Framvöllur
laugardagur 03. október 2020  kl. 14:00
Lengjudeild karla
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Maður leiksins: Ólafur Íshólm Ólafsson
Fram 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Þórir Guðjónsson ('15)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Albert Hafsteinsson ('83)
5. Haraldur Einar Ásgrímsson
7. Fred Saraiva
9. Þórir Guðjónsson
10. Orri Gunnarsson ('90)
17. Alex Freyr Elísson
26. Kyle Douglas McLagan
29. Gunnar Gunnarsson
33. Alexander Már Þorláksson ('92)

Varamenn:
12. Marteinn Örn Halldórsson (m)
8. Aron Þórður Albertsson ('92)
14. Hlynur Atli Magnússon ('83)
18. Matthías Kroknes Jóhannsson
22. Hilmar Freyr Bjartþórsson ('90)
24. Magnús Þórðarson
30. Aron Snær Ingason

Liðstjórn:
Már Ægisson
Bjarki Hrafn Friðriksson
Jón Þórir Sveinsson (Þ)
Aðalsteinn Aðalsteinsson (Þ)
Daði Lárusson (Þ)
Sverrir Ólafur Benónýsson
Hilmar Þór Arnarson

Gul spjöld:
Orri Gunnarsson ('73)

Rauð spjöld:
@ingimar90 Ingimar Bjarni Sverrisson
94. mín Leik lokið!
Fram nær að landa stigunum þrem! Frábær leikur að baki og áfram hitnar í toppbaráttunni.
Eyða Breyta
93. mín
ÞÓRIR BRENNIR AF FYRIR OPNU MARKI!!!
Eyða Breyta
92. mín Aron Þórður Albertsson (Fram) Alexander Már Þorláksson (Fram)

Eyða Breyta
90. mín
Uppbótartími...
Eyða Breyta
90. mín Hilmar Freyr Bjartþórsson (Fram) Orri Gunnarsson (Fram)
Hilmar búin að standa lengi á línunni.
Eyða Breyta
89. mín
Þulir FramTV að minna á að Þróttur jafnaði í uppbótartíma í síðasta leik liðsins...
Eyða Breyta
88. mín
Lárus með fast skot úr aukaspyrnunni sem Óli nær ekki að halda í fanginu en sýnir góð viðbrögð og kæfir færið.
Eyða Breyta
87. mín
Fred brýtur á Dion sem hefyr verið öflugur síðan hann kom inn
Eyða Breyta
83. mín Hlynur Atli Magnússon (Fram) Albert Hafsteinsson (Fram)

Eyða Breyta
82. mín
Unnar vinnur boltann á fínum stað en hleypur beint í fangið á varnarmanni.
Eyða Breyta
81. mín
Unnar dæmdur brotlega á miðjum vellinum.
Eyða Breyta
80. mín
Síðustu tíu... geta Þróttarar fundið markið sem þeim vantar...
Eyða Breyta
80. mín
Albert með skot sem Franko ver auðveldlega.
Eyða Breyta
79. mín Gult spjald: Guðmundur Axel Hilmarsson (Þróttur R.)
Albert og Alex liggja báðir eftir tæklingar og Guðmundur fær réttilega spjald fyrir sitt brot.
Eyða Breyta
77. mín
Oliver skapar sér pláss og skýtur beint á Ólaf
Eyða Breyta
76. mín
Sölvi brýtur harkalega. Soldið um seinar tæklingar síðustu mínútur, hiti að færast í bæði lið.
Eyða Breyta
74. mín Gult spjald: Guðmundur Friðriksson (Þróttur R.)
Straujar Albert.
Eyða Breyta
73. mín Gult spjald: Orri Gunnarsson (Fram)
Dion var komin á rosahlaup, og Orri tæklar hann. Þetta svokallaða professional foul.
Eyða Breyta
72. mín
Þórir skapar sér smá pláss í teig Þróttar og skýtur en varið fram hjá.
Eyða Breyta
70. mín Sölvi Björnsson (Þróttur R.) Egill Helgason (Þróttur R.)

Eyða Breyta
67. mín
Geggjuð sending út á Alex á kantinum sem finnur Albert í frábæru færi. Hann hefur langan tíma til að velja skotið en skýtur rétt framhjá!!!
Eyða Breyta
65. mín
ALEXANDER Í DAUÐFÆRI!!! Skyndisókn með fyrirgjöf á Alexander sem reynir að leggja skotið lúmskt í hornið en ekki nógu fast og Franko nær að grípa!
Eyða Breyta
63. mín
Fred vinnur boltann á hættulegum stað, eftir smá spil sendir Þórir afleidda fyrirgjöf yfir.
Eyða Breyta
61. mín Guðmundur Axel Hilmarsson (Þróttur R.) Hafþór Pétursson (Þróttur R.)
Veit ekki hvort þetta tengist högginu rétt áðan.
Eyða Breyta
60. mín
Haraldur með góðan sprett að teig Þróttar, fyrirgjöf á Orra sem er í góðu færi en þarf að taka skotið með verri löppinni og framhjá.
Eyða Breyta
58. mín
Glæfralegur skalli til baka í Framteignum og Magnús Pétur er við að ná honum en Óli sýnir góð viðbrögð.
Eyða Breyta
57. mín
Ái! Fastur og lágur bolti í átt að teig Þróttar. Alexander Már fer að sparka í hann en Hafþór ætlar að skalla boltann, sem er í mittishæð og fær fót í smettið.
Eyða Breyta
55. mín
Lárus með fyrirgjöf á Hafþór Péturs sem er alveg óvaldaður en nær ekki að skalla á markið
Eyða Breyta
52. mín
Fram með tvö fín skot með stuttu millibili.
Eyða Breyta
45. mín Leikur hafinn
Netið eitthvað að stríða mér, en Þróttarar verið í sókn meira eða minna fyrstu þrjár mínútur seinni
Eyða Breyta
45. mín Dion Acoff (Þróttur R.) Esau Rojo Martinez (Þróttur R.)
Rojo ekki búin að gera gott mót í dag og vera tifandi rautt spjald
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Stórskemmtilegum hálfleik lýkur. Fram verið 65-70% með boltann og heilt yfir betri en mega vera þakklátir Ólafi fyrir frábærar vörslur oftar en einu sinni. Stuðningsmenn Þróttara búnir að fylla hólfið sitt og rúmlega það og geta alveg leyft sér að vera vongóðir fyrir seinni hálfleik.
Eyða Breyta
45. mín
Fred með bolta yfir girðinguna og mönina bakvið. Er líklega á Miklubrautina núna.
Eyða Breyta
44. mín
Fred með fínan snúning og skot yfir markið.
Eyða Breyta
42. mín
Gunnar Gunnarsson hleypur beint á Einar Inga dómara
Eyða Breyta
40. mín
Óli með tvær frábærar vörslur, fyrst frá Lárusi og svo Agli!
Eyða Breyta
39. mín
Hann fær að fara aftur inn á.
Eyða Breyta
37. mín
Martinez og Gunni fara í skalla einvígi og Gunni lendir afar illa. Þetta lýtur illa út.
Eyða Breyta
36. mín
Framarar eru að sýna afhverju staðurinn er kallaður Sambamýri. Leika á alls oddi síðasta korter.
Eyða Breyta
34. mín
En Lárus setur boltan framhjá.
Eyða Breyta
33. mín
Þróttarar komast í almennilega sókn í fyrsta sinn lengi, fá aukaspyrnu í skotfæri...
Eyða Breyta
32. mín
Baldur Hannes með góða vörn á móti Alexander Már
Eyða Breyta
30. mín
Alexander í einn á einn stöðu eftir háa sendingu en Franko ver!
Eyða Breyta
28. mín
Fred með geggjaða, fasta sendingu í átt að fjær horni Þróttar og Alexander er hársbreidd frá því að koma honum inn!
Eyða Breyta
27. mín
Alexander Már í dauðafæri eftir sniðuga sendingu frá Orra! Franko ver!
Eyða Breyta
25. mín
Oliver ætlar að vippa yfir Harald en boltinn í andlitið á Haraldi af meters færi. Stendur upp en þetta var ekki þægilegt.
Eyða Breyta
23. mín
Alex ansi nálægt að skora fyrsta mark sitt í sumar, en er væntanlega feginn að boltinn var á leið í átt að eigin marki. Gunni klikkaði á tæklingu og Lárus komst upp kantinn og sendi fastan bolta fyrir Fram markið sem Alex hreinsar rétt yfir en ansi nálægt að fara inn.
Eyða Breyta
22. mín
Varnarlína Fram lætur boltann ganga í tvær þrjár mínútur, Þróttarar halda bara sínu skipulagi og svo fer langur bolti milli kanta, ætlaður Fred, útaf
Eyða Breyta
17. mín
Fred skapar sér pláss fyrir framan teig Þróttar og skýtur á markið, Franko ver
Eyða Breyta
16. mín
Oliver og Haraldur í kapphlaupi um langan bolta, Haraldur nær að teka fót í hann og Þróttur fær horn en Fram hreinsar í skyndisókn sem lýkur þegar að Þórir rennur fremur aulalega á rassinn
Eyða Breyta
15. mín MARK! Þórir Guðjónsson (Fram), Stoðsending: Orri Gunnarsson
FRAM KOMNIR YFIR! Þróttar komust í skyndisókn en náðu ekki að gera sér mat úr, Fram taka skyndisókn á móti og Orri sendir guðdómlega fyrirgjöf á Þórir sem skallar boltann yfir Franko og Fram eru konnir yfir!!!
Eyða Breyta
13. mín
Egill með langan fram á Óliver en Ólafur vel vakandi og kemur út í teiginn og grípur sendinguna.
Eyða Breyta
12. mín
Albert með háan bolta á Orra sem skilar honum í fyrsta inn í teig Þróttar en skalla frá.
Eyða Breyta
8. mín
Óli með fína skylduvörslu eftir laust skot. Þróttarar falla vel til baka og leyfa Fram að vera með boltann á eigin vallarhelmingu en stökkvatil þegar heimamenn sækja að markinu.
Eyða Breyta
6. mín Gult spjald: Esau Rojo Martinez (Þróttur R.)
Braut á Alberti
Eyða Breyta
5. mín
DAUÐAFÆRI! Oliver spólar sig allt of auðveldlega í gegnum vörn Fram og gefur á Lárus í miðjum teig Fram, hann á þrususkot sem Óli ver frábærlega!
Eyða Breyta
3. mín

Eyða Breyta
3. mín
Fram byrja á að halda boltanum vel, svo langur bolti í átt að Alberti en hann nær ekki til hans. Boltinn berst til Alberts sem skýtur en boltinn endar ansi hátt fyrir ofan markið.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Fram byrja leikinn, sækja í átt að Kringlunni
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn.

Langar að benda lesendum á frábæra samantekt kollega míns Sverris á stöðunni í Lengjudeildinni.

Ég kann hins vegar ekki að setja link í textalýsingu, þannig að þið verðið að fara á forsíðuna og klikka á lýsinguna hjá Keflavík og Leiknis
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það er fullkomið fótboltaveður, dúnalogn og bjart. Samt hiti við frostmark, þannig að við gerum ráð fyrir að leikmenn hlaupi extra mikið til að halda á sér hita.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Tómas Ingi gerir þrjár breytingar. Magnús Pétur, Gunnlaugur og Guðmundur Axel detta út og Árni Þór, Birkir Þór og Lárus Björns taka stöður þeirra.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það eru miklar breytingar á byrjunarliði Fram eftir leikinn gegn Vestra í síðustu umferð. Hilmar, Aron Þórður, Hlynur Atli og Matthías eru ekki í byrjarliðinu. Í þeirra stað mæta Orri, Alex Freyr, Gunnar og Alexander Már.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði Þróttur og Fram eru í rosalegri baráttu, sitt hvorum megin á töflunni. Fram eru í þriðja sæti, með jafnmörg stig og Leiknir eru með en fyrir neðan Breiðhyltinga á markatölu. Bæði Leiknir og Fram eru stigi á eftir Keflavík en toppliðið á leik til góða.

Þróttur eru hins vegar í tíunda sæti með jafn mörg stig og Magni og Leiknir F sem bæði eru í fallsæti vegna markatölu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Já góðan daginn og velkominn í Sambamýri þar sem Reykjavíkurslagur mun eiga sér í stað.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Franko Lalic (m)
3. Árni Þór Jakobsson
5. Atli Geir Gunnarsson
6. Birkir Þór Guðmundsson
9. Esau Rojo Martinez ('45)
14. Lárus Björnsson
16. Egill Helgason ('70)
17. Baldur Hannes Stefánsson
22. Oliver Heiðarsson
23. Guðmundur Friðriksson
33. Hafþór Pétursson (f) ('61)

Varamenn:
13. Sveinn Óli Guðnason (m)
8. Sölvi Björnsson ('70)
10. Magnús Pétur Bjarnason
11. Dion Acoff ('45)
18. Tyler Brown
21. Róbert Hauksson
24. Guðmundur Axel Hilmarsson ('61)

Liðstjórn:
Hallur Hallsson
Jóhann Gunnar Baldvinsson
Jamie Paul Brassington
Bjarnólfur Lárusson
Páll Steinar Sigurbjörnsson
Sigurður Már Birnisson
Tómas Ingi Tómasson (Þ)

Gul spjöld:
Esau Rojo Martinez ('6)
Guðmundur Friðriksson ('74)
Guðmundur Axel Hilmarsson ('79)

Rauð spjöld: