Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Afturelding
4
0
Leiknir F.
Jason Daði Svanþórsson '31 1-0
Ísak Atli Kristjánsson '54 2-0
Andri Freyr Jónasson '65 3-0
Alexander Aron Davorsson '83 4-0
12.07.2020  -  12:15
Fagverksvöllurinn Varmá
Lengjudeild karla
Aðstæður: Blautt gervigras, hægur vindur og súld
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Áhorfendur: 195
Maður leiksins: Jason Daði Svanþórsson
Byrjunarlið:
1. Jon Tena Martinez (m)
3. Ísak Atli Kristjánsson ('81)
6. Alejandro Zambrano Martin
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Hafliði Sigurðarson ('69)
8. Kristján Atli Marteinsson ('78)
9. Andri Freyr Jónasson
10. Jason Daði Svanþórsson (f)
10. Kári Steinn Hlífarsson ('81)
11. Gísli Martin Sigurðsson (f) ('69)
34. Oskar Wasilewski

Varamenn:
13. Jóhann Þór Lapas (m)
2. Endika Galarza Goikoetxea ('81)
17. Valgeir Árni Svansson ('69)
17. Ragnar Már Lárusson
19. Eyþór Aron Wöhler ('78)
25. Georg Bjarnason ('69)

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Alexander Aron Davorsson (Þ)
Aðalsteinn Richter
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir
Ingólfur Orri Gústafsson
Enes Cogic
Sævar Örn Ingólfsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Öruggur sigur hjá heimamönnum, ferskir Mosfellingar kláruðu þetta sannfærandi.
Viðtöl og skýrsla á leiðinin
91. mín
Leiknismenn gera það sama og Jon þarf að hafa sig allan við, hann blakar honum í horn
91. mín
Alexander Aron með skottilraun frá miðju en skotið drífur ekki
90. mín
Komnar 90 min í klukkuna
89. mín
Marteinn í dauuuðafæri, skalli en frábær varsla hjá Jon. Skalli úr teignum
88. mín
Leiknismenn fá horn frá hægri. Boltinn fellur fyrir utan teig og aukaspyrna dæmd á heimenn, ca 5 metrum frá d-boga
85. mín
Fyrirliði gestanna er ekki kominn inná, höfuðmeisli og eru gestirnir því færri það sem eftir er af þessum leik. Þetta er brekka
83. mín MARK!
Alexander Aron Davorsson (Afturelding)
Alvöru innkoma.
Spyrnan beint í hægra hornið, geggjuð spyrna!
82. mín
Aukaspyrna rétt fyrir utan D-bogann hjá heimamönnum
82. mín
Darraðadans í teig gestanna en koma koma boltanum í burtu.
81. mín
Inn:Endika Galarza Goikoetxea (Afturelding) Út:Ísak Atli Kristjánsson (Afturelding)
Markaskorarinn farinn útaf
81. mín
Inn:Alexander Aron Davorsson (Afturelding) Út:Kári Steinn Hlífarsson (Afturelding)
80. mín
Valgeir með skot af fjær sem fer í varnarmann og í horn.
78. mín
Inn:Eyþór Aron Wöhler (Afturelding) Út:Kristján Atli Marteinsson (Afturelding)
Kristján búinn að spila vel
78. mín
Jason er með aukaspyrnu sem fer rétt yfir markið.
77. mín Gult spjald: Guðmundur Arnar Hjálmarsson (Leiknir F.)
Brýtur á Jason
76. mín
Komið í gang aftur, blæðir úr Arkadiusz og er hann utan vallar, Brynjar er búinn með skiptingarnar og því eru gestirnir 10 inn á þessa stundina
73. mín
Andri og Arkadiusz hafa skollið saman á miðjum vellinum og boltinn víðs fjarri. Sjúkraþjálfarar mættir inn á. Andri er staðinn upp en fyrirliðinn liggur ennþá
72. mín
Þetta er brekka hjá gestunum, heimamenn eru líklegri til að bæta við heldur en þeir að minnka muninn
70. mín
Brotið á Jason úti hægra megin. Alejandro tekur spyrnuna eins og allar hjá heimamönnum. Valgeir á skotið sem fer framhjá
69. mín
Inn:Valgeir Árni Svansson (Afturelding) Út:Hafliði Sigurðarson (Afturelding)
69. mín
Inn:Georg Bjarnason (Afturelding) Út:Gísli Martin Sigurðsson (Afturelding)
68. mín
Jason fer á vörnina og fellur, vill víti en það var ekkert á þetta
65. mín MARK!
Andri Freyr Jónasson (Afturelding)
Stoðsending: Jason Daði Svanþórsson
Hræðileg mistök í vörn gestanna, sýndist Akadiusz missa hann.Jason vann boltann og gaf hann á Andra í teignum sem setti hann hægra megin við Danny í markinu
65. mín
Inn:Sæþór Ívan Viðarsson (Leiknir F.) Út:Stefán Ómar Magnússon (Leiknir F.)
Brynjar búinn með sínar 5 skiptingar
64. mín
Inn:David Fernandez Hidalgo (Leiknir F.) Út:Jesus Suarez Guerrero (Leiknir F.)
62. mín
Brotið á Gísla við hornfánann hægra megin, Alejandro tekur. Brot í teignum á heimamenn
61. mín
Klaufalegt hjá Kifah með alla línuna en flaggaður rangstæður
58. mín
Leiknismenn fá horn. Ekkert verður úr því
58. mín
Inn:Marteinn Már Sverrisson (Leiknir F.) Út:Almar Daði Jónsson (Leiknir F.)
Almar meiddur
56. mín
Almar Daði virðist hafa meiðst í darraðadansinum í teignum og þarf að koma útaf, slæmt fyrir gestina
54. mín MARK!
Ísak Atli Kristjánsson (Afturelding)
Stoðsending: Kristján Atli Marteinsson
Ísak tekur lausa boltann eftir hornið frá Alejandro og skóflar honum í markið. Seiglan skilaði þessu. Frábærlega gert hjá honum!
53. mín
Andri og Jason þvælast fyrir hvorum öðrum í teignum og þeir ná ekki skoti, enn og aftur er Aron Elí að leggja upp vinstra megin.
Afturelding fær horn frá hægri
52. mín
Aron Elí með fyrirgjöf, heimamenn komast á milli. Horn, enn eitt hornið
48. mín
Jason og Andri eru hættulegir en heimamenn verjast vel, Jason búinn að spila vel
47. mín
Heimamenn byrja vel, skot frá Gísla fyrir utan teig framhjá markinu, fín tilraun
46. mín
Inn:Björgvin Stefán Pétursson (Leiknir F.) Út:Povilas Krasnovskis (Leiknir F.)
Tvöföld skipting hjá Brynjari
46. mín
Inn:Kifah Moussa Mourad (Leiknir F.) Út:Kristófer Páll Viðarsson (Leiknir F.)
46. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Dómararnir eru komnir í svart dress.
45. mín
Hálfleikur
Guðmundur Ársæll búinn að sjá nóg. Flautar til hálfleiks.
Heimamenn leiða 1-0 og eru búnir að fá færi til að skora fleiri. Hörkuleikur
Komum að vörmu spori, kaffi framundan
45. mín
Danny staðinn upp, hornið frá Alejandro beint á Aron Elí en skallinn framhjá. Þeir reyna að finna hann í hornunum
45. mín
Hafliði með sendingu á Gísla en hann nær ekki skoti á markið. Horn.
Danny bjargar en hann liggur eftir, vonandi fyrir gestina að þetta sé ekki alvarlegt
44. mín
Sendingin fyrir frá Guðmundi en beint á Jon í marki heimamanna
43. mín
Heimamenn fá horn frá hægri. Þarna vildu heimamenn fá tvær vítaspyrnur með stuttu millibili en Guðmundur flautar ekkert
42. mín
Alejandro með skot en þeir bjarga á línu!! svo á Jason skot sem fer beint á Danny í markinu. Þetta voru tvö dauuuðafæri í sömu sókninni
40. mín
Skot frá Andra fyrir utan teig en Danny ver í horn. Hann er búinn að eiga nokkrar mjög góðar vörslur. Heimamenn reyna að finna Aron á fjær en það gengur ekki
39. mín
Aron Elí tekur virkan þátt í sóknarleik heimamanna
36. mín
Gestirnir fá horn frá vinstri. Kristófer er sprækur í þeirra liði. Reyna stutt en ekkert verður úr því
34. mín
Dauðafæri!!!!! Andri aleinn á móti Danny. Þetta var eins og víti í íshokkí, hann var einn frá miðjum vallarhelmingi gestanna sem vildu fá rangstöðu en Danny át hann. Þetta var færi
31. mín MARK!
Jason Daði Svanþórsson (Afturelding)
Stoðsending: Ísak Atli Kristjánsson
Beint af æfingasvæðinu eftir horn, stutt horn. Ísak með hann á Jason sem er einn í teignum og þrumar honum í netið. Skemmtileg útfærsla
31. mín
Andri með góðan skalla eftir fyrirgjöf í nærhornið en Danny með frábæra vörslu!, horn
30. mín
Gísli með skot fyrir utan teig en í varnarmann.
27. mín
Kristófer að gera sig líklegan, horn. Heimamenn koma boltanum í burtu
26. mín
Jesus hjá Leikni er númer 28 á skýrslu en hann er númer 8 hér í dag
25. mín
Fín tækling hjá Unnari, heimamenn voru að sleppa í gegn
24. mín
Heimamenn fá horn, ég held að þetta sé horn númer 5 hjá heimamönnum. Gestirnir koma boltanum í burtu.
Kristófer Páll liggur og fær aðhlynningu, hann er klár að koma aftur inn á
22. mín
Fínt spil hjá Aftureldingu en Jason er fyrir innan og rangstæða dæmd
21. mín
Gestirnir vilja víti!
Aron Elí hljóp þarna á hælana á Daniel, Guðmundur dæmdi ekkert
20. mín
Fínasta mæting í Mosó hér í dag, hrós á bæði lið
17. mín
Andri líklegur en gestirnir koma honum í horn. Stutt horn sem endar á sendingu á fjær þar sem að Aron Elí nær ekki til boltans
17. mín
Heimamenn halda vel í boltann en Leiknismenn pressa á ákveðnum augnablikum
15. mín
Kári komst upp að endamörkum með sendinguna fyrir en gestirnir hreinsa í horn. Alejandro er með fínar spyrnur. Aftur horn. Leiknismenn koma boltanum í burtu
14. mín
Kristófer með skot fyrir gestina rétt framhjá! fín tilraun fyirr utan teig, þarna munaði ekki miku
13. mín
Skalli frá Aroni af fjær yfir markið. Fín tilraun en Aroni Elí náði ekki að stýra honum
12. mín
Hornið á fjær en gestirnir skalla hann afturfyrir, horn frá hægri núna
11. mín
Jason með skot sem er varið frá Danny. Besta færið í leiknum. Horn
10. mín
Heimamenn eru að vinna sig betur inn í leikinn, eru farnir að halda honum betur og þeirra spræku komnir inn í leikinn
8. mín
Heimamenn vilja fá víti!!
Brotið á Hafliða inn í teig eftir langa sendingu, heimamenn höfðu eitthvað til síns máls þarna
6. mín
Leinismenn sprækir hér á fyrstu minútum leiksins.
Heimamenn að bjóða upp á 4-3-3
Gestirnir í því sama að mér sýnist
2. mín
Leiknismenn halda vel í boltann fyrstu min. Skot frá Stefáni Ómari en beint á Jon í markinu.
Ánægður með Leiknismanninn í stúkunni, með trommuna með sér.
Vel mætt frá gestunum
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Heimamenn sækja í átt að Vesturlandsvegi og gestirnir í átt að knatthúsi Mosfellinga
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn, þetta er að fara af stað!
Heimamenn spila í sínum hefðbundnu búningum, rauðar treyjur og svartar buxur. Leiknismenn eru í ljósbláum treyjum og hvítum buxum
Fyrir leik
Afturelding með allt upp á 10. Þeir sýna leikinn. Þeir sem að komast ekki geta fylgst með hér: https://www.youtube.com/watch?v=15oX9kGNqQ0
Fyrir leik
Anna Björk Kristjánsdóttir var spámaður umferðarinnar á fotbolti.net og hafði hún þetta að segja um þennan leik.
Það er komið sjálfstraust í liðið hjá Aftrueldingu eftir stóran sigur í síðustu umferð. Strákarnir hans Magga vinna þennan leik 2-0.

Hefur Anna rétt fyrir sér ?
Fyrir leik
Það verður fróðlegt að sjá hvernig mætingin verður í Mosó í dag. Hádegisleikur á sunnudegi og smá rigning. Hvetjum alla til að mæta og taka regnfötin með. Þá erum við í toppmálum.
Það er verið að vinna með íslensku deildina í tónlistinni á vellinum, kann alltaf að meta það.
Fyrir leik
Byrjunarliðin er mætt hér til hliðar.
Bæði lið fylgja reglunni "þú breytir ekki sigurliði" og eru með sömu 11 sem byrja og í sigurleiknum í síðustu umferð.
Fyrir leik
Liðin mættust í 2.deildinni árið 2015 og 2018 og hafa spilað innbyrgðis samtals fjórum sinnum á Íslandsmóti.
Afturelding hefur unnið einn leik
Einu sinni hafa liðin gert jafntefli
Fáskrúðsfirðingar hafa unnið tvo leiki

Þessi lið mættust einnig í Lengjubikarnum þann 15.febrúar á þessu ári og þar skiptu liðin stigunum á milli sín, lokatölur 2-2.
Stefán Ómar Magnússon og Marteinn Már Sverrisson skoruðu fyrir Leiknismenn og Ragnar Már Lárusson skoraði bæði mörk Mosfellinga.

Miðað við söguna má búast við hörkuleik hér í dag!
Fyrir leik
Heimamenn sitja í 10. sæti deildarinnar með 3 stig fyrir leik dagsins en Leiknismenn eru í sæti númer 7 með 6 stig eftir tvo sigurleiki í röð.
Fyrir leik
Bæði lið unnu sinn leik í síðustu umferð. Heimamenn unnu öruggan 7-0 sigur á heimavelli á móti Magna á meðan að Leiknismenn unnu Þrótt 1-0 á heimavelli.
Fyrir leik
Góðan dag! Velkomin til leiks í Mosfellsbæ á leik Aftureldingar og Leiknis F. Hádegisleikur í Lengjudeildinni þennan sunnudaginn.
Byrjunarlið:
Danny El-Hage
2. Guðmundur Arnar Hjálmarsson
4. Chechu Meneses
5. Almar Daði Jónsson ('58)
7. Arkadiusz Jan Grzelak (f)
8. Jesus Suarez Guerrero ('64)
15. Kristófer Páll Viðarsson ('46)
16. Unnar Ari Hansson
19. Stefán Ómar Magnússon ('65)
21. Daniel Garcia Blanco
29. Povilas Krasnovskis ('46)

Varamenn:
1. Bergsteinn Magnússon (m)
9. Björgvin Stefán Pétursson ('46)
10. Marteinn Már Sverrisson ('58)
11. Sæþór Ívan Viðarsson ('65)
14. Kifah Moussa Mourad ('46)
18. David Fernandez Hidalgo ('64)

Liðsstjórn:
Brynjar Skúlason (Þ)
Amir Mehica
Elís Þór Rafnsson

Gul spjöld:
Guðmundur Arnar Hjálmarsson ('77)

Rauð spjöld: