Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
Í BEINNI
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
Valur
LL 2
1
Breiðablik
KA
2
2
Breiðablik
0-1 Thomas Mikkelsen '44
Brynjar Ingi Bjarnason '66 1-1
Guðmundur Steinn Hafsteinsson '90 , víti 2-1
2-2 Thomas Mikkelsen '92 , víti
05.07.2020  -  16:00
Greifavöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Mikill vindur og hiti ca. 10 gráður
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 815
Maður leiksins: Höskuldur Gunnlaugsson
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Almarr Ormarsson (f)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson ('82)
11. Ásgeir Sigurgeirsson ('69)
16. Brynjar Ingi Bjarnason ('82)
20. Mikkel Qvist
22. Hrannar Björn Steingrímsson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
77. Bjarni Aðalsteinsson

Varamenn:
12. Kristijan Jajalo (m)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
14. Andri Fannar Stefánsson ('82)
17. Ýmir Már Geirsson
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('69)
29. Adam Örn Guðmundsson
30. Sveinn Margeir Hauksson ('82)

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Gunnar Örvar Stefánsson
Halldór Hermann Jónsson
Pétur Heiðar Kristjánsson
Branislav Radakovic
Baldur Halldórsson

Gul spjöld:
Ívar Örn Árnason ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessu er lokið! Svakalegar lokamínútur. Jafntefli niðurstaðan og bæði lið hundfúl.
93. mín
Qvist með langan bolta úr innkasti en ekkert verður úr því.
93. mín
Ég skal segja ykkur það!! Þessi leikur!
92. mín Mark úr víti!
Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Öruggt. Setur Aron í vitlaust horn.
91. mín
HALLÓ!!

Breiðablik fær víti hinum meginn strax!

Boltinn fer í hendina á Hrannari eftir að hann rann á vellinum. Völlurinn að reynast KA mönnum dýr, fara mögulega tveimur stigum fátækari úr þessum leik.
90. mín Mark úr víti!
Guðmundur Steinn Hafsteinsson (KA)
Guðmundur setur Anton í vitlaust horn!

Fyrsta mark hans fyrir KA.
89. mín
VÍTI!!!

KA fær víti!

Eftir hornspyrnu rífur Róbert Mateo niður!
88. mín Gult spjald: Ívar Örn Árnason (KA)
Líklega fyrir mótmæli
86. mín
Ekkert verður úr spyrnunni en Ívar fær spark í hausinn og liggur eftir.

Virðist vera í lagi með hann.
85. mín
KA með fína sókn, þar sem Guðmundur fór fremstur í flokki og eiga hornspyrnu.
82. mín
Inn:Sveinn Margeir Hauksson (KA) Út:Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Tvöföld skipting hjá KA mönnum.
82. mín
Inn:Andri Fannar Stefánsson (KA) Út:Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Gat ekki haldið leik áfram en virðist þó ekki vera alvarlegt.
82. mín
FRÁBÆR MARKVARSLA! Höskuldur gott sem kominn einn á móti markmanni eftir góða sendingu frá Mikkelsen en Aron gerir vel.
80. mín
Brynjar virðist ekki geta haldið leik áfram, kominn með krampa sem eru virkilega vondar fréttir fyrir KA. Búinn að vera góður fyrir KA.
77. mín
Mikkelsen á svo skot stuttu síðar sem fer hárfínt framhjá markinu.
76. mín
Sá hraði á þessu Breiðabliksliði. Stela boltanum af KA inn á eigin vallarhelming og á 0.1 er Quee kominn upp að endamörkum hinum meginn og með sendingu fyrir sem KA kemur í burtu á síðustu stundu.
75. mín
815 manns mætir á Greifavöllinn á fylgjast með.
74. mín
Quee brýtur á Ívar i sem liggur eftir og þarf aðhlynningu.
72. mín
KA fær aukaspyru á ákjósanlegum stað. Róbert brýtur á Hrannari. Hér ætlar Hallgrímur að munda fótinn. Boltinn á fjær þar sem Ívar nær til hans en nær ekki að stýra honum í átt að markinu. Hrannar tekur svo skot fyrir utan teig sem fer yfir markið.
71. mín
Þá er Brynjólfur næstur á dagskrá. Keyrir á markið en boltinn í varnarmann og útaf. Hornspyrna sem verður ekkert úr.
70. mín
Mikkelsen við það að sleppa í gegn. Tekur skotið en það er yfir markið.
69. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA) Út:Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Ásgeir búinn að kveinka sér aðeins í síðari hálfleik og fær hvíld.
66. mín MARK!
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson
KA búið að jafna!! Hallgrímur með góðan bolta úr hornspyrnu. Brynjar með frábæra hreyfingu, rífur sig frá Róbert og neglir honum í fjærhornið.

Þetta er sannarlega gegn gangi leiksins!
64. mín
Sókn KA er svo slöpp. Guðmundur Steinn fær boltann og setur hann út á Ásgeir sem gefur fyrir þar sem nákvæmlega enginn KA maður er.
63. mín
Ekkert verður út spyrnunni.
63. mín
Að því sögðu fær KA hornspyrnu.
62. mín
Leikurinn fer í raun bara fram á vallarhelming KA manna.
61. mín
Breiðablik með aukaspyrnu úti hægra meginn við teig. Boltinn fer á Ívar sem sparkar honum í burtu. Hefur ekki mikið komið út úr föstu leikatriðum hjá Blikum í dag.
58. mín
Sóknarlína Blika lítur virkilega vel upp hér í seinni hálfleik. KA menn hafa ekki fengið andrými síðan seinni hálfleikur fór af stað.
56. mín
Aftur er Brynjólfur að leika sér að varnarmönnum KA manna og nær fínu skoti en inn vill boltinn ekki. Háspenna við mark KA manna!
55. mín
Það er eiginlega bara tímaspursmál hvenær Breiðablik setur mark númer tvö. Höskuldur kemur á mikilli ferð og nær skotinu en Qvist bjargar.
54. mín
Breiðablik vill fá vítaspyrnu þegar Brynjólfur fer niður. Qvist á að hafa haldið í hann en Jóhann ekki sammála.
52. mín Gult spjald: Oliver Sigurjónsson (Breiðablik)
Oliver í bókina fyrir að sparka boltanum í burtu. Oliver ósáttur við spjaldið.
50. mín
KA BJARGAR Á LÍNU!!

Brynjólfur enn og aftur með frábæra takta inn á teig og nær skotinu en Brynjar bjargar á línu.

Hér hefði staðan hæglega geta orðið 0-2.
50. mín
Quee kemur á ferðina og munar litlu að hann komst framhjá Qvist í vörninni. Qvist hins vegar heppinn að vera með langa leggi og nær að setja stóru tá í boltann.
49. mín
Brynjar fer harkalega í Brynjólf og Breiðablik fær aukaspyrnu við miðju vallarins. Sendingin er skölluð í burtum af KA mönnum.
48. mín
Hallgrímur með skot fyrir utan teig en beint á Anton í markinu.
47. mín
Hrannar með hörku fyrirgjöf en boltinn framhjá markinu án viðkomu í neinn.
46. mín
Breiðablik byrjaði á því að keyra á vörn KA, ágætis hætta.
45. mín
Breiðablik byrjar með boltann í seinni. Nú fá heimamenn vindinn í bakið en það er ágætis meðbyr með honum.
45. mín
Hálfleikur
Hörku fínn fyrri hálfleikur að baki. Gestirnir leiða með einu, dýrmæt mark hér í lok hálfleiksins.
45. mín Gult spjald: Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Fer alltof seint í Bjarna. Allt á sjóða upp úr og Jóhann þarf að hafa sig við að henda mönnum í burtu frá sér.
44. mín MARK!
Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Stoðsending: Kwame Quee
MARK!!! Hér á lokamínútum fyrri hálfleiks. Brynjólfur gerir afskaplega vel í að halda í boltann inn í teignum. Kemur svo boltanum á Quee sem á skot sem er bjargað á línu en Mikkelsen réttum maður á réttum stað.

KA menn ekki sáttir og vilja brot á Mikklensen en hann og Aron fara báðir í boltann. Markið stendur 0-1!
42. mín
Aftur skallar Brynjar boltann í burtu. Viktor nær til hans og reynir fyrirgjöf sem ratar í hendurnar á Aron Dag.
41. mín
Breiðablik fékk þá hornspyrnu sem virkaði ekki og eru nú að undir búa aðra.
40. mín
Qvist með langann boltann úr innkasti. Mikkelsen skallar í burtu. Upp úr því keyrir svo Breiðablik í skyndisókn þrír á tvo. Hins vegar missir Höskuldur boltann of langt frá sér þannig að Mateo getur komið hættunni frá.
37. mín
Quee með frábært hlaup framhjá Ívar sem selur sig dýrt. Boltinn hins vegar ekki góður. Quee drjúgur eftir að hann kom inn en sendingar og skot hafa ekki verið góð.
35. mín
KA fær aftur hornspyrnu nú hinu meginn frá. Boltinn tekur sveig og verður að skoti sem Anton ver.
34. mín
Hornspyrnan er skölluð frá.
34. mín
KA að komast í góða stöðu en Ásgeir gerir ekki vel og setur boltann í bakið á Damir þegar hann ætlar að setja boltann inn á teig. Uppsker þó hornspyrnu.
33. mín
Nú er lítið að frétta eftir fjörugar mínútur.
30. mín
KA menn kasta sig fyrir hvert skotið á fætur öðru. Breiðablik búið að gíra upp og KA í brasi með þá.
29. mín
Breiðablik að gefa í og fær sýna aðra hornspyrnu eftir að Höskuldur reynir skot. Boltinn er skallaður í burtu af Brynjari.
28. mín
Jóhann dómari fær að finna fyrir vellinum. Rennur á hausinn en fljótur á fætur. Ekki fyrstur til þess í dag.
27. mín
Þá fær Breiðablik sýna fyrstu hornspyrnu en Aron Dagur grípur boltann.
26. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er KA manna. Boltinn ratar á kollinn á Ívar sem nær ekki á stýra honum.
25. mín
Hraði að færast í leikinn. Ásgeir kominn í ákjósanlega stöðu hinum meginn á vellinum en rennur á vellum og þar með rennur sóknin út í sandinn. Höskuldur er þá nokkrum sekúndum seinna kominn KA meginn í ágætis skotfæri en KA maður fer fyrir skotið.
24. mín
Aftur ógnar Breiðablik. Veit ekki hvort Quee ætlaði að setja boltann inn á teig eða var að reyna skot allavega sleikti boltinn slánna yfir úr mjög þröngu færi.
22. mín
Brynjar með galinn mistök. Brynjólfur hirðir boltann og allt virðist vera að opnast. Með Mikkelsen vinstra meginn við sig en velur að senda á Quee hægra meginn sem setur boltann yfir markið. Hér hefðu þeir geta gert miklu betur.
21. mín
Qvist kom svo á óvart og innkastið var stutt á Hallgrím. KA búið að ógna meira heldur en Breiðablik síðustu mínútur.
20. mín
Inn:Kwame Quee (Breiðablik) Út:Gísli Eyjólfsson (Breiðablik)
Gísli gat því miður ekki haldið leik áfram. Ekki góðar fréttir fyrir Breiðablik
20. mín
Þá kemur Qvist með eitt af sínum löngu innköstum.
18. mín
Gísli sat á meðan þessi sókn var en hann virðist hafa meitt sig. Þarf aðhlynningu. Sá ekki hvað gerðist.
18. mín
Almarr tekur geggjaðan snúning inn á teig en boltinn framhjá.
16. mín
Bjarni reynir annað skot fyrir utan teig en það er hátt yfir markið.
15. mín
Við eigum enn eftir að sjá alvöru færi í þessum leik. Fínasti varnarleikur frá báðum liðum.
14. mín
Brotið á Hallgrím. KA fær aukaspyrnu út á velli. Hallgrímur ætlar að setja þennan inn á teig. Boltinn skallaður í burtu. Bjarni tekur á móti honum fyrir utan teig og lætur vaða. Auðvelt hins vegar fyrir Anton í markinu.
11. mín
Ásgeir með frábæran bolta á Guðmund sem kassar hann niður en Elfar gerir vel í skýla boltanum.
9. mín
Damir fær fastan bolta í hausinn af stuttu færi og þarf að fá aðhlynningu.
8. mín
Brotið á Andra Rafn. Fyrsta aukaspyrna Breiðabliks í leiknum út á miðjum velli. Ekkert verður úr henni.
7. mín
Bæði lið föst fyrir. Boltinn mikið inn á miðsvæði vallarins.
5. mín
Ekkert verður úr spyrnunni. Vindurinn sér til þess.
5. mín Gult spjald: Damir Muminovic (Breiðablik)
Ásgeir fljótari en Damir á boltann. Damir neyðist til að renna sér til að ná til boltans. KA fær fyrstu aukaspyrnu leiksins. HÆfra meginn utan við teiginn.
4. mín
Breiðablik haldið betur í boltann en hvorugt liðið hefur skapað neitt.
2. mín
Hallgrímur reynir stungu inn á Ásgeir en boltinn er of fastur. Ekki galinn hugmynd.
1. mín
Viktor reynir fyrirgjöf sem er skölluð frá af Qvist.
1. mín
Þetta er hafið. Heimamenn hefja leikinn. Gestirnir eru með vindinn í bakið í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Dómararnir hafa verið í svolitlu aðalhlutverk í þessari fjórðu umferð deildarinnar. Vonum að Jóhann og félagar taki ekki upp á því í dag.
Fyrir leik
Það er ekki geggjað veður á Greifavellinum í dag. Mikill vindur og hitastigið slefar líklega ekki í 10 stig. Völlurinn sömuleiðis ekki í sýnu besta áskigkomulagi eftir N1 mótið sem kláraðist í gær.
Fyrir leik
Nökkvi er ekki í liðinu í dag en hann brotnaði á æfingu í vikunni. Það er skellur fyrir KA menn. Hann hefur verið flottur fyrir liðið, skoraði meðal annars tvö í leiknum á móti Leiknir R. og átti stoðsendingu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðanna.

KA gerir tvær breytingar frá síðasta leik í deild. Hallgrímur Jónasson meiddist illa í bikarnum og inn fyrir hann kemur Rodrigo Gomes Mateo. Sömuleiðis kemur Guðmundur Steinn inn í liðið í stað Nökkva Þeyr sem er ekki í hóp. Þetta er í fyrsta skipti í deild sem Mateo og Guðmundur Steinn byrja fyrir KA.

Breiðablik gerir eina breytingu á byrjunarliðinu frá síðasta leik en Brynjólfur kemur inn í stað Kristins.
Fyrir leik
Tölfræði

Liðin mætust fyrst árið 1978 og hafa síðan mæst 37 sinnum. KA hefur unnið 10 sinnum en Breiðablik 24 sinnum. Þrisvar hafa þau skilið jöfn.

KA vann Breiðablik síðast í Lengjubikarnum árið 2018. Sé horft til Pepsí deildarinnar vann KA Breiðablik síðast 2017. Af síðustu sjö leikjum milli þessara liða hefur Breiðablik unnið fjóra þeirra, KA tvo og einu sinni hafa þau skilið jöfn.

Nóg af mörkum hefur verið skorað í leikjum liðana en 104 mörk hafa verið skoruð í 37 viðureignum.
Fyrir leik
Það verður spilað á Greifavellinum. Spurning hvernig hann kemur undan helginni en hér hafa sprækir strákar verið að spila á N1 mótinu síðan á miðvikudaginn.

Völlurinn hefur fengið sýna gagnrýni og þá bæði frá heimamönnum sem vilja færa heimavöllinn upp við KA heimilið en sömuleiðis frá öðrum. Meðal annars drengjunum í Innkastinu en Gunnar Birgir talaði um hvort það væri ekki kominn tími á að banna völlinn eftir að hann lék ansi stór hlutverk í síðasta leik KA á móti Leikni R. í bikarnum.
Fyrir leik
Breiðablik er í fyrsta sæti deildarinnar með markatöluna 7-1 á meðan KA er í 10. sæti með markatöluna 1-3 en hafa þó eins og áður hefur komið fram spilað einum leik færra.
Fyrir leik
KA hafa einungis spilað tvo leiki í deild þar sem leikurinn á móti Stjörnunni var frestað vegna covid. Þeir leita ennþá að fyrsta sigrinum en hafa nælt sér í eitt stig og það á móti Víking R. á heimavelli. Sá leikur endaði 0-0.
Fyrir leik
Breiðablik er taplaust í deildinni, hafa hingað til unnið báða nýliða deildarinnar og Fylkir. Hjörvar Hafliða hefur sagt að fyrsta alvöru próf Breiðabliks í deildinni sé framundan hér fyrir norðan.
Fyrir leik
Heil og sæl!

Velkominn í beina textalýsingu frá leik KA og Breiðabliks sem fer fram á Greifavellinum á Akureyri. Svakalegir leikir búnir í þessari fjórðu umferð og spurning hvað liðin bjóða upp á.
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson ('20)
16. Róbert Orri Þorkelsson
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
6. Alexander Helgi Sigurðarson
10. Kristinn Steindórsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
31. Benedikt V. Warén
77. Kwame Quee ('20)

Liðsstjórn:
Gunnleifur Gunnleifsson (Þ)
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)
Atli Örn Gunnarsson
Jón Magnússon
Marinó Önundarson

Gul spjöld:
Damir Muminovic ('5)
Thomas Mikkelsen ('45)
Oliver Sigurjónsson ('52)

Rauð spjöld: