Kópavogsvöllur
fimmtudagur 24. september 2020  kl. 19:15
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Smá vindur og skítkalt
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 328 manns
Maður leiksins: Oliver Sigurjónsson
Breiðablik 2 - 1 Stjarnan
0-1 Alex Þór Hauksson ('28)
1-1 Viktor Karl Einarsson ('34)
2-1 Thomas Mikkelsen ('63, víti)
Byrjunarlið:
12. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
8. Viktor Karl Einarsson ('85)
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson
16. Róbert Orri Þorkelsson
25. Davíð Ingvarsson
30. Andri Rafn Yeoman ('46)

Varamenn:
27. Brynjar Atli Bragason (m)
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('85)
7. Höskuldur Gunnlaugsson ('46)
17. Atli Hrafn Andrason
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Stefán Ingi Sigurðarson
62. Ólafur Guðmundsson

Liðstjórn:
Gunnleifur Gunnleifsson
Ólafur Pétursson
Aron Már Björnsson
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)
Jökull I Elísabetarson
Særún Jónsdóttir

Gul spjöld:
Andri Rafn Yeoman ('20)
Thomas Mikkelsen ('39)
Davíð Ingvarsson ('78)

Rauð spjöld:
@kristoferjonss Kristófer Jónsson
92. mín Leik lokið!
Elfar Freyr af öllum mönnum að sleppa hérna í gegn en sending Brynjólfs er alltof sein. Í sömu andrá flautar Sigurður Hjörtur til leiksloka. Sanngjarn 2-1 sigur Blika staðreynd.
Eyða Breyta
91. mín
Tveimur mínútum bætt við.
Eyða Breyta
88. mín Elís Rafn Björnsson (Stjarnan) Halldór Orri Björnsson (Stjarnan)
Halldór búinn að vera slakur í dag.
Eyða Breyta
85. mín Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik) Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Fyrri markaskorari Blika tekinn af velli.
Eyða Breyta
83. mín
BRYNJAR GAUTI NÁLÆGT ÞVÍ AÐ SKORA SJÁLFSMARK!!!!

Höskuldur kemur á fleygjiferð inní teig og ætlar að renna honum á Thomas. Brynjar Gauti nær að renna sér fyrir og boltinn rétt lekur yfir markið.
Eyða Breyta
82. mín Óli Valur Ómarsson (Stjarnan) Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjarnan)

Eyða Breyta
82. mín Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjarnan) Guðjón Baldvinsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
78. mín Gult spjald: Davíð Ingvarsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
78. mín Gult spjald: Halldór Orri Björnsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
78. mín
Allt að verða vitlaust!

Alex dæmdur brotlegur og fylgir eftir með tæklingu á Thomas sem að bregst illa við og ýtir í Alex. Eftir það verða allskonar menn reiðir. Davíð og Halldór Orri fara í bókina.
Eyða Breyta
77. mín
Thomas Mikkelsen með tilraun eftir að boltinn dettur til hans en skot hans er hátt yfir.
Eyða Breyta
72. mín
Davíð tekur spyrnuna sem að Höskuldur nær að skalla en er flaggaður rangstæður.
Eyða Breyta
71. mín
Brynjar Gauti brýtur hér klaufalega á Thomasi rétt við vítateigshornið.
Eyða Breyta
70. mín
Hilmar rennir honum út á Heiðar sem að reynir fyrirgjöf en Thomas Mikkelsen kastar sér fyrir hana. Boltinn hrekkur svo aftur af Heiðari og aftur fyrir endamörk. Aum tilraun.
Eyða Breyta
69. mín
Guðjón vinnur hér mjög soft aukaspyrnu sem að Hilmar Árni ætlar að taka.
Eyða Breyta
68. mín
Aðeins meira líf komið í Stjörnuna eftir þetta mark en bíðum ennþá eftir marktilraun frá þeim.
Eyða Breyta
63. mín Mark - víti Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
OG HANN SKORAR!!!!

Mikkelsen gríðarlega öruggur og Halli ekki nálægt því að verja, þrátt fyrir að fara í rétt horn. Verður alvöru brekka fyrir Stjörnuna.
Eyða Breyta
62. mín
BLIKAR FÁ VÍTI!!!!!

Brynjólfur fer hér illa með Alex sem að tekur hann niður í teignum. Hárrétt.
Eyða Breyta
61. mín
Þetta er eiginlega alveg drepleiðinlegt hérna. Stjörnumenn gríðarlega þéttir og Blikar eiga fá svör.
Eyða Breyta
55. mín
Oliver með skot af 25 metrum sem að Halli ver í horn.
Eyða Breyta
53. mín
Þessar fyrstu mínútur síðari hálfleiks hafa einkennst að því að Blikar sækja og Stjörnumenn koma boltanum frá. Gjörsamlega bara leikið á eitt mark.
Eyða Breyta
49. mín
Viktor Karl geysist hér upp völlinn og fer illa með Alex Þór. Hann virðist vera kominn í fínt skotfæri en ákveður að reyna að lauma honum á Thomas en sendingin er afleit og sóknin rennur út í sandinn.
Eyða Breyta
46. mín
Oliver með góðan snúning rétt fyrir utan teig og fínt skot sem að Halli ver vel.
Eyða Breyta
46. mín Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Leikurinn hafinn aftur og Blikar gera breytingu. Andri Rafn búinn að vera góður í dag. Höskuldur tekur við bandinu.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Sigurður Hjörtur flautar hér til hálfleiks á Kópavogsvelli. Allt í járnum í ágætis fótboltaleik.
Eyða Breyta
45. mín
Einni mínútu bætt við.
Eyða Breyta
44. mín
Blikar sækja hér hratt. Brynjólfur fær boltann úti vinstra meginn og færir hann yfir á Andra Rafn hægra meginn sem að leggur hann fyrir Viktor Karl við vítateigslínuna. Viktor skýtur að marki en það er beint á Halla í markinu.
Eyða Breyta
39. mín Gult spjald: Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Með löppina aðeins of hátt í Heiðar.
Eyða Breyta
35. mín Gult spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Straujar Andra Rafn. Blikar kölluðu eftir öðrum lit þarna.
Eyða Breyta
34. mín MARK! Viktor Karl Einarsson (Breiðablik), Stoðsending: Andri Rafn Yeoman
BLIKARNIR BÚNIR AÐ JAFNA!!!!!!

Róbert Orri með sendingu inní teig sem að er aðeins of há fyrir Mikkelsen. Andri Rafn nær hinsvegar til boltans og setur hann snöggt fyrir þar sem að Viktor Karl er mættur og neglir honum inn.
Eyða Breyta
30. mín
GUÐ MINN ALMÁTTUGUR THOMAS MIKKELSEN!!!!

Gísli Eyjólfs nær lúmsku skoti rétt fyrir utan teig sem að Halli missir útí teiginn á Thomas sem að er einn fyrir opnu marki en skóflar boltanum yfir. Sjaldséð sjón frá danska markahróknum.
Eyða Breyta
28. mín MARK! Alex Þór Hauksson (Stjarnan), Stoðsending: Jósef Kristinn Jósefsson
VÁ ALEX ÞÓR TAKE A BOW!!!!!!

Þvert gegn gangi leiksins. Jósef rennir honum út á Alex sem að fær tíma 30 metrum frá markinu og hann þakkar pent fyrir sig og smyr honum í samskeytin. Geggjað mark.
Eyða Breyta
28. mín
Damir með frábæra fyrirgjöf á Thomas sem að er aleinn en aftur er skalli hans bint á Halla.
Eyða Breyta
27. mín
Brynjólfur með tilraun langt utan teigs en það er hátt yfir markið.
Eyða Breyta
25. mín
Damir með fyrirgjöf beint á pönnuna á Mikkelsen en skallinn er laus og beint á Halla.
Eyða Breyta
22. mín
Thomas Mikkelsen með fína tilraun úr mjög svo erfiðari stöðu en boltinn fer framhjá markinu. Blikarnir líklegri fyrstu tuttugu.
Eyða Breyta
20. mín Gult spjald: Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Missir boltann klaufalega til Sölva Snæs og bregst við með því að toga hann niður.
Eyða Breyta
18. mín
Daníel Laxdal sendir hérna beint á Thomas Mikkelsen sem að skýtur í átt að marki en það er beint á Halla.
Eyða Breyta
12. mín
Elfar Freyr með langa sendingu inná teig og Thomas er ekki langt frá því að ná að taka boltann niður en touchið svíkur hann aðeins og hann missir boltann útaf.
Eyða Breyta
9. mín
Sölvi Snær með góða fyrirgjöf sem að bæði Guðjón og Þorsteinn Már missa af.
Eyða Breyta
7. mín
Stjörnumenn rjúka upp í skyndisókn eftir aðra hornspyrnu Blika sem að endar með misheppnuðu skoti Sölva beint í fangið á Antoni Ara.
Eyða Breyta
5. mín
Oliver með góðan bolta inní teig sem að Elfar reynir að skalla fyrir en aftur er Daníel Laxdal fastur fyrir og kemur boltanum í horn.
Eyða Breyta
4. mín
Thomas Mikkelsen kominn hér í fína stöðu eftir frábæra sendingu Olivers en Daníel Laxdal er fljótur að átta sig og rennir sér fyrir hann. Góð vörn.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Stjarnan byrjar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þá hlaupa leikmenn inná völlinn hver á eftir öðrum frá allskonar stöðum. Brynjólfur með bleikt og blátt hár í dag. Það er bara glæsilegt.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár. Breiðablik gerir tvær breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Oliver Sigurjónsson kemur inn fyrir Höskuld Gunnlaugsson og tekur einnig fyrirliðabandið af honum. Þá kemur Damir Muminovic inn í stað Viktors Arnar Margeirssonar.

Stjörnumenn gera einnig tvær breytingar á liði sínu. Guðjón Pétur Lýðsson er á láni frá Breiðablik og er því ekki gjaldgengur í leikinn í dag. Þá kemur Elís Rafn Björnsson einnig út. Þeir Halldór Orri Björnsson og Jósef Kristinn Jósefsson koma inn. Liðin má sjá hér til hliðar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Jón Þór Hauksson, þjálfari A-landsliðs kvenna, er sérstakur spámaður Fótbolta.net í þessari umferð og þetta hafði hann um þennan leik að segja:

Breiðablik 1 - 3 Stjarnan
,,Þetta verður svakalegur slagur. Bæði lið eru í vandræðum eftir slæm úrslit. Mínir fyrrum félagar snúa við blaðinu og taka þetta örugglega. Ævar Ingi kemur inná sem varamaður og setur setur tvö, Hilmar Árni eitt úr víti."
Eyða Breyta
Fyrir leik
Breiðablik hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum, tveimur í deild og einum í bikar, og hafa legið undir talsverðri gagnrýni.

Stjörnumenn koma inní þennan leik í kjölfar 5-1 taps gegn Val á heimavelli, en var það fyrsti tapleikur liðsins í deildinni í sumar. Bæði lið hafa því fullt að sanna hér í kvöld.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti en heimamenn í Breiðablik eru í 5.sæti með 23 stig á meðan að gestirnir frá Garðabæ eru í 3.sæti með 24 stig. Sannkallaður sex stiga leikur.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Komiði sæl og blessuð lesendur góðir og veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á derby leik Breiðabliks og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
7. Guðjón Baldvinsson ('82)
8. Halldór Orri Björnsson ('88)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson ('82)
29. Alex Þór Hauksson (f)

Varamenn:
23. Vignir Jóhannesson (m)
4. Jóhann Laxdal
6. Kári Pétursson
21. Elís Rafn Björnsson ('88)
24. Björn Berg Bryde
27. Ísak Andri Sigurgeirsson ('82)
28. Óli Valur Ómarsson ('82)

Liðstjórn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson
Halldór Svavar Sigurðsson
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Davíð Sævarsson
Eyjólfur Héðinsson

Gul spjöld:
Alex Þór Hauksson ('35)
Halldór Orri Björnsson ('78)

Rauð spjöld: