Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
Valur
5
0
Selfoss
Ásdís Karen Halldórsdóttir '11 1-0
Cyera Hintzen '24 2-0
Ída Marín Hermannsdóttir '28 3-0
Fanndís Friðriksdóttir '38 4-0
Cyera Hintzen '45 5-0
10.09.2021  -  19:15
Origo völlurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Logn, smá dimma en flóðljós.
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 432
Maður leiksins: Fanndís Friðriksdóttir
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
6. Mist Edvardsdóttir ('75)
6. Lára Kristín Pedersen ('63)
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
9. Ída Marín Hermannsdóttir ('81)
13. Cyera Hintzen ('46)
16. Mary Alice Vignola
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f) ('75)
22. Dóra María Lárusdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir

Varamenn:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
3. Arna Eiríksdóttir ('75)
10. Elín Metta Jensen
14. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('46)
17. Katla Tryggvadóttir ('63)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir ('75)

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Eiður Benedikt Eiríksson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Jóhann Emil Elíasson
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
María Hjaltalín
Kjartan Sturluson

Gul spjöld:
Mist Edvardsdóttir ('5)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið og Valskonur fagna frábærum sigri og gera sig nú tilbúnar til þess að lyfta Íslandsmeistaratitlinum 2021.

Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
91. mín
Valsmenn eru allir staðnir upp í stúkunni og tilbúnir að fagna Íslandsmeistaratitlinum þegar Aðalbjörn flautar til leiksloka.
91. mín
Við fáum 3 mínútur í uppbótartíma.
90. mín
Inn:Íris Embla Gissurardóttir (Selfoss) Út:Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfoss)
90. mín
Inn:Emilía Torfadóttir (Selfoss) Út:Magdalena Anna Reimus (Selfoss)
90. mín
Inn:Brynja Líf Jónsdóttir (Selfoss) Út:Susanna Joy Friedrichs (Selfoss)
85. mín
Það er búið að bera bikarana út og þeir stara á Valskonur við miðlínu.
84. mín
Valskonur hafa aðeins tekið fótinn af bensíngjöfinni í seinni hálfleik. Eru að sigla þessu nokkuð þægilega í endamarkið.
81. mín
Inn:Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Valur) Út:Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
Fyrstu mínúturnar hennar í sumar.
77. mín
Inn:Anna María Bergþórsdóttir (Selfoss) Út:Kristrún Rut Antonsdóttir (Selfoss)
76. mín
Brenna með tilraun sem Sandra slær út í teig. Brenna ætlar að bæta við marki í safnið í kvöld.
75. mín
Inn:Lillý Rut Hlynsdóttir (Valur) Út:Mist Edvardsdóttir (Valur)
75. mín
Inn:Arna Eiríksdóttir (Valur) Út:Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur)
73. mín
Magdalena með tilraun en beint á Söndru.
69. mín
Kristrún með lausa tilraun eftir hornið sem Sandra á ekki í vandræðum með.
68. mín
Selfoss nær að brjóstast fram og sækja hornspyrnu.
66. mín
Fanndís við það að þræða Kötlu innfyrir en Katla missir af boltanum.
63. mín
Inn:Katla Tryggvadóttir (Valur) Út:Lára Kristín Pedersen (Valur)
62. mín
Valskonur í hörkufæri en Benedicte ver frábærlega frá Fanndísi. Elísa Viðars var með frábæra skiptingu inn á Fanndísi sem var alein á auðum sjó en frábærlega varið.
58. mín
Sólveig komið virkilega vel inn í þetta hjá Val í seinni hálfleik og er hvað sprækust það sem af er í liði Vals í síðari hálfleik.
56. mín
Susanna með tilraun en skotið yfir markið.
55. mín
Inn:Þóra Jónsdóttir (Selfoss) Út:Caity Heap (Selfoss)
52. mín
Selfoss með hornspyrnu en ná ekki að ógna marki Vals.
50. mín
Brenna er í baráttu um gullskóinn og leiðir þá baráttu með 13 mörkum. Næstar á eftir henni eru Agla María í Breiðablik og varamaður Vals hér í kvöld Elín Metta með 11 mörk. Verður fróðlegt að sjá hvort Brenna eða Elín Metta, ef hún kemur inná nái að bæta við mörkum hér í kvöld.
46. mín
Valskonur byrja seinni hálfleikinn.
46. mín
Inn:Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Valur) Út:Cyera Hintzen (Valur)
45. mín
Hálfleikur
+1
Selfyssingar byrjuðu sprækar en voru fljótlega kýldar niður og eftir þriðja mark Vals var eins og öll trú væri farinn úr Selfoss.
Valskonur leiða sanngjarnt með fimm mörkum í hálfleik.
45. mín MARK!
Cyera Hintzen (Valur)
Stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir
+1

Þetta virkaði alltof auðvelt en Ásdís Karen var spiluð í gegn og átti alltof auðvelt með að senda fyrir þar sem Cyera var mætt og kláraði vel.
44. mín
Mary Alice með tilraun en skotið í hliðarnetið.
38. mín MARK!
Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir
MAAARK!!
Fanndís er komin á blað! Er þrædd innfyrir og lyftir boltanum snyrtilega yfir Benedicte.
37. mín
Valskonur við það að þræða Ásdísi Karen í gegn en flaggið fór á loft.
36. mín
Magdalena þarfnast aðhlýningar og leikurinn stöðvaðis í örskamma en er farinn af stað aftur.
28. mín MARK!
Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
MAARK!
Valskonur skora þriðja markið í kvöld! Eftir algjöra hornspyrnuveislu þar sem við fengum einhver 3 horn í röð og boltinn skoppaði eins og pinball kúla í teignum var það Ída Marín sem náði að koma boltanum yfir línuna.
28. mín
Selfoss bjarga á línu!!
Mary Alice fær boltan fyrir utan teig eftir horn og á tilraun sem er bjargað á línu! Sýndist það vera Brenna sem var þar að verki.
24. mín MARK!
Cyera Hintzen (Valur)
Stoðsending: Fanndís Friðriksdóttir
MAAARK!
Valskonur tvöfalda forystuna! Keyra upp eftir tilraun Selfossar og refsa grimmilega. Cyera með skot sem fer stöngin inn eftir að Fanndís laumaði á hana boltanum.
23. mín
Selfoss í hörkufæri en Brenna er við það að sleppa í gegn og á skot sem er heldur laust og Sandra ekki í vandræðum með það.
19. mín
Brenna gerir frábærtlega vel og keyrir upp með boltann án þess að Valskonur ná að klukka hana og kemur boltanum í fyrirgjafarstöðu fyrir Susönnu Joy en fyrirgjöfin er mjög slök.
18. mín
Valskonur sprengja upp og Elísa Víðars fær opinn væng en Selyssingar bjarga.
16. mín
Selfoss á fyrsta horn leiksins.
14. mín
Aftur ógnar Ásdís Karen upp hægri vænginn en fyrsta snertingin svíkur Cyera og Selfyssingar bjarga.
11. mín MARK!
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Stoðsending: Fanndís Friðriksdóttir
MAARK!!
Varla búin að sleppa orðinu og þá kemur fyrirgjöf sem svífur fallega yfir Benedicte í marki Selfoss og endar í netinu.
10. mín
Selfoss er að ógna. Valsstúlkur virka örlítið á hælunum.
8. mín
Magdalena í hörkufæri fyrir Selfoss en fer afar illa af ráðum sínum í kjör aðstæðum.
6. mín
Brenna með flottan snúning og á fyrirgjöf fyrir markið en skallinn frá Caity Heap er ekki góður.
5. mín Gult spjald: Mist Edvardsdóttir (Valur)
4. mín
Valskonur með langan bolta fram ætlaðan Fanndísi en Benedicte er vel á verði í marki Selfoss og sópar það upp.
1. mín
Það eru Selfyssingar sem byrja leikinn. Brenna Lovera á upphafssparkið.
Fyrir leik
Selfyssingar stilla sér upp í heiðursvörð fyrir Valsstelpurnar. Virðingavert frá Selfoss að heiðra Íslandsmeistarana 2021.
Fyrir leik
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er dómari leiksins í kvöld en honum til aðstoðar verða Bergur Daði Ágústsson og Arnþór Helgi Gíslason. Hafþór Bjartur Sveinsson er varadómari og þá er Ólafur Ingi Guðmundsson erftirlitsmaður.


Fyrir leik
Selfoss

Staða: 4.Sæti
Sigrar: 7 (41%)
Jafntefli: 4 (24%)
Töp: 6 (35%)
Markatala: 31:27 (+4)

Markahæstar:
Brenna Lovera - 13 Mörk
Caity Heap - 4 Mörk
Magdalena Anna Reimus - 3 Mörk
Hólmfríður Magnúsdóttir - 3 Mörk
Anna María Friðgeirsdóttir - 2 Mörk


Fyrir leik
Valur

Staða: 1. Sæti
Sigrar: 13 (76%)
Jafntefli: 3 (18%)
Töp: 1 (6%)
Markatala: 47:17 (+30)

Markahæstar:
Elín Metta Jensen - 11 Mörk
Mist Edvardsdóttir - 5 Mörk
Ída Marín Hermannsdóttir - 4 Mörk
Ásdís Karen Halldórsdóttir - 4 Mörk
Fanndís Friðriksdóttir - 3 Mörk


Fyrir leik
Valskonur eru eins og áður sagði orðnar Íslandsmeistarar tímabilið 2021 en staðan í deildinni fyrir lokaumferðina lítur svona út.

1. Valur 42 stig (+30)
2. Breiðablik 33 stig (+27)
3. Þróttur R 29 stig (+7)
4. Selfoss 25 stig (+4)
5. Stjarnan 24 stig (-5)
6. Þór/KA 21 stig (-5)
7. ÍBV 19 stig (-12)
8. Keflavík 17 stig (-10)
9. Tindastóll 14 stig (-16)
10. Fylkir 13 stig (-20)
Fyrir leik
Verið hjartanlega velkominn í þessa beinu textalýsingu frá leik Vals og Selfossar í lokaumferð Pepsi Max deildar kvenna.

Það er góður dagur í dag fyrir Valskonur en sá stóri fer á loft í leikslok og við fáum uppfærða mynd af myndinni hér fyrir neðan.


Byrjunarlið:
1. Benedicte Iversen Haland (m)
Anna María Friðgeirsdóttir
5. Susanna Joy Friedrichs ('90)
9. Eva Núra Abrahamsdóttir ('90)
15. Unnur Dóra Bergsdóttir (f)
18. Magdalena Anna Reimus ('90)
22. Brenna Lovera
23. Kristrún Rut Antonsdóttir ('77)
23. Emma Kay Checker
24. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
27. Caity Heap ('55)

Varamenn:
2. Brynja Líf Jónsdóttir ('90)
3. Emilía Torfadóttir ('90)
8. Katrín Ágústsdóttir
11. Anna María Bergþórsdóttir ('77)
17. Íris Embla Gissurardóttir ('90)
21. Þóra Jónsdóttir ('55)

Liðsstjórn:
Alfreð Elías Jóhannsson (Þ)
Erna Guðjónsdóttir
Elías Örn Einarsson
Hafdís Jóna Guðmundsdóttir
Óttar Guðlaugsson
Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: