ÍA
0
0
Stjarnan
17.05.2021 - 19:15
Norðurálsvöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Erlendur Eiríksson
Maður leiksins: Haraldur Björnsson, Stjarnan
Norðurálsvöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Erlendur Eiríksson
Maður leiksins: Haraldur Björnsson, Stjarnan
Byrjunarlið:
31. Dino Hodzic (m)
Gísli Laxdal Unnarsson
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
4. Aron Kristófer Lárusson
9. Viktor Jónsson
10. Steinar Þorsteinsson
16. Brynjar Snær Pálsson
19. Ísak Snær Þorvaldsson
21. Morten Beck Guldsmed
('74)
44. Alex Davey
Varamenn:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
6. Jón Gísli Eyland Gíslason
('74)
8. Hallur Flosason
14. Ólafur Valur Valdimarsson
17. Ingi Þór Sigurðsson
20. Guðmundur Tyrfingsson
Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Arnar Már Guðjónsson
Arnór Snær Guðmundsson
Daníel Þór Heimisson
Skarphéðinn Magnússon
Bjarki Sigmundsson
Fannar Berg Gunnólfsson
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Hilmar Arni skaut í vegginn og leiknum er lokið með markalausu jafntefli. Úrslut sem lýsa stöðu liðanna í deildinni ágætlega. Viðtöl og skýrsla koma síðar í kvöld.
92. mín
Lokasóknin. Stjarnan fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Hvað gerir Hilmar Árni?
85. mín
Gult spjald: Þórarinn Ingi Valdimarsson (Stjarnan)
Brot á Steinari Þorsteins út við hliðarlínu.
81. mín
Inn:Þórarinn Ingi Valdimarsson (Stjarnan)
Út:Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjarnan)
78. mín
Heiðar Ægisson með klúður, hann sendi boltann í fæturna á Viktori sem slapp einn í gegn. Hann skaut að Halla sem varði og í kjölfarið var Einar Karl sem fyrr mættur til að hreinsa í horn. Vel varið hjá Halla sem meiddist í atganginum og fékk aðhlynningu.
74. mín
Inn:Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Út:Morten Beck Guldsmed (ÍA)
Danski sóknarmaðurinn hefur lokið í leik í dag. Hans fyrsti leikur með ÍA.
60. mín
Eftir hraða sókn Stjörnunnar er Heiðar Ægisson í fínu færi í teignum með menn með sér en skaut að marki og framhjá. Þetta verður að nýta betur.
58. mín
Morten Beck í góðu færi i teignum en skaut í varnarmann og þaðan fór boltinn í horn.
50. mín
Gísli Laxdal í dauðafæri eftir draumasendingu frá Brynjari Snæ. Halli varði og boltinn fór til Morten Beck. Þar virtist boltinn fara í hönd Mortens og Stjarnan tók boltann.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er hafinn. Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur á Akranesi. Hvorugu liði hefur tekist að skora mark. Þau hafa bæði fengið færi til þess en menn þurfa að vera ákveðnari og viljugri til að skora til að boltinn leiti í markið. Vonum að seinni hálfleikurinn verði betri.
44. mín
Hilmar Árni í dauðafæri í teignum en renndi boltann framhjá markinu. Þetta er ekki Hilmar Árni sem við þekkjum hann, það verður að nýta svona.
38. mín
Heimskuleg tækling fyrir utan teig, Aron Kristófer, fór aftan í Emil Atlason. Erlendur dómari reif upp gula spjaldið en enginn sá hann þó sýna Aroni það. Með þessu gaf Aron gestunum stórhættulegt færi. Ekki sniðugt að gefa Hilmari Árna svona færi.
36. mín
Hilmar Árni með fast skot í enda teigsins en beint í fangið á Dino Hodzic. Dino er að spila sinn fyrsta leik í deildinni og hefur til þessa átt fínan leik, gripið fyrirgjafir og komið boltanum vel frá sér.
31. mín
Þetta er allt voða bitlaust ennþá. Liðin skiptast á að sækja en við þurfum fleiri góð marktækifæri, og jafnvel bara mark.
25. mín
Einar Karl bjargar tvisvar á línu fyrst frá Óttari Bjarna og svo frá Þórði Þorsteini. Þarna skall hurð nærri hælum.
20. mín
Hilmar Árni í góðu skotfæri í teignum, skaut að marki en Alex Davey náði að skalla boltann í horn.
16. mín
Þórður Þorsteinn skallaði fyrirgjöf út fyrir teiginn, beint fyrir fætur Einars Karls sem þrumaði að marki en rétt framhjá. Hættulegt að gefa Einari Karli þessi færi því hann er virkilega góður skotmaður.
13. mín
Halli rétt nær að verja í horn eftir skot Gísla Laxdal. Ekki tókst Brynjari að koma boltanum inn á völlinn úr horninu, hann fór afturfyrir í leiðinni að marki.
11. mín
Liðin skiptast á að fá hornspyrnur hérna en annars ekkert markvisst að gerast. 6 - 2 í hornspyrnum ÍA í vil.
9. mín
Mér sýnist að liðsuppstilling liðanna í dag sé svona:
ÍA:
Dino
Þórður - Óttar - Alex - Aron
Brynjar - Ísak
Steinar
Gísli - Viktor - Morten
Stjarnan:
Halli
Elíus - Brynjar - Daníel - Tristan
Heiðar - Eyjólfur - Einar Karl - Hilmar Árni
Emil - Þorsteinn Már
ÍA:
Dino
Þórður - Óttar - Alex - Aron
Brynjar - Ísak
Steinar
Gísli - Viktor - Morten
Stjarnan:
Halli
Elíus - Brynjar - Daníel - Tristan
Heiðar - Eyjólfur - Einar Karl - Hilmar Árni
Emil - Þorsteinn Már
5. mín
ÍA bjargar í horn eftir góða fyrirgjöf Einars Karls sem litlu munaði að Egill Atlason næði til. Ekkert kom bitastætt úr horninu.
2. mín
Skagamenn hafa fengið tvær hornspyrnur á fyrstu mínútunni sem þeim tókst þó ekki að nýta sér.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Stjarnan byrjar með boltann og leikur í átt að Akraneshöllinni.
Fyrir leik
Málarameistarinn Erlendur Eiríksson dæmir leikinn í dag með þá Odd Helga Guðmundsson og Svein Þórð Þórðarson sér til aðstoðar á línunum. Gunnar Oddur Hafliðason er skiltadómari og KSÍ sendi Björn Guðbjörnsson hingað á skagann til að taka út umgjörðina og störf dómara.
Fyrir leik
Þegar ég kom hingað í síðasta heimaleik ÍA gegn Víkingi 8. maí kvörtuðu allir aðilar undan aðstæðum, það var kalt, rok og sólin lágt á loft auk þess sem völlurinn þótti ömurlegur. Það er breyting á núna, loftið mun hlýrra, nánast logn og engin sól. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort völlurinn hafi skánað á 9 dögum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Það er ljóst að skörð eru hoggin í lið ÍA fyrir leikinn því þeir Árni Snær Ólafsson markvörður og Sindri Snær Magnússon miðjumaður enduðu báðir á slysadeild eftir síðasta leik gegn FH.
Árni Snær er með slitna hásin og spilar ekki meira á tímabilinu en Sindri Snær braut rifbein og verður frá næstu vikur. Dino Hodzic er í marki ÍA í kvöld en það verður hans fyrsti leikur í Pepsi Max-deildinni. Morten Beck Anderson kom til ÍA frá FH á láni á lokadegi gluggans og hann kemur inn í byrjunarliðið.
Frá síðasta leik gegn FH gerir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, alls þrjár breytingar því Aron Kristófer Lárusson kemur einnig inn í byrjunarliðið.
Stjarnan gerir eina breytingu frá tapinu gegn Víkingi á heimavelli í síðustu umferð. Óli Valur Ómarsson byrjar ekki og inn í hans stað kemur Elís Rafn Björnsson.

Morten Beck verður àfyrsta sinn àleikmannahópi Skagamanna þegar þeir mæta Stjörnumönnum á Norðurálsvelli á morgun kl.19:15. Nú kæru Skagamenn þurfum við á stuðningi ykkar að halda. Hægt er að kaupa miða á leikinn àStubbur appinu.
— ÃÂA Akranes FC (@ia_akranes) May 16, 2021
ÃÂfram ÃÂA pic.twitter.com/YMvGBbTHdd
Fyrir leik
Kjartan Atli Kjartansson spáði í 4. umferð fyrir Fótbolta.net. Hann á von á útisigri í dag.
ÍA 1 - 2 Stjarnan
Skagamenn lentu í skakkaföllum í síðustu umferð og óskar maður meiddum leikmönnum góðs og skjóts bata. Stjarnan hefur ekki náð fluginu enn og manni finnst ára liðsins svolítð skrítinn akkúrat núna. Ég held að Stjarnan sæki sigur upp á Skaga. Þessi leikur endar 1-2. Eyjólfur Héðinsson skorar annað tímabilið í röð á Akranesi. Viktor Jónsson jafnar og Óli Valur Ómarsson skorar sigurmarkið. Yrði það þá enn eitt markið sem uppalinn Álftnesingur skorar fyrir Stjörnuna.

Þorvaldur Örlygsson tók við þjálfun Stjörnunnar í upphafi móts þegar Rúnar Páll Sigmundsson sagði óvænt upp störfum vegna afskipta stjórnarmanna af liðsvali.
Þorvaldur þekkir til á Akranesi því hann stýrði ÍA í Pepsi-deildinni sumarið 2013 en þá um haustið féllu þeir úr deildinni með aðeins 11 stig.
Þorvaldur Örlygsson stýrir Stjörnunni með Ejub Purisevic sér til aðstoðar.

Liðin mættust aðeins einu sinni í Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð. Þá vann Stjarnan 1 - 2 sigur. Eyjólfur Héðinsson og Alex Þór Hauksson skoruðu fyrir Stjörnuna áður en Viktor Jónsson minnkaði muninn fyrir ÍA.
Síðari leiknum á síðustu leiktíð var aflýst þegar Íslandsmótinu var hætt vegna heimsfaraldurs Covid-19.
Liðin mættust svo í Lengjubikarnum í febrúar. Þá vann Stjarnan 2 - 0 á Samsungvellinum. Tristan Freyr Ingólfsson og Hilmar Árni Halldórsson skoruðu mörkin.

Það er ljóst að skarð eru hoggin í lið ÍA fyrir leikinn því þeir Árni Snær Ólafsson markvörður og Sindri Snær Magnússon miðjumaður enduðu báðir á slysadeild eftir síðasta leik gegn FH.
Árni Snær er með slitna hásin og spilar ekki meira á tímabilinu en Sindri Snær braut rifbein og verður frá næstu vikur. Dino Hodzic verður líklega í marki ÍA í dag en það verður hans fyrsti leikur í Pepsi Max-deildinni.
Sindri Snær fór með sjúkrabíl úr Kaplakrika.

Í þessum leik mætast þau lið sem hafa staðið sig verst í fyrstu þremur umferðum Íslandsmótsins i sumar.
Hvor lið um sig hefur aðeins náð í eitt stig úr leikjunum þremur og aðeins skorað tvö mörk. Skagamenn eru á botninum með 6 mörk í mínus en Stjarnan í næst neðsta sæti með 3 stig í mínus.
Þar með er ljóst að liðið sem tapar í dag mun verma botnsæti deildarinnar þegar umferðinni lýkur í völd.

Haraldur Björnsson
2. Heiðar Ægisson
('81)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Tristan Freyr Ingólfsson
7. Einar Karl Ingvarsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
('81)
20. Eyjólfur Héðinsson
21. Elís Rafn Björnsson
22. Emil Atlason
Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
4. Óli Valur Ómarsson
('81)
5. Kári Pétursson
7. Ísak Andri Sigurgeirsson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
('81)
17. Ólafur Karl Finsen
24. Björn Berg Bryde
77. Kristófer Konráðsson
Liðsstjórn:
Þorvaldur Örlygsson (Þ)
Friðrik Ellert Jónsson
Rajko Stanisic
Pétur Már Bernhöft
Ejub Purisevic
Gul spjöld:
Þórarinn Ingi Valdimarsson ('85)
Rauð spjöld: