Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
KR
0
2
Stjarnan
0-1 Angela Pia Caloia '31
0-2 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir '41
25.09.2020  -  16:15
Meistaravellir
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Andvari og þurrt
Dómari: Bríet Bragadóttir
Áhorfendur: Reytingur
Maður leiksins: Shameeka Nikoda Fishley (Stjarnan)
Byrjunarlið:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
2. Kristín Erla Ó Johnson ('46)
3. Ingunn Haraldsdóttir (f)
4. Laufey Björnsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Guðmunda Brynja Óladóttir ('61)
8. Katrín Ómarsdóttir
9. Hlíf Hauksdóttir ('84)
11. Kristín Erna Sigurlásdóttir
16. Alma Mathiesen
28. Angela R. Beard

Varamenn:
29. Björk Björnsdóttir (m)
10. Margrét Edda Lian Bjarnadóttir ('84)
10. Inga Laufey Ágústsdóttir ('46)
14. Kristín Sverrisdóttir
22. Emilía Ingvadóttir

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Hugrún Lilja Ólafsdóttir
Guðlaug Jónsdóttir
Sædís Magnúsdóttir
Hildur Björg Kristjánsdóttir
Gísli Þór Einarsson
Ragna Lóa Stefánsdóttir
Aníta Lísa Svansdóttir

Gul spjöld:
Lára Kristín Pedersen ('43)
Ingunn Haraldsdóttir ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan fer með sanngjarnan sigur af hólmi á Meistaravöllum í dag. Viðtöl og skýrsla koma innan tíðar.
90. mín
Uppbótartíminn í síðari hálfleik er að lágmarki þrjár mínútur.
84. mín
Inn:Margrét Edda Lian Bjarnadóttir (KR) Út:Hlíf Hauksdóttir (KR)
83. mín
Stjarnan geysast upp hægri kantinn. Shameeka með boltann en virðist missa hann undir sig. Tekur þó tvo varnarmenn á og nær skoti sem Erin þarf að verja áður en Jana kemst í boltann og hann berst aftur fyrir.
80. mín
Shameeka með skot með vinstri sem fer framhjá.
78. mín
Arna Dís með takta fyrir utan teig KR. Dansar framhjá varnarmönnum KR eftir að klobba Katrínu Ómars en skotið framhjá markinu.
72. mín
Inn:Jana Sól Valdimarsdóttir (Stjarnan) Út:Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (Stjarnan)
Tvöföld skipting hjá Stjörnunni. Þreyta og spjald væntanlega kveikjan að þessu, Ingibjörg á gulu og Aníta búin að hlaupa upp og niður vinstri vænginn allan leikinn.
72. mín
Inn:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
69. mín Gult spjald: Betsy Doon Hassett (Stjarnan)
Smá hiti að færast í þetta. Akkúrat það sem þessi leikur þarf.
68. mín Gult spjald: Ingunn Haraldsdóttir (KR)
Fer aftan í Stjörnukonuna og hárréttur dómur.
61. mín
Inn:Hildur Björg Kristjánsdóttir (KR) Út:Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
KR gera hér sína aðra breytingu, Gumma búin að vera ágæt í leiknum og KR betri í síðari hálfleik heldur en þær voru í þeim fyrri.
60. mín
Fínt færi hjá KR. Kristín Erna kemst inn á teiginn en skot hennar á Erin er máttlítið.
57. mín Gult spjald: Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
Aukaspyrna dæmd á Stjörnuna og Ingibjörg Lúcía virðist vera allt annað en sátt og lætur Bríeti vita af því. Bríet telur þessi mótmæli brotleg og gefur Ingibjörgu gult spjald.
52. mín
Aukaspyrna er dæmd á vítateigslínunni, virðist vera rangur dómur. Angela fór framhjá Örnu Dís sem tæklar hana bara niður. Bríet stillir boltanum síðan upp á vítateigslínunni, sem er partur af vítateignum, fyrir aukaspyrnuna. Allt skrýtið við þetta og ekkert verður úr aukaspyrnunni.
47. mín
Kristín Erna í dauðafæri! Gumma með góða sendingu á Kristínu sem skóflar boltanum yfir markið.
46. mín
Inn:Inga Laufey Ágústsdóttir (KR) Út:Kristín Erla Ó Johnson (KR)
KR gerir breytingu í hálfleik.
46. mín
KR byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Shameeka á síðasta orðið í fyrri hálfleik með skoti beint á Ingibjörgu.
45. mín
Lágmarks uppbótartími í fyrri hálfleik er ein mínúta.
43. mín Gult spjald: Lára Kristín Pedersen (KR)
Lára heldur bara í treyju leikmanns Stjörnunnar og neyðir Bríeti til að spjalda sig.
41. mín MARK!
Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Betsy Doon Hassett
Betsy með frábæra fyrirgjöf frá hægri, meðfram grasinu, og Aníta gerir vel í að mæta inn á teiginn og setja boltann í netið í fyrsta.
39. mín
Sturluð fyrirgjöf frá Gummu sem fer yfir Önnu Maríu og virðist stefna á Krístínu Ernu en Erin gerir vel í að slá boltann frá áður en Kristín stangar hann í netið.
38. mín
Sókn hjá KR, gott spil úti hægra megin eftir innkast og skot frá Hlíf en Erin handsamar boltann.
35. mín
Gumma keyrir fram en skotið hennar, sem hún tók fyrir utan teig, er ömurlegt og lengst framhjá.
35. mín
KR næstum því komnar í færi þegar Katrín fer vintra megin inn á teiginn en sendingin hennar nær ekki á samherja og Stjarnan hreinsar.
31. mín MARK!
Angela Pia Caloia (Stjarnan)
Stoðsending: Shameeka Nikoda Fishley
Algjörlega með gangi leiksins. Stjarnan búin að vera betri aðilinn í fyrri hálfleik. Shameeka keyrir út hægra megin og á flotta sendingu á Angelu sem tekur eina snertingu áður en hún hamrar boltanum niðri í fjærhornið.
29. mín
Stjarnan skorar "ekki" mark. Hornspyrna sem endar í höndunum á Ingibjörgu og leikmaður Stjörnunnar skallar boltann úr höndunum hennar og inn. Réttur dómur hjá Bríeti.
26. mín
Lítið gerst síðustu mínútur leiksins og liðin virðast aðeins vera að þreifa fyrir sér.
19. mín
Stjörnukonur í enn einu færinu. Arna Dís með flottan sprett hægra megin inn á teig KR og nær skoti en aftur ver Ingibjörg og hornspyrna fyrir Stjörnuna. Ingibjörg grípur hornið líka.
16. mín
ENN EITT DAUÐAFÆRIÐ! Shameeka í svakalegu færi eftir fyrirgjöf frá Betsy en Ingibjörg ver vel og boltinn berst í horn.
13. mín
Aníta Ýr virðist vera að sleppa í gegn eftir góða sendingu frá Angelu en rangstæða dæmd á hana, tæpt sýndist mér.
9. mín
SHAMEEKA AFTUR! Ennþá betra færi heldur en áðan, núna stingur hún varnarmenn KR af en nær ekki góðu skoti og Ingibjörg gerir vel í að koma út og handsama boltann.
7. mín
Shameeka í hörkufæri! Kemst hægra megin inn í teig KR en skotið fer yfir.
5. mín
Gumma í baráttu inn á teig en Stjarnan hreinsar boltann frá, bruna í sókn sem endar með skoti frá Shameeku en skotið auðvelt fyrir Ingibjörgu.
3. mín
Stjarnan sækir í átt að Frostaskjóli í fyrri hálfleik en heimakonur sækja í hina áttina, sem vísar nú í norðurátt.
1. mín
Leikur hafinn
Þá fer leikurinn af stað. Stjarnan sækir en Ingibjörg hreinsar.
Fyrir leik
Þá ganga liðin inn á völlinn, í sitthvoru lagi, eins og venjan er vegna sóttvarnarráðstafana. KR koma fyrstar út á völl og Stjarnan fylgir í kjölfarið.
Fyrir leik
Fyrri leikur þessa liða fór fram þann 14. júlí í sumar og lauk með 2-3 sigri KR kvenna.
Fyrir leik
Leikur þessa liða er fyrsti leikurinn í 15. umferð Pepsi Max deildar kvenna og svo fara fjórir leikir fram á morgun.
Fyrir leik
Stjarnan situr í 6. sæti með 14 stig eftir jafnmarga leiki en KR konur eru á botni deildarinnar með 10 stig í 11 leikjum og eiga þar af leiðandi þrjá leiki inni enda búnar að fara í sóttkví nokkrum sinnum í sumar.
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik KR og Stjörnunnar héðan af Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur.
Byrjunarlið:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
7. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir ('72)
7. Shameeka Nikoda Fishley
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('72)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Betsy Doon Hassett
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
19. Angela Pia Caloia
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir

Varamenn:
12. Birta Guðlaugsdóttir (m)
4. Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir
14. Snædís María Jörundsdóttir ('72)
19. Elín Helga Ingadóttir
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir
37. Jana Sól Valdimarsdóttir ('72)

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Þórdís Ólafsdóttir
Hugrún Elvarsdóttir
Andri Freyr Hafsteinsson
Óskar Smári Haraldsson
Rajko Stanisic
Elfa Björk Erlingsdóttir

Gul spjöld:
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('57)
Betsy Doon Hassett ('69)

Rauð spjöld: