Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
HK
1
1
KR
0-1 Atli Sigurjónsson '26
Ásgeir Marteinsson '88 1-1
04.10.2020  -  17:00
Kórinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Alltaf það sama í Kórnum, logn og gervigrasið flott
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Atli Sigurjónsson
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
Bjarni Gunnarsson ('81)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('68)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
7. Birnir Snær Ingason ('46)
14. Hörður Árnason
17. Valgeir Valgeirsson
17. Jón Arnar Barðdal
18. Atli Arnarson
22. Þórður Þorsteinn Þórðarson
28. Martin Rauschenberg

Varamenn:
12. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson
10. Ásgeir Marteinsson ('46)
11. Ólafur Örn Eyjólfsson ('68)
20. Alexander Freyr Sindrason
21. Ívar Örn Jónsson
30. Stefan Ljubicic ('81)

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Þórunn Gísladóttir Roth

Gul spjöld:
Ólafur Örn Eyjólfsson ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
1-1 jafntefli hér í Kórnum og sanngjörn úrslit að mínu mati!

Þakka fyrir samfylgdina og minni á viðtöl og skýrslu hér á eftir!
92. mín
DAUÐAFÆRI

HK-ingar fara í skyndisókn, Ásgeir finnur Atla sem kemst einn gegn Beiti en Beitir gerir virkilega vel og er fljótur út og gjörsamlega bjargar KR-ingum þarna!
90. mín Gult spjald: Ólafur Örn Eyjólfsson (HK)
88. mín MARK!
Ásgeir Marteinsson (HK)
ÁSGEIR!!!!!!!!

Kemur hár bolti inn á teig, Ljubicic skallar í átt að Ásgeiri og Aron Bjarki bara flikkar honum einum lengra beint til Ásgeirs sem er fljótur að hugsa og klárar virkilega vel í fjærhornið!!

SENUR!
87. mín
Atli Sigurjónsson keyrir upp allann völlinn og reynir skot en það fer hátt yfir markið og Óskar Örn var alls ekki sáttur með að hafa ekki fengið boltann frá Atla
84. mín
HK-ingar fá hornspyrnu frá hægri en það verður ekkert út úr því þar sem KR-ingar skalla þetta frá!
81. mín
Inn:Stefan Ljubicic (HK) Út:Bjarni Gunnarsson (HK)
80. mín
HK-ingar skora mark en það er réttilega dæmt af vegna rangstöðu!

Eins og í öllum seinni þá er ekkert það mikið að gerast og það stefnir allt í það að KR-ingar séu að fara sigla þessum sigri í höfn
77. mín
Inn:Alex Freyr Hilmarsson (KR) Út:Finnur Orri Margeirsson (KR)
73. mín
KR-ingar eru farnir að liggja verulega til baka og eru að sækja á mjög fáum mönnum og eru komnir í 5 manna varnarlínu
71. mín Gult spjald: Finnur Orri Margeirsson (KR)
69. mín
Inn:Aron Bjarki Jósepsson (KR) Út:Stefán Árni Geirsson (KR)
68. mín
Inn:Ólafur Örn Eyjólfsson (HK) Út:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
64. mín
SLÁIN HJÁ HK!!

Um leið og ég segi að HK séu ekki líklegir á Bjarni Gunn skot í slá!! Atli Arnars kom með fasta sendingu inn í teiginn og Bjarni setti stóru tá í boltann og þaðan fór boltinn í slánna!!
63. mín
Fyrir utan þetta skot frá Atla í slánna hefur ekki mikip gerst hér fyrstu 20 mínúturnar í seinni en KR-ingar eru líklegri til að skora annað frekar en að HK jafni leikinn
60. mín Gult spjald: Ægir Jarl Jónasson (KR)
55. mín
SLÁIN!!

Atli Sigurjóns keyrir upp að teig HK og á hörku skot í slá og niður! Boltinn detuur svo til Hjalta sem reynir líka skot en það fer yfir markið!

HK-ingar heppnir
50. mín
Ekki mikið að frétta þessar fyrstu 5 mínútur seinni hálfleiks, liðin eru að skiptast á að tapa boltanum trekk í trekk og ná ekki að skapa sér mikið
46. mín
Inn:Ásgeir Marteinsson (HK) Út:Birnir Snær Ingason (HK)
Líklegast vegna meiðsla
46. mín
Seinni er farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Virkilega daufum fyrri hálfleik lokið hér í Kórnum, vonum að sá seinni verði meiri skemmtun!
43. mín
Atli Sigurjóns reynir skot fyrir utan teig, skotið er fast en beint á Arnar sem slær hann út í teig beint á Ægi Jarl sem á aftur skot en Arnar ver aftur!
38. mín
BJARNI Í FÆRI!

Það var mikill darrðardans í teig KR-inga, Atli Arnarson lyfti svo boltanum á Bjarna sem tók klippuna en skotið fór réééétt framhjá..
37. mín
Kennie reynir skot fyrir aftan miðju, skotið er gott en Arnar var vel vakandi í markinu og greip þetta
35. mín
Atli Sigurjóns sest niður og þarf að fá aðhlynningu, virðist vera meiðsli í ökklanum eða ristinni..
32. mín
Jæja loksins þarf Beitir að verja..

Valgeir reynir skot rétt fyrir utan teig með vinstri en skotið er laust og engin hætta á ferð þarna
26. mín MARK!
Atli Sigurjónsson (KR)
Stoðsending: Óskar Örn Hauksson
ÞAÐ ER KOMIÐ MARK!!

Kennie spyrnir boltanum fram úr öftustu línu á Óskar Örn Hauksson sem skallar boltann fyrir Atla sem setur hann bara örugglega yfir Arnar í marki HK sem var ótrúlega illa staðsettur!

1-0!
24. mín
HK fá hornspyrnu frá vinstri!

Birnir Snær tekur hana en Beitir gerir vel og grípur boltann
21. mín
KR fá aukaspyrnu á stór hættulegum stað rétt fyrir utan teig!

Pálmi Rafn rennir honum til hliðar á Óskar sem á fast skot með jörðinni sem Arnar grípur auðveldlega
17. mín
Rosalega hægt yfir öllu í leiknum fyrsta korterið allavega, liðin eru ekki að skapa sér neitt og það virðist vera eins og bæði lið séu bara að bíða eftir mistökum til þess að refsa
13. mín
Helgi Mikael kemur í veg fyrir hættulega skyndisókn KR

KR unnu boltann og voru að fara sækja 3 á 3 en Óskar Örn sendir í Helga Mikael sem neyðist til að stöðva leikinn..

KR-ingar ekki sáttir
10. mín
Binni Bolti sest niður og þarf að fá aðhlynningu, spurning hvort það sé í lagi með kappann...

Update: Birnir er kominn inn á aftur
8. mín
ÚFF!

Boltinn dettur út til Finns Orra eftir háa fyrirgjöf frá Atla, Finnur reynir utanfótar skot á lofti fyrir utan teig sem fer af Rauschenberg, breytir um stefnu og var á leið í markið en Arnar Freyr gerir vel og ver skotið!
5. mín
KR fá fyrstu hornspyrnu leiksins!

Atli Sig tekur hana, gefur stutt á Pálma, fær boltann aftur frá Pálma og á skot vel yfir markið!
1. mín
Leikur hafinn
Helgi Mikael hefur flautað leikinn á, góða skemmtun!
Fyrir leik
Síðast þegar þessi lið mættust í Kórnum unnu HK-ingar sannfærandi og mjög óvæntan 4-1 sigur!

Mörk HK: Arnþór Ari, Birnir Snær, Bjarni Gunn og Emil Atla

Mark KR: Pálmi Rafn Pálmason
Fyrir leik
20. júní 2020 komu líklega óvæntustu úrslit tímabilsins þegar HK-ingar fóru í Frostaskjólið og völtuðu yfir KR-inga og fóru með 0-3 sigur af hólmi!

Mörk HK:
Jón Arnar Barðdal
Valgeir Valgeirsson
Birkir Valur Jónsson
Fyrir leik
Fyrir leikinn sitja HK-ingar í 9. sæti deildarinnar með 19 stig og með sigri í dag geta þeir farið upp fyrir ÍA og KA og farið upp í 7. sæti

KR-ingar sitja í 6. sæti með 27 stig og geta jafnvel farið í 3 sæti með sigri ef Blikar og Fylkir gera jafntefli í kvöld..
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu úr leik HK og KR í Pepsi-Max deild karla en leikurinn hefst núna klukkan 17:00
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
Pálmi Rafn Pálmason
2. Hjalti Sigurðsson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Finnur Orri Margeirsson ('77)
9. Stefán Árni Geirsson ('69)
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson

Varamenn:
13. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
10. Kristján Flóki Finnbogason
15. Lúkas Magni Magnason
17. Alex Freyr Hilmarsson ('77)
18. Aron Bjarki Jósepsson ('69)
20. Eiður Snorri Bjarnason

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Valgeir Viðarsson
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Sigurður Jón Ásbergsson
Hrafn Tómasson

Gul spjöld:
Ægir Jarl Jónasson ('60)
Finnur Orri Margeirsson ('71)

Rauð spjöld: