Þróttur R.
5
0
KR
Stephanie Mariana Ribeiro '17 1-0
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '30 2-0
Morgan Elizabeth Goff '35 3-0
Mary Alice Vignola '43 4-0
Stephanie Mariana Ribeiro '67 , víti 5-0
04.10.2020  -  13:00
Eimskipsvöllurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Áhorfendur: 135
Maður leiksins: Andrea Rut Bjarnadóttir (Þróttur R.)
Byrjunarlið:
Sóley María Steinarsdóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic ('74)
6. Laura Hughes ('59)
7. Andrea Rut Bjarnadóttir
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f) ('80)
9. Stephanie Mariana Ribeiro ('80)
10. Morgan Elizabeth Goff ('74)
16. Mary Alice Vignola
19. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir
20. Friðrika Arnardóttir
29. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Varamenn:
3. Mist Funadóttir
4. Hildur Egilsdóttir ('80)
11. Tinna Dögg Þórðardóttir ('74)
14. Margrét Sveinsdóttir ('80)
14. Guðrún Ólafía Þorsteinsdóttir
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('59)
18. Andrea Magnúsdóttir ('74)

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Þórkatla María Halldórsdóttir
Egill Atlason
Jamie Paul Brassington
Edda Garðarsdóttir

Gul spjöld:
Laura Hughes ('54)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið !

5-0 í Laugardalnum í dag. Þróttur R. fer upp í 6.sæti en KR situr ennþá á botni deildarinnar.

Skýrsla og viðtöl eru í vinnslu og koma á eftir.
89. mín
Þarna var frábært spil! Tinna Dögg með glæsilega stungu inn á Andreu Rut, sem hefur tekið við fyrirliðabandinu eftir að Álfhildur fór út af. Andrea var dæmd rangstæð og KR fékk boltann.
87. mín
Alma sendir boltann inn að marki Þróttara. Þar er Hlíf í teignum og nær skoti. Skotið fer langt framhjá og Þróttur R. á markspyrnu.
82. mín
KR fær hornspyrnu sem er ekki góð og boltinn fer aftur fyrir mark Þróttar.
80. mín
Inn:Margrét Sveinsdóttir (Þróttur R.) Út:Stephanie Mariana Ribeiro (Þróttur R.)
80. mín
Inn:Hildur Egilsdóttir (Þróttur R.) Út:Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þróttur R.)
79. mín
Inn:Kristín Sverrisdóttir (KR) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (KR)
78. mín
Stephanie gerir vel og sendir boltann út á hægri kantinn þar sem Andrea Rut er. Andrea Rut sendir boltann inn að marki KR en enginn nær til boltans.
74. mín
Inn:Andrea Magnúsdóttir (Þróttur R.) Út:Morgan Elizabeth Goff (Þróttur R.)
74. mín
Inn:Tinna Dögg Þórðardóttir (Þróttur R.) Út:Jelena Tinna Kujundzic (Þróttur R.)
73. mín
Inn:Inga Laufey Ágústsdóttir (KR) Út:Laufey Björnsdóttir (KR)
67. mín Mark úr víti!
Stephanie Mariana Ribeiro (Þróttur R.)
5-0!!!
Þróttur R. fær hornspyrnu. Lára Kristín brýtur á Álfhildi inn í vítateig. Sýnist hún hafa farið í bakið á henni. Guðmundur dæmir víti og Stephanie spyrnir boltanum niður í vinstra hornið.
66. mín
Mary Alice tekur innkast rétt hjá vítateig KR. Stephanie fær boltann og sendir út á Ólöfu Sigríði sem nær skoti en það fer í varnarmann KR og Þróttur R. fær horn.
65. mín
Ísabella með skot að marki KR. Ágæt tilraun en boltinn fór framhjá og KR fær markspyrnu.
64. mín
Inn:Hildur Björg Kristjánsdóttir (KR) Út:Katrín Ómarsdóttir (KR)
64. mín
Inn:Hlíf Hauksdóttir (KR) Út:Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
63. mín Gult spjald: Katrín Ómarsdóttir (KR)
Hárétt gult spjald. Stoppaði Morgan á fleygiferð upp völlinn.
59. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Laura Hughes (Þróttur R.)
58. mín
Mary Alice á fleygiferð upp völlinn. Hún er komin að vítateig KR þegar hún skýtur að marki. Ingibjörg ver boltann út í teiginn og KR kemur hættunni frá.
56. mín
Fín sending frá Guðmundu inn að marki Þróttar. Alma rétt missti af honum inn í vítateig og Þróttur R. fékk markspyrnu.
54. mín
KR fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Þróttar. Þórdís Hrönn tekur spyrnuna en boltinn fer í gegnum allan vítateiginn og aftur fyrir mark Þróttar.
54. mín Gult spjald: Laura Hughes (Þróttur R.)
Fyrsta gula spjald leiksins.
53. mín
KR liðið mun frískari hér í byrjun seinni hálfleik. Ágæt sókn sem endar með fyrirgjöf inn að marki Þróttar. Katrín nær skallanum en Friðrika grípur boltann.
50. mín
Alma með ágætan sprett upp vinstri kantinn og fer framjá tveimur varnarmönnum Þróttar. Alma nær skoti en Friðrika ver skotið.
49. mín
Mary Alice með skot að marki sem Ingibjörg grípur.
46. mín
Inn:Rebekka Sverrisdóttir (KR) Út:Kristín Erna Sigurlásdóttir (KR)
KR gerir fyrstu breytingu leiksins.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er byrjaður!
45. mín
Hálfleikur
Það er bara þannig!
4-0 hér í Laugardalnum og seinni hálfleikur eftir. Þróttur R. miklu miklu miklu betri en KR.
43. mín MARK!
Mary Alice Vignola (Þróttur R.)
Stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir
Það er orðið 4-0!!

Andrea Rut tekur hornspyrnu. Hún sendir boltann út á Mary Alice, sem ákveður að skjóta á markið. Fínt skot sem fer undir Ingibjörgu í markinu. Ingibjörg hefði getað gert mun betur þarna.
43. mín
Stephanie með skot að marki sem fer í Ingunni, varnarmann KR, og yfir. Þróttur R. fær horn.
40. mín
Alma fer upp vinstri kantinn og kemst alla leið inn í vítateig. Friðrika gerir virkilega vel í markinu og lokar á hana. Alma rekur boltann af langt og missir frá sér og Þróttur R. fær markspyrnu.
35. mín MARK!
Morgan Elizabeth Goff (Þróttur R.)
Stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir
Þróttur R. fær tvær hornspyrnur í röð. Báðar mjög góðar og sú seinni skilaði marki. Andrea með flottar spyrnur sem rötuðu í bæði skipting á kollinn á liðsfélögum hennar. Í fyrra skiptið átti Sóley María skalla sem fór í varnarmann og yfir. Í seinna skipti skallaði Morgan boltann á milli varnarmanns KR og Ingibjargar í markinu.

Staðan orðin 3-0 og Þróttur R. er miklu betri.
32. mín
Vá!
Mary Alice með flottan bolta af vinstri kantinum inn að marki KR. Boltinn ratar beint á Stephanie sem skýtur beint á Ingibjörgu í markinu. Ingibjörg blakar boltanum yfir og Þróttur R. fær horn. Ekkert varð þó úr horninu.
30. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur R.)
Stoðsending: Laura Hughes
Aftur geggjuð sending!!
Laura sendir frábæra sendingu inn fyrir vörn KR. Ólöf Sigríður tekur á móti boltanum og fer framhjá Ingibjörgu í markinu og klárar færið sitt virkilega vel.

2-0!
29. mín
Elísabet Freyja með sendingu inn fyrir vörn KR á Stephanie. Hún var rangstæð og KR á boltann.
27. mín
Þórdís Hrönn með ágætan bolta inn að vítateig Þróttar. Katrín nær ekki til hans og Guðmunda hreinlega hittir ekki boltann. Þróttur R. kemur hættunni frá.
24. mín
Alma komin inn í vítateig Þróttar R. og sendir hann út á Katrínu Ásbjörns. Sendingin var alls ekki góð og Katrín hittir ekki boltann nægilega vel og Þróttur R. fær markspyrnu.
23. mín
Þróttur R. eru mun sterkari aðilinn hér á fyrsta helming fyrri hálfleiks.
22. mín
Mary Alice með ágæta sendingu frá vinstri kantinum inn að marki KR. Angela er fyrst á boltann og hreinsar hann frá.
17. mín MARK!
Stephanie Mariana Ribeiro (Þróttur R.)
Stoðsending: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Geggjuð sending!!
Ólöf var við það að sleppa í gegn en Angela hélt í hana. Ólöf náði hins vegar að senda boltann á milli varnarmanna KR þar sem Stephanie var mætt í hlaupið fyrir aftan þær. Sturluð sending hjá Ólöfu inn á milli varnarmanna KR og Stephanie gerir vel og sendir boltann í markið.

1-0!!
10. mín
Þróttur R. fær horn. Fín hornspyrna sem endar með að Sóley nær fínum skalla að marki. Ingibjörg í markinu nær til boltans og kemur boltanum strax í leik.
8. mín
Ágæt sókn hjá Þrótti R. sem endar með að Laura reynir stungu inn fyrir vörn KR á Stephanie. Sendingin er aðeins of föst og endar aftur fyrir endalínu. KR fær markspyrnu.
4. mín
KR fær horn sem Kristín Erna tekur. Spyrnan er alls ekki góð og Þróttur R. kemur boltanum frá.
3. mín
Stephanie á fyrsta skot leiksins. Ágætis skot sem fer í hliðarnetið og KR fær markspyrnu.
2. mín
Lauren Hughes reynir sendingu inn á Stephanie en Þórdís Hrönn gerir vel og kemur í veg fyrir að hún nær boltanum.
1. mín
Leikur hafinn
KR byrjar með boltann!
Fyrir leik
Liðin mættust síðast þann 20.júlí og þeim leik lauk með 1-1 jafntefli. Þróttur R. tók forystuna og skoraði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir á 76.mínútu. Hlíf Hauksdóttir jafnaði metin á 90.mínútu og jafntefli því niðurstaðan.
Fyrir leik
Liðin eiga það sameiginlegt að hafa unnið þrjá leiki í sumar.
Þróttur R. hefur unnið Selfoss, Fylki og FH á meðan KR hefur unnið ÍBV og báða leiki sína við FH.
Fyrir leik
Bæði lið eru í fallbaráttu og munar aðeins 5 stigum á liðinum í töflunni.

Þróttur R. er í sjöunda sæti með 15 stig.
KR er í neðsta sæti deildarinnar með 10 stig en eiga þó tvo leiki inni.
Fyrir leik
Þróttur R. tekur á móti KR í gífurlega mikilvægum leik fyrir bæði lið. Leikurinn hefst kl.13:00.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Laugardalnum.
Byrjunarlið:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
3. Ingunn Haraldsdóttir (f)
4. Laufey Björnsdóttir ('73)
6. Lára Kristín Pedersen
7. Guðmunda Brynja Óladóttir ('64)
8. Katrín Ómarsdóttir ('64)
9. Katrín Ásbjörnsdóttir
11. Kristín Erna Sigurlásdóttir ('46)
16. Alma Mathiesen
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('79)
28. Angela R. Beard

Varamenn:
29. Björk Björnsdóttir (m)
2. Kristín Erla Ó Johnson
6. Rebekka Sverrisdóttir ('46)
9. Hlíf Hauksdóttir ('64)
10. Inga Laufey Ágústsdóttir ('73)
14. Kristín Sverrisdóttir ('79)

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Guðlaug Jónsdóttir
Sædís Magnúsdóttir
Hildur Björg Kristjánsdóttir
Gísli Þór Einarsson
Ragna Lóa Stefánsdóttir
Ana Victoria Cate
Aníta Lísa Svansdóttir

Gul spjöld:
Katrín Ómarsdóttir ('63)

Rauð spjöld: