Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Þróttur R.
0
2
Þór
0-1 Alvaro Montejo '13
0-2 Jóhann Helgi Hannesson '39
02.07.2020  -  18:00
Eimskipsvöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: 17 gráður, sunshine og logn!
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Alvaro Montejo (Þór)
Byrjunarlið:
1. Franko Lalic (m)
2. Sindri Scheving
4. Hreinn Ingi Örnólfsson (f) ('78)
5. Atli Geir Gunnarsson
6. Birkir Þór Guðmundsson ('70)
7. Daði Bergsson (f)
8. Aron Þórður Albertsson
9. Esau Rojo Martinez ('78)
15. Gunnlaugur Hlynur Birgisson
22. Oliver Heiðarsson ('87)
33. Hafþór Pétursson

Varamenn:
Magnús Pétur Bjarnason ('87)
3. Árni Þór Jakobsson
3. Stefán Þórður Stefánsson
10. Guðmundur Axel Hilmarsson
14. Lárus Björnsson ('78)
20. Djordje Panic ('70)
21. Róbert Hauksson ('78)

Liðsstjórn:
Gunnar Guðmundsson (Þ)
Jóhann Gunnar Baldvinsson
Sveinn Óli Guðnason
Srdjan Rajkovic
Páll Steinar Sigurbjörnsson

Gul spjöld:
Sindri Scheving ('15)
Gunnlaugur Hlynur Birgisson ('72)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+3

Pétur Guðmundsson flautar hér til leiksloka. Þórsarar fara norður með 3 stig eftir 2-0 sigur

Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
90. mín
+1

Jakob Snær á skot framhjá.
90. mín
90 mínútur komnar á klukkuna hér á Eimskipvellinum og spurning hverju Pétur Guðmundsson bætir við.
89. mín
Sölvi strax kominn í boltan. Ólafur Aron rennir honum innfyrir á Sölva sem var að koma úr rangstæðu og er flaggaður fyrir innan
87. mín
Inn:Sölvi Sverrisson (Þór ) Út:Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
87. mín
Inn:Magnús Pétur Bjarnason (Þróttur R.) Út:Oliver Heiðarsson (Þróttur R.)
86. mín
Fátt um fína drætti í þessum síðari hálfleik, gjör ólíkur þeim fyrri.
85. mín
Ólafur Aron kemur honum á Jakob Franz sem vinnur aðra hornspyrnu fyrir Þórsara

Ólafur Aron kemur boltanum fyrir en Þróttarar hreinsa.
84. mín
Jakob Franz vinnur hornspyrnu fyrir Þórsara sem Ólafur Aron tekur en ekkert varð úr henni og Þróttarar hreinsa
82. mín
Ólafur Aron kemur boltanum á Jóhann Helga sem keyrir af stað í átt að marki Þróttara en Hafþór með frábæran varnarleik.
80. mín
Slæm sending hjá Þrótturum beint Sigurður Marinó sem fær flugbrautina og keyrir inn á teig en rennur og Þróttarar koma boltanum í burtu
78. mín
Inn:Róbert Hauksson (Þróttur R.) Út:Esau Rojo Martinez (Þróttur R.)
78. mín
Inn:Lárus Björnsson (Þróttur R.) Út:Hreinn Ingi Örnólfsson (Þróttur R.)
76. mín
Þórsararnir eru gríðarlega vel skipulagðir og heimamenn ná ekki að finna neinar opnanir og eru farnir að reyna ansi erfiða hluti.
73. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (Þór ) Út:Alvaro Montejo (Þór )
72. mín Gult spjald: Gunnlaugur Hlynur Birgisson (Þróttur R.)
71. mín
Oliver keyrir upp hægra megin og á fyrirgjöf sem Loftur Páll hreinsar
70. mín
Inn:Djordje Panic (Þróttur R.) Út:Birkir Þór Guðmundsson (Þróttur R.)
67. mín
Aukaspyrnuna tekur Aron Þórður en hún yfir allan pakkann og afturfyrir.
67. mín
Oliver vinnur aukaspyrnu fyrir Þróttara en Ólafur Aron braut á honum

Oliver verið frískastur hjá Þrótti það sem af er.
66. mín
Inn:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór ) Út:Jónas Björgvin Sigurbergsson (Þór )
63. mín
Daði Bergs reynir að finna Rojo Martinez en Hermann Helgi er á undan í boltan og kemur honum í horn

Aron Þórður á hornspyrnuna en hún drífur ekki yfir fyrsta mann.
61. mín
Ólafur Aron á tvær hornspyrnur í röð frá sem ekkert verður úr.
60. mín
AlLVAROOOO

Fær boltan út á vinstri,keyrir inn á völlinn og á skot sem Franko Lalic ver vel í hornspyrnu
54. mín Gult spjald: Ólafur Aron Pétursson (Þór )
Keyrir Oliver niður
53. mín
Sveinn Elías kemur með boltanum á Jóhann Helga sem var búin að draga sig út vinstra meginn keyrir af stað og klobbar Hrein en Atli Geir kemur í góða hjálparvörn.
50. mín
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks byrja mjög rólega og er ekkert að frétta hérna.
47. mín
Aron Þórður reynir að finna Daða Bergs í góðu hlaupi en boltin afturfyrir.
46. mín
Inn:Jakob Franz Pálsson (Þór ) Út:Orri Sigurjónsson (Þór )
Bjarki Þór fer í vörnina með Loft og Hermanni og Jakob kemur inn sem hægri vængbakvörður.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafin.
45. mín
Hálfleikur
Pétur Guðmundsson flautar hér til hálfleiks á slaginu 45

Þórsarar fara með að mínu mati verðskuldaða forustu inn í hálfleik

Tökum okkur smá pásu og komum síðan með síðari hálfleikinn!
44. mín
Gunnlaugur Hlynur kemur boltanum út á Sindra Scheving sem á fastan bolta fyrir og Rojo nær ekki til boltans og Sveinn Elías skallar í horn sem varð ekkert úr.
43. mín
Oliver fær boltan hægra meginn og keyrir inn á völlinn, fer framhjá Svenna og endar með því að Hermann Helgi klippir hann niður og Þróttarar fá aukaspyrnu á góðum stað

Aron Þórður setur hann skemmtilega framhjá vegg Þórsara þar sem Oliver var í hlaupi en nær ekki að koma boltanum fyrir!
40. mín
Þróttarar vilja fá víti

Oliver fær boltan innfyrir og fellur eftir samskipti sín við Hermann sýndist mér en Pétur dæmir ekkert!
39. mín MARK!
Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
Stoðsending: Alvaro Montejo
JÓHANN SKORAR ALLTAF MÖRK!

Bjarki Þór á langt innkast beint á Alvaro sem reynir hjólhestaspyrnu sem fer í Þróttara og Jóhann Helgi kemur sér á undan Franko í boltan og setur hann í autt mark

2-0!!
38. mín
Alvaro kemur úr djúpinu og fær boltan og kemur honum strax út á Bjarka sem finnur Jónas inn í teig en skot han af Hreini og í horn

Ólafur Aron á spyrnuna en ekkert verður úr henni.
33. mín
Atli Geir á fyrirgjöf frá hægri og Rojo er í baráttu við Orra Sigurjóns og fellur. Rojo vildi fá eitthvað þarna en Pétur Guðmundsson dæmir ekkert.
30. mín
Oliver Heiðarsson tekur skemmtilegan þríhyrning við Daða Bergs en nær ekki fyrirgjöf og Þróttarar þurfa að leita til baka og byrja spilið upp á nýtt.

Þórsararnir eru vel skipulagðir þarna aftast.
26. mín
Hermann Helgi finnur Ólaf Aron inn á miðjuna og Aron neglir honum yfir á Bjarka sem á fyrirgjöf, og eitthvað klafs í teignum sem endar með að Pétur Guðmundsson dómari leiksins dæmir aukaspyrnu á Þórsara, sá ekki alveg hver var sá brotlegi.
21. mín
Siggi Marinó hælar hann skemmtilega á Alvaro sem keyrir á vörn Þróttar og finnur Jóhann Helga sem tapar boltanum en vann hann strax aftur og kemur honum til Svenna sem á góða tilraun en skot hans beint á Franko
19. mín
VEL VARIÐ HJÁ FRANKO LALIC!!!

Alvaro fær boltan frá Jónasi og fer ílla með varnarmenn Þróttar og á skot sem Franko ver mjög vel í horn
17. mín
Sveinn Elías keyrir upp vinstrameginn og finnur Jóhann Helga sem reynir að koma sér í skot en vinnur hornspyrnu sem ekkert varð úr
15. mín Gult spjald: Sindri Scheving (Þróttur R.)
Braut á Bjarka Þór.
13. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
ALVAROOOOOO MONTEJOOOO!!!!

Fær góðan bolta inn fyrir vörn Þróttar og klárar mjög vel framhjá Franko Lalic

Alvaro elskar að skora á móti Þrótt!!
9. mín
OLIVER!!!!

Fer ílla með 2 varnarmenn Þórs og reynir að finna Rojo í gott hlaup sem fær boltan í hælinn. Þarna voru Þórsarar heppnir
7. mín
Bjarki Þór kemur með góða fyrirgjöf frá hægri og eitthvað klafs var í teignum sem endar með að Þróttarar hreinsa.
6. mín
Alvaro tapar boltanum klaufalega og Rojo fær flugbrautina og reynir að finna Daða en sendingin ekki góð
5. mín
Daði Bergs reynir fyrirgjöf hinumeginn sem er beint á Aron Birki.
3. mín
Bjarki Þór fær boltan úti hægra meginn og reynir fyrirgjöf en Hafþór Pétursson skallar boltan í burtu.
2. mín
Sveinn Elías fær boltan á vinstri vængnum og reynir fyrirgjöf sem ætluð var Jónasi en Þróttarar koma boltanum í burtu.
1. mín
Þórsararnir byrja í 5-3-2 sýnist mér
1. mín
Leikur hafinn
Alvaro tekur upphafsspyrnu leiksins

Þetta er farið af stað hér í Laugardalnum.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn.
Fyrir leik
Liðin eru mætt út á völl og byrjuð að hita.

Fyrir þá sem eru að íhuga að mæta á völlinn þá mæli ég mikið með að þið skellið ykkur í Laugardalinn í þetta geggjaða veður.
Fyrir leik
Hörður Ingi Gunnarsson hægri bakvörður FH fékk það verkefni að spá í 3.umferð deildarinnar og spáir hann því að Þróttarar fái sín fyrstu stig hér í kvöld

Þróttur R. 2 - 1 Þór

,,Þróttararnir sækja sín fyrstu stig í Laugardalnum í þessum leik. Acoff sér um það með tveimur slummum."

Spá Harðar Inga má sjá hér
Fyrir leik
Báðir þjálfarar gera breytingar frá 2.umferðinni

Gunni Guðmunds gerir 2 breytingar frá tapinu í Grindavík en þeir Rojo Martinez og Hreinn Ingi koma inn í staðin fyrir Magnús Pétur og Guðmund Friðriksson en Guðmundur tekur út leikbann hér í dag.

Palli Gísla gerir alls 5 breytingar frá sigurleiknum gegn Leikni F. Jónas Björgvin, Sigurður Marinó, Jóhann Helgi, Hermann Helgi og Sveinn Elías koma allir inn í staðin fyrir Jakob Snæ, Fannar Malmquist, Elmar Þór Jónsson, Izaro Abella og Jakob Franz
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðana.

Rojo Martinez og Jóhann Helgi leiða linurnar í kvöld!
Fyrir leik
Veðrið á höfuðborgarsvæðinu er STURLAÐ og fá leikmenn ekki betra fótboltaveður.
17 gráður, logn og sólin skín!
Fyrir leik
Talandi um bikarinn.. Þá voru bæði liðin í sviðsljósinu í síðustu viku þegar 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins fóru fram.

Þróttarar fengu FH í heimsókn hér á Eimskipsvellinum og endaði sá leikur 1-2 fyrir Hafnfirðingum en mark Þróttar í leiknum gerði Djordje Panic en það dugði ekki Þrótti sem eru úr leik og geta þeir sett fulla einbeitingu á deildina.

Gestirnir í Þór fengu Reyni Sandgerði í heimsókn á Þórsvöll, staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1 og þurfti framlengingu til að skera um hvort liðið færi áfram og voru það Þórsarar sem kláruðu leikinn undir lok framlengingar þegar Sigurður Marinó fór á vítapunktinn og skoraði, hitt mark Þórs í leiknum skoraði Sölvi Sverrisson. Þórsarar fá það verðuga verkefni að fara í Krikann og mætir liðið FH í 16-liða úrslitunum.

Smelltu hér til að sjá dráttinn í heild
Fyrir leik
Það eru nokkur spurningarmerki fyrir leikinn hér í kvöld þegar við skoðum leikmannahópana.

Hjá Þrótturum er Dion Acoff tæpur, en hann meiddist á rist í bikarnum gegn FH í síðustu viku og missti af leiknum gegn Grindavík á sunnudagin síðast liðin og sagði Gunni Guðmunds þjálfari Þróttar við fréttaritara Fótbolta.Net í Grindavík að þeir vonist til þessi að hann verði klár hér í kvöld.
Þróttarar vonast til að Dion verði klár.

Hjá Þórsurum fóru þeir Aron Birkir Stefánsson, Orri Sigurjónsson og Elmar Þór Jónsson allir meiddir af velli gegn Leikni Fáskrúðsfirði og spurning hvort Páll Viðar treysti þeim í þetta verkefni hér í kvöld.
Fyrir leik
Þessi lið mættust tvíveigis síðasta sumar í þessari sömu deild sem hét þá Inkasso deildin og tóku Þórsarar öll stigin sem þar voru í boði.

Liðin byrjuðu á að mætast á Þórsvelli og endaði sá leikur 2-0 fyrir Þórsurum en mörkin gerðu þeir Alvaro Montejo og Sigurður Mairnó Kristjánsson, þeir eru báðir í leikmannahóp Þórs í ár.

Seinni leikurinn fór fram hér í Laugardalnum og enduðu leikar 1-3 fyrir Þórsurum, mark Þróttara í leiknum gerði Rafael Alexandre Romao Victor en hann yfirgaf Þrótt eftir síðasta tímabil og leikur í Ísrael í dag. Dagur Austmann kom Þórsurum yfir í leiknum með sjálfsmarki en hann leikur í dag með Leikni frá Reykjavík, hin mörkin gerðu þeir Alvaro Montejo og Sveinn Elías Jónsson.

Sex mörk í viðureignum þessara liða í fyrra!
Það er því eitthvað sem segir mér að við fáum markaleik hér í kvöld!
Fyrir leik
Fyrir tímabilið voru þjálfarar og fyrirliðar liðana sem spáðu fyrir um deildina og var þessum tveimur liðum spáð ólíku gengi. Þrótturum var spáð 10. sæti af þjálfurum og fyrirliðum.
Þjálfarar og fyrirliðar deildarinnar spá því hinsvegar að Þórsarar verði í toppbaráttu í sumar en þeim er spáð 4.sæti af þjálfurum og fyrirliðum.

Eftir fyrstu tvær umferðirnar eru þessi lið á sitthvorum enda töflunar en Þróttarar eru stigalausir við botnin. Þórsarar eru hinsvegar með fullt hús stiga á toppi deildarinnar ásamt Keflavík, Fram og ÍBV.

Þróttarar fóru til Grindavíkur í síðustu umferð og endaði sá leikur 1-0 Grindavík í vil en Þróttarar spiluðu einum færri í rúman klukkutíma en Guðmundur Friðriksson fékk tvö gul á stuttu millibili og tekur því út leikbann hér í dag.
Þórsarar fóru í heimsókn til Leiknis frá Fáskrúðsfirði en Þórsararnir sigruðu 2-3 og Bjarki Þór Viðarsson gerði tvö fyrstu mörk Þórsara áður en Jóhann Helgi Hannesson skoraði kærkomið mark og sagði bakpoka Palli við fréttaritara Fótbolta.net eftir leik að honum þótti rosalega vænt um það mark.
Fyrir leik
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Eimskipsvellinum. Hér í kvöld fá Þróttarar frá Reykjavík strákana úr Þorpinu á Akureyri í heimsókn í þriðju umferð Lengjudeildarinnar.
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Sveinn Elías Jónsson
Orri Sigurjónsson ('46)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
5. Loftur Páll Eiríksson
6. Ólafur Aron Pétursson
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson ('66)
9. Jóhann Helgi Hannesson (f) ('87)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson
24. Alvaro Montejo ('73)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
14. Jakob Snær Árnason ('73)
15. Guðni Sigþórsson
16. Jakob Franz Pálsson ('46)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('66)
18. Izaro Abella Sanchez

Liðsstjórn:
Páll Viðar Gíslason (Þ)
Kristján Sigurólason
Sölvi Sverrisson
Birkir Hermann Björgvinsson
Perry John James Mclachlan
Stefán Ingi Jóhannsson

Gul spjöld:
Ólafur Aron Pétursson ('54)

Rauð spjöld: