Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Fram
3
0
Þór
Helgi Guðjónsson '24 1-0
Helgi Guðjónsson '63 2-0
Helgi Guðjónsson '90 3-0
Nacho Gil '90
14.09.2019  -  14:00
Framvöllur
Inkasso deildin - 1. deild karla
Dómari: Þorvaldur Árnason
Maður leiksins: Helgi Guðjónsson
Byrjunarlið:
1. Hlynur Örn Hlöðversson (m)
Matthías Kroknes Jóhannsson
3. Unnar Steinn Ingvarsson
5. Haraldur Einar Ásgrímsson
6. Marcao
6. Gunnar Gunnarsson
9. Helgi Guðjónsson
10. Fred Saraiva ('82)
11. Jökull Steinn Ólafsson ('88)
20. Tiago Fernandes
71. Alex Freyr Elísson ('77)

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
3. Heiðar Geir Júlíusson ('88)
4. Stefán Ragnar Guðlaugsson
10. Orri Gunnarsson ('82)
11. Magnús Þórðarson ('77)
15. Steinar Bjarnason
22. Hilmar Freyr Bjartþórsson

Liðsstjórn:
Jón Sveinsson (Þ)
Daði Guðmundsson
Bjarki Hrafn Friðriksson
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Daði Lárusson
Hilmar Þór Arnarson
Magnús Þorsteinsson

Gul spjöld:
Jökull Steinn Ólafsson ('39)
Unnar Steinn Ingvarsson ('45)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er leiknum lokið

3-0 sigur heimamanna og Helgi með öll mörkin, ágætis leikur með mikið af hættulegum færum en einnig mikið af spili í vörninni.

Slæmt veður setti sitt mark á leikinn, Þórsarar voru betri í fyrri hálfleik og spiluðu ekki eins og lið sem vildi koma til baka og ná stigi og þessar loka mínútur voru frekar óáhugaverðar nema auðvitað þriðja markið og rautt spjald á bekkinn.

En allt í allt fínasti leikur hérna í Safamýrinni og er Fram núna búið að jafna Þór á stigum í deildinni. Keflavík tapaði fyrir Haukum og Fram er með betri markatölu en Þór þannig þeir eru komnir upp í 4 sætið núna.
90. mín Rautt spjald: Nacho Gil (Þór )
Nacho Gil fær rautt spjald hérna á bekknum, hann sparkaði svo í brúsastand Framara á leiðinni inn í klefa og það er líklega 2 leikja bann á kallinn
90. mín MARK!
Helgi Guðjónsson (Fram)
Stoðsending: Magnús Þórðarson
ÞRENNAN KOMIN HJÁ HELGA

Magnús Þórðar hljóp upp vinstri kantinn, gaf fyrir og Helgi lagði hann inn til að fullkomna þrennuna og orðinn markahæsti maður deildarinnar
90. mín
Það er ekki mikið að gerast í leiknum og þetta minnir mann ekki á lokamínútur í fótboltaleik
90. mín
Framarar hafa allavega valið mann leiksins og það er hann Helgi Guðjóns, kallinn fær gjafabréf frá Dominos fyrir það
89. mín Gult spjald: Ármann Pétur Ævarsson (Þór )
Ármann fær hér gult spjald fyrir kjaft sýndist mér
88. mín
Inn:Heiðar Geir Júlíusson (Fram) Út:Jökull Steinn Ólafsson (Fram)
86. mín
Helgi heldur áfram að skapa hættur og nú eru heimamenn að fara taka horn
84. mín
Inn:Jakob Franz Pálsson (Þór ) Út:Rick Ten Voorde (Þór )
83. mín
Nú er veðrið aðeins að bæta í sig og vindurinn að láta finna fyrir sér
83. mín
Boltinn er aðallega á vallarhelmingi Þórsara og ég gæti alveg séð heimamenn setja þriðja markið
82. mín
Inn:Orri Gunnarsson (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
80. mín
Þórsarar hafa ekki verið að sýna mikið hérna í seinni hálfleik, þeir þurfa að gefa vel í ef þeir ætla að fá eitthvað úr þessum leik
77. mín
Inn:Magnús Þórðarson (Fram) Út:Alex Freyr Elísson (Fram)
Þá er Alex Freyr farinn útaf en hann var mjög góður í leiknum
77. mín
HELGI NÆSTUM ÞVÍ MEÐ ÞRENNU

Mjög flott sókn hjá heimamönnum en Alex Freyr og Fred stóðu sig afar vel og skildu eftir marga Þórsara áður en Helgi fékk boltann, hann tók skotið en Aron Birkir varði frábærlega
73. mín
Inn:Jóhann Helgi Hannesson (Þór ) Út:Jakob Snær Árnason (Þór )
Skipting hjá Þórsurum
70. mín
Hornspyrna fyrir heimamenn og sendinginn fór beint á Gunnar Gunnars sem hefði getað skallað hann þægilega en ákvað að taka eitt skrítið skot og boltinn fór lengst frá marki Þórs.

Greinilega í varnareðlinu hjá honum að hreinsa boltann úr teig.
69. mín
Tiago með flott skot fyrir utan teig en Aron Birkir varði þetta eiginlega með andlitinu en hann náði ekki að grípa boltann
67. mín
Það er barátta á miðjunni núna og það verða oft hættulegri tæklingar þegar það er svona blautt, menn eru líka duglegir að renna sér í boltann
65. mín
Föst og góð spyrna en Aron Birkir grípur boltann
65. mín
Aftur er Alex Freyr tæklaður en í þetta skiptið er það rétt fyrir utan teig
63. mín MARK!
Helgi Guðjónsson (Fram)
2-0 FYRIR FRAM OG ÞAÐ ER AFTUR HELGI GUÐJÓNSSON

Helgi klúðraði vítinu sjálfu en boltinn fór aftur til hans og þá ætlaði hann ekki að klúðra aftur

Lélegt víti en samt sem áður er hann orðinn 14 marka maður
62. mín
VÍTI FYRIR HEIMAMENN

Dino með glórulausa tæklingu á Alex Frey sem var á sprettinum en ekkert spjald sýndist mér
60. mín
Leikurinn heldur samt áfram og heimamenn sækja af krafti en ná ekki að koma botlanum inn í netið
57. mín Gult spjald: Nacho Gil (Þór )
Nacho fær gult spjald eftir mikið rifrildi leikmanna.
Það virðist sem Nacho og Fred hafi slegist saman á miðju vallarins og byrjuðu að láta orðin dynja eftir það.

Meira að segja markmennirnir komu og þetta var heljarinnar rifrildi en bara einn sem fékk gult.
54. mín
Heimamenn eru rólegir með boltann núna og halda sér á miðju vallarins
52. mín
Alex Freyr er dæmdur brotlegur í baráttu í teig Þórs en ekkert spjald á loft
51. mín
Framarar hlaupa fljótt fram og þetta leit vel út þangað til klaufaleg sending stoppaði sóknina
49. mín
Ekkert varð úr spyrnunni og er boltinn kominn í fætur heimamanna
48. mín
Þór nælir sér í hornspyrnu, lítið búið að gerast upp að þessu
45. mín
Leikur hafinn
Þá hefst leikurinn og núna eru það gestirnir sem byrja með boltann
45. mín
Hálfleikur
Leikmenn eru að hlaupa inná völlinn
45. mín
Hálfleikur
Skyggnið þar sem ég sit er ekki svo gott þannig biðst afsökunar ef ég sé ekki alltaf hver gerði hvað
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar dómarinn í hálfleik.

Bæði lið búin að sýna sterkar hliðar og skapa miklar hættu en vörnin hjá heimamönnum er búin að vera betri, Marcao hefur staðið sig afar vel og þar að auki Hlynur Örn í markinu.

Það gætu verið fleiri mörk í leiknum en markmenn í formi og veðrið er að gera erfitt fyrir. Boltinn fýkur mikið í háum sendingum.
45. mín
Ágætis hornspyrna og Ármann Pétur nær skotinu en það fer rétt framhjá
45. mín
Annað horn fyrir gestina
45. mín Gult spjald: Unnar Steinn Ingvarsson (Fram)
Fyrirliði heimamanna nælir sér í spjald og gefur gestunum aukaspyrnu
44. mín
Hlynur Örn er að fíla sig í þessu veðri
43. mín
Nacho Gil með rosalega góðann og þægilegan skalla eftir hornspyrnu en aftur er Hlynur með magnaða vörslu
41. mín
FRÁBÆRLEGA VARIÐ HJÁ HLYN

Boltinn var sendur inn úr spyrnunni og flakkaði á milli þangað til leikmaður Þórs, sá ekki alveg hver, tók hörkuflott skot en Hlynur sýndi alvöru takta og skutlaði sér fyrir þetta
40. mín
Bjarki er staðinn upp og virðist í lagi með kallinn
39. mín Gult spjald: Jökull Steinn Ólafsson (Fram)
Jökull fær hérna gult spjald fyrir að tækla Bjarka Þór sýnist mér, hann liggur eftir og þetta er aukaspyrna á hættulegum stað
38. mín
Þarna voru heimamenn heppnir að fá ekki á sig jöfnunarmarkið en boltinn var á miklu iði í teignum og reyndu allir að ná snertingu á hann.

Boltinn hefði léttilega getað endað inni en Hlynur var þarna allt í öllu.
36. mín
Jakob Snær er felldur niður rétt fyrir utan teig, aukaspyrna á nokkuð hættulegum stað
35. mín
Það er lítið að frétta eins og er en liðin skiptast á að halda boltanum á miðjunni
31. mín
Þór nælir sér í horn en Marcao skallar burt enda höfði hærri en flestir
29. mín
Framarar eru aftur með fullmannað lið en það eru hinsvegar gestirnir sem halda boltanum þessa stundina
29. mín
Marcao stígur út af vellinum meðan leikurinn hefst aftur
28. mín
Nú leggst Marcao niður á grasið og heldur um hnéð sýnist mér, Þorvaldur stöðvar leikinn í bili og læknir hleypur inn
27. mín
Vindurinn leikur sér soldið með boltann og erfitt er að fullkomna langar sendingar í þessu veðri
24. mín MARK!
Helgi Guðjónsson (Fram)
ÞAÐ ER MARK

Helgi Guðjónsson með afar myndarlegan skalla eftir hornspyrnuna og heimamenn eru komnir yfir

13 MARK HELGA Í DEILDINNI
24. mín
Fred með flott skot fyrir utan teig en ég held að þetta hafi verið Dino sem fór fyrir það, horn fyrir Fram
23. mín
Annars er lítið að gerast þessa stundina, eintómt spil á miðjunni
22. mín
Jakob Snær, sem er búinn að vera öflugur í leiknum, hleypur að teigi heimamanna en Gunnar Gunnarsson gerir mjög vel og hreinlega axlar hann niður
20. mín
Þetta var líklegast bara smá rifrildi milli manna og Þorvaldur hefur eflaust sagt þeim að hætta þessu rugli
19. mín
Þorvaldur dómari ræðir við leikmenn en ekkert spjald er að fara á loft og þá hefst leikurinn aftur
17. mín
Dómarinn stöðvar leikinn en tveir menn úr sitthvoru liðinnu hérna liggja niðri. Boltinn var hinum megin á vellinum og sá því enginn hvað gerðist
15. mín
Boltinn er skallaður burt um leið af Þórsmönnum
14. mín
Fred gerir vel á hægri kantinum og nælir í horn
13. mín
Hlynur Örn með aðra frábæra vörslu, í þetta skiptið frá Alvaro Montejo sem átti fínt skot fyrir utan teig
11. mín
Þórsarar ná boltanum og Jakob Snær gerir mjög vel, hljóp upp kantinn og stalst inn í teig heimamanna og tók skotið en vel varið hjá Hlyn
10. mín
Heimamenn eru að sýna sterkari hliðar núna og skapa hættu
8. mín
Unnar tók spyrnuna sem flaug beint í vegginn
7. mín
Framarar fá aukaspyrnu á hættulegum stað, beint fyrir utan teiginn
7. mín
Heimamenn eru að ýta sér upp völlinn og reyna sendingar inn í teig en ekkert er að ganga hingað til
5. mín
Spyrnan er góð en Haraldur Einar stekkur hátt og skallar þessu burt
4. mín
Þórsarar ná boltanum og næla sér í aukaspyrnu hægra megin við vítateig Framara
3. mín
Gestirnir missa boltann eftir klaufalega sendingu og nú reyna Framarar að færa sig framar
1. mín
Þórsarar stela boltanum um leið og senda sín á milli
1. mín
Leikur hafinn
Þá hefst leikurinn og það eru heimamenn sem byrja með boltann
Fyrir leik
Nú eru liðin að ganga inná völlinn, heimamenn í sínum fræga bláa lit og gestirnir í hvítu
Fyrir leik
Þessi rigning og vindur býr bara til meiri stemningu í leik sem ætti að vera frábær skemmtun
Fyrir leik
Veðrið er alls ekki gott hérna í Safamýrinni en leikmennirnir virðast þó ekkert ætla láta það á sig hafa og virka ferskir í upphitun.
Fyrir leik
Framarar sitja í 6. sæti deildarinnar með 30 stig og eru í rauninni hvorki í fall né toppbaráttu en vilja að sjálfsögðu taka síðasta heimaleik leiktíðarinnar með trompi.

Gestirnir eru í 4. sæti með 33 stig en hafa tapað tveimur leikjum í röð, seinasti leikur þeirra var 1-7 niðurlæging gegn Fjölnismönnum og verður því áhugavert að sjá hvernig þeir koma inn í þennan leik.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í þessa beina textalýsingu frá 21. umferð Inkasso deild karla en hérna koma Þórsarar í heimsókn á Framvöllinn.

Leikurinn hefst kl. 14:00
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
2. Elmar Þór Jónsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
6. Ármann Pétur Ævarsson
14. Jakob Snær Árnason ('73)
18. Alexander Ívan Bjarnason
23. Dino Gavric
24. Alvaro Montejo
27. Rick Ten Voorde ('84)
30. Bjarki Þór Viðarsson
88. Nacho Gil

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
2. Tómas Örn Arnarson
6. Páll Veigar Ingvason
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson
9. Jóhann Helgi Hannesson ('73)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson
16. Jakob Franz Pálsson ('84)

Liðsstjórn:
Gregg Oliver Ryder (Þ)
Guðni Þór Ragnarsson
Kristján Sigurólason
Perry John James Mclachlan
Aron Elí Sævarsson
Ágúst Þór Brynjarsson
Bríet Mörk Ómarsdóttir

Gul spjöld:
Nacho Gil ('57)
Ármann Pétur Ævarsson ('89)

Rauð spjöld:
Nacho Gil ('90)