Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
Í BEINNI
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
Valur
LL 2
1
Breiðablik
Fjölnir
0
3
Þór
0-1 Alvaro Montejo '6
0-1 Alvaro Montejo '13 , misnotað víti
0-2 Alvaro Montejo '31
0-3 Alvaro Montejo '93
26.06.2021  -  16:00
Extra völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Grasið lítur vel út, glampandi sól og allt klárt fyrir veislu!
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Alvaro Montejo
Byrjunarlið:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
2. Valdimar Ingi Jónsson ('62)
8. Arnór Breki Ásþórsson
11. Dofri Snorrason
15. Alexander Freyr Sindrason
16. Orri Þórhallsson
18. Kristófer Jacobson Reyes
19. Hilmir Rafn Mikaelsson ('46)
22. Ragnar Leósson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson ('62)
31. Jóhann Árni Gunnarsson ('83)

Varamenn:
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
6. Baldur Sigurðsson
9. Andri Freyr Jónasson ('46)
11. Hallvarður Óskar Sigurðarson ('62)
17. Lúkas Logi Heimisson ('62)
33. Eysteinn Þorri Björgvinsson ('83)

Liðsstjórn:
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Gunnar Valur Gunnarsson
Steinar Örn Gunnarsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Magnús Birkir Hilmarsson
Sigurður Frímann Meyvantsson

Gul spjöld:
Kristófer Jacobson Reyes ('13)
Arnór Breki Ásþórsson ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sannfærandi sigur Þórsara staðreynd.
93. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
Stoðsending: Jóhann Helgi Hannesson
Kremið á kökuna!!

Snögg sókn, Jói finnur Alvaro og hann fer framhjá Sigurjóni og leggur boltann í netið.

Kveður með þrennu!
92. mín
Þórsarar eru að sigla þessu heim.
91. mín
Jóhann Helgi með skot sem fer beint á Sigurjón.
90. mín
Alvaro í dauðafæri eftir sendingu frá Jóa en rennur á ögurstundu og nær ekki góðu skoti á markið.
88. mín Gult spjald: Arnór Breki Ásþórsson (Fjölnir)
Braut á Alvaro í skyndisókninni.
88. mín
Siggi Marinó skallar frá og Þórsarar bruna upp í skyndisókn.
87. mín
Fjölnir fær hornspyrnu.
86. mín
Hallvarður með geggjaða fyrirgjöf en enginn náði að komast í þennan bolta!
85. mín
Þórsarar í fínum séns en Liban nær ekki skoti á mark heimamanna.
83. mín
Inn:Eysteinn Þorri Björgvinsson (Fjölnir) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Fjölnismenn hreinsa hornið í burtu.
83. mín
Þórsarar í skyndisókn og Jói með skot/fyrirgjöf í þverslána!!

Liban á svo skot eftir frákastið og Sigurjón ver það í horn.
82. mín
Hallvarður með fyrirgjöf úr aukaspyrnu sem fer af Ólafi Aroni og svo til Daða í markinu.
81. mín Gult spjald: Elmar Þór Jónsson (Þór )
81. mín
Elmar brýtur á Andra, klaufalegt.
80. mín
Ragnar í fínu færi og á ágætis skot en Daði ver vel með fætinum!
79. mín
Það var Jóhann Helgi sem lá eftir en hann er staðinn upp.
77. mín
Hörkuskot eftir hornspyrnuna en hittir ekki á markið.

Þórsari liggur eftir meiddur.
77. mín
Usss Andri Freyr!

Fær færi en það var þröngt, sendir boltann framhjá Daða en líka framhjá. Einhver var snertingin frá Daða því Fjölnir fær horn.
75. mín
Hætta þarna upp úr horninu. Sá ekki hver átti snertinguna en boltinn framhjá nærstönginni!

Fjölnismenn eru að sækja af meiri ákafa en áður í leiknum.
74. mín
Inn:Sölvi Sverrisson (Þór ) Út:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
74. mín
Inn:Jóhann Helgi Hannesson (Þór ) Út:Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þór )
74. mín
Heimamenn eiga hornspyrnu. Jóhann Árni tekur.
72. mín
Hallvarður með fast skot en það fer framhjá fjærstönginni.
69. mín
Ólafur Aron með bolta inn á vítateig Fjölnis en Sigurjón kemur út og kýlir boltann í burtu.
67. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu úti vinstra megin en Þórsarar hreinsa.
65. mín
Andri á móti Birgi og Birgir gerir vel, kemur boltanum í innkast.
64. mín
Ólafur Aron með neglu en bæði framhjá og yfir fer þessi bolti.
62. mín
Inn:Lúkas Logi Heimisson (Fjölnir) Út:Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
62. mín
Inn:Hallvarður Óskar Sigurðarson (Fjölnir) Út:Valdimar Ingi Jónsson (Fjölnir)
61. mín
Elmar með þrumufyrirgjöf en Arnór Breki nær að hreinsa.
60. mín
Fjölnismenn að undirbúa tvöfalda breytingu.
59. mín
Ólafur Aron með fyrirgjöf sem fer á Petar en skallinn vel framhjá.
58. mín
Þórsarar fá hornspyrnu. Ólafur Aron lá eftir eftir viðskipti við Alexander og vildi fá aukaspyrnu en hornspyrna er niðurstaðan.
57. mín Gult spjald: Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þór )
Brotlegur og fær gult fyrir.
57. mín
Ásgeir með fyrirgjöf en Kristófer kemst fyrir.
55. mín Gult spjald: Orri Sigurjónsson (Þór )
Spjaldar meiddan Orra Sigurjónsson fyrir að labba af velli. Ja hér.
55. mín
Inn:Liban Abdulahi (Þór ) Út:Orri Sigurjónsson (Þór )
54. mín
Elmar nálægt því að brjóta á Valdimar þarna. Valdimarh hefði getað verið aðeins klókur þarna og sótt víti, allavega miðað við mitt sjónarhorn á þetta allt saman.

Þórsarar þurfa að gera skiptingu.
54. mín
Gummi Kalli með skot sem Hermann Helgi kemst fyrir. Valdimar átti fínan sprett á undan en svo aðeins of háa fyrirgjöf.
52. mín
Brotið á Valdimar sem heldur áfram og á fyrirgjöf en sú fer beint aftur fyrir. Heimamenn kalla eftir aukaspyrnu en fá ekkert.
51. mín
Þórsarar fá hornspyrnu. Elmar tekur.

Alls enginn gullbolti í þetta skiptið.
50. mín
Frábær tækling hjá Kristófer sýndist mér. Kemur í veg fyrir að Alvaro komist í dauðafæri.
50. mín
Leikurinn kominn af stað og Alvaro kominn inn á.
48. mín
Valdimar reynir að finna Gumma Kalla á teignum en tekst ekki. Arnór Breki svo með fyrirgjöf en Birgir sýndist mér skallar frá. Leikurinn stöðvarður vegna meiðsla Alvaro.
48. mín
Alvaro liggur á vellinum og þarf á aðhlynningu að halda.
46. mín
Þórsarar hefja seinni hálfleikinn
46. mín
Inn:Andri Freyr Jónasson (Fjölnir) Út:Hilmir Rafn Mikaelsson (Fjölnir)
45. mín
Hálfleikur
Þórsarar leiða í hálfeik. Hafa skapað sér betri færi og leiða verðskuldað.
45. mín Gult spjald: Alvaro Montejo (Þór )
45. mín
45+2

Alvaro í baráttunni við Kristófer og virðist fara í hann þegar þeir eru báðir í jörðinni.
45. mín
45+1

Hermann Helgi með fyrirgjöf en hún er of löng og fer aftur fyrir.
45. mín
Dofri (sýndist mér) með skotið en það fór hátt yfir mark Þórsara.
45. mín
Þórsarar í smá brasi þarna inn á teignum áður en Petar hreinsar í innkast. Vantaði smá greddu í heimamenn að nýta sér þetta!
41. mín
Ragnar liggur eftir eftir návígi við Orra Sig sá ekki hvað Orri gerði en Ási Arnars er allt annað en sáttur, gerðist rétt fyrir framan varamannabekk Fjölnis.
37. mín
Daði Freyr rís upp í teignum og grípur fyrirgjöfina.
36. mín
Valdimar með fyrirgjöf sem Petar skallar í burtu. Hann hitti boltann ekki vel og skallaði aftur fyrir. Fjölnir fær horn.
35. mín
Valdimar Ingi kominn inn á aftur.
33. mín
Leikurinn er stopp, sýnist það vera Valdimar Ingi sem liggur eftir og fær aðhlynningu.
32. mín

31. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
Stoðsending: Sigurður Marinó Kristjánsson
Frábær skyndisókn hjá Þórsurum. Siggi Marinó gerir frábærlega að taka við hreinsun upp völlinn, heldur góðum hraða. Siggi finnur svo Alvaro, hann stígur út Kristófer og kemur sér inn á teiginn. Hann á svo skot af stuttu færi sem Sigurjón er í en boltinn lekur i markið!
29. mín
Alvaro dæmdur brotlegur gegn Kristófer þegar hann gefur boltann fyrir. Hefur sennilega fylgt á eftir sendingunni þegar hann renndi sér í boltann og farið í Kristófer.
26. mín
Inn:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór ) Út:Vignir Snær Stefánsson (Þór )
Þórsarar þurfa að gera breytingu. Hermann Helgi kemur inn í hægri bakvörðinn.
25. mín
Vignir brýtur á Gumma Kalla við miðjuna og er heppinn að sleppa við spjald. Hann er ekki alveg jafn heppinn með samstuðið því hann þarf á aðhlynningu að halda.
25. mín
Fannar með sendingu inn á Sigga sem á fasta fyrirgjöf en Alexander kemst fyrir og hreinsar.
24. mín
Alvaro tekinn niður og Þórsarar vilja fá gult. Sá ekki hvot þetta var Alexander eða Kristófer. Ef þetta var Kristófer þá hefði það verið seinna gula en Gunnar heldur spjaldinu í vasanum.
23. mín
Dofri óvænt kominn upp vinstra megin og fær sendingu frá Gumma Kalla en Þórsarar hreinsa fyrirgöf Dofra.
21. mín
Jóhann Árni með fína fyrirgjöf á fjærstöngina en Þórsarar ná að hreinsa.
21. mín
Gummi Kalli hefur betur í baráttunni við Vigni og vinnur hornspyrnu.
20. mín
Laglegt spil hjá Þórsurum. Alvaro finnur Elmar í gegn en Fjölnismenn gera vel að elta Elmar.

Hann á svo skot vinstra megin úr teignum sem Sigurjón ver.
17. mín
Kristófer skallar fyrirgjöf Sigga í burtu. Þetta var álitleg sókn en vantaði smá hraða í Sigga þegar Alvaro fann hann í gegn skömmu áður.
16. mín Gult spjald: Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
Seinn inn í Arnór sem öskrar hátt. Fannar ekki sáttur við að fara í bókina.
13. mín Misnotað víti!
Alvaro Montejo (Þór )
Skýtur í stöngina!!

Siggi Marinó á svo skot en það fer yfir.
13. mín Gult spjald: Kristófer Jacobson Reyes (Fjölnir)
Braut á Vigni!
12. mín
Þór fær víti!!!!
10. mín
Birgir með flottan varnarleik hjá gestunum sem bruna svo upp hægri vænginn. Ásgeir reynir að finna Sigga í gegn en Dofri er mættur og er fyrri á boltann.
9. mín
Valdimar aftur í færi og nú í dauðafæri!

Skýtur framhjá!
8. mín
Valdimar Ingi fær laglega sendingu og á skot á mark Þórsara en Daði ver vel!
6. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
Stoðsending: Ásgeir Marinó Baldvinsson
Þórsarar eru komnir yfir!!!!

Alvaro var skyndilega kominn í gegn og kláraði með föstu skoti á nærstöngina hægra megin í teignum.
4. mín
Flott sókn hjá heimamönnum en Petar vinnur skallaeinvígi við Hilmi eftir fyrirgjöf frá Arnóri.

Orri á svo skot sem fer í Þórsara.
3. mín
Lið Þórs:
Daði
Vignir - Birgir - Petar - Elmar
Orri - Ólafur Aron
Ásgeir - Siggi Marinó - Fannar
Alvaro
3. mín
Alvaro með tilraun en Alexander kemst fyrir og hættan líður hjá.
2. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu. Nokkrir Þórsarar eru mættir til að styðja sitt lið og kalla eftir gulu spjaldi.

Sömu stuðningsmenn byrjuðu á að bjóða menn velkomna í Þorpið í upphafi leiks, fjör!
1. mín
Lið Fjölnis:
Sigurjón
Dofri - Alexander - Kristófer - Arnór
Jóhann Árni - Orri
Valdimar - Ragnar - Gummi Kalli
Hilmir
1. mín
Leikur hafinn
Fjölnir byrjar með boltann.
Fyrir leik
Sautján ár frá síðasta útisigri Þórs í Grafarvogi

Þórsarar hafa ekki riðið feitum hesti í Grafarvoginum í gegnum tíðina. Liðið hefur unnið einn leik og var það fyrsti leikur liðanana í Grafarvogi þann 11. september árið 2004.

Síðan hafa liðin mæst tíu sinnum hér í Grafarvogi í deild, bikar og deildabikar. Fjölnismenn hafa unnið átta leikjanna og tvisvar hafa liðin gert jafntefli.
Fyrir leik
Þórsarar leika í hvítum treyjum og rauðum stuttbuxum. Heimamenn verða í bláum stuttbuxum og gulum treyjum.
Fyrir leik
Ítreka að það er frábært veður! Mætið á völlinn ef kostur er á!
Fyrir leik
Alvaro að kveðja

Þrjár breytingar eru á liði Þórs frá 0-1 tapinu gegn Kórdrengjum í síðustu umferð. Birgir Ómar, Elmar Þór og Ásgeir Marinó koma inn í liðið. Elvar Baldvins og Jóhann Helgi taka sér sæti á bekknum en Bjarki Þór er ekki í leikmannahópi Þórsara.

Þetta er lokaleikur Alvaro Montejo fyrir Þór því hann heldur til Spánar eftir leikinn í dag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!

Fjölnismenn gera tvær breytingar frá 1-0 tapinu í Vestmannaeyjum. Sigurpáll Melberg tekur sér sæti á bekknum en Viktor Andri er ekki í leikmannahópi liðsins. Inn í liðið koma þeir Orri Þórhalsson og Guðmundur Karl Guðmundsson.
Fyrir leik
Frábært veður, allir á völlinn

Þarf ekkert að flækja þau skilaboð neitt frekar.
Fyrir leik
Staðan í deildinni:

Fjölnir er í 5. sæti deildarinnnar með þrettán stig og Þórsarar eru í 8. sæti með sjö stig. Þór er án sigurs í síðustu þremur deildarleikjum og Fjölnir tapaði síðasta deildarleik gegn ÍBV.

Bæði þessi lið unnu bikarsigra í vikunni. Þórsarar unnu Grindavík á heimavelli og Fjölnir lagði Augnablik á útivelli.
Fyrir leik

KR-ingurinn og Fjölnismaðurinn Ægir Jarl Jónasson er spámaður umferðarinnar hér á .net. Ægir spáir sínum mönnum sigri.

Mínir menn í Fjölni vinna 1-0 seiglusigur og Andri Freyr setur hjólhest í seinni hálfleik!
Fyrir leik
Átti að hefjast 13:00

Leikurinn átti að hefjast klukkan 13:00 en var frestað þar sem flugi Þórsara frá Akureyri var frestað um fjóra klukkutíma. Leikurinn hefst því klukkan 16:00.
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Fjölnis og Þórs í áttundu umferð Lengjudeildar karla.

Sæbjörn Steinke heiti ég og verð með ykkur frá Extra vellinum.
Byrjunarlið:
1. Daði Freyr Arnarsson (m)
Orri Sigurjónsson ('55)
2. Elmar Þór Jónsson
3. Birgir Ómar Hlynsson
6. Ólafur Aron Pétursson
10. Sigurður Marinó Kristjánsson
15. Petar Planic
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('74)
18. Vignir Snær Stefánsson ('26)
23. Ásgeir Marinó Baldvinsson ('74)
24. Alvaro Montejo

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('26)
8. Nikola Kristinn Stojanovic
9. Jóhann Helgi Hannesson ('74)
18. Elvar Baldvinsson

Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Orri Freyr Hjaltalín (Þ)
Jón Stefán Jónsson (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Sölvi Sverrisson
Liban Abdulahi

Gul spjöld:
Fannar Daði Malmquist Gíslason ('16)
Alvaro Montejo ('45)
Orri Sigurjónsson ('55)
Ásgeir Marinó Baldvinsson ('57)
Elmar Þór Jónsson ('81)

Rauð spjöld: