Breiðablik
3
3
Valur
0-1 Birkir Már Sævarsson '14
0-2 Patrick Pedersen '19
Brynjólfur Darri Willumsson '37 1-2
Andri Rafn Yeoman '41 2-2
Brynjólfur Darri Willumsson '61 3-2
3-3 Haukur Páll Sigurðsson '69
19.08.2019  -  19:15
Kópavogsvöllur
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Frábærar!
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1310
Maður leiksins: Brynjólfur Darri Willumsson (Breiðablik)
Byrjunarlið:
Gunnleifur Gunnleifsson
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('31)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
11. Gísli Eyjólfsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Alfons Sampsted
30. Andri Rafn Yeoman
45. Guðjón Pétur Lýðsson
45. Brynjólfur Darri Willumsson

Varamenn:
12. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
8. Viktor Karl Einarsson ('31)
16. Guðmundur Böðvar Guðjónsson
17. Þórir Guðjónsson
18. Arnar Sveinn Geirsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
62. Ólafur Guðmundsson

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Jón Magnússon
Marinó Önundarson
Aron Már Björnsson
Guðmundur Steinarsson
Andri Roland Ford

Gul spjöld:
Viktor Karl Einarsson ('89)
Gísli Eyjólfsson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ívar Orri er búinn að flauta þessa sýningu af!

Þvílíkur leikur... Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
93. mín Gult spjald: Gísli Eyjólfsson (Breiðablik)
Gísli tekur glímubragð á Hedlund til að stoppa skyndisókn og fær réttilega gult!

Þetta var klókt hjá Gísla.
93. mín
Blikar fá aukaspyrnu á góðum stað!

Gaui með spyrnuna á kollinn á Viktori Erni sem flikkar boltanum fyrir markið og Brynjólfur var svona tveimur skónúmerum frá því að pota boltanum inn!
91. mín
Jesús minn Emil Lyng...

Kristinn Freyr gerir hrikalega vel í fyrsta skiptið í svona 60 mínútur, sólar þrjá og leggur boltann á Emil Lyng sem er í góðri stöðu með boltann á vinstri en er alltof lengi að koma sér í skotið og er étinn af Viktor Erni og brýtrur svo á honum.
89. mín Gult spjald: Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Viktor aðeins of seinn inn í Bjarna Ólaf sem var að negla boltanum fram.
89. mín
Brilli Balotelli fíflar Hedlund með fyntu og stúkan tekur við sér, Davíð Ingvars á svo afleitt skot í kjölfarið yfir.
88. mín
Inn:Emil Lyng (Valur) Út:Patrick Pedersen (Valur)
87. mín
Blikar með góða skyndisókn, Alfons rennir boltanum til hliðar á Gísla sem tekur skotið með vinstri en Hannes á ekki í miklum vandræðum með það.

Patrick liggur eftir á vellinum og Valsarar setja boltann útfyrir.
82. mín
Blikar fá hornspyrnu úti hægra megin, Gaui spyrnir inn á teiginn en Valsarar skalla frá.
81. mín
Blikar fá enn eina hornspyrnuna.

Gauji sendir boltann út og þaðan kemur neglar inn í þvöguna en Valsarar koma boltanum frá.
79. mín
Núna þarf Ívar að stoppa leikinn eftir einhver átök og kalla Damir og Hedlund til sín, alvöru hiti í þessu!
78. mín Gult spjald: Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur)
Brynjólfur liggur eftir á vellinum og enginn virðist sjá hvað gerðist enda var boltinn ekki nálægt, aðstoðardómarinn virðist hinsvegar hafa séð eitthvað og gefur Ívari orð í eyra um gult á Bjarna Ólaf.
76. mín
Vá! - Brynjólfur með geggjaðan boltan á fjær þar sem Höggi er að mæta á fullri ferð en Birkir Már var nokkrum sentímetrum á undan og bjargar.
74. mín
Þessi spyrna er full löng, yfir pakkann og á fjær í erfiða stöðu þar sem Valsarar koma boltanum burt.
74. mín
Blikar fá hornspyrnu, í þetta sinn mætir Davíð Ingvars á stjá.
69. mín MARK!
Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Stoðsending: Birkir Már Sævarsson
MAAARK!

HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA, ÞETTA ER GEGGJAÐUR LEIKUR!!!

Birkir Már kemur með fyrirgjöfina frá hægri, hefur nægan tíma til að teikna boltann á kollinn á Hauk Pál sem klikkar ekki á skallafæri inní markteig.

3-3 og allt í járnum!
68. mín
Inn:Kaj Leo í Bartalsstovu (Valur) Út:Andri Adolphsson (Valur)
Óli Jó er kominn með nóg.
67. mín
DAVÍÐ MEÐ SPYRNUNA - Fast í markmannshornið, ekki nógu langt í hornið þó og Hannes heldur boltanum.

Fín tilraun.
66. mín
Blikar gjörsamlega að yfirspila Val sem kemst ekki yfir miðju!

Haukur Páll brýtur núna og Högga rétt fyrir utan teiginn, inní D boganum.

Guðjón og Davíð standa yfir boltanum.
65. mín
DAUÐAFÆRI!!!

Alfons með frábæra sendingu fyrir markið alla leið á fjær þar sem Viktor Karl tekur góða móttöku og kemur sér beint í skotið en núna sýnir Hannes afhverju hann er í landsliðinu og ver frábærlega!
64. mín
HÖSKULDUR með skotið en rétt framhjá!

Flott sókn hjá Blikum sem finna Högga í svæðið fyrir framan teiginn og hann fær tíma til að koma sér í gott skotfæri en hittir ekki markið.

Varnarleikur Vals í molum hérna.
61. mín MARK!
Brynjólfur Darri Willumsson (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Örn Margeirsson
GUÐ MINN ALMÁTTUGUR!

Spyrnan frá Guðjóni var afleit en á einhvern ótrúlegan hátt missir Kristinn Ingi boltann undir sig þegar hann reynir að hreinsa, boltinn berst óvænt í þvögu inná teignum og aftur er það Brynjólfur sem er fljótastur að hugsa og potar boltanum laflaust í átt að markinu og boltinn lekur inn, Hannes var lagstur og náði ekki til boltans.

Eins asnalegt og aulalegt og mörkin verða af hálfu Vals.
61. mín
Nú fá Blikar horn.
60. mín
Brilli Balotelli leikur listir sínar úti vinstra megin og sólar mann og annan en uppsker ekki meira en innkast, skemmtilegir taktar þó.
58. mín
Haukur Páll togar létt í Gísla til að stoppa hann á miðjunni og Blikarnir hópast að Ívari Orra, vilja væntanlega gult.

Því miður Blikanna vegna þá ráða þeir því ekki neitt og Ívar Orri segir þeim að hypja sig burt.
55. mín
Blikar með fína sókn, vinna boltann ofarlega hægra megin og Alfons neglir boltanum útfyrir teiginn á Guðjón sem kemur á siglingunni og neglir boltanum yfir.
53. mín
Bæði lið eru að spila boltanum ágætlega en ná ekki að búa til almennileg færi.
47. mín
Sebastian sólar Viktor Karl á miðjunni og rennir boltanum á Kristinn Inga sem er í vænlegri stöðu en átti ömurlega móttöku og Davíð Ingvars bjargar Blikum.

Hefði verið virkilega hættulegt ef Kristinn hefði tekið almennilega á móti boltanum.
46. mín
Leikurinn er kominn í gang aftur!

Gísli Eyjólfs fær að eiga fyrstu snertingu seinni hálfleiks.
45. mín
Hálfleikur
Ívar flautar sig í pásu, hefur haft nóg að gera hérna í fyrri hálfleik.
45. mín
+3

Haukur Páll fer í groddaralega tæklingu og tekur boltann beint fyrir framan Ragnar Þór Bender sem flaggar eins og óður maður og Ívar dæmir brot, við það verður Haukur hinsvegar óður maður og ekki sáttur, en mér fannst tæklingin frekar glórulaus og verðskuldað brot.

Spyrnan er slök og yfir allan pakkann.
45. mín
Eiður Aron skallar langan bolta frá Gulla burt en liggur eftir og heldur um andlitið, virðist hafa stangað boltann með nefinu, sem er hrikalega vont!
43. mín Gult spjald: Patrick Pedersen (Valur)
Kominn einhver pirringur í Valsara.
41. mín MARK!
Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
VAAAÁÁÁ HVAÐA RUGL ER ÞETTA?!?

Spyrnan frá Gauja er góð og Hannes er í vandræðum en kýlir boltann frá en ekki langt, þar mætir Andri Rafn og smellir boltanum í fyrsta á lofti beint upp í samskeytinn! - Það er nákvæmlega svona sem á að klára færi.

Horfið líka á þetta í Pepsi mörkunum eða einhversstaðar...
40. mín
Blikar fá hornspyrnu sem Guðjón Pétur ætlar að taka.
37. mín MARK!
Brynjólfur Darri Willumsson (Breiðablik)
MAAAARK!!!

Lítið búið að gerast í leiknum síðustu mínútur en núna poppa Blikar upp með flotta sókn, boltinn er lagður út á Gísla sem tekur skotið fyrir utan teig í varnarmenn Valsara og Brynjólfur er fljótastur að hugsa og tekur skotið á sama tíma og hann snýr sér að markinu og hamrar boltann upp í þaknetið af stuttu færi!

Líflína fyrir Blika og mikilvægt að ná þessu marki inn fyrir hálfleik.
31. mín
Hornspyrnan frá Gauja er skölluð frá af Hauk Pál en Blikar koma boltanum aftur fyrir og Damir fer í baráttuna gegn Hannesi og fær annað horn.

Núna koma Valsarar boltanum frá.
31. mín
Inn:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) Út:Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik)
30. mín
Aftur fá Blikar horn en Alexander Helgi situr á vellinum og grjótharður Andri Ford skokkar inn á völlinn.

Gulli kallar á Gumma Steinars og segir þeim að undirbúa skiptingu, þetta er ekki gott!

Tveir leikmenn búnir að meiðast í fyrri hálfleik.
29. mín
Blikar fá hornspyrnu og stuðningsmennirnir taka við sér.

Einhver stutt útfærsla sem endar með fyrirgjöf frá Gauja og skalla frá Högga en Eiður Aron kemur hættunni frá.
24. mín
Kristinn Ingi er að taka hlaupið inn á teiginn og Damir sýndist mér togar létt í treyjuna hjá Kristni, það hafði þó engin áhrif og var ekki mikið en Valsarar brjálast.

Fannst þetta ekki víti, treyjan blakti aðeins en Kristinn virtist varla finna fyrir þessu og hefði aldrei náð til boltans.
21. mín
Núna þarf Gulli aðhlynningu, eitthvað vesen á öxlinni á honum en ef einhver getur fixað það í einum grænum er það Andri Ford, blessunarlega fyrir Gulla...

Blikar nýta tímann og fara allir í hring að ræða málin, svona svipað og krísufundurinn hjá KR gegn HK, en Kristinn Freyr stendur þarna innan um leikmenn Blika og virðist fá að taka þátt, skondið atvik.
19. mín MARK!
Patrick Pedersen (Valur)
Stoðsending: Andri Adolphsson
MAAAARK!!!

Valsarar eru komnir í 2-0!

Guðjón Pétur með snemmbúna jólagjöf hérna en boltinn berst til hans á miðjunni og hann rennir boltanum bara á Andra Adolphs sem er einn gegn Viktori Erni, Andri rennir boltanum í hlaupið hjá Patrick sem er einn gegn Gulla og á ekki í neinum vandræðum með að setja boltann framhjá honum.

Blikar eru komnir í brekku!
19. mín
Inn:Kristinn Ingi Halldórsson (Valur) Út:Sigurður Egill Lárusson (Valur)
17. mín
Úff, Siggi Lár er að taka sprettinn í gegn og virðist togna aftan í læri, það leit út eins og hann hafi verið skotinn í löppina.

Börurnar kallaðar til og allt, hann er klárlega að ljúka leik hér.
14. mín MARK!
Birkir Már Sævarsson (Valur)
Stoðsending: Sigurður Egill Lárusson
VAAAAÁÁÁÁ - STURLAÐ MARK!

Kristinn Freyr fær boltann á miðjunni og tekur gjörsamlega geggjaðan snúning og skilur miðjumenn Blika eftir, snuddar boltann innanfótar í gegn á Sigga Lár sem keyrir að markinu og neglir boltanum svo fyrir þar sem Birkir Már mætir á svona 47 km/h og setur boltann í netið, gjörsamlega sturluð sókn hjá Val!

Hvet fólk til að horfa á Pepsi mörkin eða eitthvað til að sjá þennan snúning hjá Kidda!
11. mín
Andri Rafn reynir fyrirgjöf langt utan af velli og Brynjólfur er ekki langt frá því að pota tánni í boltann en Hannes grípur.
8. mín
Gestirnir frá Hlíðarenda byrja þennan leik talsvert betur, halda boltanum vel og spila sig í gegnum Blikana.

Núna kemst Siggi Lár í góða stöðu, tekur fyrirgjöfina en Kristinn Freyr er ekkert rosalega hávaxinn og nær ekki að vinna skallaeinvígið, boltinn berst hinsvegar út á Patrick sem tekur skotið í varnarmann og framhjá.

Ekkert verður úr hornspyrnunni frá Kidda.
5. mín
Valsarar með skemmtilegt spil inná vítateig Blika, Birkir, Kiddi og Andri spila þríhyrninga og einnar snertingar fótbolta en koma sér aldrei í skotið.
3. mín
VÁ! - ÞARNA SLAPP HANNES HELDUR BETUR MEÐ SKREKKINN.

Blikar lauma boltanum inn á Höskuld sem fær Hannes á móti sér en Hannes nær ekki að grípa boltann og missir Högga framhjá sér sem bjóst ekki við þessu og varnarmaður kemur boltanum í horn. - Höggi hefði bara þurft að renna honum yfir línuna!

Ekkert verður úr hornspyrnunni.
1. mín
Leikur hafinn
Ívar Orri er búinn að flauta leikinn á.

Valsarar byrja með boltann og sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Jæja gott fólk, nú leiðir Ívar Orri liðin til vallar ásamt aðstoðarmönnum sínum sem eru Birkir Sigurðarson og Ragnar Þór Bender undir tónlist frá Metallica!

Veislan er að bresta á.
Fyrir leik
Elfar Freyr Helgason er ekki með Breiðabliki í kvöld. Ástæðan er sú að hann tekur út leikbann vegna uppsafnaðra áminninga í deildinni.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Bæði lið eru komin út til að hita upp.

Sólin skín svona eins og vanalega þetta sumarið og fólk er að flykkjast á völlinn, reikna með að við fáum eðal knattspyrnuleik hérna í Kópavoginum í kvöld.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn hér til hliðar.

Brynjólfur Darri byrjar uppi á topp í fjarveru Thomasar Mikkelsen sem tekur út leikbann.
Fyrir leik
Í fyrri leik liðanna á Hlíðarenda unnu Blikar 1-0 sigur og í þeim leik fékk Kristinn Freyr rautt spjald fyrir glórulausa tæklingu undir lokin.

Verður svipaður hiti í leiknum í kvöld?
Fyrir leik
Blikar eru búnir að vinna tvo deildarleiki í röð eftir að hafa ekki unnið leik í rúmar 6 vikur!
Þeir hinsvegar töpuðu undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins gegn Víkingum í síðasta leik þannig þeir vilja væntanlega koma sér sem fyrst á sigurbraut.

Valsarar töpuðu sínum fyrsta leik í síðustu átta leikjum gegn FH í síðustu umferð þannig þeir vilja væntanlega sömuleiðis koma sér aftur á sigurbraut.

Ég á von á að við fáum hörku leik, enda tvö góð lið að eigast við sem töpuðu bæði síðast þegar þau spiluðu.
Fyrir leik
Dómari leiksins er enginn annar er toppmaðurinn af Skaganum, Ívar Orri Kristjánsson.

Ef ég þekki minn mann rétt þá verður dómgæsla upp á 10 hér í kvöld.
Fyrir leik
Þetta er sannkallaður Evrópusætisbaráttuslagur, en það eru mörg lið í þeirri baráttu sem gerir það að verkum að öll stig eru gríðarlega mikilvæg!

Valur hreinlega verður að vinna þennan leik til að koma sér í fína stöðu í þessari baráttu en Blikar verða að vinna til að koma sér í þægileg mál í bili.

Vinni Valsmenn þétta þeir þennan pakka svakalega.
Fyrir leik
Góða kvöldið gott fólk og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Blika og Vals!
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
Haukur Páll Sigurðsson
2. Birkir Már Sævarsson
6. Sebastian Hedlund
9. Patrick Pedersen ('88)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson ('19)
17. Andri Adolphsson ('68)
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
4. Einar Karl Ingvarsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('19)
24. Valgeir Lunddal Friðriksson
28. Emil Lyng ('88)
77. Kaj Leo í Bartalsstovu ('68)

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Halldór Eyþórsson
Fannar Gauti Dagbjartsson
Einar Óli Þorvarðarson
Kristófer Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Patrick Pedersen ('43)
Bjarni Ólafur Eiríksson ('78)

Rauð spjöld: