Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fram
1
1
ÍBV
Indriði Áki Þorláksson '71 1-0
1-1 Sito '72
Albert Hafsteinsson '84 , misnotað víti 1-1
15.07.2021  -  18:00
Framvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: 12° og þungskýjað klassískt höfuðborgar veður
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Halldór Páll Geirsson (ÍBV)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Kyle McLagan
5. Haraldur Einar Ásgrímsson
6. Gunnar Gunnarsson
6. Tryggvi Snær Geirsson ('23)
8. Aron Þórður Albertsson
8. Albert Hafsteinsson
9. Þórir Guðjónsson ('85)
10. Fred Saraiva ('85)
17. Alex Freyr Elísson
21. Indriði Áki Þorláksson

Varamenn:
12. Stefán Þór Hannesson (m)
11. Jökull Steinn Ólafsson
14. Hlynur Atli Magnússon
16. Arnór Daði Aðalsteinsson
22. Óskar Jónsson ('23)
33. Alexander Már Þorláksson ('85)
77. Guðmundur Magnússon ('85)

Liðsstjórn:
Jón Sveinsson (Þ)
Marteinn Örn Halldórsson
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Sverrir Ólafur Benónýsson
Hilmar Þór Arnarson
Magnús Þorsteinsson
Gunnlaugur Þór Guðmundsson

Gul spjöld:
Alex Freyr Elísson ('35)
Aron Þórður Albertsson ('59)
Indriði Áki Þorláksson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stig á hvort lið í bragðdaufum leik sem lifnaði aðeins við í svona 10 mínútur en bæði lið halda sér í 1. og 2. sæti.
93. mín Gult spjald: Indriði Áki Þorláksson (Fram)
89. mín
Inn:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV) Út:Nökkvi Már Nökkvason (ÍBV)
Nökkvi eitthvað meiddur.
87. mín
Þvílík Varsla!

Óskar setur boltann fyrir og skallinn er á leiðinni í samskeytin en Halldór með ótrúlega markvörslu til að halda Eyjamönnum í leiknum.
85. mín
Inn:Guðmundur Magnússon (Fram) Út:Þórir Guðjónsson (Fram)
85. mín
Inn:Alexander Már Þorláksson (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
84. mín Misnotað víti!
Albert Hafsteinsson (Fram)
ÖMURLEGT VÍTI

Albert ætlar að reyna panenka en Halldór grípur boltann.
83. mín
VÍTI!

Boltinn færist í hendina á eyjamanni eftir hornspyrnu framara.
81. mín
Alex Freyr með skot fyrir utan teig sem endar vitlausu megin við stöngina.
76. mín
Rosaleg hætta í teig Eyjamanna

Boltinn er settur inn á Indriða þar sem hann tekur hann niður en snýr baki í markið þannig hann reynir hælspyrnu sem er því miður of laus því þetta hefði verið gullfallegt mark.
75. mín
Inn:Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV) Út:Guðjón Pétur Lýðsson (ÍBV)
Mögulega einhver smávægileg meiðsli.
72. mín MARK!
Sito (ÍBV)
Þá byrja hlutirnir að gerast!

Sito með þvílíka töfra fyrir utan teiginn og setur hann svo í fjærhornið!

Gamla klysjan að þú ert viðkvæmastur rétt eftir að þú skorar reyndist rétt núna.
71. mín MARK!
Indriði Áki Þorláksson (Fram)
Stoðsending: Fred Saraiva
Hornspyrna fyrir Framara í þetta sinn tekur Fred spyrnuna og boltinn ratar beint á kollinn á Indriða og hann stangar honum í fjær.
70. mín
Inn:Ísak Andri Sigurgeirsson (ÍBV) Út:Stefán Ingi Sigurðarson (ÍBV)
68. mín
Albert með fína takta upp hægri kantinn en sendingin hans inn í teiginn beint í lúkurnar á Halldóri í markinu.
66. mín
Albert fiskar aukaspyrnu við hægri horn vítateigs eyjamanna.

Hann tekur hana sjálfur en Halldór lemur bolann frá.
60. mín
Fred hleypur svo í gegn var alveg að sleppa í gegn einn á móti markmanni en er felldur. Helga Mikeal fannst þetta ekki vera brot og heimamenn byrjaðir að verða nokkuð ósáttir við dómara leiksins.
59. mín Gult spjald: Aron Þórður Albertsson (Fram)
Stúkan alveg dýrvitlaus þeim fannst þetta ekki vera brot og ég er eiginlega alveg sammála.
57. mín
Alex með fína sendingu fyrir teig frá hægri kant sem endar á Albert en hann skallar boltann útaf í markspyrnu.

Lítið um að vera á fyrstu mínútum fyrri hálfleiks.
49. mín
Eyjamenn með aukaspyrnu við hlið teigsins spyrnan kemur fyrir og skallinn hættulegur en Ólafur ver vel.
47. mín
Fram fær aukaspyrnu á álitlegum stað fyrir fyrgjöf.

Fín spyrna en Halldór lemur frá og svo er dæmd aukaspyrna þar sem einhver Framari fór í Halldór.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur hafinn og Heimamenn byrja með boltann núna.
45. mín
Hálfleikur
Frekar bragðdaufum fyrri hálfleik lokið, vonumst eftir meiri færum í seinni hálfleik. Þá er það bara sjoppan á meðan.
43. mín Gult spjald: Atli Hrafn Andrason (ÍBV)
Fyrir brot sem gerðist aðeins fyrr.
42. mín
Það er kominn töluverður hiti í leikinn eftir að Alex sem er á gulu sparkar boltanum í liggjandi mann til að vinna innkast.
41. mín
Óskar með flotta sendingu fyrir teig í gang óvissunar eða "corridor of uncertainty" en enginn Framari náði til boltans.
38. mín
Fred sýnir fína takta hér úti á vinstri kant sendir hann svo á Albert en hann með skotið í varnarmann.

GPL fær svo boltann og ákveður að skjóta frá eigin vallarhelming sem fer svo sem bara rétt framhjá. Ekkert alltof galið þar sem Ólafur stóð frekar framarlega.
35. mín Gult spjald: Alex Freyr Elísson (Fram)
34. mín
Stuðningsmenn byrjaðir að láta vita að þeim leiðist og ég skil það svo sem ágætlega. Það hefur ekki verið mikið um færi í þessum leik.
32. mín
Hornspyrna fyrir Fram.

Albert með spyrnuna en dæmd rangstaða á heimamenn og ekkert verður úr þessu.
27. mín
Óskar kemur líflegur inn í liðið.

Hann brunar upp hægri kantinn og setur mjög fínan bolta inn í teiginn þar sem Fred er hársbreidd frá því að ná til boltans.
23. mín
Inn:Óskar Jónsson (Fram) Út:Tryggvi Snær Geirsson (Fram)
22. mín
Tryggvi Snær Geirsson er leggstur niður og virðist vera fara af velli.

Hann fékk högg áðan þegar hann tók skotið eftir hornspyrnu Framara.
20. mín
ÍBV með aukaspyrnu á mjög fínum stað.

GPL með skotið veint í vegginn og Framarar hreinsa.
18. mín
Hornspyrna fyrir heimamenn.

Albert með boltann stutt og fær hann aftur, setur hann út á Tryggva sem hleypir af rétt fyrir utan teig.

Boltinn fer í gegnum alla þvöguna en Halldór ver stórkostlega í markinu.
15. mín Gult spjald: Tómas Bent Magnússon (ÍBV)
Sveiflar hendinni aðeins í andlit varnarmanns.
14. mín
Eyjamenn setja mikla pressu á heimamenn hér á upphafsmínútum og Framarar stundum í smá veseni með það. Hafa misst boltann nokkrum sinnum á sínum eigin vallarhelming.
9. mín
Mjög langt langskot frá Sito eftir að han kemst inn á milli sendinga en þessi bolti hefði ekki farið inn þó það hefði verið annað mark hliðiná markinu.
7. mín
Fram fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir fyrirgjöf.

Góð spyrna frá Alberti endar hjá Tryggva út á hinum kantinum en hann sendir boltann út í marskpyrnu.
4. mín
Gunnar Gunnars missir boltann á miðjum velli frekar klaufalega. Boltinn endar hjá Sito sem reynir að dansa sig framhjá Frömurum en skotið hans endar á varnarmanni og út í innkast.
1. mín
Nökkvi ætlar að senda inn í teig en boltinn ratar ekki lengra en í höfuðið á Alex Frey sem liggur svo eftir.

Helgi Mikeal var fljótur að stoppa leikinn til að athuga hvort væri í lagi með hann en sem betur fer steig hann tiltölulega fljótt á lappir.
1. mín
Leikur hafinn
Þá hefst leikurinn og það er ÍBV sem byrjar með boltann.
Fyrir leik
Þá eru byrjunarliðin komin inn.

Framarar gera 3 breytingar frá síðasta leik það eru þeir Aron Þórður Albertsson, Alex Freyr Elísson og Gunnar Gunnarsson sem koma inn í liðið en þeir Hlynur Atli Magnússon og Óskar Jónsson sem spiluðu síðasta leik eru á bekknum í dag og Danny Guthrie er utan hóps vegna meiðsla.

ÍBV gerir eina breytingu, það er hann Nökkvi Már Nökkvason sem kemur inn í liðið fyrir Guðjón Erni Hrafnkelsson sem sest á bekkinn.
Fyrir leik
Ísak Snær Þorvaldsson leikmaður ÍA spáði í leiki umferðarinnar í Lengjudeildinni en þetta hafði hann að segja um þennan leik.

Fram 2 - 1 ÍBV (Í kvöld - 18:00)
Verður spennandi leikur mikið af færum en Framarar taka þetta á loka mínútunum.
Fyrir leik
Í Innkastinu hér á Fótbolta.net í gær var opinberað úrvalslið umferða 1-11 í Lengjudeildinni. Fram á fimm leikmenn í úrvalsliðinu og þá er Jón Sveinsson þjálfari fyrri umferðarinnar. ÍBV á tvo fulltrúa í liðinu.

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Helgi Mikael Jónasson verður dómari þessa leiks. Aðstoðardómarar eru Guðmundur Valgeirsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Eftirlitsmaður er Frosti Viðar Gunnarsson.

Helgi Mikael dæmdi fyrri viðureign þessara liða en Eyjamenn voru ósáttir við frammistöðu hans í þeim leik.
Fyrir leik
Liðin mættust síðast í fyrri umferð Lengjudeildarinnar þann 14. maí síðast liðinn þar sem Fram tók sigurinn með 0-2 sigri á útivelli.

Sigurður Arnar Magnússon fékk að líta rauða spjaldið strax á 18. mínútu og Albert Hafsteinsson skoraði úr vítinu sem varð úr því broti. Alex Freyr Elísson skoraði seinna mark Framara sem innsiglaði nokkuð öruggan sigur gestana.
Fyrir leik
Eyjamenn í harðri baráttu

ÍBV situr í 2. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 11 leiki en hafa bara 3 stig á milli sín og liði Kórdrengja og Grindavíkur sem sitja í 3. og 4. sæti.

Eyjamenn voru í svaka gír fyrir síðasta leik en þeir höfðu unnið 5 leiki í röð þegar þeir mættu Gróttu á heimavelli síðasta föstudag. Þar töpuðu þeir hinsvegar 0-1 gegn Gróttu liði sem hefur verið í miklu brasi.

Fyrir leik
Taplausir Framarar

Fram situr á toppi deildarinnar með 31 stig eftir 11 leiki og hefur aðeins tapað 2 stigum á þessu sumri en það kom þegar þeir mættu Grindavík í byrjun Júlí en þar skildu liðin jöfn 2-2.

Síðan þá hafa þeir sigrað Kórdrengi 4-3 og síðast Aftureldingu 2-0. Danny Guthrie meiddist í leiknum gegn Aftureldingu og því ekki sérlega líklegt að hann verði í hóp í dag en bæði Aron Þórður Albertsson og Alex Freyr Elísson koma til baka eftir leikbann.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið hjartanlega velkominn í beina textalýsingu á toppslag Framara og ÍBV í Lengjudeild karla.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 hér í Safamýrinni.
Byrjunarlið:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
3. Felix Örn Friðriksson
4. Nökkvi Már Nökkvason ('89)
8. Telmo Castanheira
9. Sito
10. Guðjón Pétur Lýðsson ('75)
16. Tómas Bent Magnússon
22. Atli Hrafn Andrason
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson
27. Stefán Ingi Sigurðarson ('70)

Varamenn:
1. Jón Kristinn Elíasson (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon ('75)
5. Jón Ingason
6. Jón Jökull Hjaltason
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('89)
14. Ísak Andri Sigurgeirsson ('70)
18. Seku Conneh
19. Breki Ómarsson

Liðsstjórn:
Helgi Sigurðsson (Þ)
Ian David Jeffs
Björgvin Eyjólfsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Tómas Bent Magnússon ('15)
Atli Hrafn Andrason ('43)

Rauð spjöld: