Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
Lengjudeild karla
HK
LL 3
1
Völsungur
Besta-deild karla
ÍBV
LL 0
0
Víkingur R.
Besta-deild karla
ÍA
LL 0
1
Fram
Besta-deild karla
Vestri
LL 0
2
Valur
Þór
0
2
Víkingur Ó.
0-1 Bjartur Bjarmi Barkarson '29
0-2 Kareem Isiaka '64
14.08.2021  -  16:00
SaltPay-völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Harley Willard
Byrjunarlið:
1. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Elmar Þór Jónsson ('72)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('72)
6. Ólafur Aron Pétursson
7. Orri Sigurjónsson
9. Jóhann Helgi Hannesson (f)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson
15. Petar Planic ('87)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('72)
23. Ásgeir Marinó Baldvinsson ('87)
30. Bjarki Þór Viðarsson
- Meðalaldur 8 ár

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
7. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('72)
10. Aron Ingi Magnússon ('87)
15. Kristófer Kristjánsson ('87)
18. Vignir Snær Stefánsson ('72)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Orri Freyr Hjaltalín (Þ)
Jón Stefán Jónsson (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Perry John James Mclachlan
Aðalgeir Axelsson
Liban Abdulahi

Gul spjöld:
Hermann Helgi Rúnarsson ('40)
Petar Planic ('55)
Jóhann Helgi Hannesson ('58)
Orri Sigurjónsson ('66)
Sigurður Marinó Kristjánsson ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið! Fyrsti sigur Víkings Ólafsvíkur í deildinni staðreynd! Taplausir gegn Þór á leiktíðinni!
90. mín Gult spjald: Sigurður Marinó Kristjánsson (Þór )
Hann fékk aukaspyrnu en ógnaði Ólsaranum á eftir og fékk að líta gulaspjaldið.
90. mín
Eru Ólsarar að næla sér í sinn fyrsta sigur?
89. mín
Þór er búið að vera með boltann síðustu mínútur en það gengur ekkert að skapa færi.
87. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þór )
87. mín
Inn:Kristófer Kristjánsson (Þór ) Út:Petar Planic (Þór )
83. mín
Stórsókn hjá Þór endar með því að Liban fær boltann rétt fyrir utan vítateig og neglir boltanum hátt yfir. Illa farið með gott tækifæri.
78. mín
sending fyrir, Bjarni Guðjón með skallann yfir af stuttu færi.
76. mín
beint í fangið á Daða.
75. mín
Víkingur fær horn.
72. mín
Inn:Liban Abdulahi (Þór ) Út:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór )
þreföld skipting hjá Þór!
72. mín
Inn:Vignir Snær Stefánsson (Þór ) Út:Elmar Þór Jónsson (Þór )
þreföld skipting hjá Þór!
72. mín
Inn:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór ) Út:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
þreföld skipting hjá Þór!
66. mín Gult spjald: Orri Sigurjónsson (Þór )
65. mín
Inn:Brynjar Vilhjálmsson (Víkingur Ó.) Út:Simon Dominguez Colina (Víkingur Ó.)
65. mín
Inn:James Dale (Víkingur Ó.) Út:Juan Jose Duco (Víkingur Ó.)
64. mín MARK!
Kareem Isiaka (Víkingur Ó.)
Stoðsending: Harley Willard
MAAAAARK!

Isiaka skyndilega kominn einn í gegn. Hann hefði geta látið sig detta en hann ákveður að bruna í átt að Daða og leggur boltann framhjá honum. Gestirnir komnir með tveggja marka forystu!
58. mín Gult spjald: Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
Það eru komin smá læti í þetta!
57. mín Gult spjald: Juan Jose Duco (Víkingur Ó.)
55. mín Gult spjald: Petar Planic (Þór )
sýndist Jóhann Ingi gefa Petar gult spjald. Þór fá hinsvegar aukaspyrnu á miðjum vellinum en fyrirgjöfin endar í höndunum á Marvin.
50. mín
Sigurður Marinó með slakt skot vel framhjá markinu.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Engar breytingar á liðinum í leikhléinu.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur. Gestirnir með verðskuldaða forystu, eru að skapa sér góð færi.
45. mín
Ásgeir Marinó var að komast í góða stöðu en missir boltann of langt frá sér. Þór fær horn en Diau skallar boltann frá.
43. mín
Fyrirgjöfin frá Elmari nær ekki yfir fremsta varnarmann.
42. mín
Þór fær hornspyrnu.
40. mín Gult spjald: Hermann Helgi Rúnarsson (Þór )
38. mín
Víkingur fá aukaspyrnu fyrir aftan miðju, Jóhann Ingi dómari stöðvar leikinn til að ræða við nafna sinn Jóhann Helga, hann hefur látið vel í sér heyra síðustu mínútur.
35. mín
Daði heppinn þarna! Fyrrigjöf úr aukaspyrnu. Hann ætlaði bara að leifa boltanum að fara framhjá. Diau var hinsvegar mættur á fjær en hann náði ekki að stýra boltanum í átt að markinu.
34. mín
Þórsarar mikið að reyna langar sendingar upp kanntana. Boltinn endar yfirleitt afturfyrir endalínu.
29. mín MARK!
Bjartur Bjarmi Barkarson (Víkingur Ó.)
Stoðsending: Harley Willard
MAARK!

Gestirnir eru komnir yfir! Góð sending innfyrir frá Willard á Bjart sem leggur boltann framhjá Daða og í markið. 0-1!
25. mín
Berti Brandon Diau nær skallanum á markið en Daði snöggur niður og nær að verja boltann út. Þór ná á endanum að koma boltanum frá.
24. mín
Víkingur fær aukaspyrnu út á hægri kannti.
23. mín
Fannar Daði með laust skot beint á Marvin en hann grípur boltann í annarri tilraun, leit ekki út fyrir að vera erfitt skot.
20. mín
Jóhann Helgi fær boltann inn í teignum, hann leggur boltann út á Ólaf Aron sem á skot framhjá.
14. mín
Flott sókn hjá Víkingum. Sending fyrir frá hægri, aðeins of há fyrir Kareem Isiaka sem þarf að teygja sig í boltann og skallar hann framhjá.
8. mín
Petar lá eftir samstuð við Simon Colina sýndist mér. Hélt um andlitið á sér. Hann er staðinn upp og heldur áfram.
6. mín
Laus skalli við víteteigs línuna framhjá.
5. mín
Víkingur fær hornspyrnu.
2. mín
Þrátt fyrir að Jóhann Helgi Hannesson hafi orðið fyrir höfuðhöggi í leik liðsisn gegn Vestra um síðustu helgi er hann í byrjunarliðinu í dag og leikur með hjálm.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. Gestirnir hefja leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár

Þór gerir tvær breytingar á liði sínu frá 2-0 tapi gegn Aftureldingu í síðasta leiknum sínum í deildinni. Petar Planic og Jóhann Helgi Hannesson koma inn í liðið fyrir Birgi Ómar Hlynsson og Bjarna Guðjón Brynjólfsson.

Víkingur tapaði 3-0 gegn Fram í síðustu umferð en fyrirliðinn Emmanuel Eli Keke fékk að líta rauða spjaldið og er því ekki með í dag. Bjarni Þór Hafstein kemur inn í byrjunarliðið í hans stað. Harley WIllard er á sínum stað í liði Víkings en hann mun leika með Þór á næstu leiktíð.

Fyrir leik
Fyrri viðureignir

Eins og fyrr segir gerðu liðin 2-2 jafntefli í fyrri viðureign liðanna á þessu tímabili. Kareem Isiaka og Marteinn Theodórsson skoruðu mörk Víkings og Orri Sigurjónsson og Jakob Snær Árnason sem er nú genginn til liðs við KA skoruðu mörk Þórs.

Þór vann leik liðanna hér á Akureyri á síðustu leiktíð 1-0. Ólafur Aron Pétursson skoraði markið. Leikurinn í Ólafsvík fór ekki fram útaf covid.

Fyrir leik
Náðu í stig gegn Þór
Víkingur Ó. er á botni deildarinnar með aðeins tvö stig. Annað stigið kom í fyrri leik þessara liða þar sem Víkingum tókst að jafna í 2-2 tveimur mönnum færri.

Víkingur hefur tapað þremur leikjum í röð en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Grindavík þann 9. júlí.

Fyrir leik
Sigla lygnan sjó
Þór er í 8. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 15 leiki. Liðið siglir lygnan sjó og hefur að að litlu sem engu að keppa á þessari leiktíð eftir 4-0 tap gegn Vestra um síðustu helgi í Mjólkurbikarnum.

Liðið freistast þess að komast aftur á sigurbraut í dag gegn botnliðinu en Þór hefur tapað síðustu tveimur leikjunum í deildinni.

Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Þórs og Víkings Ó í Lengjudeild Karla.

Leikurinn fer fram á SaltPay-vellinum heimavelli Þórs og hefst kl 16:00.
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson
6. Anel Crnac
8. Guðfinnur Þór Leósson
10. Bjarni Þór Hafstein
10. Simon Dominguez Colina ('65)
11. Harley Willard
14. Kareem Isiaka
15. Berti Brandon Diau
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Marteinn Theodórsson
33. Juan Jose Duco ('65)
- Meðalaldur 2 ár

Varamenn:
12. Konráð Ragnarsson (m)
6. James Dale ('65)
7. Mikael Hrafn Helgason
17. Brynjar Vilhjálmsson ('65)
21. Jose Javier Amat Domenech
23. Ísak Máni Guðjónsson

Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Guðjón Þórðarson (Þ)
Antonio Maria Ferrao Grave
Hilmar Þór Hauksson

Gul spjöld:
Juan Jose Duco ('57)

Rauð spjöld: