Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
KA
1
1
ÍA
0-1 Viktor Jónsson '11
Almarr Ormarsson '58 1-1
21.07.2019  -  17:00
Greifavöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Ágætis aðstæður. Skýjað og sæmilega hlýtt.
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 1004 manns
Maður leiksins: Almarr Ormarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
Hallgrímur Jónasson
7. Almarr Ormarsson (f)
8. Iosu Villar ('85)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f) ('71)
16. Brynjar Ingi Bjarnason
17. Ýmir Már Geirsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Torfi Tímoteus Gunnarsson ('59)

Varamenn:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
4. Ólafur Aron Pétursson
5. Ívar Örn Árnason ('59)
14. Andri Fannar Stefánsson ('85)
21. Nökkvi Þeyr Þórisson ('71)
28. Sæþór Olgeirsson

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Pétur Heiðar Kristjánsson
Petar Ivancic
Branislav Radakovic
Sveinn Þór Steingrímsson

Gul spjöld:
Elfar Árni Aðalsteinsson ('22)
Hallgrímur Jónasson ('43)
Ýmir Már Geirsson ('62)
Brynjar Ingi Bjarnason ('63)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ýmir Már reynir bara skot úr hornspyrnunni en Árni Snær sér við honum. Þá flautar Erlendur Eiríksson til leiksloka. 1-1 jafntefli staðreynd.

Viðtöl og skýrsla koma síðar.
90. mín
Nökkvi með skot í varnarmann og framhjá. Síðasta spyrna leiksins.
90. mín
Þremur mínútum bætt við.
90. mín
Bjarki Steinn með skot fyrir utan teig sem að Aron nær ekki að halda en sem betur fer fyrir KA er Ýmir á undan Gonzalo í boltann.
88. mín Gult spjald: Hörður Ingi Gunnarsson (ÍA)
Stöðvar Elfar sem að er að hlaupa í skyndisókn.
86. mín
Ívar Örn með langt innkast sem að Nökkvi flikkar aftur fyrir sig en það fer beint í fangið á Árna.
85. mín
Inn:Andri Fannar Stefánsson (KA) Út:Iosu Villar (KA)
Iosu búinn að vera nokkuð solid bara.
82. mín
Spyrnan er of nálægt Árna Snæ sem að nær að kýla boltann í burtu. Hinum meginn geysist Tryggvi upp og á sendingu út á Bjarka Stein en Hrannar kemst fyrir skot hans.
82. mín
KA menn fá hornspyrnu sem að Hallgrímur Mar ætlar að taka.
80. mín
Nafnanir Hallgrímur Mar og Hallgrímur Jónasson með frábært þríhyrningsspil sem endar með fyrirgjöf þess fyrrnefnda en enginn KA maður nær til boltans.
78. mín
Inn:Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA) Út:Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Síðasta skipting Skagamanna. Stefán Teitur búinn að vera fínn í dag.
77. mín
Ívar Örn með langt innkast sem að Elfar skallar út á Almarr en varnarmenn Skagans komast fyrir skot hans.
71. mín
Inn:Nökkvi Þeyr Þórisson (KA) Út:Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Ásgeir ekki ennþá tilbúinn í 90 mínútur.
70. mín
Ásgeir geysist hér upp völlinn og reynir skot með vinstri en það er laust og beint á Árna Snæ í markinu. Þetta er það síðasta sem að Ásgeir gerir í dag.
69. mín
Inn:Gonzalo Zamorano (ÍA) Út:Viktor Jónsson (ÍA)
Markaskorari Skagamanna haltrar hér útaf.
67. mín
Inn:Arnór Snær Guðmundsson (ÍA) Út:Einar Logi Einarsson (ÍA)
Fyrsta breyting ÍA í leiknum.
66. mín
Aukaspyrnan er beint á kollinn á Ívari sem að skallar yfir.
66. mín
Elfar fer hér illa með Einar Loga út á kanti og vinnur aukaspyrnu.
63. mín Gult spjald: Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Heldur í Viktor Jóns. Áttunda spjaldið.
62. mín Gult spjald: Ýmir Már Geirsson (KA)
Full seinn í Jón Gísla þarna. Sjöunda spjaldið í dag.
59. mín
Inn:Ívar Örn Árnason (KA) Út:Torfi Tímoteus Gunnarsson (KA)
Torfi ekki búinn að eiga sinn besta dag. Ívar Örn kemur inn í sínum fyrsta leik með KA í sumar.
58. mín MARK!
Almarr Ormarsson (KA)
UPPÚR ENGU JAFNA KA MENN!!!!!

Almarr fær boltann á miðjum vellinum og fer illa með Stefán Teit áður en að hann skýtur framhjá Árna Snæ í markinu.
56. mín
KA menn með ágætis spil hérna við vítateig Skagamanna sem að endar með fyrirgjöf Almarrs en hún er beint í fangið á Árna Snæ.
50. mín
Hallgrímur Mar með fína tilraun eftir að hafa fengið boltann frá Elfari Árna en skot hans er framhjá markinu.
49. mín
HVAÐ VAR Í GANGI ÞARNA!?!?

Stefán Teitur tekur langt innkast inná teig KA manna þar sem að verður klafs. Það endar með því að Aron Dagur dettur einhvernveginn á boltann sem að er sentímetrum frá því að vera fyrir innan.
47. mín
Árni Snær stekkur hæst í teignum og grípur boltann. Hann er fljótur að koma boltanum út og Tryggvi á tilraun í varnarmann og framhjá. Horn hinum megin sem að KA menn koma frá.
46. mín
Ásgeir skýtur hér í varnarmann og útaf. KA fær hornspyrnu.
46. mín
Þá er leikurinn hafinn að nýju. KA menn byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar er Erlendur Eiríks til hálfleiks. Leikurinn verið bara nokkuð líflegur en Skagamenn leiða verðskuldað.
45. mín Gult spjald: Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Brýtur á Ásgeiri sem að er við það að sleppa í gegn. Hárrétt.
44. mín
Hrannar með flottan bolta á bróðir sinn inná teiginn þar sem að hann fellur við og KA menn vilja fá vítaspyrnu. Erlendur er hins vegar ekki sammála.
43. mín Gult spjald: Hallgrímur Jónasson (KA)
Brýtur á Tryggva sem að er við það að sleppa í gegn. Hárréttur dómur.
38. mín
Hrannar með flotta fyrirgjöf sem að Ásgeir flikkar aftur fyrir sig en Árni Snær er vel á verði og blakar boltanum í horn. Ekkert verður úr hornspyrnunni.
34. mín Gult spjald: Marcus Johansson (ÍA)
Lendir í samstuði við Torfa og er vægast sagt mjög ósáttur við þetta spjald. Torfi liggur eftir á vellinum.
33. mín Gult spjald: Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Stoppar Hallgrím Mar sem að er að fara í hraða sókn. Hallgrímur er ekki ánægður með hann og stjakar aðeins við honum.
31. mín
ÞVÍLÍKT DAUÐAFÆRI!!!!!!!

Jón Gísli með draumabolta innfyrir vörn KA manna sem að Tryggvi Hrafn tekur vel á móti og fer framhjá Aroni en svo rúllar hann boltanum framhjá. Algjört dauðafæri.
28. mín
Almarr reynir hér stungusendingu á Hrannar en hún er of löng og fer aftur fyrir endamörk. KA menn aðeins meira með boltann núna en ná engan vegin að skapa sér opin færi.
23. mín Gult spjald: Albert Hafsteinsson (ÍA)
Alltof seinn inní Ými Má.
22. mín Gult spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Þriðja brot Elfars sem að fær réttilega gult.
21. mín
Hallgrímur Jónasson skallar hér fyrirgjöf frá sem að Albert Hafsteins tekur á lofti fyrir utan teig en skotið er framhjá. Skagamenn líklegri til að bæta við en KA að jafna.
15. mín
Það fer ekki betur en svo að Skagamenn geysast uppí skyndisókn eftir hornspyrnuna. Tryggvi Hrafn stingur hér Almarr af en Torfi er síðan mættur og bjargar KA þarna.
14. mín
Boltinn berst hér á Hallgrím Mar sem að reynir skot en það fer í varnarmann og yfir. KA á hornspyrnu.
11. mín MARK!
Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Stefán Teitur Þórðarson
SKAGAMENN KOMNIR YFIR!!!!!!!!

Stefán Teitur tekur hér aukaspyrnu inná teiginn þar sem að Viktor er einn á auðum sjó og stangar boltann í netið. Ekki góður varnarleikur hjá KA þarna.
8. mín
Ásgeir nær að tækla boltann inná Elfar sem að er kominn í gegn en hann er flaggaður rangstæður.
7. mín
Tryggvi skýtur í átt að markinu en boltinn fer í hliðarnetið.
6. mín
Almarr er hér dæmdur brotlegur rétt fyrir utan teig. Tryggvi Hrafn ætlar að taka spyrnuna.
5. mín
Torfi með frábæra sendingu innfyrir á Ásgeir sem að er kominn einn á móti Árna Snæ sem að lokar vel fyrir skotið. Fjörug byrjun á leiknum.
4. mín
Hörður Ingi reynir hér skot fyrir utan teig sem að Aron á í bölvuðu basli með en varnarmenn KA ná að koma boltanum frá að lokum.
2. mín
Jón Gísli Eyland kemst hér inní sendingu Iosu og á hættulega sendingu ætlaða Tryggva en Aron Dagur er fljótur úr markinu og hirðir boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Þá flautar Erlendur leikinn á. ÍA byrjar með boltann.
Fyrir leik
Það er fínt veður til fótboltaiðkunnar á Akureyri í dag. Það er skýjað yfir vellinum en samt alveg temmilega hlýtt. Gæti dropað aðeins þegar að líður á leikinn. Tíu mínútur í að þessi hörkuleikur verði flautaður á.
Fyrir leik
Þá eru byrjunarliðin klár. Iosu Villar, sem að samdi við KA á dögunum kemur beint inní byrjunarliðið en hann á að fylla skarðið sem að Daníel Hafsteinsson skilur eftir sig. Daníel var seldur til Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum. Þá kemur Aron Dagur Birnuson aftur í mark KA-manna en hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Skagamenn gera eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik gegn Grindavík. Gonzalo Zamorano kemur út í stað Stefáns Teits Þórðarsonar.
Fyrir leik
Þá hafa KA menn einnig kallað varnarmanninn Ívar Örn Árnason til baka úr láni frá Víking Ólafsvík. Mikil meiðsli hafa hrjáð varnarmenn KA á þessu tímabili og gott fyrir þá að fá Ívar til baka sem að hefur spilað vel með Víking Ó. í sumar.
Fyrir leik
Það hafa orðið örlitlar breytingar á leikmannahópi KA frá síðustu umferð þegar að þeir töpuðu 2-1 gegn HK. Daníel Hafsteinsson hefur verið seldur til Helsingborg sem að spilar í sænsku úrvalsdeildinni. Daníel hefur spilað lykilhlutverk inná miðjunni hjá KA undanfarin tvö tímabil. KA-menn voru ekki lengi að fylla skarð hans en núna í vikunni sömdu þeir við hinn 32 ára gamla Iosu Villar. Villar er Spánverji sem að hefur spilað allan sinn feril í spænsku C-deildinni, núna síðast með Ibiza.
Fyrir leik
Þessi lið mættust í fyrstu umferð sumarsins en þá fóru Skagamenn með 3-1 sigur af hólmi. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvö mörk fyrir Skagamenn og Viktor Jónsson skoraði eitt. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði mark KA manna.
Fyrir leik
Heimamenn í KA sitja í 11.sæti deildarinnar með 12 stig á meðan að Skagamenn eru í 3.sæti með 21 stig. Þetta er eitthvað sem að fáir hefðu spáð fyrir mót.
Fyrir leik
Jú komiði sæl og blessuð og veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik KA og ÍA í Pepsi Max-deild karla.
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Arnar Már Guðjónsson
Einar Logi Einarsson ('67)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
8. Albert Hafsteinsson
9. Viktor Jónsson ('69)
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
18. Stefán Teitur Þórðarson ('78)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
93. Marcus Johansson

Varamenn:
1. Aron Bjarki Kristjánsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson
8. Hallur Flosason
10. Steinar Þorsteinsson
17. Gonzalo Zamorano ('69)
19. Bjarki Steinn Bjarkason ('78)

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Páll Gísli Jónsson
Arnór Snær Guðmundsson
Hlini Baldursson
Gunnar Smári Jónbjörnsson
Daníel Þór Heimisson
Sigurður Jónsson
Kjartan Guðbrandsson

Gul spjöld:
Albert Hafsteinsson ('23)
Arnar Már Guðjónsson ('33)
Marcus Johansson ('34)
Óttar Bjarni Guðmundsson ('45)
Hörður Ingi Gunnarsson ('88)

Rauð spjöld: