Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Grótta
4
3
Keflavík
0-1 Frans Elvarsson '8
Pétur Theódór Árnason '31 1-1
1-2 Davíð Snær Jóhannsson '36
Pétur Theódór Árnason '55 2-2
Axel Freyr Harðarson '68 3-2
3-3 Adam Ægir Pálsson '75
Arnar Þór Helgason '90 4-3
09.08.2019  -  19:15
Vivaldivöllurinn
Inkasso deildin - 1. deild karla
Aðstæður: Sól og blástur
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Arnar Þór Helgason
Byrjunarlið:
1. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
Dagur Guðjónsson
Halldór Kristján Baldursson ('84)
2. Arnar Þór Helgason
3. Bjarki Leósson
10. Kristófer Orri Pétursson (f) ('90)
19. Axel Freyr Harðarson
22. Ástbjörn Þórðarson
25. Valtýr Már Michaelsson
29. Óliver Dagur Thorlacius
77. Pétur Theódór Árnason

Varamenn:
12. Theodór Árni Mathiesen (m)
8. Júlí Karlsson
11. Sölvi Björnsson ('90)
16. Kristófer Scheving
17. Agnar Guðjónsson
21. Óskar Jónsson ('84)

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason
Leifur Auðunsson
Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Gul spjöld:
Bjarki Leósson ('23)
Kristófer Orri Pétursson ('59)
Pétur Theódór Árnason ('64)
Axel Freyr Harðarson ('85)
Ástbjörn Þórðarson ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta var ROSALEGT!
90. mín
Inn:Sölvi Björnsson (Grótta) Út:Kristófer Orri Pétursson (Grótta)
90. mín MARK!
Arnar Þór Helgason (Grótta)
Stoðsending: Pétur Theódór Árnason
MAAAAAAAAAAAAARKKK!!!!

Pétur sterkur nær boltanum niður og leggur hann á Arnar sem setur hann og er líklega að skila þrem punktum heim á nesið.
90. mín
Axel reynr að troða sér í gegn en vörn gestanna þétt.
90. mín Gult spjald: Dagur Ingi Valsson (Keflavík)
88. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (Grótta)
85. mín Gult spjald: Axel Freyr Harðarson (Grótta)
Axel rennir sér á eftir boltanum og bendir dómaranum á að þetta sé vitlaust hjá honum en fær gult spjald engu að síður.
84. mín
Inn:Óskar Jónsson (Grótta) Út:Halldór Kristján Baldursson (Grótta)
82. mín
Hlutirnir eru við suðumark hérna og eru stuðningsmenn beggja liði ekkert brjálaðslega sammála hvor öðru.
80. mín
Inn:Ingimundur Aron Guðnason (Keflavík) Út:Adolf Mtasingwa Bitegeko (Keflavík)
79. mín
Gestirnir eru að lifna síðasta korterið og er spurning hvort að eitthvað lið nái að stela punktunum þrem.
75. mín MARK!
Adam Ægir Pálsson (Keflavík)
Skoraði eftir að boltinn fór af varnarmanni Gróttu og engin rangstaða.
73. mín
Sindri rennur þegar hann mætir sendingu og grípur boltann. Elías dæmir óbeina aukaspyrnu inni í teig.

Axel setur hann rétt yfir markið
72. mín
Davíð Snær með ansi listilegann kloppa en skýtur beint í Arnar Þórþ
68. mín MARK!
Axel Freyr Harðarson (Grótta)
Stoðsending: Arnar Þór Helgason
Úr horni AFTUR. Boltinn dettur niður í teiginn og eftir mikið kraðak í teignum þá rennir Arnar Þór honum á Axel sem setur hann í netið.
67. mín
Frábær sókn hjá Gróttu endar í löppunum á Pétri en vörn gestanna enn og aftur að hreinsa í horn.
64. mín Gult spjald: Pétur Theódór Árnason (Grótta)
Stöðvar skyndisókn Keflvíkinga.
62. mín
Ástbjörn fær boltann á sprettinum en Ísak Óli með flotta tæklingu eftir að Ástbjörn missti hann of langt frá sér og Keflavík fær aukaspyrnu
60. mín
Ástbjörn með svakalegan sprett sem endar með hreinsun út í horn. Svo sannarlega ekki í fyrsta sinn sem það hefur gerst í þessum leik.
59. mín Gult spjald: Kristófer Orri Pétursson (Grótta)
57. mín
Pétur aftur á ferð en skotið af varnarmanni og Grótta fær horn.

Ástbjörn dæmdur brotlegur í teignum þannig ekkert verður úr þessu.
55. mín MARK!
Pétur Theódór Árnason (Grótta)
Stoðsending: Óliver Dagur Thorlacius
Sama formúla sama niðurstaða. Boltinn kemur nálægt markinu og Pétur hoppar upp hærra en allir hinir og setur hann í netið
55. mín
Axel með flott hlaup og nær að vinna hornspyrnu
52. mín
Stórhættuleg sókn hjá Gróttu!!!

Gróttumenn vilja víti og vilja meina að það hafi verið brotið á Kristófer Orra í teignum en Sindri í marki Keflavík liggur eftir og er að fá aðstoð.
50. mín
Inn:Adam Ægir Pálsson (Keflavík) Út:Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson (Keflavík)
48. mín
Boltinn dettur inn í teiginn hjá Gróttu en Gunnólfur nær ekki í hann og Hákon nær að handsama boltann.
45. mín
Leikur hafinn
Þá byrjar þetta aftur.
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir með forustu í hálfleik.
45. mín
+1
44. mín
Ástbjörn vinnur boltann af Frans og nær að sækja hratt á mark Keflvíkinga en Ísak Óli hreinsar í horn.
41. mín Gult spjald: Ísak Óli Ólafsson (Keflavík)
39. mín
Þetta hefur verið mikil barátta milli liða og eru þau bæði í basli með að koma sér í færi á síðasta þriðjung vallarins.
36. mín MARK!
Davíð Snær Jóhannsson (Keflavík)
Stoðsending: Þorri Mar Þórisson
Davíð fær að labba inná teiginn og setur hann auðveldlega í hornið.
31. mín MARK!
Pétur Theódór Árnason (Grótta)
Stoðsending: Kristófer Orri Pétursson
Hornspyrnan skilar þar sem Pétur stekkur manna hæst og stangar boltann í netið
31. mín
Ástbjörn með frábærann sprett og skilur Ísak Óla eftir en Keflvikingar hreinsa í horn
27. mín
Axel Freyr með flottan sprett inn á teiginn en færið orðið frekar þröngt og Sindri ver þetta yfir í horn
23. mín Gult spjald: Bjarki Leósson (Grótta)
21. mín
Ástbjörn gerir vel í að koma upp kantinn en Magnús Þór kemur boltanum í burtu
20. mín Gult spjald: Frans Elvarsson (Keflavík)
Fær gult eftir skallaeinvígi við Valtý Má
18. mín
Gróttumenn eru ekki að ná að spila úr pressu gestanna og þarf Hákon að sparka boltanum í innkast eftir stífa pressu Keflvíkinga.
16. mín
Keflavík aftur að skapa sér færi og Gunnólfur kemur sér í flott færi en rennur á ótrúlegan hátt áður en hann nær að koma skotinu á rammann.
14. mín
Of einfallt fyrir Keflavík sem nær að tengja saman fjórar sendingar og skapa færi sem Hákon ver.
13. mín
Flott sókn hjá Gróttu sem endar með skoti frá Degi sem fer rétt svo framhjá
11. mín
Keflavík nær að sækja hratt en Bjarki Leósson kemur á sprettinum og vinnur boltann löglega en Elías ekki sammála og dæmir aukaspyrnu
8. mín MARK!
Frans Elvarsson (Keflavík)
Stoðsending: Magnús Þór Magnússon (f)
Hornspyrna sem fer á nær þar sem Magnú skallar hann áfram á Frans sem setur hann upp í hornið vinstra megin
7. mín
Úff.

Keflvíkingar ná að sækja hratt og kemur hættulegur bolti í teiginn sem Þorri hittir ekki eftir að hafa runnið til í teignum
7. mín
Ástbjörn gerir vel í að skapa pláss á kantinum og endar með að vinna hornspyrnu.

Hún fer yfir allt og alla
5. mín
Gestirnir virðast vel gíraðir í leikinn og gefa Gróttumönnum lítinn tíma til að spila á milli sín
1. mín
Keflavík vinnur boltann hátt á vellinum og Þorri Mar nær skoti sem Hákon ver.
1. mín
Leikur hafinn
Grótta byrjar þetta!
Fyrir leik
Liðin ganga nú inná völlinn undir fallega sálmi Mötley Crüe, Kickstart my heart. Grótta er í bláum búningum og Keflavík í hvítum.
Fyrir leik
Vonandi fáum við hörkuleik hérna á Vivaldi vellinum í kvöld.
Fyrir leik
Virkir lesendur á miðlinum tóku eflaust eftir því að Doddi litli spáði Gróttu 2 - 0 sigri í kvöld og verður spennandi að sjá hvort sú spá reynist rétt.
Fyrir leik
Grótta hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið og hefur komið mörgum á óvart. En Óskar og hans menn hafa ekki tapað leik síðan 24. maí.

Keflavík hefur verið ansi mikið upp og niður í síðustu leikjum og hafa unnið tvo tapað tveim og gert eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum.
Fyrir leik
Þetta er virkilega mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Grótta þarf þrjú stig til að geta haldið í við Þór og Fjölni sem sitja í efstu tveim sætunum. Keflavík er einnig að leita að þrem stigum til að halda í við hópinn sem berst um annað sætið í deildinni.
Fyrir leik
Komið sæl og verið velkomin á þessa beinu textalýsingu í 16. umferð Inkasso deildar karla þegar Grótta fær Keflavík í heimsók.
Byrjunarlið:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
2. Ísak Óli Ólafsson
5. Magnús Þór Magnússon (f) (f)
6. Adolf Mtasingwa Bitegeko ('80)
7. Davíð Snær Jóhannsson
10. Dagur Ingi Valsson
15. Þorri Mar Þórisson
16. Sindri Þór Guðmundsson
18. Cezary Wiktorowicz
19. Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson ('50)
25. Frans Elvarsson (f)

Varamenn:
12. Þröstur Ingi Smárason (m)
23. Einar Örn Andrésson
24. Adam Ægir Pálsson ('50)
28. Ingimundur Aron Guðnason ('80)
31. Elton Renato Livramento Barros
38. Jóhann Þór Arnarsson
45. Tómas Óskarsson

Liðsstjórn:
Eysteinn Húni Hauksson Kjerúlf (Þ)
Ómar Jóhannsson
Þórólfur Þorsteinsson
Jón Örvar Arason
Anton Freyr Hauks Guðlaugsson
Veigur Sveinsson
Milan Stefán Jankovic

Gul spjöld:
Frans Elvarsson ('20)
Ísak Óli Ólafsson ('41)
Dagur Ingi Valsson ('90)

Rauð spjöld: