HK/Víkingur
0
1
Breiðablik
0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir '19
06.09.2019  -  19:15
Kórinn
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
Maður leiksins: Audrey Rose Baldwin (HK/Víkingur)
Byrjunarlið:
21. Audrey Rose Baldwin (m)
2. Gígja Valgerður Harðardóttir
3. Kristrún Kristjánsdóttir
4. Brynhildur Vala Björnsdóttir
6. Tinna Óðinsdóttir (f)
7. Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir ('52)
9. Margrét Eva Sigurðardóttir
14. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
15. Eva Rut Ásþórsdóttir
16. Dagný Rún Pétursdóttir
20. Simone Emanuella Kolander

Varamenn:
1. Maren Júlía Magnúsdóttir (m)
5. Fatma Kara ('52)
11. Dagmar Pálsdóttir
17. Arna Eiríksdóttir
22. Emma Sól Aradóttir
23. Tara Jónsdóttir
24. María Lena Ásgeirsdóttir

Liðsstjórn:
Rakel Logadóttir (Þ)
Milena Pesic
Lára Hafliðadóttir
Karólína Jack
Halla Margrét Hinriksdóttir
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir
Þórður Jensson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið ! Breiðablik tekur öll þrjú stig kvöldsins.
Viðtöl og skýrsla í vinnslu.
90. mín
HK/Víkingur fær aukaspyrnu sem Fatma Kara tekur og Sonný grípur.
90. mín
Venjulegur leiktími liðinn!
88. mín
HK/Víkingur fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Blika. Eva Rut tekur spyrnuna sem berst til Dagnýjar inn í teignum. Hún nær skotinu og það fer í hliðarnetið !
87. mín
Inn:Esther Rós Arnarsdóttir (Breiðablik) Út:Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
84. mín
Inn:Hildur Þóra Hákonardóttir (Breiðablik) Út:Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiðablik)
Fyrsta skipting Blika!
81. mín
Blikar búnar að vera virkilega ólíkar sér undanfarnar 30 mínútur. Virka andlausar og pirraðar.
77. mín
Held að þetta sé í þriðja skiptið í leiknum sem Berglind kemst inn í lélega sendingu til baka hjá HK/Víking. Hún nær boltanum rétt fyrir utan teig, sólar Gígju og skýtur í hliðarnetið.
74. mín
VARSLA!
Karólína með geggjaða stungu inn á Öglu Maríu sem nær boltanum við endalínu HK/Víkings. Hún sendir hann fyrir markið þar sem Alexandra á þrusu góðan skalla en enn of aftur er Audrey að sýna frábæra markvörslu í markinu !
73. mín
Simone á skot að marki sem fer töluvert yfir.
71. mín
HK/Víkingur mun líflegri síðustu 10 mínúturnar. Fín sókn endar með skoti frá Evu Rut sem Sonný þarf að hoppa upp í og grípa.
68. mín
HK/Víkingur fær hornspyrnu sem Sonný grípur.
63. mín
HK/Víkingur á markspyrnu. Audrey ætlar að gefa á Tinnu sem stendur hægra megin í teignum. Hún hinsvegar gefur lélega sendingu sem endar aftur fyrir marki HK/Víkings. Enginn kom við hann sem segir að hún má taka spyrnuna aftur.
59. mín
Agla María nær að komast upp kantinn og fer framhjá Kristrúnu í bakverðinum. Hún nær skotinu en það er ekki gott.
53. mín
Brynhildur Vala með lélega sendingu til baka. Berglind kemst inn í sendinguna og stingur honum inn á Öglu Maríu en boltinn er aðeins of langur og fer aftur fyrir endarlínu.
52. mín
Inn:Fatma Kara (HK/Víkingur) Út:Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir (HK/Víkingur)
Fyrsta skipting HK/víkings í leiknum.
51. mín
Geggjaður bolti frá Ástu inn á Berglindi sem hefði getað gert mun betur í skotinu.
49. mín
Skemmtilega gert hjá HK/Víking!
Flott spil á miðjunni endar með stungu inn á Brynhildi Völu að mér sýnist. Sendingin var hinsvegar aðeins of löng og Sonný tók hann.
47. mín
Agla María skýtur að marki en Audrey ver vel í horn.

Karólína tekur hornspyrnuna sem fer aftur fyrir markið.
46. mín
Leikur hafinn
Hálfleikur er hafinn að nýju!
45. mín
Hálfleikur
Breiðablik mun meira með boltann hér í fyrri hálfleik. HK/Víkingur liggja gríðarlega aftarlega og hafa varla farið yfir miðju í þessum leik.
43. mín
Þvílík varsla!!
Áslaug Munda fer upp allan kantinn og gefur út á Karólínu Leu sem er út í teig hjá HK/Víking. Karólína Lea skýtur á markið en Audrey ver. Boltinn hinsvegar berst út til Öglu Maríu sem nær skotinu en Audrey gerir aftur vel og ver hann í loftinu með fótunum.

Ég hreinlega skil ekki hvernig þetta var hægt! Þvílíkar varsla!
38. mín
Áslaug Munda með frábæran sprett um vinstri kant Breiðabliks. Hún sendir boltan fyrir markið þar sem Agla og Berglind missa af honum.
33. mín
Berglind Björg með lélegan bolta til baka sem Simone kemst inn í. Hún er ein á móti Heiðdísi og Kristínu Dís. Hún tekur þá ákvörðun að skjóta af sirka 40 metra færi. Þarna var illa farið með ágætis tækifæri hjá HK/Víking.
30. mín
HK/Víkingur á ágætis sókn sem endar með skoti frá Kristrúnu. Það fer hinsvegar í Blika og HK/Víkingur fær horn.

Blikar eiga í vandræðum með að hreinsa boltan í horninu. Sóley María skallar boltan í Fjollu sem munaði engu að hefði farið til baka inn í markið. Sonný nær hinsvegar að kýla boltan í burtu.
27. mín
Karólína Lea sendir stungu inn á Berglindi sem Audrey kemst inn í.
25. mín
Simone gerir vel og nær að snúa upp miðjuna. Hún reynir svo stungu inn á Evu Rut en hún er aðeins og hún nær ekki til hans.
24. mín
Áslaug Munda fer framhjá tveimur varnarmönnum og sendir boltan fyrir mark HK/Víkings. Berglind nær skoti en það fer framhjá
21. mín
Agla María á frábæran sprett upp kantinn en varnamaður HK/Víkings kemur í veg fyrir að hún nær að setja hann inn fyrir markið.

Breiðablik fær horn út úr því sem verður ekkert úr.
19. mín MARK!
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Breiðablik er komið yfir!

Breiðablik fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi HK/Víkings. Agla María tekur frábæra spyrnu inn á vítateig sem ratar beint á kollinn á Berglindi. Hún stangar hann í markið og Breiðablik er komið yfir!
17. mín
HK/Víkingur spilar með fimm manna vörn og liggja rosalega aftarlega. Breiðablik er að nýta það virkilega vel og eru miklu meira með boltan.
14. mín
Agla María fer upp kantinn og finnur Berglindi inn í teig hjá HK/Víking. Skotið hjá Berglindi fer hinsvegar framhjá og HK/Víkingur fær markspyrnu.
9. mín
Agla María setur boltan fyrir mark HK/Víkings þar sem Berglind tekur á móti honum. Hún leggur hann inn fyrir Karólínu sem er vel staðsett en skotið hennar fer framhjá.
8. mín
Alexandra þræðir sig í gegnum vörn HK/Víkings og nær skoti á marki. Audrey vera það og Breiðablik fær horn sem verður ekkert úr.
7. mín
Breiðablik spilar vel hér á upphafsmínútunum. Karólína Lea á flotta stungu inn fyrir vörn HK/Víkings sem ratar beint á Öglu Maríu. Hún nær að setja hann inn fyrir á Berglindi en dómarinn dæmir boltann út af.
3. mín
Breiðablik fá innkast á vallarhelmingi HK/Víkings. Áslaug Munda gefur hann á Berglindi sem tekur skot í fyrsta en hann fer framhjá.
2. mín
Breiðablik byrjar að krafti! Karólína Lea á frábæra stungu inn fyrir vörn HK/Víkings þar sem Áslaug Munda er komin ein á móti marki. Audrey ver hinsvegar virkilega vel frá henni.
1. mín
Leikur hafinn
Breiðablik byrjar með boltan!
Fyrir leik
Byrjunarliðin má sjá hér til hliðar.
Blikar gera eina breytingu á sínu liði frá því í síðasta leik.
Selma Sól fer á bekkinn og Sóley María kemur inn.

HK/Víkingur gerir sömuleiðis eina breytingu.
Karolina Jack er skráð sem liðsstjóri og Dagný Rún kemur inn í byrjunarliðið.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna í sumar fór fram 24.júní. Leikurinn var spennandi þar sem Blikar unnu nauman sigur á síðustu mínútum leiksins.
Breiðablik komst strax yfir á 3.mínútu en HK/Víkingur jöfnuðu metin á 81.mínútu. Það var hinsvegar Agla María sem tryggði Blikum sigur á 90.mínútu.
Fyrir leik
Þessi tvö lið eru í harðri baráttu í sitthvorum endanum í deildinni.

Breiðablik situr í 2.sæti með 41 stig, aðeins tveimur stigum á eftir Val sem eru með 43 stig á toppnum.

HK/Víkingur situr hinsvegar á botninum með 7 stig og hafa ekki unnið leik í deildinni síðan 27.maí. Þá höfðu þær betur gegn Fylki, 2-1.
Fyrir leik
16.umferð Pepsi Max deild kvenna byrjar í kvöld með leik HK/Víkings og Breiðablik.

Leikurinn fer fram í Kórnum og byrjar kl.19:15
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn.
Verið hjartanlega velkomið í beina textalýsingu frá Kórnum.
Byrjunarlið:
Ásta Eir Árnadóttir
Fjolla Shala
Sonný Lára Þráinsdóttir
2. Sóley María Steinarsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('84)
10. Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('87)
16. Alexandra Jóhannsdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Varamenn:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
6. Þórhildur Þórhallsdóttir
19. Esther Rós Arnarsdóttir ('87)
21. Hildur Antonsdóttir
24. Hildur Þóra Hákonardóttir ('84)
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Atli Örn Gunnarsson
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Aron Már Björnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: