ÍBV
1
3
Valur
Emma Rose Kelly '4 1-0
1-1 Hlín Eiríksdóttir '39
Sigríður Lára Garðarsdóttir '45 , sjálfsmark 1-2
1-3 Margrét Lára Viðarsdóttir '85
23.06.2019  -  17:00
Hásteinsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 135
Maður leiksins: Hlín Eiríksdóttir
Byrjunarlið:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir
4. Caroline Van Slambrouck
6. Sesselja Líf Valgeirsdóttir ('75)
9. Emma Rose Kelly ('88)
10. Clara Sigurðardóttir
11. Sigríður Lára Garðarsdóttir
15. Hafdís Bára Höskuldsdóttir ('80)
18. Margrét Íris Einarsdóttir
20. Cloé Lacasse
24. Helena Jónsdóttir

Varamenn:
2. Helena Hekla Hlynsdóttir
3. Júlíana Sveinsdóttir
7. Þóra Björg Stefánsdóttir ('88)
9. Kristín Erna Sigurlásdóttir ('80)
14. Anna Young
19. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('75)
23. Shaneka Jodian Gordon

Liðsstjórn:
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Jón Ólafur Daníelsson
Óskar Rúnarsson
Sigþóra Guðmundsdóttir
Sonja Ruiz Martinez
Richard Matthew Goffe

Gul spjöld:
Jón Ólafur Daníelsson ('32)
Sigríður Lára Garðarsdóttir ('53)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valskonur fara í Herjólf með 3 stig! Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
88. mín
Inn:Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV) Út:Emma Rose Kelly (ÍBV)
Emma Rose Kelly, markaskori ÍBV, fer af velli.
88. mín
Cloé fær boltainn vinstra megin og kemur inn á völlinn og á ágætt skot sem Sandra varði virkilega vel.
87. mín
Inn:Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur) Út:Elísa Viðarsdóttir (Valur)
85. mín MARK!
Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur)
Stoðsending: Hlín Eiríksdóttir
Flott sókn hjá Val. Boltinn barst á fjær þar sem Hlín sendi þéttingsfasta sendingu inn í markteig og Margrét Lára stýrði boltanum inn með einni snertingu. 1-3 fyrir Val!
82. mín
Inn:Dóra María Lárusdóttir (Valur) Út:Mist Edvardsdóttir (Valur)
80. mín
Inn:Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV) Út:Hafdís Bára Höskuldsdóttir (ÍBV)
77. mín Gult spjald: Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Held að þetta spjald skrifist á almenn leiðindi eins og sagt er. Boltinn fór út af og stöðvaði Arnar leikinn til að gefa spjald og hef ég ekki hugmynd af hverju.
75. mín
Inn:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (ÍBV) Út:Sesselja Líf Valgeirsdóttir (ÍBV)
69. mín
Vá!!! Cloé með frábæran sprett upp hægra megin og þrumar fast fyrir og boltinn barst í Valskonu og stefndi á markið. Sandra með frábæra vörslu!
64. mín
Inn:Bergdís Fanney Einarsdóttir (Valur) Út:Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Fanndís lýkur keppni hér í dag og Bergdís kemur inn.
64. mín
Hlín með skalla rétt framhjá markinu!
61. mín Gult spjald: Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur)
Ollar hérna Clöru. Algert óviljaverk en gult spjald. Þetta var ekki fast eða neitt þannig. Emma skaut svo úr aukaspyrnunni en Sandra varði vel.
59. mín
ÍBV er aðeins betra hér síðustu mínútur. Cloé með skot framhjá úr góðu færi sem hún jú skapaði sér sjálf.
55. mín
Guðný með hálf misheppnaða spyrnu og Margrét Lára reynir skot af 43ja metra færi en boltinn rétt framhjá.
53. mín Gult spjald: Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV)
Sparkar hér Margréti Láru niður og fær réttilega spjald.
52. mín
Vá!!! Þrusubumba frá Emmu sem Sandra þarf að hafa sig alla við ða verja! Kýlir boltann í loftið og kemst Cloé í dauðafæri en skallar yfir. Þarna munaði mjóu.
49. mín
Eins og KÖTTUR á boltann! Elín Metta með fínt skot en Guðný ver mjög vel.
46. mín
Leikur hafinn að nýju!
45. mín
Hálfleikur
ÍBV byrjaði af krafti en missti síðan dampinn og 1-2 staða nokkuð eðlileg miðað við gang leiksins.
45. mín SJÁLFSMARK!
Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV)
Afar klaufalegt hér. Boltinn berst í teiginn og engin tekur hann og fær Sísí hann í sig, einbeitingalítil, og skoppar hann inn. 1-2 fyrir Val!
43. mín Gult spjald: Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Fanndís brýtur hér á Cloé sem ætlaði að taka sprettinn. Clara fékk boltann og geystist í sókn en náði ekki skoti. Fanndís fær síðan spjald er boltinn fór útaf.
39. mín MARK!
Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Stoðsending: Fanndís Friðriksdóttir
Fínt horn hjá Fanndísi og Guðný reyndi að kýla boltann. Komst hins vegar ekki í hann og Hlín skoraði með góðum skalla. 1-1!
38. mín
Mist skallar eftir horn og fiskar annað horn.
37. mín
Fanndís er komin inn á.
36. mín
Mist liggur eftir samstuð við Clöru. Hún er staðin upp og game on. Valskonur eru hins vegar konu færri því Fanndís hefur ekki enn komið inn á.
32. mín Gult spjald: Jón Ólafur Daníelsson (ÍBV)
Hér er aðeins verið að hreyta og svona. Jón Óli hefði líklega sloppið við þetta spjald hefði hann verið uppi í stúku.
32. mín
Fanndís liggur eftir samstuð. Hún virkar sárþjáð.
30. mín
Úff Hafdís og Cloé skella hér saman og liggja báðar eftir. Cloé stóð reyndar fljótt upp en Hafdís fékk aðhlynningu. Hún er komin aftur inn á og fór betur en á horfðist.
30. mín
Margrét Lára með frábæra hælsendingu inn fyrir á Hlín sem er í DAUÐAFÆRI en Guðný með keppnis úthlaup og nær boltanum.
25. mín
Vá! Clara er að spila eins og meistari hérna. Kom með frábæra sendingu inn á Cloé upp hægra megin. Cloé færði yfir á vinstri og átti fast skot framhjá marki.
23. mín
Fanndís með fast skot beint á Guðnýju sem ver vel.
21. mín
Mist með brot á Cloé sem var að taka á sprettinn og Arnar dæmir brot en sleppti einhverra hluta vegna að spjalda.
19. mín
Vá! Færi! Fanndís með Pirlo sendingu innfyrir á Hlín sem lék til hliðar við Guðnýju en skaut svo í hliðarnetið! Valur óheppið að komast ekki yfir þarna.
15. mín
Hallbera með aukaspyrnu og Margrét skallar framhjá og AD2 flaggar innkast. En dómarinn hlustaði ekkert á það og dæmdi hornspyrnu sem ekkert kom upp úr.
10. mín
Ásgeirður með lélegasta skotið sem við munum sjá í dag. Stefndi í innkast en dreif ekki einu sinni út af.
4. mín MARK!
Emma Rose Kelly (ÍBV)
Emma skorar með glæsilegu slútti eftir stungusendingu! Frábært mark!!! 1-0!
3. mín
Fyrsta skot leiksins á Margrét Lára en beint í varnarmann.
1. mín
Valur hefur leik!
Fyrir leik
Landsliðskonurnar Sísí og Margrét Lára eru fyrirliðar hér í dag. Margrét Lára og Elísa systir hennar eru Eyjakonur eins og allir vita.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn. Þór Ísfeld Vilhjálmsson, nýkjörinn formaður ÍBV, færir Cloé blómvönd í tilefni þess að hún er orðin íslenskur ríkisborgari.
Fyrir leik
Sá leikmaður Vals sem hefur vakið mesta athygli í sumar er Elín Metta Jensen. Hún hefur verið algerlega frábær og skoraði t.a.m. 4 mörk í síðasta leik.
Fyrir leik
Cloé Lacasse fékk íslenskan ríkisborgararétt á dögunum og voru allir álitsgjafarnir sem .net leitaði til á því að velja eigi hana í landsliðið.
Fyrir leik
Jón Óli Daníelsson þjálfar ÍBV liðið og er þjálfari Vals markahrókurinn Pétur Pétursson.
Fyrir leik
Af þeim sex leikjum sem búnir eru hefur ÍBV unnið þrjá og tapað jafn mörgum. Valur hefur unnið alla sína leiki og er á toppnum með 18 stig, rétt eins og Breiðablik. Allt stefnir í tveggja liða baráttu um þann stóra.
Fyrir leik
Komiði sæl. Hér verður leik ÍBV og Vals lýst en leikurinn er í Pepsi Max deild kvenna.
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
4. Guðný Árnadóttir
6. Mist Edvardsdóttir ('82)
7. Elísa Viðarsdóttir ('87)
9. Margrét Lára Viðarsdóttir (f)
10. Elín Metta Jensen
11. Hallbera Guðný Gísladóttir (f)
14. Hlín Eiríksdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir ('64)

Varamenn:
2. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
15. Bergdís Fanney Einarsdóttir ('64)
17. Thelma Björk Einarsdóttir
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir ('87)
22. Dóra María Lárusdóttir ('82)
23. Guðrún Karítas Sigurðardóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Eiður Benedikt Eiríksson (Þ)
Einar Örn Guðmundsson
Karen Guðmundsdóttir
María Hjaltalín
Aron Óskar Þorleifsson

Gul spjöld:
Fanndís Friðriksdóttir ('43)
Margrét Lára Viðarsdóttir ('61)
Hlín Eiríksdóttir ('77)

Rauð spjöld: