Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Fylkir
2
2
Þróttur R.
Bryndís Arna Níelsdóttir '7 1-0
1-1 Stephanie Mariana Ribeiro '48
Bryndís Arna Níelsdóttir '90 2-1
2-2 Mary Alice Vignola '90
23.06.2020  -  19:15
Würth völlurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Skýjað og svolítill vindur
Dómari: Atli Haukur Arnarsson
Áhorfendur: 306
Maður leiksins: Mary Alice Vignola - Þróttur R.
Byrjunarlið:
Sæunn Rós Ríkharðsdóttir ('85)
Bryndís Arna Níelsdóttir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Stefanía Ragnarsdóttir
3. Íris Una Þórðardóttir
7. María Eva Eyjólfsdóttir
16. Eva Rut Ásþórsdóttir (f) ('46)
17. Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('59)
21. Berglind Rós Ágústsdóttir (f)
23. Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir (f)

Varamenn:
28. Gunnhildur Ottósdóttir (m)
6. Sunna Baldvinsdóttir
6. Sara Dögg Ásþórsdóttir
8. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('59)
18. Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir
19. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
22. Sigrún Salka Hermannsdóttir ('85)

Liðsstjórn:
Kjartan Stefánsson (Þ)
Margrét Magnúsdóttir (Þ)
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir
Tinna Björk Birgisdóttir
Sigurður Þór Reynisson
Þorsteinn Magnússon
Vesna Elísa Smiljkovic

Gul spjöld:
Bryndís Arna Níelsdóttir ('70)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+7

Þetta er búið.

Þvílíkar lokamínútur í þessum leik. Jafntefli sennilega sanngjörn niðurstaða.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni!
90. mín
+5

Íris Una með skot utan af velli sem fer framhjá markinu. Bæði lið reyna að koma inn sigurmarki.
90. mín
Inn:Andrea Magnúsdóttir (Þróttur R.) Út:Andrea Rut Bjarnadóttir (Þróttur R.)
90. mín MARK!
Mary Alice Vignola (Þróttur R.)
+2

NEEEI HA?

Mary Alice smurði þessum í vinkilinn af löngu færi. Þetta hefði mögulega ekki getað verið meira upp í vinklinum. Annað gullfallegt mark hérna á lokamínútum leiksins.
90. mín
+1

Erum komin í uppbótartíma. 7 mínútum bætt við enda mikið verið um tafir.
90. mín MARK!
Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylkir)
VÁÁÁ!!

Bryndís Arna virðist vera að tryggja Fylki sigurinn með engu smá marki. Þrumuskot utan af velli sem smellur í slánni og inn. Gullfallegt.
87. mín
Hinumegin eru Fylkir í sókn. Íris Una með fyrirgjöf sem ratar á Bryndísi en Þróttarar koma þessu frá.
87. mín
Þróttur í ágætri sókn sem endar með skoti framhjá frá Andreu Rut.
85. mín
Inn:Sigrún Salka Hermannsdóttir (Fylkir) Út:Sæunn Rós Ríkharðsdóttir (Fylkir)
Sigrún Salka kemur inn fyrir Sæunni sem liggur á börum utan vallar.
84. mín
Dómarinn kallar á börur. Þetta lítur alls ekki vel út.
83. mín
Sæunn Rós liggur út við hliðarlínu eftir smá samstuð, virðist mikið þjáð og heldur um hnéð.

Leikurinn stöðvaður svo hún fái aðhlynningu.
82. mín
Bryndís fellur í teignum en dómarinn sér ekki brot, en áhorfendur láta heyra aðeins í sér.
81. mín
Inn:Margrét Sveinsdóttir (Þróttur R.) Út:Stephanie Mariana Ribeiro (Þróttur R.)
78. mín
Úff!

Þórdís Elva tekur aukaspyrnu utan af velli og boltinn endar hársbreidd yfir markinu. Þessi leit í smá stund út fyrir að vera inni!
76. mín
Leikurinn farinn aftur af stað.

Kolbrún Tinna röltir út fyrir völlinn ásamt sjúkraþjálfaranum en hún virðist vera klár í að koma aftur inn.
74. mín
Leikurinn stopp aftur. Samstuð í teignum og það er að mér sýnist Kolbrún Tinna sem liggur og þarf aðhlynningu.
73. mín
Þróttarar keyra upp völlinn og boltinn berst út í teiginn á Lauru Hughes sem á skot í varnarmann og yfir. Hornspyrna.
73. mín
Leikurinn farinn aftur á stað og Frikka heldur áfram í markinu.
72. mín
Inn:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur R.) Út:Linda Líf Boama (Þróttur R.)
70. mín Gult spjald: Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylkir)
Friðrika liggur eftir.

Bryndís Arna fær stungu inn fyrir og Frikka kemur út og er fyrr í boltann en fær fótinn á Bryndísi í sig og þarf aðhlynningu.
68. mín Gult spjald: Laura Hughes (Þróttur R.)
Brýtur á Bryndísi Örnu nokkrum metrum fyrir utan teig. Fylkir á aukaspyrnu.

Bryndís tekur spyrnuna sjálf en skotið er varið.
66. mín
Dauðafæri!!

Bryndís Arna kemst í dauðafæri inn í teig en Frikka kemur út á móti og ver frábærlega.
62. mín
Mary Alice með hættulegan bolta inn á teig en enginn Þróttari nær til boltans.
60. mín
Stefanía með fyrirgjöf inn á teig þar sem Bryndís Arna nær að koma höfðinu í boltann en Frikka grípur þetta örugglega.
59. mín
Inn:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylkir) Út:Margrét Björg Ástvaldsdóttir (Fylkir)
56. mín
Fylkiskonur sækja og reyna að koma skoti á markið en varnarmúr Þróttar fer fyrir alla bolta.
54. mín Gult spjald: Linda Líf Boama (Þróttur R.)
Truflar Cecilíu sem reynir að koma boltanum í leik.
48. mín MARK!
Stephanie Mariana Ribeiro (Þróttur R.)
Stoðsending: Linda Líf Boama
Þróttarar ekki lengi að jafna leikinn!

Linda með góða fyrirgjöd sem Stephanie skallar í netið.
46. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Lea Björt Kristjánsdóttir (Þróttur R.)
46. mín
Inn:Jelena Tinna Kujundzic (Þróttur R.) Út:Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þróttur R.)
46. mín
Inn:Vesna Elísa Smiljkovic (Fylkir) Út:Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylkir)
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Þróttur á lokasókn fyrri hálfleiks en hún fjarar út í sandinn.

Það eru heimakonur í Fylki sem leiða 1-0 þegar gengið er til hálfleiks en leikurinn hefur verið jafn og hart verið barist.
42. mín
Morgan reynir að prjóna sig upp vinstri kantinn en Íris Una hleypir engum þar í gegn.
38. mín Gult spjald: Sóley María Steinarsdóttir (Þróttur R.)
Togar Stefaníu niður og uppsker gult.
38. mín
Fylkiskonur búnar að liggja í sókn í svolítinn tíma núna, ætla þær að bæta við öðru marki fyrir leikhlé?
34. mín
Lítið um að vera þessa stundina. Heimakonur komnar aðeins ofar á völlinn eftir að hafa legið svolítið til baka.
31. mín
Margrét Björg með skot utan teigs sem Friðrika á ekki erfitt með að verja.
28. mín
Hættuleg sókn hjá Þrótturum.

Laura Hughes og Mary Alice með gott spil þar sem Mary Alice kemst á fleygiferð upp að marklínu og leggur hann út í teiginn en enginn Þróttari mættur.
24. mín
Nú er Linda Líf við það að vera sloppin í gegn en enn og aftur flaggar aðstoðardómarinn.
23. mín
Mary Alice og Stephanie reyna að spila sig í gegn um vörn Fyliks en Stephanie er flögguð rangstæð.
17. mín
Linda Líf nælir í aukaspyrnu hægra megin við teig Fylkis.

Klafs inn í teig þar sem dómarinn dæmir sóknarbrot á Þrótt.
16. mín
Bryndís Arna með skot af þröngu færi sem fer framhjá marki Þróttar.
14. mín
Margrét Björg með sendingu inn fyrir á Stefaníu sem er dæmd rangstæð. Þetta leit út fyrir að vera tæpt.
10. mín
Þróttur búnar að spila vel í upphafi en fá svo þetta mark á sig svolíitð gegn gangi leiksins. Sjáum hvernig þær bregðast við þessu.
7. mín MARK!
Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylkir)
Stoðsending: Íris Una Þórðardóttir
Maaark!

Fylkir eru komnar yfir. Íris Una á sendingu inn fyrir vörn Þróttar beint í hlaupalínu Bryndísar Örnu sem leggur hann hægra megin við Friðriku í marki Þróttar.

1-0!
6. mín
Áfram sækja Þróttarar og nú á Lea Björt fínt skot sem Cecilía Rán þarf að hafa sig alla við þessa vörslu. Boltinn berst svo á Andreu Rut sem á skot í hliðarnetið en búið var að flagga.
5. mín
Mary Alice með gott hlaup upp vinstri kantinn og nær góðri fyrirgjöf út í teiginn þar sem Linda Líf nær skoti sem fer í varnarmann.
4. mín
Fylkir setur mikla pressu í byrjun en Þróttarar eru að finna taktinn og eru að ná upp góðu spili.
1. mín
Leikur hafinn
Fylkiskonur hefja leik.
Fyrir leik
Þetta er að skella á, liðin ganga inn á völl í fylgd dómara leiksins. Fylkir appelsínugular eins og við þekkjum þær best, en Þróttarar spila í dökkbláu.
Fyrir leik
10 mínútúr í leik og liðin gengin til búningsklefa að stilla sig saman.
Fyrir leik
Atli Haukur Arnarsson ætlar að dæma þennan leik og honum til aðstoðar verða Ragnar Arelíus Sveinsson og Hafþór Bjartur Sveinsson.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðanna.

Fylkiskonur gera þrjár breytingar frá sigrinum gegn KR. Þær Sæunn Rós, Margrét Björg og Kolbrún Tinna koma inn fyrir Huldu Hrund, Sólveigu Larsen og Kötlu Maríu, sem er ekki með í kvöld vegna meiðsla.

Það eru tvær breytingar hjá Þrótti frá tapinu gegn Val. Morgan Elizabeth Goff og Linda Líf Boama koma inn fyrir Margréti Sveinsdóttur og Andreu Magnúsdóttur.
Fyrir leik
Nýliðar Þróttar eru hins vegar enn stigalausar eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Þær hófu mótið í Eyjum þar sem töpuðu 4-3 fyrir ÍBV í fjörugum leik. Í annarri umferð fengu þær Íslandsmeistara Vals í heimsókn. Valsarar fóru með 1-2 sigur í hörkuleik þar sem Þróttur gaf ekkert eftir.
Fyrir leik
Fylkiskonur eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki deildarinnar.

Þær byrjuðu á 1-0 sigri gegn Selfyssingum og fóru svo í Vesturbæinn og lögðu KR 3-1.
Fyrir leik
Gott kvöld og verið velkomin í beina textalýsingu frá Würth vellinum í Árbænum þar sem Fylkir tekur á móti Þrótti í þriðju umferð Pepsi-Max deildar kvenna.
Byrjunarlið:
2. Sóley María Steinarsdóttir
2. Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
6. Laura Hughes
7. Andrea Rut Bjarnadóttir ('90)
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f) ('46)
9. Stephanie Mariana Ribeiro ('81)
10. Morgan Elizabeth Goff
11. Lea Björt Kristjánsdóttir ('46)
13. Linda Líf Boama ('72)
16. Mary Alice Vignola
20. Friðrika Arnardóttir

Varamenn:
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic ('46)
11. Tinna Dögg Þórðardóttir
14. Margrét Sveinsdóttir ('81)
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('46)
18. Andrea Magnúsdóttir ('90)
19. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir
29. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('72)

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Egill Atlason
Edda Garðarsdóttir

Gul spjöld:
Sóley María Steinarsdóttir ('38)
Linda Líf Boama ('54)
Laura Hughes ('68)

Rauð spjöld: