Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
Í BEINNI
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
Valur
13:00 0
0
Breiðablik
Valur
2
0
HK
Andri Adolphsson '17 1-0
Patrick Pedersen '45 2-0
Guðmundur Þór Júlíusson '64
28.09.2019  -  14:00
Origo völlurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Geggjað veður, 12 stiga hiti, logn og sól. Svona var sumarið 2019.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 784
Maður leiksins: Hannes Þór Halldórsson, Valur
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
Haukur Páll Sigurðsson ('83)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson ('59)
9. Patrick Pedersen ('88)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Andri Adolphsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
6. Sebastian Hedlund ('59)
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('88)
24. Valgeir Lunddal Friðriksson ('83)
28. Emil Lyng
77. Kaj Leo í Bartalsstovu

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Halldór Eyþórsson
Fannar Gauti Dagbjartsson
Einar Óli Þorvarðarson
Kristófer Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Sigurður Egill Lárusson ('41)
Andri Adolphsson ('61)
Kristinn Freyr Sigurðsson ('81)
Haukur Páll Sigurðsson ('82)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 2 - 0 sigri Vals. Viðtöl og skýrsla koma inn á eftir.
88. mín
Inn:Kristinn Ingi Halldórsson (Valur) Út:Patrick Pedersen (Valur)
Síðasta skipting Vals í dag. Kristinn Ingi er samningslaus eftir tímabilið og forvitnilegt að sjá hvað hann mun gera. Kristinn hefur leikið lykihlutverk í sigurgöngu Vals undanfarin ár og það væri sérkennilegt ef Valur myndi ekki endursemja við hann.
87. mín
Inn:Hafsteinn Briem (HK) Út:Ásgeir Marteinsson (HK)
Fyrsti leikur Hafsteins í sumar eftir erfið meiðsli.
85. mín
Ásgeir Marteinsson tognar aftan í læri og gengur af velli. HK manni færri í augnablikinu.
84. mín
Emil Atlason með fast skot að marki en rétt framhjá.
83. mín
Inn:Valgeir Lunddal Friðriksson (Valur) Út:Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Fyrsti leikur Valgeirs fyrir Val en hann kom til félagsins frá Fjölni í vetur.
82. mín Gult spjald: Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Haukur Páll straujar Ásgeir Marteinsson sem var á spretti upp hægri kantinn.
81. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
80. mín
Inn:Valgeir Valgeirsson (HK) Út:Arnþór Ari Atlason (HK)
80. mín
Kristinn Freyr með skot framhjá.
78. mín
Patrick með skot í hliðarnetið eftir snarpa sókn.
76. mín
Valur fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig, skaut í varnarmann og þaðan lak boltinn til Arnars Freys.
72. mín
Emil Atlason var að sleppa einn í gegn en Haukur Páll Sigurðsson náði honum á sprettinum og kom boltanum frá. Ívar Orri dæmdi svo aukaspyrnu svo Valur endaði með boltann réttilega.
70. mín
Guðmundur Þór Júlíusson missti af öllu tímabilinu eftir krossbandameiðsli og fær rautt spjald sem liðsstjóri í dag. Hann byrjar því endurkomuna eftir meiðslin næsta sumar í leikbanni.
69. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
66. mín
Inn:Emil Atlason (HK) Út:Bjarni Gunnarsson (HK)
65. mín
Ívar Orri Kristjánsson dómari er að missa tökin á þessum leik. Eftir baráttu milli Atla Arnarsonar og Andra Adolphssonar hrinti Andri Atla í grasið. Beint rautt spjald í sumum tilfellum en í það minnsta annað gula. Ívar Orri ákvað að sleppa báðum og bekkur HK missti sig. Þjóðólfur Gunnarsson liðsstjóri fékk að líta rauða spjaldið hjá Ívari Orra, sem skipti svo um skoðun og sýndi Guðmundi Þór Júlíussyni sem er í þjálfarateyminu rauða spjaldið en tók það til baka af Þjóðólfi.
64. mín Rautt spjald: Guðmundur Þór Júlíusson (HK)
64. mín Gult spjald: Arnar Freyr Ólafsson (HK)
61. mín Gult spjald: Andri Adolphsson (Valur)
59. mín
Inn:Sebastian Hedlund (Valur) Út:Einar Karl Ingvarsson (Valur)
Einar Karl varð að fara af velli vegna meiðsla. Hedlund kemur inn á miðjuna í hans stað.
58. mín
Einar Karl nýtur aðhlynningar hjá Einari Óla. Sýnist hann verða að fara af velli.
56. mín
Arnþór Ari með skot sem Hannes á létt með að verja.
55. mín
Arnar Freyr ver glæsilega frá Patrick Pedersen í kjölfar hornspyrnu Vals. Arnar Freyr hafði skömmu áður átt mjög vandræðalegt moment þegar hann rak boltann og missti hann afturfyrir endamörk.
53. mín
Siggi Lár braut harkalega á Birki Val og hefði vel geta náð í sitt annað gula spjald þarna. Ívar Orri dómari gaf honum séns og hann getur þakkað fyrir það.
50. mín
Bjarni Gunnars í góðu færi en Hannes lokaði markinu.
48. mín
Hannes ver skot Ásgeirs Marteinssonar.
46. mín
Leikur hafinn
Síðari hálfleikur er hafinn. Patrick ætlar að halda leik áfram þrátt fyrir allt svo það eru engar breytingar gerðar á liðunum í hálfleik
46. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur á Origo-vellinum að Hlíðarenda. Staðan 2 - 0 fyrir heimamenn í Val.
45. mín
Patrick Pedersen fékk högg á fótinn undir lok fyrri hálfleiks og fór ekki inn í klefa með liðinu í hálfleik. Jóhann Emil Elíasson þrekþjálfari og Einar Óli Þorvarðarson eru að þjálfa hann á vellinum í hálfleik. Spurning hvort þetta endi ekki á skiptingu.
45. mín MARK!
Patrick Pedersen (Valur)
Stoðsending: Sigurður Egill Lárusson
Heimamenn að auka muninn í 2 - 0. Eftir hraða sókn sendi Sigurður Egill til hliðar á Patrick sem skoraði sitt áttunda mark í sumar í 11 leikjum. Þvílíkur markaskorari.
41. mín Gult spjald: Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Reif Birni niður á eigin vallarhelmingi.
35. mín
Birkir Már Sævarsson fær tiltal fyrir að brjóta á Birni Snær á miðjum vellinum.
30. mín
Hannes er heldur betur í stuði, Bjarni Gunnarsson með fast skot að marki sem Hannes varði yfir markið.
24. mín
Himininn er blár, grasið grænt og Haukur Páll Sigurðsson liggur meiddur á vellinum. Allt eins og vanalega í fótboltaleik á Origo-vellinujm. Hann er þó staðinn upp eftir smá aðhlynningu og kominn inná.
17. mín MARK!
Andri Adolphsson (Valur)
Fyrsta markið er komið! Andri fékk boltann inn í teiginn og vippaði boltanum yfir Andra Frey Ólafsson, flott mark.
11. mín
HK komið í geggjaða sókn, Binni bolti hratt upp völlinn og þrumaði að marki, Hannes varði, boltinn barst á Bjarna Gunnarsson sem erí dauðafæri en Hannes varði aftur.
10. mín
Arnþór Ari með skot að marki af 35 metra færi, Hannes varði.
8. mín
Hröð sókn hjá HK, Arnþór Ari fór illa með Hauk Pál á miðjunni, sendi fram völlinn á Bjarna Gunnarsson sem skaut að marki en Hannes varði.
6. mín
Sigurður Egill skallar yfir mark HK.
2. mín
Tvær hjólhestaspyrnur í fyrstu sókn Vals. Fyrst var það Kristinn Freyr sem setti boltann í varnarmann og svo Andri Adolphsson sem skaut framhjá. Verður boðið upp á sirkusfótbolta í dag?
1. mín
Leikur hafinn
HK byrjaði með boltann og leikur í átt að markaklukkunni.
Fyrir leik
Liðin ganga nú til leiks. Valur er í sínum hefðbundnu búningum, rauð treyja, hvítar buxur og bláir sokkar en HK er í varabúningum sínum, blá treyja, bláar buxur og bláir/hvítir sokkar. Dómarar hefðu örugglega oft sett út á að sokkarnir eru svona líkir en ætli menn séu ekki bara léttir á körfunum í lokaleik sem skiptir litlu máli.
Fyrir leik
Valur hefur lagað leikskýrsluna og hafa þjálfarateymið, Óla Jó, Bjössa Hreiðars, Kristó Sigurgeirs og Rajko Sanisic markmannsþjálfara skráða. Það var nú gott að það leystist svona fyrir kveðjuleikinn þeirra.
Fyrir leik
Birnir Snær Ingason byrjar leikinn í liði HK. Hann gekk í raðir Vals í vetur en var á miðju tímabili seldur til HK.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár hér sitthvorum megin við textann. Það er kannski viðeigandi að Valur setti engan af þjálfurum liðsins á skýrslu í dag. Ég reikna reyndar með því að það séu mistök sem verði lagfærð en Ólafur Jóhannesson þjálfari, Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðmaður hans og Kristófer Sigurgeirsson þriðji þjálfari eru ekki á skýrslunni. Valur hefur átt í viðræðum við nýjan þjálfara um að taka við. Allir eru þjálfararnir þrír hér á svæðinu svo ég reikna með að um mistök sé að ræða.
Fyrir leik
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, er að öllum líkindum á förum eftir tímabilið og hann stýrir kveðjuleik sínum i dag. Óli hefur á tíma sínum hjá Val unnið tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Atli Viðar Björnsson er spámaður umferðarinnar á Fótbolta.net.

Valur 2 - 0 HK
Langt frá síðasta sigurleik Vals en ég trúi ekki öðru en að þeir vilji enda sitt tímabil með örlítilli reisn og klára það með sigri á heimavelli. HK eru alveg örugglega búnir að ná markmiðum sínum en þeir hafa aðeins gefið eftir undanfarið og klára annars frábært tímabil hjá sér, með tapleik.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Í fyrri leik þessara liða í sumar skoraði Birnir Snær Ingason sigurmarkið seint í viðbótartíma fyrir Val. Birnir spilar í dag með liði HK...skorar hann aftur sigurmark í dag?
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Valur og HK mætast í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar í dag. Valur er fyrir leikinn með 26 stig í 9. sæti en HK er stigi ofar í 7. sætinu. Bæði lið gætu hoppað upp og niður töfluna eftir því hvernig leikir dagsins enda.
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
Bjarni Gunnarsson ('66)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason ('80)
10. Ásgeir Marteinsson ('87)
14. Hörður Árnason
18. Atli Arnarson
24. Björn Berg Bryde

Varamenn:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
16. Emil Atlason ('66)
17. Valgeir Valgeirsson ('80)
20. Alexander Freyr Sindrason
21. Andri Jónasson

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Hafsteinn Briem
Þjóðólfur Gunnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Sigurður Viðarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus

Gul spjöld:
Arnar Freyr Ólafsson ('64)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('69)

Rauð spjöld:
Guðmundur Þór Júlíusson ('64)