Vivaldivöllurinn
laugardagur 04. júlí 2020  kl. 14:00
Pepsi Max-deild karla
Maður leiksins: Axel Sigurðsson
Grótta 4 - 4 HK
1-0 Pétur Theódór Árnason ('2)
2-0 Axel Sigurðarson ('17)
Patrik Orri Pétursson, Grótta ('37)
2-1 Atli Arnarson ('38, víti)
2-2 Arnþór Ari Atlason ('49)
3-2 Ástbjörn Þórðarson ('62)
4-2 Karl Friðleifur Gunnarsson ('65)
4-3 Arnþór Ari Atlason ('75)
4-4 Ari Sigurpálsson ('83)
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Byrjunarlið:
1. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Arnar Þór Helgason
3. Bjarki Leósson
5. Patrik Orri Pétursson
6. Sigurvin Reynisson (f)
7. Pétur Theódór Árnason ('54)
9. Axel Sigurðarson ('71)
10. Kristófer Orri Pétursson ('46)
19. Axel Freyr Harðarson ('79)
22. Ástbjörn Þórðarson
29. Óliver Dagur Thorlacius ('79)

Varamenn:
12. Jón Ívan Rivine (m)
14. Ágúst Freyr Hallsson
15. Halldór Kristján Baldursson ('46)
16. Kristófer Melsted ('79)
20. Karl Friðleifur Gunnarsson ('54)
21. Óskar Jónsson ('79)
26. Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('71)

Liðstjórn:
Ingi Hrafn Guðmundsson
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Guðmundur Steinarsson
Þorleifur Óskarsson
Christopher Arthur Brazell
Jón Birgir Kristjánsson
Þór Sigurðsson

Gul spjöld:
Patrik Orri Pétursson ('9)
Ástbjörn Þórðarson ('45)
Sigurvin Reynisson ('75)

Rauð spjöld:
Patrik Orri Pétursson ('37)
@Stefanmarteinn7 Stefán Marteinn Ólafsson
95. mín Leik lokið!
Sturluðum leik lokið hérna á Vivaldi vellinum!
Fyrstu stig Gróttu staðreynd en hlítur að vera súrsæt úrslit báðum megin við borðið.
Eyða Breyta
94. mín
HK að komast í hörku færi en flatuað.
Eyða Breyta
94. mín Gult spjald: Birkir Valur Jónsson (HK)

Eyða Breyta
92. mín
Hef ekki hugmynd um hverju var bætt við en vonandi var það slatti!
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Guðmundur Þór Júlíusson (HK)

Eyða Breyta
90. mín
Förum að sigla inn í uppbótartíma.
Fáum við sigurmark?
Eyða Breyta
88. mín
Ég gæti vel þegið aðrar 90 mín af þessi veislu! Þvílíkur leikur!
Eyða Breyta
86. mín
Diddi liggur eftir og leikurinn stopp.
Eyða Breyta
85. mín
ÞESSI LEIKUR!

Sigurvin Reynisson tekur á sprettinn og sólar sig í gegn alveg upp að Didda sem ver svo frá honum!
Eyða Breyta
83. mín MARK! Ari Sigurpálsson (HK), Stoðsending: Ásgeir Börkur Ásgeirsson
HK JAFNAR!!!!!!

HVAÐ ER AÐ ÞESSUM LEIK!?

Ásgeir Börkur með ágætis skot sem Hákon Rafn ver út í teig og Ari tæklar frákastið inn!!
Eyða Breyta
81. mín
HK er hægt og rólega að gera sig líklegri þessa stundina.
Eyða Breyta
80. mín Ari Sigurpálsson (HK) Stefan Alexander Ljubicic (HK)

Eyða Breyta
79. mín Óskar Jónsson (Grótta) Óliver Dagur Thorlacius (Grótta)
Tvöföld hjá Gróttu.
Eyða Breyta
79. mín Kristófer Melsted (Grótta) Axel Freyr Harðarson (Grótta)

Eyða Breyta
76. mín Gult spjald: Ásgeir Marteinsson (HK)

Eyða Breyta
75. mín MARK! Arnþór Ari Atlason (HK), Stoðsending: Valgeir Valgeirsson
HK MINNKAR MUNINN!!

Valgeir Valgeirs með gott hlaup upp vinsti og leggur hann út í teig á Arnþór Ara sem kemur honum í netið.

Þessi leikur!
Eyða Breyta
75. mín Gult spjald: Sigurvin Reynisson (Grótta)

Eyða Breyta
71. mín Gabríel Hrannar Eyjólfsson (Grótta) Axel Sigurðarson (Grótta)
Verið besti maður vallarins til þessa.
Eyða Breyta
65. mín MARK! Karl Friðleifur Gunnarsson (Grótta), Stoðsending: Óliver Dagur Thorlacius
HVAAAÐ ER AÐ GERAST!?

Gróttumenn eru einum færri að tvöfalda sína forystu og mölbrjóta um leið þessa markastíflu sína í efstudeild!
Frábært horn og skalli!
Eyða Breyta
62. mín Valgeir Valgeirsson (HK) Birnir Snær Ingason (HK)
Birnir ekki verið góður í dag.
Eyða Breyta
62. mín MARK! Ástbjörn Þórðarson (Grótta)
GRÓTTA KEMST YFIR Á NÝJAN LEIK!!

Gróttumenn taka hornið sem HK skallar frá marki beint í fæturnar á Ástbirni sem lætur bara vaða og boltinn í netinu! Átti sennilega viðkomu við einhvern á leiðinni í netið en Ástbjörn fagnar manna mest svo hann fær þetta!
Eyða Breyta
61. mín
Axel Sigurðar með geggjað hlaup! Grótta kemur boltanum fram á Axel Sigurðar sem hleypur með mann í sér upp að marki HK og á skot sem Diddi ver í horn.
Eyða Breyta
60. mín
Axel Sigurðs kemst í gott 1v1 á varnarlínu HK og vinnur horn.
Diddi slær það hinsvegar í burtu.
Eyða Breyta
59. mín
Það er aðeins að lifna yfir Gróttu aftur.
Eyða Breyta
57. mín
Ástbjörn með frábæra vinnslu og flott hlaup upp hægri vænginn og finnur Axel Sigurðs inni í teig en hann nær ekki valdi á boltanum og HK kemst fyrir. Hann fellur í kjölfarið og heimamenn vilja fá eitthvað á þetta en ekkert dæmt.
Eyða Breyta
55. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Brýtur á Axel Freyr.
Eyða Breyta
54. mín Karl Friðleifur Gunnarsson (Grótta) Pétur Theódór Árnason (Grótta)

Eyða Breyta
54. mín
HK byrjað seinni hálfleikinn mun betur!
Eyða Breyta
49. mín MARK! Arnþór Ari Atlason (HK), Stoðsending: Birkir Valur Jónsson
HK JAFNAR!!

Birkir Valur með flott hlaup og leggur hann út á Arnþór Ara sem á gott skot sem Hákon Rafn ræður ekki við!
Eyða Breyta
46. mín Ívar Örn Jónsson (HK) Alexander Freyr Sindrason (HK)

Eyða Breyta
46. mín Halldór Kristján Baldursson (Grótta) Kristófer Orri Pétursson (Grótta)

Eyða Breyta
46. mín
Farið af stað aftur.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Grótta leiðir í hálfleik!


Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (Grótta)
Soft brot og spjald.
Gróttu menn trylltir og þá sérstaklega kannski í ljósi þess að Alexander Freyr hefði átt að fá seinna gula fyrir 20 sek fyrir "meira brot".
Eyða Breyta
45. mín
Alexander Freyr STÁLHEPPINN! að fá ekki seinna gula þegar hann klippir Axel Sigurðs niður. Hefði að mínu mati átt að fá seinna gula þarna!
Eyða Breyta
38. mín Mark - víti Atli Arnarson (HK)
Sendir Hákon Rafn í vitlaust horn.

HK-ingar era komnir inn í þetta aftur með krafti!!
Eyða Breyta
37. mín Rautt spjald: Patrik Orri Pétursson (Grótta)
Seinna gula fyrir hendi,
Eyða Breyta
37. mín
VÍTI!!
HK FÆR VÍTI!
Ásgeir Marteins sýndist mér eiga skotið sem fór í hendina á Patrik.
Eyða Breyta
35. mín Gult spjald: Alexander Freyr Sindrason (HK)

Eyða Breyta
33. mín
Birkir Valur liggur eftir samstuð og liðin nýta tímann meðan hlúið að að honum til að taka létta drykkjarpásu og fara yfir málin.
Eyða Breyta
31. mín
Kristófer Orri með fallegan bolta yfir varnarlínu HK á Pétur Theódór en hann nær ekki að gera sér mat úr þessu.
Grótta hefur verið að opna vörn HK í þessum leik með skemmtilegum boltum og ég þori ekki að útiloka fleirri mörk frá Gróttu í dag.
Eyða Breyta
29. mín
Arnþór Ari með ágætis skot utan af velli en það er beint á Hákon Rafn.
Eyða Breyta
28. mín
HK að komast í ákjósanlegt marktækifæri en Stefan Lubicic náði ekki að gera sér mat úr þessu og Grótta fær markspyrnu.
Eyða Breyta
27. mín
HK aðeins farnir að verða beittari fram á við en hingað til hefur Grótta náð að halda þessu í skefjum.
Eyða Breyta
24. mín
Grótta með mun hættulegri sóknaraðgerðir en HK í þessum leik, enda leiða þeir sanngjarnt og sannfærandi 2-0.
Eyða Breyta
21. mín
Axel Sigurðs í hörku færi hinumegin og vinnur horn sem ekkert verður úr í fyrstu en boltinn berst svo inn á teig og Gróttumaður fellur inni í teig þeir vilja fá víti en fá ekkert.
Sennilega réttur dómur að láta þetta halda áfram.
Eyða Breyta
19. mín
HK með hörkufæri!
Birkir Valur með flotta fyrirgjöf sem Atli Arnars nær að koma fætinum en boltinn framhjá.
Eyða Breyta
17. mín MARK! Axel Sigurðarson (Grótta), Stoðsending: Kristófer Orri Pétursson
Stórkostleg sending innfyrir á Axel Sigurðsson sem er allt í einu sloppinn innfyrir og skorar!

GRÓTTUMENN ERU MÆTTIR TIL LEIKS!
Eyða Breyta
16. mín
Tekið stutt og fyrirgjöf fyrir markið en flaggið á loft.
Eyða Breyta
16. mín
Axel Sigurðsson með flott hlaup og vinnur horn hinumegin fyrir Gróttu.
Eyða Breyta
15. mín
Tekið stutt en Gróttumenn komast fyrir þetta og gef þeim fleirri horn.
Eyða Breyta
14. mín
HK með fyrsta horn leiksins.
Eyða Breyta
10. mín Gult spjald: Atli Arnarson (HK)

Eyða Breyta
9. mín Gult spjald: Patrik Orri Pétursson (Grótta)

Eyða Breyta
7. mín
Engir boltasækjar hér í dag. Grótta með flott uppspil en Alexander Freyr lúðrar honum útaf og vinnur góðan tíma fyrir HK að komas sér tilbaka á meðan boltinn er sóttur.
Eyða Breyta
6. mín
HK með háan bolta fyrir markið ætlað Stefán Ljubicic en Hákon Rafn er alveg með þetta.
Eyða Breyta
2. mín MARK! Pétur Theódór Árnason (Grótta), Stoðsending: Axel Sigurðarson
GRÓTTA ER KOMIN Á BLAÐ!!!!

Pétur Theódór Árnason er fyrsti markaskorari Gróttu í efstu deild!
Geggjaður bolti fastur niðri fyrir markið frá Axel Sigurðssyni og Pétur kemur á ferðinni á fjærstöng og potar honum inn!
Eyða Breyta
1. mín
Þetta er farið af stað! Það eru HK sem byrja leikinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Grótta getur með sigri í dag lyft sér upp að hlið HK og uppfyrir fallsæti.
HK mun með sigri lyfta sér upp í 6 stiga partýið sem sem hefur myndast frá 2.-6.sæti.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ívar Orri Kristjánsson, dómari ársins í fyrra, verður með flautuna í dag. Þetta er fyrsti Pepsi Max leikur Ívars á tímabilinu en hann meiddist í bikarleik fyrir mót en hefur jafnað sig á þeim meiðslum.
Honum til aðstoðar verða svo Birkir Sigurðsson og Sveinn Þórður Þórðarson.
Þórður Georg Lárusson verður í eftirlitinu og þá er Pétur Guðmundsson til taks ef í harðbakkan slær.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ekki það að Grótta hafi verið með auðvelt prógram heldur en þeir hafa mætt Íslandsmeistarakandötunum í Breiðablik og Val ásamt því að hafa farið í lautina og mætt Fylki.
Eyða Breyta
Fyrir leik
HK hafa fengið alvöru prógram í byrjun móts en þeir hafa þegar mætt FH,KR og Val.
Þeir sóttu úr þeim viðreignum sín 3 stig í deildinni til þessa gegn ríkjandi Íslandsmeisturum KR.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Gróttumenn hafa ekki litið sannfærandi út í byrjun móts, sitja stigalausir á botni deildarinnar og hafa til að mynda ekki náð að skora sitt fyrsta mark í Pepsi Max deildinni en það er aldrei að vita hverju þeir taka uppá í dag en þeir hafa marga stórskemmtilega leikmenn innanborðs.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Komið margblessuð og sæl!
Verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá 4.umferð Pepsi Max deild karla þar sem heimamenn í Gróttu fá HK í heimsókn.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
5. Guðmundur Þór Júlíusson
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason ('62)
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
14. Hörður Árnason
18. Atli Arnarson
20. Alexander Freyr Sindrason ('46)
30. Stefan Alexander Ljubicic ('80)

Varamenn:
12. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
19. Ari Sigurpálsson ('80)
21. Ívar Örn Jónsson ('46)
24. Þorsteinn Örn Bernharðsson
29. Valgeir Valgeirsson ('62)

Liðstjórn:
Alma Rún Kristmannsdóttir
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Viktor Bjarki Arnarsson
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson

Gul spjöld:
Atli Arnarson ('10)
Alexander Freyr Sindrason ('35)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('55)
Ásgeir Marteinsson ('76)
Guðmundur Þór Júlíusson ('90)
Birkir Valur Jónsson ('94)

Rauð spjöld: