Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
68' 2
1
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
66' 1
0
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
59' 2
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
62' 1
0
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
69' 0
1
Þór
Mjólkurbikar karla
Höttur/Huginn
LL 0
1
Fylkir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
LL 1
2
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Árbær
LL 0
3
Fram
Mjólkurbikar karla
Haukar
LL 2
4
Vestri
Haukar
1
2
Kórdrengir
Tómas Leó Ásgeirsson '62 , víti 1-0
1-1 Albert Brynjar Ingason '64
1-2 Albert Brynjar Ingason '88
11.07.2020  -  14:00
Ásvellir
2. deild karla
Aðstæður: Skýjað, smá gola, hiti u.þ.b. 10 stig
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Albert Brynjar Ingason (Kórdrengir)
Byrjunarlið:
30. Jón Freyr Eyþórsson (m)
2. Kristinn Pétursson ('66)
3. Máni Mar Steinbjörnsson
5. Sigurjón Már Markússon
7. Aron Freyr Róbertsson
9. Tómas Leó Ásgeirsson
10. Kristófer Dan Þórðarson
17. Kristófer Jónsson ('71)
18. Nikola Dejan Djuric
18. Valur Reykjalín Þrastarson ('82)
24. Viktor Máni Róbertsson

Varamenn:
12. Óskar Sigþórsson (m)
4. Fannar Óli Friðleifsson
8. Ísak Jónsson
11. Gísli Þröstur Kristjánsson
13. Arnór Pálmi Kristjánsson ('71)
13. Bjarki Björn Gunnarsson
16. Birgir Magnús Birgisson ('66)
16. Oliver Helgi Gíslason ('82)

Liðsstjórn:
Igor Bjarni Kostic (Þ)
Ásgeir Þór Ingólfsson
Árni Ásbjarnarson
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Kári Sveinsson
Hafsteinn Jökull Brynjólfsson

Gul spjöld:
Nikola Dejan Djuric ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá lýkur þessu með 1-2 sigri Kórdrengja!
90. mín
Slök aukaspyrna beint í vegginn.
90. mín
Haukar eiga nú aukaspyrnu á lokasekúndunum. Fín staða til að gefa fyrir markið.
90. mín
Sóknarbrot á Hauka eftir hornspyrnu og nú geta Kórdrengir látið tímann líða.
88. mín MARK!
Albert Brynjar Ingason (Kórdrengir)
Boltinn berst til hans eftir klafs í teignum og Kórdrengir virðast ætla að hirða stigin þrjú!
82. mín
Inn:Oliver Helgi Gíslason (Haukar) Út:Valur Reykjalín Þrastarson (Haukar)
81. mín
Davíð Smári er ansi æstur á hliðarlínunni og lætur leikstíl Hauka fara í taugarnar á sér.
77. mín
Ásgeir með fyrirgjöf sem endar ofan á þverslánni. Þetta leit hættulega út í smástund!
76. mín
Valur í mjög ákjósanlegu færi en rennir boltanum framhjá.
75. mín
Tómas rennur boltanum út á Nikola sem á fast skot framhjá rétt fyrir utan teig.
73. mín
Ásgeir á fyrirgjöf ætlaða Alberti en Haukar koma þessu frá á síðustu stundu.
71. mín
Inn:Arnór Pálmi Kristjánsson (Haukar) Út:Kristófer Jónsson (Haukar)
68. mín Gult spjald: Nikola Dejan Djuric (Haukar)
Fyrir leikaraskap.
67. mín Gult spjald: Loic Mbang Ondo (Kórdrengir)
66. mín
Inn:Jordan Damachoua (Kórdrengir) Út:Aaron Robert Spear (Kórdrengir)
66. mín
Inn:Hilmar Þór Hilmarsson (Kórdrengir) Út:Arnleifur Hjörleifsson (Kórdrengir)
66. mín
Inn:Birgir Magnús Birgisson (Haukar) Út:Kristinn Pétursson (Haukar)
64. mín MARK!
Albert Brynjar Ingason (Kórdrengir)
Kórdrengir svara strax! Boltinn berst út í teig til Alberts Brynjars sem afgreiðir boltann glæsilega upp í hornið fjær.
62. mín Mark úr víti!
Tómas Leó Ásgeirsson (Haukar)
Tómas vippar boltanum örugglega í mitt markið.

1-0!
61. mín
Haukar eru að fá víti eftir að leikmaður Kórdrengja fær boltann í hendina!!
59. mín
Þórir á skot af stuttu færi sem Jón Freyr ver í horn!
57. mín
Inn:Unnar Már Unnarsson (Kórdrengir) Út:Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
56. mín Gult spjald: Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
55. mín
Aron Freyr á flottan sprett upp völlinn og á að endanum skot sem Loic Ondo kemur sér fyrir.
50. mín
Haukar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig eftir að Kristó Dan er felldur.

Nikola tekur spyrnuna en hún fer framhjá markinu.
46. mín
Inn:Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir) Út:Daníel Gylfason (Kórdrengir)
Það var víst gerð breyting í hálfleik.
46. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar Gunnar Oddur til leikhlés.

Kórdrengir réðu þessum leik fyrstu 15 mínúturnar eða svo. Haukarnir unnu sig svo inn í leikinn og voru jafnvel betri á kafla. Hálfleikurinn róaðist svo þegar leið á og 0-0 í hálfleik nokkurn veginn í takt við leikinn.

Sjáum hvað seinni hálfleikur hefur upp á að bjóða eftir smá pásu!
45. mín
Inn:Loic Mbang Ondo (Kórdrengir) Út:Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir)
Gulli búinn að kveinka sér í smá tíma og fer nú meiddur af velli.
43. mín
Valur á hörkusprett upp hægri vænginn, rennur boltanum út í teiginn þar sem Tómas er mættur en fast skot hans fer framhjá markinu.
39. mín
Davíð Smári, þjálfari Kórdrengja, sturlast á Gunnar dómara fyrir að flauta á það þegar Nikola er felldur á ferð sinni upp vinstri vænginn. Hiti í þessu!
38. mín
Lítið að frétta síðustu mínútur. Kórdrengir átt tvær hornspyrnur með stuttu millibili án þess að neitt verði úr.
30. mín
Kristófer Jónsson með hörkuskot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá.

Haukar eru að vakna!
29. mín
Aukaspyrnan sem Haukar fengu eftir brotið er tekin af Nikola. Skotið er fast en nokkuð beint á Andra.
28. mín Gult spjald: Einar Orri Einarsson (Kórdrengir)
Fullorðins tækling á Kristó Dan sem liggur eftir.
23. mín
Kristófer Dan með flotta fyrirgjöf á Tómas Leó sem kemur höfðinu í boltann en nær ekki að stýra honum á markið. Framhjá!
21. mín
Nikola vinnur boltann af Hákoni Inga á vallarhemingi Hauka og tekur á rás. Hann leggur boltann svo á Kristófer Dan en sóknin rennur út í sandinn.
19. mín
Daníel með fast skot inn í teig sem Sigurjín kemst fyrir áður en boltinn ratar á mark Hauka.

Daníel á svo annað skot sem fer í Viktor.
17. mín Gult spjald: Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir)
Tómas Leó er að komast í fínt færi en er tekinn niður.
16. mín
Kristinn á fína fyrirgjöf inn á teiginn ætlaða Nikola sem kemst ekki til boltans. Líklega það jákvæðast hingað til frá Haukum.
15. mín
Aaron Spear með flotta marktilraun rétt fyrir utan teig sem fer ekki svo langt yfir markið.
12. mín
Það verður að segjast að heimamenn virka svolítið skelkaðir við andstæðinginn og ná ekki upp neinu spili.
10. mín
Arnleifur kominn í gegn en skot hans varið af Jón Frey úr þröngu færi.
9. mín
Kórdrengir ráða ferðinni hér í upphafi.
4. mín
Albert kom boltanum inn á Daníel sem var í ákjósanlegu færi áður en varnarmaður Hauka komst fyrir boltann. Kórdrengir vilja fá víti en líklega rétt að dæma ekkert.
3. mín
Gestirnir pressa virkilega hátt á Hauka hér í byrjun. Eins og þeim einum er lagið!
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Þá ganga liðin inn á völlinn!
Fyrir leik
Þá eru 5 mínútur í að þessi toppslagur 2.deildarinnar hefjist!
Fyrir leik
Ég hef fengið þær upplýsingar að Þórður Jón er uppi á fæðingardeild og því er hann, augljóslega, ekki með Haukaliðinu í dag.
Fyrir leik
Leikurinn er svo í beinni útsendingu á Haukar TV fyrir þá sem ekki sjá sér fært um að mæta á Ásvelli í dag.
Fyrir leik
Byrjunarlið leiksins hafa verið birt og má sjá þau hér til hliðar á síðunni (smellt á 'heimalið' eða 'gestir' ofarlega á síðunni ef lesið er í síma).

Haukar gera tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Selfossi:
Viktor Máni Róbertsson og Valur Reykjalín Þrastarson koma inn í liðið fyrir þá Þórð Jón Jóhannesson og Oliver Helga Gíslason. Þórður hefur verið fyrirliði liðsins það sem af er tímabili en er ekki í hóp í dag. Það er athyglisvert og spurning hvort um meiðsli sé að ræða.

Kórdrengir tefla fram sama byrjunarliði og í síðasta leik gegn Kára.

Fyrir leik
Einhverjir hafa kannski gaman að þeirri staðreynd að Andri Steinn Birgisson, annar þjálfara Kórdrengja, lék með Haukum tímabilin 2013 og 2014.

Þá lék Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, varnarmaður í liði gestanna, með Haukum frá 2009-2017. Hann kom svo aftur til liðsins í fyrra. Þá á láni frá Víkingi R.
Fyrir leik
Þess má geta að Kórdrengir hafa ekki enn fengið á sig mark í sumar. Þá hafa þeir skorað níu. Þeirri spurningu hefur verið velt upp hvort þeir séu einfaldlega með of gott lið til að vera að keppa í þessari 2.deild. Kári sýndi þó í síðasta leik að það er hægt að stoppa þá.

Tekst ungu og efnilegu liði Hauka að verða það fyrsta til að skora á þetta stjörnulið Kórdrengja í deildinni í sumar?
Fyrir leik
Nikola Dejan Djuric, lánsmaður frá Breiðabliki, hefur reynst Haukum afar vel á tímabilinu. Hann er markahæstur leikmaður liðsins með fjögur mörk.

Hjá Kórdrengjum hafa þeir Albert Brynjar Ingason og Aaron Spear skorað þrjú mörk hvor og eru markahæstir í liði gestanna. Tveir leikmenn með mikil gæði.
Fyrir leik
Kórdrengir eru fyrir leikinn í dag á toppi deildarinnar með 10 stig eftir fjóra leiki. Haukar fylgja á eftir í öðru sætinu með 9 stig eftir jafn marga leiki.

Bæði lið töpuðu sínum fyrstu stigum í síðustu umferð. Haukar lágu þá heima gegn Selfossi, 1-2 og Kórdrengjum tókst ekki að brjóta leikmenn Kára á bak aftur. Enduðu leikar uppi á Skaga 0-0.
Fyrir leik
Komiði sæl og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Hauka og Kórdrengja!

Hér eru tvö efstu lið deildarinnar að mætast og má því búast við hörkuleik.
Byrjunarlið:
Andri Þór Grétarsson (m)
Albert Brynjar Ingason
4. Ásgeir Frank Ásgeirsson
6. Einar Orri Einarsson (f)
6. Hákon Ingi Einarsson ('57)
8. Davíð Þór Ásbjörnsson
9. Daníel Gylfason ('46)
10. Magnús Þórir Matthíasson
15. Arnleifur Hjörleifsson ('66)
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('45)
33. Aaron Robert Spear ('66)

Varamenn:
3. Unnar Már Unnarsson ('57)
5. Loic Mbang Ondo ('45)
10. Þórir Rafn Þórisson ('46)
11. Gunnar Orri Guðmundsson
16. Lars Óli Jessen
18. Páll Sindri Einarsson
23. Jordan Damachoua ('66)

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Logi Már Hermannsson
Hilmar Þór Hilmarsson
Andri Steinn Birgisson
Davíð Örn Aðalsteinsson

Gul spjöld:
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('17)
Einar Orri Einarsson ('28)
Davíð Þór Ásbjörnsson ('56)
Loic Mbang Ondo ('67)

Rauð spjöld: