Fylkir
3
2
HK
Hákon Ingi Jónsson '8 1-0
1-1 Birkir Valur Jónsson '19
Valdimar Þór Ingimundarson '28 2-1
2-2 Ásgeir Marteinsson '52
Geoffrey Castillion '55 3-2
Valdimar Þór Ingimundarson '58
26.08.2019  -  19:15
Würth völlurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Vindstrengur að mestu þvert á völl en þó aðeins á annað markið, gengur á með rigningu, 12 stiga hiti. Teppið rennblautt og slétt.
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 911
Maður leiksins: Geoffrey Castillion
Byrjunarlið:
32. Stefán Logi Magnússon (m)
Daði Ólafsson
2. Ásgeir Eyþórsson
6. Sam Hewson
9. Hákon Ingi Jónsson ('63)
10. Andrés Már Jóhannesson ('59)
11. Valdimar Þór Ingimundarson
16. Ólafur Ingi Skúlason
20. Geoffrey Castillion ('80)
23. Ari Leifsson
28. Helgi Valur Daníelsson

Varamenn:
31. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
4. Andri Þór Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson ('63)
8. Ragnar Bragi Sveinsson
13. Arnór Gauti Ragnarsson ('80)
16. Emil Ásmundsson ('59)
17. Birkir Eyþórsson

Liðsstjórn:
Rúnar Pálmarsson (Þ)
Ólafur Ingi Stígsson (Þ)
Helgi Sigurðsson (Þ)
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Magnús Gísli Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Sam Hewson ('35)
Daði Ólafsson ('48)
Andrés Már Jóhannesson ('60)
Ólafur Ingi Skúlason ('60)

Rauð spjöld:
Valdimar Þór Ingimundarson ('58)
Leik lokið!
Svakaleg skemmtun að baki, Fylkismenn sigra og lyfta sér upp fyrir miðjuna.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
95. mín
Fylkismenn hreinsa eftir svakalegan darraðadans!
94. mín
Horn og búið hjá HK!

Arnar markmaður kominn inní líka!
92. mín
Vel gert Stefán!

Löng sending upp hægri, Ari er sloppinn í gegn en Stefán lokar og boltinn í horn.

Úr horninu lekur þvöguskalli bara hárið framhjá marki Fylkis og útspark. Þeir eru að landa þessu.
90. mín
4 mínútur í uppbót.
90. mín
ÓTRÚLEG TÆKLING!!!

Sending frá hægri inn í markteig Fylkis og Ásgeir í dauðafæri, en hvaðan Ólafur Ingi kom og þessi tækliskutla.

Ef hægt er að tala um game winning tackle...vá!!!
88. mín
Arnór Gauti kominn á vænginn og Emil uppi á topp hjá Fylki.
87. mín
Inn:Ari Sigurpálsson (HK) Út:Valgeir Valgeirsson (HK)
87. mín
Inn:Emil Atlason (HK) Út:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
85. mín
Hér er brostið á úrhelli síðustu mínúturnar. Það er eitthvað held ég eftir í þessum leik, spjöld eða mark.
84. mín Gult spjald: Valgeir Valgeirsson (HK)
Eltingarleikur við Emil, Valgeir heldur í hann og fær spjald.
82. mín
Aukaspyrnan fer framhjá, Daði vildi fá horn hérna af veggnum en dæmd markspyrna.
81. mín
Arnór Gauti fær brot hér á góðum skotstað fyrir Daða...
80. mín
Inn:Arnór Gauti Ragnarsson (Fylkir) Út:Geoffrey Castillion (Fylkir)
Castillion búinn að vera magnaður hér í kvöld!
77. mín
Dauðafæri hjá Fylkismönnum, enn eitt hlaupið hjá Castillion upp vænginn og frábær sending, Emil er sekúndu of seinn á fjær að klára í markið.

Öflug skyndisókn.
75. mín
Inn:Brynjar Jónasson (HK) Út:Birnir Snær Ingason (HK)
Hrein skipting.
73. mín
Það er iðnaðarvarnarleikur í gangi hjá Árbæingum núna, HK menn eru vanari því að setja slíkan varnarleik upp en að sækja á hann.

Þeir eru að pressa, það er klárt.
71. mín
Dómarinn er að fá nokkuð öfluga leiðsögn úr stúkunni, um leið og hann flautar þá eru aðdáendur þeirra sem eru metnir brotlegir tiltölulega algerlega ósammála.
70. mín Gult spjald: Arnþór Ari Atlason (HK)
69. mín
HK pressar stíft...
68. mín
Fylkismenn eru að spila 4-4-1 núna.

Stefán.

Orri - Ari - Ásgeir - Daði

Emil - Ólafur - Helgi Valur - Hewson

Castillion.
67. mín
Það má segja með sanni að hitastigið hér hafi hækkað, það er ekki lofthitinn þó, það er bara inni á vellinum og er að skila sér vel upp í stúku!
63. mín
Inn:Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir) Út:Hákon Ingi Jónsson (Fylkir)
Fylkismenn styrkja varnarleikinn, skiljanlega.
60. mín Gult spjald: Ólafur Ingi Skúlason (Fylkir)
Fyrir sinn þátt í hasar eftir brottvísun Valdimars.
60. mín
STÓRKOSTLEG MARKVARSLA!!!

Eftir hasarinn allan á Ásgeir aukaspyrnu fyrir HK inn á teiginn, Daði stekkur þar upp en skallinn fer í átt að marki og Stefán ver stórkostlega í slá og upp í loft, í hasarnum er svo brotið á Stefáni...þessi var svakaleg.
60. mín Gult spjald: Andrés Már Jóhannesson (Fylkir)
Fyrir sinn þátt í hasar eftir brottvísun Valdimars.
59. mín
Inn:Emil Ásmundsson (Fylkir) Út:Andrés Már Jóhannesson (Fylkir)
59. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Fyrir sinn þátt í hasar eftir brottvísun Valdimars.
58. mín Rautt spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir)
Valdimar og Valgeir kljást, Egill dæmir á Valdimar. Valgeir labbar í átt að Valdimar sem mætir honum og hrindir í jörðina.

Valgeir heldur um andlitið, allt fer á yfirsnúning í hasar og menn hópast um dómarann. Hann er grjótákveðinn og rífur upp rautt kort.
57. mín
Hæer verða læti heldur betur.

Valgeir liggur eftir í kjölfar viðskkipta við Valdimar og það er stór hópur sem að hópast hér að.
55. mín MARK!
Geoffrey Castillion (Fylkir)
Stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson
Fólk fær fyrir peninginn í kvöld!!!

Valdimar vinnur boltann á miðjunni og leggur á Castillion sem tekur 30 metra sprett framhjá Leif, hristir svo Hörð af sér og neglir að marki, boltinn virðist fara í gegnum Arnar.
52. mín MARK!
Ásgeir Marteinsson (HK)
HK búnir að jafna, barningur við vítateigshornið sem Egill lætur klárast, Ásgeir Börkur klafsar boltann á Ásgeir sem tekur á sprett inn á vítateiginn en snýr til baka þegar skotfærið lokast á vinstri, tékkar á hægri og neglir boltann með jörðinni í fjærhorn.

Jafnt á ný.
51. mín
Ásgeir á fyrsta skot Fylkis í seinni hálfleik, utarlega úr teignum en boltinn fer töluvert framhjá.
49. mín
Castillion vinnur sig inn á endalínuna og neglir boltann inní en enginn mættur þar og boltinn í innkast.
48. mín Gult spjald: Daði Ólafsson (Fylkir)
Talinn hafa verið að tefja hratt innkast HK.
46. mín
Leikur hafinn
Komið af stað á ný í Árbænum.
45. mín
Hálfleikur
Fylkismenn leiða í hálfleik, verður gaman að sjá hvort aðstæðurnar hjálpuðu heimamönnum.
45. mín
Ein mínúta í uppbót í kvöld.
45. mín
Enn einn góður kross frá Fylkismönnum sem HK stanga í horn.
43. mín
Færi hjá HK!

Darraðadans í teignum og boltinn fellur fyrir fætur Ásgeirs sem neglir að marki en Stefán Logi ver.
41. mín
Hewson fær skotfæri utan teigs og tekur það.

Boltinn fer framhjá en ekki langt frá...
39. mín
Hér "krossar" dómarateymið, Egill dæmir HK aukaspyrnu sem AD2 ætlaði að gefa Fylki.

Mikil gleðilæti úr stúkunni.
36. mín
Tvær góðar sendingar frá Daða, fyrst upp úr horni og svo frákasti hornsins, HK ná að bægja hættunni frá.
35. mín Gult spjald: Sam Hewson (Fylkir)
Negldi Ásgeir niður áðan, Egill spilaði góðan hagnað hér og spjaldar í leikstoppi.
34. mín
HK í færi!

Arnþór vinnur upp hægri kantinn og sendir inní á Bjarna sem neglir að marki en Ólafur Ingi kemst fyrir skotið.
31. mín
Hákon tékkar sig inn á vinstri löppina og neglir að marki en beint á Arnar.
28. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir)
Stoðsending: Daði Ólafsson
Var að fara að skrifa færslu um að Fylkir væru að ná upp pressu á ný en sköpuðu sér ekki færin sem því nemur.

Þá kemur Daði með eina gullfótarvinstri á fjær og Valdimar kastar sér fram og skallar í netið af stuttu færi. Heimamenn yfir á ný.
21. mín
End to end stuff.

HK eiga hörku skot úr teignum en Ásgeir kemst fyrir skotið, Fylkismenn fara beint upp en skot Hákonar beint á Arnar. Það er líf og fjör í Árbænum.
19. mín MARK!
Birkir Valur Jónsson (HK)
Stoðsending: Arnþór Ari Atlason
Já, nefnilega það.

Ásgeir Marteins sendir aukaspyrnu á fjær, þar fær Arnþór nægt pláss til að senda boltann í markteiginn og þar er Birkir frír og setur í markið, einfalt svo sannarlega.
18. mín
Fyrsta sinn sem HK komast almennilega upp á völlinn og þá brýtur Andrés klaufalega á Birni...færi.
15. mín
Veit ekki hvort það er vindurinn en HK eiga mjög erfitt með að komast út af sínum vallarhelming, Fylkismenn bara stjórna allri umferð.
12. mín
HK eru í 4-2-3-1

Arnar

Birkir - Alexander - Leifur - Hörður

Ásgeir - Arnþór

Valgeir - Arnþór - Birnir

Bjarni
10. mín
Andrés á skot rétt framhjá utan teigs.
8. mín MARK!
Hákon Ingi Jónsson (Fylkir)
Stoðsending: Geoffrey Castillion
Við fáum mark snemma.

Fylkismenn vinna boltann á hægri vængnum, boltinn fellur í fætur Castillion sem hristir Ásgeir Börk af sér og á magnaða sendingu í gegnum vörnina á Hákon sem klárar af fagmennsku!
7. mín
Fylkismenn spila 3-5-2.

Stefán

Ari - Ólafur Ingi - Ásgeir

Andrés - Helgi - Hewson - Valdimar - Daði

Hákon - Castillion
5. mín
Fyrsta færið fellur í fætur Valdimars Þórs, eftir sendingu frá Daða en tekur of mikinn tíma og Arnar nær að loka.
2. mín
Fylkismenn byrja að spila aðeins undan vindi í fyrri hálfleik.
1. mín
Leikur hafinn
Komið af stað í Árbæ.
Fyrir leik
Enn frekar yfirveguð mæting í stúkuna...held svei mér að það sé að auka í vindinn.

Leikmenn að fara inn í klefa í síðustu orðin fyrir leik, menn munu þurfa að lesa í aðstæður....
Fyrir leik
Hjá Fylkismönnum byrjar Stefán Logi Magnússon í markinu. Í síðustu viku voru fréttir um að Helga Sigurðssyni, þjálfara Fylkis, og Stefáni Loga hefði lent saman. Helgi og Stefán Logi sögðu allt í góðu og er Stefán Logi í markinu í kvöld.

Andrés Jóhannesson og Geoffrey Castillion koma inn í liðið hjá Fylkismönnum frá leiknum við FH, en á bekkinn setjast Emil Ásmunds og Ragnar Bragi Sveinsson.

Hjá HK sest Atli Arnasson á bekkinn eftir góða frammistöðu upp á síðkastið. Björn Berg Bryde er utan hóps. Hörður Árnason og Ásgeir Marteinsson koma inn í byrjunarliðið hjá HK frá síðasta leik.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Upphitunarfatnaðurinn er töluvert fjölbreyttari en oft áður. Menn eru með húfur og hanska...jafnvel hálstau.

Haustið að koma.
Fyrir leik
Dómarateymið er svona skipað.

Egill Arnar Sigurþórsson flautar, Gunnar Helgason og Sveinn Þórður Þórðarson verða í mæk og með flögg.

Varadómarinn er svo Ívar Orri Kristjánsson og með störfum þeirra fylgist Ólafur Kjartansson.

Hell of a team!
Fyrir leik
Í þessum liðum eru leikmenn sem að eiga leiki með "hinu" liðinu.

Augljósastur er auðvitað Ásgeir Börkur sem spilaði um 180 leiki fyrir Fylkismenn á 10 leiktímabilum en er nú með HK.

Hákon Ingi Jónsson lék með HK sem lánsmaður sumarið 2016.
Fyrir leik
HK eru í fimmta sæti fyrir leikinn með 25 stig.

Sigur þeirra heldur þeim áfram draum um Evrópusætið...sama hvað Brynjar reynir að draga úr því þá eru Kópavogsdrengir í góðum séns þar fyrir þennan leik.
Fyrir leik
Fyrir leikinn sitja heimamenn í Fylki í níunda sæti með 22 stig. Sigur þeirra tryggir endanlega veru þeirra á meðal þeirra bestu og gæti jafnvel fleytt þeim í Evrópuslaginn góða.
Fyrir leik
Bæði lið sleppa við leikbönn í þessari umferð enda prúðmennskan uppmáluð auðvitað!
Fyrir leik
Fyrri leikur þessara liða var í 7.umferð.

Sá fór auðvitað fram í Kórnum og lauk með 1-2 sigri Fylkismanna.

Ásgeir Börkur skoraði fyrst fyrir HK í fyrri hálfleik en tvö mörk Helga Vals Daníelssonora á síðasta kortérinu tryggði gestunum sigurinn.

Leikur hins semi-gamla miðjumanns til að skora í líklega!!!
Fyrir leik
Leikurinn er liður í 18.umferð PepsiMaxdeildarinnar, haustið komið og mótið að styttast í annan endann.
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn og hjartanlega velkomin í beina textalýsingu úr hjarta Árbæjarins.

Hér er að fara fram leikur Fylkis og HK í PepsiMax deild karla.
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
Bjarni Gunnarsson
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('87)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason ('75)
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
14. Hörður Árnason
17. Valgeir Valgeirsson ('87)
20. Alexander Freyr Sindrason

Varamenn:
12. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson
9. Brynjar Jónasson ('75)
16. Emil Atlason ('87)
18. Atli Arnarson
19. Ari Sigurpálsson ('87)
21. Andri Jónasson
28. Daníel Ingi Egilsson

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Þjóðólfur Gunnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Sigurður Viðarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus

Gul spjöld:
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('59)
Arnþór Ari Atlason ('70)
Valgeir Valgeirsson ('84)

Rauð spjöld: