur í sumar með 2 mörk, spurning hvort hún nái að bæta við sínu þriðja hér í kvöld?
71. mín
Grindavík fær horn. Íris Ósk ætlar að hreinsa út úr teig en misreiknar boltann og skýtur aftur fyirr markið. Það kemur ekkert úr horninu
70. mín
Færi! Ísabella á hér hörkuskot og þarf Veronica að hafa sig alla við til að verja.
68. mín
Shannon og Nicole eiga fínt spil upp við teig Fjölnis. Nicole tekur á endanum skot sem endar í öruggum höndum Hrafnhildar
65. mín
Nicole tekur enn einn sprettinn upp völlin og gefur á Margréti Huldu sem á skot framhjá. Markspyrna.
62. mín
Fjölnir fær hornspyrnu. Góður bolti inn á teig en Veronica nær að slá boltann í burtu.
61. mín
Inn:Nadía Atladóttir (Fjölnir) Út:Aníta Björg Sölvadóttir (Fjölnir)
Fjölnir gerir hér sína fyrstu skiptingu. Aníta var búin að vera mjög spræk hér framan af
59. mín
Aníta við það að sleppa í gegn en Brynja Pálmadóttir nær til boltans á síðustu stundu og kemur honum langt í burtu
57. mín
Grindavík vill fá víti þegar Nicole fellur við í teignum. Held að það hafi verið rétt hjá Tómasi að sleppa þessu
Þjálfari Grindavíkur virðist hafa sagt eitthvað því Tómas stoppar leikinn til að ræða við hann og róa hann niður. Sleppur þó við spjald
55. mín
Fjölnisvörnin virðist eiga í smá erfiðleikum með Shannon sem er stöðugt að gera þeim lífið leitt hér
53. mín
Ísabella á flott skot fyrir Fjölni sem Veronica ver í horn!
52. mín
Una Margrét liggur niðri og þarf að fá aðhlynningu. Vonandi er þetta ekkert alvarlegt. Hún er nú komin aftur inná og virðist í lagi
51. mín
Shannon nær að sóla sig í gegnum vörn Fjölnis og gefur svo boltann á Nicole sem á skot vel framhjá
49. mín
Sara gerir vel og nær góðri sendingu á Hjördísi inn í teig en hún er aðeins of sein að átta sig og varnarmenn Grindavíkur ná að stela af henni boltanum
46. mín
Leikur hafinn
Jæja þá er þetta farið af stað aftur. Fjölnir byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Þá hefur Tómas dómari flautað til leikhlés. Ágætis fyrri hálfleikur hér en það vantar þó mörk. Vonandi fáum við nóg af þeim í seinni hálfleik!

Það er virkilega vel hugsað mann hérna á Extra-vellinum. Geggjaður hamborgari í hálfleik!
45. mín
Leikmenn að bíða eftir að flautað verði til hálfleiks, Fjölnir spilar bara á milli sín í vörninni
45. mín
45 mínútur komnar á klukkuna. Enginn uppbótartími gefinn upp en Tómas lætur leikinn þó halda áfram
43. mín
Shannon Simon að sóla allar upp úr skónum hér á hægri kantinum og nær sendingu fyrir markið en Fjölnir nær að koma boltanum í burtu
38. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu á fínum stað, hægra megin utan við teig. Fín sending inn á teig en Grindavík hreinsar í horn
36. mín
Inn:Una Rós Unnarsdóttir (Grindavík) Út:Áslaug Gyða Birgisdóttir (Grindavík)
Áslaug fér hér útaf vegna meiðsla
34. mín
Mér finnst Fjölnir líta nokkuð vel út þessar fyrstu 30 mínútur. Spurning hvort þær nái að landa sínum fyrsta sigri í Inkasso-deildinni í sumar?
32. mín
Una Margrét reynir hér skot fyrir utan teig en Hrafnhildur á ekki í vandræðum með að verja þetta
28. mín
Fínt spil hjá Fjölni upp við teig Grindavíkur sem endar með skoti frá Berthu, þó nokkuð til hliðar við markið.
27. mín
Nicole gerir sig líklega til að keyra á vörn Fjölnis en Mist er eins og klettur í vörninni og kemur boltanum frá
26. mín
Boltinn er mikið útaf þessa stundina, mikið um feilsendingar og innköst
25. mín
Dómarinn stoppar hér leikinn til að fá nýjan bolta
21. mín
Aníta Björg á fínan sprett upp vinstri kantinn og nær sendingu inn í teig, en Grindavík nær að hreinsa
19. mín
Hjördís aftur með góða sendingu fyrir markið en Veronica kýlir boltann langt út
17. mín
Fínt færi hjá Fjölni. Hjördís hleypur upp kantinn, sendir fyrir og Ísabella á ágætis skot rétt yfir markið
11. mín
Bertha María á fínt skot langt utan af velli fyrir Fjölni en Veronica ver. Gott að reyna að nýta vindinn!
10. mín
Grindavík fær horn. Boltinn berst út í teig og þar á Una Margrét fast skot sem fer rétt yfir markið!
9. mín
Nicole átti hér fínan sprett upp völlinn en Fjölnir hreinsar í innkast
7. mín
Aníta Björg á hér fínt skot af vinstri kantinum en Veronica ver vel.
5. mín
Fjölnir fær hér aðra aukaspyrnu aðeins aftar, en Mist rétt missir af boltanum. Markspyrna.
4. mín
Fjölniskonur fá aukaspyrnu á fínum stað. Grindavík kemur þó boltanum fljótt í burtu.
1. mín
Ágætis tilraun hjá Fjölni, Hjördís hleypur upp kantinn og kemur með fína sendingu inn í teig en Veronica á þó ekki i miklum vandræðum með að grípa boltann
1. mín
Leikur hafinn
Grindavík byrjar með boltann
Fyrir leik
Fyrirliðarnir leiða nú liðin sín út á völlinn, þetta er að hefjast.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin!

Fjölnir gerir 2 breytingar frá síðasta leik en Vala Kristín Theódórsdóttir og Hjördís Erla Björnsdóttir koma inn fyrir Evu Maríu Jónsdóttur og Evu Karen Sigurdórsdóttur

Á meðan gerir Grindavík eina breytingu frá síðasta leik, Nicole C. Maher kemur inn fyrir Birgittu Hallgrímsdóttur
Fyrir leik
Í síðustu umferð sem leikin var 6. og 7. júní tapaði Fjölnir á útivelli fyrir Tindastóli með 6 mörkum gegn 2 á meðan Grindavík sigraði FH með 2 mörkum gegn 1.
Fyrir leik
Ef við skoðum aðeins síðustu innbyrðisviðureignir þessara liða þó fóru 3 síðustu leikir liðanna 2-0 fyrir Grindavík og voru þeir allir spilaðir sumarið 2016.
Fyrir leik
Grindavík situr í 4. sæti með 7 stig. Þær hafa skorað 5 mörk og fengið á sig 5 mörk í deildinni í sumar.
Spá þjálfara og fyrirliða í Inkasso kvenna setti Grindavík í 9. sætið sem kom nokkuð á óvart þar sem Grindavík lék jú í Pepsideildinni í fyrra.
Fyrir leik
Fjölnir situr í fallsæti eftir 4 umferðir með 1 stig og aðeins náð að skora 3 mörk í fyrstu 4 umferðunum. Á meðan hafa þær fengið á sig 11 mörk.
Spá þjálfara og fyrirliða í Inkasso kvenna setti Fjölni í 6 sætið.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Fjölnis og Grindavíkur í 5. umferð Inkasso-deildar kvenna.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Extra-vellinum í Grafarvogi.
Byrjunarlið:
1. Veronica Blair Smeltzer (m)
2. Ástrós Lind Þórðardóttir
4. Shannon Simon
8. Guðný Eva Birgisdóttir (f)
9. Margrét Hulda Þorsteinsdóttir ('89)
13. Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir
16. Una Margrét Einarsdóttir
20. Áslaug Gyða Birgisdóttir ('36)
21. Nicole C. Maher ('74)
26. Brynja Pálmadóttir
29. Írena Björk Gestsdóttir

Varamenn:
7. Borghildur Arnarsdóttir ('89)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
10. Una Rós Unnarsdóttir ('36)
14. Birgitta Hallgrímsdóttir ('74)
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir
17. Inga Rún Svansdóttir
19. Unnur Guðrún Þórarinsdóttir

Liðsstjórn:
Nihad Hasecic (Þ)
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Vilborg Rós Vilhjálmsdóttir
Bjartey Helgadóttir
Steinberg Reynisson
Signý Ósk Ólafsdóttir
Petra Rós Ólafsdóttir

Gul spjöld:
Nihad Hasecic ('89)

Rauð spjöld: