ÍBV
0
1
HK
0-1 Bjarni Gunnarsson '47
03.08.2019  -  14:00
Hásteinsvöllur
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 1597
Maður leiksins: Hörður Árnason
Byrjunarlið:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
Matt Garner
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson ('81)
6. Sindri Björnsson
8. Telmo Castanheira
10. Gary Martin
11. Víðir Þorvarðarson
17. Róbert Aron Eysteinsson ('66)
18. Oran Jackson
19. Breki Ómarsson ('66)

Varamenn:
93. Rafael Veloso (m)
8. Priestley Griffiths ('81)
12. Eyþór Orri Ómarsson ('66)
19. Benjamin Prah
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson
77. Jonathan Franks ('66)
92. Diogo Coelho

Liðsstjórn:
Andri Ólafsson (Þ)
Ian David Jeffs
Jóhann Sveinn Sveinsson
Björgvin Eyjólfsson
Márcio Santos

Gul spjöld:
Víðir Þorvarðarson ('59)
Sigurður Arnar Magnússon ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Helgi Mikael hefur flautað leikinn af.

HK-ingar fara heim með þrjú stigin eftir þennan leik.
90. mín
Uppbótartími: Þrjár mínútur
90. mín Gult spjald: Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV)
86. mín
Ásgeir með slaka spyrnu beint á Halldór Pál.
85. mín
Sigurður Arnar brýtur á Emil Atla rétt fyrir utan vítateig ÍBV. Þetta er stórhættulegur staður og klaufalegt hjá Sigurði.
81. mín
Inn:Priestley Griffiths (ÍBV) Út:Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Síðasta skipting leiksins.
81. mín
Birnir Snær með sprett upp völlinn og fær nægan tíma til að skjóta á markið. Skotið hinsvegar framhjá markinu.
79. mín
Birnir Snær með skot innan teigs sem Halldór Páll ver í stöngina og boltinn fer síðan aftur fyrir.
77. mín
Ásgeir Marteins með sendingu fyrir markið sem Sigurður Arnar hreinsar í horn.
74. mín
Inn:Birnir Snær Ingason (HK) Út:Valgeir Valgeirsson (HK)
Nýjasti leikmaður HK-inga kemur inná.
71. mín
Inn:Emil Atlason (HK) Út:Bjarni Gunnarsson (HK)
Bjarni fer meiddur af velli.
70. mín
ÍBV er svo langt frá því að vera líklegir til að jafna þennan leik.
66. mín
Inn:Jonathan Franks (ÍBV) Út:Breki Ómarsson (ÍBV)
66. mín
Inn:Eyþór Orri Ómarsson (ÍBV) Út:Róbert Aron Eysteinsson (ÍBV)
66. mín
ÍBV fær hornspyrnu.

Bjarni Gunnarsson haltrar og virðist vera á leiðinni útaf.
65. mín
Tvöföld skipting í vændum hjá ÍBV. Eyþór Orri og Jonathan Franks á leiðinni inná.
61. mín
Breki reynir fyrirgjöf sem fer í Atla og Eyjamenn fá hornspyrnu.
60. mín Gult spjald: Leifur Andri Leifsson (HK)
Brýtur á Gary Martin. Klaufalegt hjá Leif Andra en hárréttur dómur hjá Helga Mikael sem hefur dæmt þennan leik virkilega vel.
59. mín Gult spjald: Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Fer óvart í Arnar Frey markvörð HK-inga.
54. mín
Inn:Alexander Freyr Sindrason (HK) Út:Björn Berg Bryde (HK)
Alexander Freyr kominn inná í sínum fyrsta leik í efstu deild.
53. mín
Það verður ekkert úr hornspyrnu Eyjamanna. HK-ingar eru manni færri þessa stundina.
52. mín
Björn Berg Bryde virðist vera meiddur og Alexander Freyr Sindrson er líklegur að koma inná, í hans stað.
52. mín
Breki Ómarsson reynir fyrirgjöf sem Ásgeir Börkur hreinsar í horn.
50. mín
Ef þetta endar svona, þá er HK komnir með 21 stig eftir 15 leiki. Hver hefði trúað því?
49. mín Gult spjald: Hörður Árnason (HK)
Stöðvar sókn ÍBV á vallarhelmingi Eyjamanna.
47. mín MARK!
Bjarni Gunnarsson (HK)
HK-ingar eru komnir yfir!

Þetta var klaufalegt í meira lagi, ég segi ekki annað.

Það var engin hætta en Sigurður Arnar ætlar að skalla boltann aftur til Halldórs í markinu en Halldór Páll var kominn útúr markinu en Sigurður Arnar var ekki var við það.

Bjarni Gunnarsson leggur boltann því í tómt markið.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikurinn er kominn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael hefur flautað til hálfleiks.

Um leið og leikurinn var farinn að bjóða upp á skemmtun þá þarf að taka hlé. Það verður að hafa það.

Markalaust og vonandi fáum við mark eða mörk í þeim seinni.
45. mín
STÓRSÓKN HJÁ HK-INGUM!

Halldór Páll varði í tvígang og Sigurður Arnar náði síðan að kasta sér fyrir skot frá Arnþóri Ara. Valgeir átti fyrsta skotið og Ásgeir Marteins. það síðasta.
45. mín
Uppbótartími: 1 mínúta
45. mín
Birkir Valur með slakt skot utan teigs framhjá markinu.
44. mín
Sigurður Arnar nær ekki að stýra boltanum á markið en hann átti skalla að marki af stuttu færi. Þarna voru Eyjamenn ekki langt frá því að komast yfir.
38. mín
Það er aðeins að lifna við þessu hér á vellinum og búið að fjölga töluvert í stúkunum.
38. mín
Matt Garner með fyrirgjöf sem fer yfir pakkann og þar lúrir Víðir á fjærstönginni og á hörkuskot beint á Arnar Frey sem þarf að hafa sig allan við í markinu.
36. mín
Ásgeir Marteins með hornspyrnuna með vinstri í átt að Birki Val sem virðist ekki hitta boltann.
35. mín
HK-ingar fá hornspyrnu. Sennilega þeirra fyrsta hornspyrna í leiknum.
35. mín
Hættulegustu sóknir ÍBV koma eftir langar sendingar frá Halldóri fram allan völlinn.

Leifur Andri hefur verið í basli með þessar sendingar og misst amk. tvo bolta yfir sig.
34. mín
Arnar Freyr markvörður HK dæmdur brotlegur við hornfánann í baráttunni við Víði.
33. mín
Arnþór Ari með fyrirgjöf frá endalínunni sem endar sem marktilraun og Halldór Páll þarf að slá boltann í burtu.
32. mín
Sindri Björns einn gegn Arnari Frey en hann nær ekki að koma boltanum framhjá honum.
29. mín
Hörður Árnason með laflaust skot innan markteigs beint á Halldór Pál í markinu. HK-ingar unnu þarna nokkrar baráttur sem endaði með því að boltinn datt til Harðar.
28. mín
Telmo Castanheira brýtur á Arnþóri Ara á miðjum vallarhelmingi ÍBV og HK-ingar fá aukaspyrnu.
26. mín
Tvær ágætis fyrirgjafir frá báðum liðum er allt of sumt þessar fyrstu 25 mínútur leiksins.
25. mín
Hörður með fyrirgjöf frá endalínunni fyrir markið en Oran Jackson gerði vel og kom sér fyrir boltann áður en Valgeir komst að boltanum.
24. mín
Matt Garner með fyrirgjöf frá vinstri sem Gary Martin nær að skalla að marki en Arnar Freyr grípur boltann auðveldlega. Skalli Gary var laus en hann var í erfiðri stöðu til að gera eitthvað betur úr þessu.
20. mín
Víðir Þorvarðarson dæmdur brotlegur og Eyjamenn tryllast. Helgi Mikael þarf að róa mannskapinn niður og þá sérstaklega Víði.

Eftir að hafa séð endursýningu þá er þetta háréttur dómur.
19. mín Gult spjald: Atli Arnarson (HK)
Fyrsta spjald leiksins. Fer harkalega í Sindra Björnsson og uppsker gult spjald.
18. mín
Þetta er allt saman rosalega rólegt hér í Eyjum. Vægast sagt.
12. mín
Atli Arnarson sendir boltann innfyrir vörn ÍBV ætlaða Ásgeiri Marteins. sem var réttilega flaggaður rangstæður.
10. mín
Hornspyrna Víðis fer yfir allan pakkann og HK-ingar fá markspyrnu.
10. mín
Gary Martin kominn einn gegn Arnari Frey en Ásgeir Börkur kemur til bjarga og henti sér fyrir skot Gary.
7. mín
Felix Örn er í hægri bakverði ÍBV í dag og Matt Garner í þeim vinstri.
7. mín
Halldór Páll með rosalega langa sendingu yfir allan völlinn, yfir Leif Andra í vörninni og Víðir hársbreidd frá því að ná til boltans en Arnar Freyr náði til boltans á síðustu stundu.
4. mín
Mikil barátta hérna fyrstu mínúturnar.
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Styttist heldur betur í leik. Það er að fjölga í stúkunni með hverri mínútunni en maður hefði viljað sjá fleiri en það verður að hafa það.
Fyrir leik
20 mínútur í leik og fólk er farið að mæta á völlinn. Það er gott sem logn hér í Eyjum í dag en frekar skýjað.
Fyrir leik
HK gerði 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í síðustu umferð í Kórnum þar sem Atli Arnarson jafnaði metin fyrir HK eftir að Stjarnan komst yfir í leiknum.
Fyrir leik
ÍBV tapaði í síðustu umferð 2-1 gegn Grindavík, í Grindavík en þá komst ÍBV yfir í leiknum með marki frá Gary Martin.
Fyrir leik
Birnir Snær Ingason nýjasti leikmaður HK er á varamannabekknum í dag en hann var keyptur frá Val í vikunni.
Fyrir leik
Eyjamenn gera enga breytingu frá tapinu gegn Grindavík á meðan Björn Berg Bryde kemur inn í byrjunarlið HK í stað Emil Atlasonar. HK gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna í síðustu umferð.
Fyrir leik
ÍBV situr í neðsta sæti deildarinnar með fimm stig á meðan HK er í 8.sæti með 18 stig.
Fyrir leik
Þá er komið að leik ÍBV og HK sem fram fer í Pepsi Max deildinni í dag á Hásteinsvellinum.
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
Bjarni Gunnarsson ('71)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
14. Hörður Árnason
17. Valgeir Valgeirsson ('74)
18. Atli Arnarson
24. Björn Berg Bryde ('54)

Varamenn:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson
7. Birnir Snær Ingason ('74)
9. Brynjar Jónasson
16. Emil Atlason ('71)
20. Alexander Freyr Sindrason ('54)
21. Andri Jónasson

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Matthías Ragnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Sigurður Viðarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus

Gul spjöld:
Atli Arnarson ('19)
Hörður Árnason ('49)
Leifur Andri Leifsson ('60)

Rauð spjöld: