22.07.2021 - 19:00 Kaplakrikavöllur Sambandsdeild UEFA
Aðstæður:
13°C, smá gola, fallegt gras og rigningarlegt.
Dómari:
Filip Glova (Slóvakía)
Áhorfendur:
605
Maður leiksins:
Carlo Holse
Holse með sendingu inn á teiginn. Paul sýnist mér fyrirgjöf á Islamovic sem fræ of mikinn tíma til athafna sig. Boltinn fer í varnarmann sýnist mér og Islamovic fær hann aftur og skorar með skoti af stuttu færi.
Geggjuð móttaka hjá Matthíasi eftir aukaspyrnuna. Hörður Ingi svo með fyrirgjöf frá vinstri, FH-ingar reyna skot en ná ekki að koma því á markið. Tettey þrumar svo í FH-ing og Rosenborg á markspyrnu.
Matti Villa hreinsar enn eina hornspyrnuna í burtu. Rosenborg færir svo boltann frá vinstri til hægri og á hægri kantinum er Tettey. Tettey reynir fyrirgjöf sem fer rétt framhjá fjærstönginni. Gunnar leyfði þessum að fara, las þetta.
Gummi skallar boltann í burtu, Rosenborg heldur boltanum og Isamovic fær boltann við vítateigslínuna. Hann á fast skot sem Gunnar ver og Gunnar handsamar svo boltann.
Hólmar Örn með geggjaðan varnarleik. Eggert hóf sókn FH með geggjuðum bolta upp hægri vænginn. Jónatan gerir vel, finnur Lennon sem sendir á Pétur. Pétur þrumar fyrir og Hólmar rétt kemst fyrir þegar Björn Daníel er að láta vaða.
Boltinn fer á Vuk sem missir hann aðeins frá sér og brýtur svo af sér.
Reitan með fyrirgjöfina og Islamovic sýnist mér hleypur yfir boltann, Wiedseheim-Paul kemst í skotið en á frekar laust skot sem fer af Guðmundi og Gunnar ver svo í markinu. Gunnar heldur boltanum.
HlÃðarendi og Kaplakriki à kvöld à Evrópu à TV og hásumar á Ãslandi - teppi vs gras - er einhver à vafa hvaða undirlag hentar best fyrir fótbolta?
Frábært spil hjá FH. Hörður iIngi með flottan sprett, Vuk fær boltann inn á teignum, gerir mjög vel, leggur boltann á Jónatan sem á skot af stuttu færi sem Hansen ver (mögulega fór boltinn í stöngina)!
Misskilningur milli Bjössa og Vuk rétt fyrir utan vítateig Rosenborg. Þarna var smá séns en Bjössi féll við og FH byrjar nú nýja sókn frá öftustu línu.
Byrjunarlið FH hefur verið opinberað á Twitter. Guðmann Þórisson kemur inn í liðið frá sigurleiknum gegn Fylki á sunnudag. Ólafur Guðmundsson er á bekknum.
- Det blir en nok en hard fysisk kamp og jeg gleder meg til å bryte med Matti, sier Holmar Eyjolfsson før møtet med Hafnarfjördur på Island.
RBK-spillerne har akkurat fullført en treningsøkt på en flott gressbane på Kaplakrikivöllur. pic.twitter.com/fXeJ8Paegx
Landsliðsmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson er í leikmannahópi Rosenborgar. Matthías Vilhjálmsson, fyrrum liðsfélagi Hólmars hjá Rosenborg og nú fyrirliði FH, var spurður út í Hólmar í viðtali á þriðjudag.
,,Hann (Hólmar Örn) er einn af mínum bestu vinum. Það verður mjög skemmtilegt að fá vonandi að spila við hann," segir Matthías en hann þekkir aðra í liði Rosenborg líka vel.
,,Svo spilaði ég með nokkuð mörgum þarna í viðbót. Svo hafa þeir verið að fá leikmenn heim sem voru að spila á meginlandinu í mörg, mörg ár. (Alexander) Tettey, sem var í Norwich í langan tíma. Svo eru reyndar meiðsli hjá varafyrirliðanum sem var að spila í Herthu Berlín. Það var einn sem var að spila í Hull, AZ Alkmaar og allskonar þannig. Þeir eru með alvöru leikmenn."
Hefur Matthías einhvern tímann spilað á móti Hólmari áður?
,,Ég var í Vålerenga í fyrra og Hólmar var kominn í Rosenborg. Ég spilaði reyndar ekki þann leik. Ég var í Start þegar hann var í Rosenborg. Ég hlýt að hafa mætt honum einhvern tímann en ég man svo sem ekkert eftir því. Í áramótaboltanum spila ég alltaf við hann. Það eru mikilvægustu viðureignirnar. Það er alltaf heima þegar menn eru í jólafríi."
Góða kvöldið lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik FH og Rosenborg í Sambandsdeildinni. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í 2. umferð forkeppninnar.
Leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli í Hafanarfirði og flautar Filip Glova, dómari leiksins, til leiks klukkan 19:00.