Laugardalsvöllur
Vináttulandsleikir kvenna - Landslið
Aðstæður: Fínar. Smá gola en alveg þurrt.
Áhorfendur: 729
Maður leiksins: Glódís Perla Viggósdóttir
Karólína Lea!
Leikur sér að Jamie Finn í vörn Íra og kemur boltanum fyrir en aðeins of framarlega fyrir Öglu Maríu sem var mætt á fjær.
Írar í ágætu færi!
Heathet Payne kemst upp vinstra meginn og á fyrirgjöf sem endar hjá Katie McCabe en skotið er ekki gott og Cecilía er í engum vandræðum með þetta.
Boltinn fer út fyrir og hún fær aðhlynningu.
Hún fer aðeins út fyrir og kemur svo fljótt inn aftur.
Hún fer út fyrir völlinn og leikurinn heldur áfram.
Fékk boltann hægra meginn í teignum, leggur hann fyrir sig og á þétt skot í fjærhornið. Frábær tilþrif hjá Karó!
Agla vinnur boltann og kemur honum út til hægri á Karólínu sem kemur með góðan bolta fyrir markið í hlaupið hjá Berglindi (Björgu) sem rennir sér í boltann en rétt missir af honum. Munaði svo mjóu!
Virðist vera allt í góðu með hana og hún heldur allavega áfram.
Sveindís með langt innkast sem Dagný nær að framlengja, boltinn dettur Andreu beint fyrir framan markteig og hún á fast skot rétt yfir markið.
Stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Andrea Rán með boltann fyrir utan teig, kemur boltanum inn á teig á Berglindi sem er fyrir framan markið en virðist ekki ná almennilega til boltans en nær að pota í hann og hann lekur inn í markið!
Berglind fær sendingu upp vinstri kantinn og er með frábæra fyrirgjöf á Sveindísi sem er komin ein gegn markmanninum en í staðinn fyrir að taka hann í fyrsta þá tekur hún snertingu á boltann og missir hann of langt frá sér.
Boltinn berst svo á Gunnhildi sem reynir að koma sér í skot en boltinn í varnarmann.
Ekki skapast mikil hætta og frekar dauft yfir þessu.
Fáum vonandi skemmtilegri seinni hálfleik!
Hornspyrnan fer í gegnum allan teiginn og endar í markspyrnu. Enginn nógu grimmur á boltann þarna.
Hafrún tekur eina á og er með góða sendingu inn fyrir á Berglindi. Markmaðurinn bakkar frá henni og Berglind kemst ein gegn henni en skotið beint á markið.
Boltinn berst svo út í teiginn á Sveindísi sem kemur á fleygiferð og ætlar í skotið en hún fellur í teignum í baráttunni við varnarmann Írlands. Dómarinn dæmir ekkert á þetta en enginn að biðja um neitt heldur.
Þarna ná þær að opna íslensku vörnina og boltinn berst á Amber Barrett sem er í góðri stöðu fyrir framan markið en setur hann framhjá.
Sveindís komin vinstra megin og Karólína hægra megin.
Hún fær aðhlynningu en heldur svo áfram leik.
Hallbera tekur spyrnuna en hún er of innarlega og Courtney Brosnan í markinu ekki í neinum vandræðum þarna.
Cecilía Rán
Hafrún - Glódís - Ingibjörg - Hallbera
Alexandra
Dagný - Gunnhildur
Sveindís - Berglind Björg - Karólína
Sirka svona.
WE GO AGAIN 👊
— FAIreland âš½ï¸ðŸ‡®ðŸ‡ª (@FAIreland) June 15, 2021
🇮🇸 v 🇮🇪
â° KO 18:00
🟠Laugardalsvollur
💻 LIVE on RTÉ Player / News Channel#ISLIRL | #COYGIG | #WeAreOne pic.twitter.com/mLPGLnmrJb
WNT LINE-UP | 🇮🇸 v 🇮🇪
— FAIreland âš½ï¸ðŸ‡®ðŸ‡ª (@FAIreland) June 15, 2021
🔘 First start for Éabha O'Mahony
🔘 Uncapped Saoirse Noonan makes the bench
🔘 2ï¸âƒ£ current & 6ï¸âƒ£ former #WNL players in starting line-up
â° KO 18:00
💻 LIVE on RTÉ Player 👉 https://t.co/2Ezv5sscER#ISLIRL | #COYGIG | #WeAreOne pic.twitter.com/Yksy8CJuCS
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Fimm breytingar frá leiknum á föstudaginn.
Cecilía Rán, Hafrún Rakel, Hallbera, Sveindís og Berglind Björg koma inn fyrir Söndru, Elísu, Elínu Mettu, Öglu Maríu og Áslaugu Mundu.
🇮🇸⚽ï¸ðŸ‡®ðŸ‡ª
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 15, 2021
International friendly
Laugardalsvöllur stadium
ReykjavÃk, Iceland
Tuesday June 15th
Kick-off 17:00 local time#dóttir pic.twitter.com/t2I6nFEf9f
Steini talaði um eftir síðasta leik að honum hafi fundist síðasta korterið dapurt, en eftir að hafa horft á leikinn aftur sá hann að Írarnir voru í raun ekki að skapa færi þótt þær hafi legið aðeins á okkur. Honum fannst íslenska liðið ná að halda boltanum vel á köflum og spila nokkuð vel út úr pressunni.
,,Tilfinningin sem maður hefur rétt eftir leik er stundum ekki alveg rétt. Það var margt sem ég sá jákvæðara heldur en mér fannst akkúrat þegar leiknum var lokið. Þær skoruðu auðvitað þetta mark í lokin en mér fannst það reyndar vera rangstaða," sagði landsliðsþjálfarinn á blaðamannafundinum í gær.
Eftir leikinn á föstudaginn talaði hann einnig um að hann hefði kannski ekki getað fagnað því almennilega ða vinna eftir að hafa fengið þetta mark á sig í lokin. Honum þótti samt gott að hafa náð í fyrsta sigurinn sem landsliðsþjálfari.
,,Að sjálfsögðu er það gott, maður vill alltaf vinna, við erum öll í þessu til að vinna og sama hvaða leik maður er að fara að spila þá vill maður vinna. Það er mjög gott að hafa unnið, það hjálpar okkur og við viljum venjast því að vinna og það á að vera góður vani," sagði Steini í gær.
Á blaðamannafundinum í gær kom landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson inn á að fleiri breytingar yrðu í leiknum í dag.
,,Það verður sama leikkerfi og sama upplegg á morgun. Það verður í raun allt það sama nema ekki alveg sömu leikmenn. Það á að vera þægilegt fyrir þá leikmenn sem koma inn að koma inn í kerfið okkar þannig við breytum rútínunni ekkert."
Athygli vakti að íslenska liðið spilaði í hvítu varabúningunum sínum á heimavelli á föstudaginn.
Fyrirliðinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson voru spurð út í þetta á blaðamannafundi í gær.
Írland tók bara grænu búningana sína með þannig við þurftum að spila í hvítu, svo einfalt er það," sagði Gunnhildur.
Steina þótti ólíklegt að Írarnir hafi sótt varabúningana sína um helgina og því eru allar líkur á að íslenska liðið spili aftur í hvítu í dag.
,,Með tilliti til annars vegar litblindu og hins vegar sjónvarpsútsendingar þá er betra að annað liðið sé í ljósu og hitt í dökku. Þannig þetta er ekkert mál, hvítu búningarnir okkar eru flottir líka," sagði Ómar Smárason, deildarstjóri samskiptadeildar KSÍ.
496 áhorfendur mættu á leikinn á föstudaginn en um 1800 miðar voru í boði. Gunnhildur Yrsa, fyrirliði landsliðsins var ánægð með stuðninginn en vonast til að sjá fleiri mæta á leikinn í dag.
Leikdagur!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 15, 2021
Ãsland mætir Ãrlandi kl. 17:00 á Laugardalsvelli!
Ætlar þú ekki að mæta og styðja stelpurnar til sigurs?
Miðasala á https://t.co/iwyH4UEb7x!https://t.co/krlZtBkPJ1#dottir pic.twitter.com/FtUpBi57Fu
Ísland er ofar á styrkleikalista FIFA eða í 17. sæti. Írland er í 34. sæti.
Liðin hafa mæst sex sinnum í sögunni, þar með talið á föstudaginn. Ísland vann Írland í umspili fyrir EM 2009 og vann einvígið 4-1 samanlagt og tryggði sér í fyrsta sinn á lokamót. Ísland hefur unnið Írland þrisvar sinnum og þrisvar hafa leikir liðanna endað með jafntefli.
Liðin áttust við á föstudaginn s.l. í fyrri leik verkefnisins og þar fór lið Íslands með 3-2 sigur.
Agla María kom Íslandi yfir á 11. mínútu leiksins og Gunnhildur Yrsa bætti við öðru marki strax á 14. mínútu. Stuttu fyrir hálfleik eða á 39. mínútu kom Dagný Brynjars leiknum í 3-0 og sú var staðan í hálfleik.
Írar minnkuðu muninn á 50. mínútu með marki frá Heather Payne og í uppbótartíma setti Amber Barrett annað mark.
Íslenska liðið var betri aðilinn í fyrri hálfleiknum en gáfu eftir í seinni á sama tíma og Írar gengu á lagið og settu tvö mörk. Það dugði þó ekki til og fyrsti sigur Íslands undir stjórn Þorsteins landsliðsþjálfara því staðreynd.