Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Afturelding
1
3
Grindavík
Kári Steinn Hlífarsson '4 1-0
1-1 Viktor Guðberg Hauksson '35
1-2 Viktor Guðberg Hauksson '40
1-3 Josip Zeba '83
Tanis Marcellán '86
11.09.2021  -  14:00
Fagverksvöllurinn Varmá
Lengjudeild karla
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Viktor Guðberg Hauksson
Byrjunarlið:
Tanis Marcellán
10. Kári Steinn Hlífarsson
14. Jökull Jörvar Þórhallsson ('67)
17. Valgeir Árni Svansson
21. Elmar Kári Enesson Cogic ('85)
23. Pedro Vazquez ('67)
26. Anton Logi Lúðvíksson
32. Kristófer Óskar Óskarsson ('87)
33. Alberto Serran Polo
34. Oskar Wasilewski
34. Birgir Baldvinsson

Varamenn:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m) ('87)
4. Sigurður Kristján Friðriksson
11. Gísli Martin Sigurðsson ('67)
16. Aron Daði Ásbjörnsson ('67)
19. Sævar Atli Hugason
26. Hrafn Guðmundsson ('85)
40. Ýmir Halldórsson

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Aðalsteinn Richter
Sævar Örn Ingólfsson
Halldór Geir Heiðarsson
Daníel Darri Gunnarsson
Diljá Guðmundardóttir

Gul spjöld:
Birgir Baldvinsson ('44)
Alberto Serran Polo ('77)
Tanis Marcellán ('83)
Kristófer Óskar Óskarsson ('86)

Rauð spjöld:
Tanis Marcellán ('86)
Leik lokið!
1-3 er niðurstaðan!

viðtöl og skýrsla á leiðinni!
90. mín
Sigurður Bjartur í fínu færi en enn og aftur ver Arnar Daði. Frábær innkoma hjá þessum efnilega markmanni!
90. mín
Sigurður Bjartur með ágætis skot en það er rétt framhjá!
90. mín
Aftur ver Arnar vel eftir skot á markið frá Sigurði Bjarti.
89. mín
Grindavík brunar upp í skyndisókn en Arnar Daði með góða vörslu!

hornspyrna.
88. mín
Hrafn með gott spil við Kára og á endanum fellur hann í teignum eftir samstuð við Aron. Mosfellingar vilja víti en dæmt brot á Hrafn!
87. mín
Inn:Arnar Daði Jóhannesson (Afturelding) Út:Kristófer Óskar Óskarsson (Afturelding)
Ungur og efnilegur markmaður fæddur árið 2005!
86. mín Gult spjald: Kristófer Óskar Óskarsson (Afturelding)
86. mín Rautt spjald: Tanis Marcellán (Afturelding)
Tekur vont úthlaup og brýtur svo af sér. Fær réttilega seinna gula hér!
85. mín
Inn:Hrafn Guðmundsson (Afturelding) Út:Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Hrafn er fæddur árið 2006! Efnilegur leikmaður sem er í u15 ára landsliði Íslands.
83. mín MARK!
Josip Zeba (Grindavík)
ZEBA AÐ KLÁRA ÞETTA!!

Fín fyrirgjöf eftir hornspyrnuna og þar er Zeba mættur og klárar vel!
83. mín Gult spjald: Tanis Marcellán (Afturelding)
Fær hér gult spjald fyrir að mótmæla hornspyrnu sem Grindavík fékk. Sýndist þett nefnilega ekki vera hornspyrna.
82. mín
Gísli nælir í hornspyrnu fyrir heimamenn!
77. mín Gult spjald: Alberto Serran Polo (Afturelding)
Stoppar hættulega sókn.

Tiago tekur skot en Tanis ver þetta auðveldlega.
75. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Grindavík) Út:Dion Acoff (Grindavík)
72. mín
Kristófer með skot í stöngina!!

Hröð skyndisókn og Kristófer er einn gegn Sindra B, fer á vinstri og á gott skot sem endar í fjærstönginni.

Stuttu seinna kemst Elmar í fína stöðu, tekur skæri og á skot sem Aron ver vel. Aðeins að lifna yfir þessu!
70. mín Gult spjald: Aron Jóhannsson (Grindavík)
Brot á miðjum velli. Heimamenn fá aukaspyrnu.

Afturelding tekur aukaspyrnuna hratt og boltinn berst fyrir Kristófer Óskar eftir snarpt spil. Kristófer á skot á markið en Aron heldur boltanum.
68. mín
Enn ein hornspyrnan sem Grndavík fær.
67. mín
Inn:Aron Daði Ásbjörnsson (Afturelding) Út:Jökull Jörvar Þórhallsson (Afturelding)
67. mín
Inn:Gísli Martin Sigurðsson (Afturelding) Út:Pedro Vazquez (Afturelding)
64. mín
Grindavík fær hornspyrnu.

og svo aðra hornspyrnu.
63. mín
JÓSEF Í HÖRKUFÆRI EN TEKUR SENDINGUNA FREKAR!

Fær boltann á fjærstöng og í stað þess að skjóta ákveður hann að leggja boltann út en þar er enginn. Illa farið með góða stöðu.
61. mín
Grindavík í góðri stöðu og ná fyrirgjöfinni en brotið á Tanis sem liggur eftir.
59. mín
Grindavík fær hornspyrnu.
57. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á vallarhelming gestanna. Brotið á Alberto.

Vantar smá kraft í þetta þessa stundina hjá báðum liðum.
52. mín
Pedro með flotta fyrirgjöf á Kristófer sem nær að snúa með boltann en skotið í Zeba!
49. mín
Kári með skot fyri utan teig en Aron Dagur heldur þessum bolta!
48. mín
Zeba nær skalla eftir hornið en boltinn yfir markið!
47. mín
Viktor Guðbergs í þröngu færi eftir hornspyrnuna en Tanis ver skallann!
46. mín
Aron Jó í fínu færi en skotið í varnarmann!
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
1-2 er staðan! Kaflaskiptur hálfleikur að baki þar sem heimamenn byrjuðu betur en gestirnir komu sterkir til baka!

Tökum okkur smá pásu og komum svo aftur.
45. mín
Grindavík brunar upp eftir hornið og eru í flottri stöðu en fyrirgjöfin í varnarmann og aftur fyrir. hornspyrna.
45. mín
Afturelding fær hornspyrnu.
45. mín Gult spjald: Freyr Jónsson (Grindavík)
Peysutog.
45. mín
Kárið með fast skot en það er beint á Aron í marki Grindavíkur!
44. mín Gult spjald: Birgir Baldvinsson (Afturelding)
Ljót tækling og verðskuldað spjald.
40. mín MARK!
Viktor Guðberg Hauksson (Grindavík)
VIKTOR HÉR AFTUR Á FERÐINNI

Langur bolti fram og Viktor fær hann nálægt endalínu. Hann keyrir í átt að marki og klárar vel úr þröngri stöðu. Góður kafli hjá Grindavík!!
35. mín MARK!
Viktor Guðberg Hauksson (Grindavík)
GRINDAVÍK JAFNAR!!

Dion Acoff reynir að finna boltann í gegn en sendingin í varnarmann og dettur fyrir Viktor sem bombar boltann inn! 1-1.
32. mín
Jósef Kristinn í góðu færi en búið að flagga!
29. mín
BOLTINN Í SLÁNA!!

Fyrigjöf úr aukaspyrnunni og eftir smá klafs dettur boltinn fyrir Viktor Guðberg sem á skot í slána! Þarna var hætta!
29. mín
Grindavík fær aukaspyrnu úti hægra meginn. Jökull með brot.
27. mín
Dion Acoff er enn hrikalega fljótur! Fer framhjá tveimur varnarmönnum Aftureldingar en nær ekki að halda boltanum inn á þegar fyrirgjöfin var tekin.
25. mín
Darraðardans í teig gestanna en þeir ná að hreinsa burt og bruna upp í skyndisókn. Alberto lokar vel og boltinn endar í innkasti.
23. mín
Skot/fyrirgjöf frá Acoff og Tanis í smá vandræðum en nær að handsama boltann á endanum.
21. mín
GEGGJUÐ SÓKN!

Frábært spil heimamanna og á endanum á Elmar Cogic skot í stöngina!! Tiki taka í Mosfellsbæ.
19. mín
Tiago með skemmtilega takta og fær að lokum brotið. Valgeir og Pedro aðeins að knúsa hann.
16. mín
BJARGAÐ Á LÍNU!!

Elmar missir boltann og Acoff fær sendingu í gegn. Skotið frá Acoff í Tanis en boltinn á leiðinni inn þegar Oskar kemur og hreinsar á síðustu stundu!
14. mín
Hætta við mark heimamanna en Valgeir nær á endanum að hreinsa!
10. mín
Viktor Guðberg með gott skot sem Tanis ver vel í hornspyrnu.

Sigurður Bjartur fær færi eftir hornið en skotið framhjá!
8. mín
Kristófer Óskar einn gegn Aroni í markinu en er of lengi að þessu. Missir boltann á endanum frá sér.
8. mín
Heimamenn vilja víti eftir að Pedro er ýtt í teignum. Ekkert dæmt og sýndist mér þetta vera rétt ákvörðun.
4. mín MARK!
Kári Steinn Hlífarsson (Afturelding)
Stoðsending: Pedro Vazquez
1-0 ER STAÐAN!!

Kristófer með boltann fyrir markið og Pedro finnur boltann, rennir honum snyrtilega á milli varnarmanna Grindavíkur og Kári klárar færið vel.
2. mín
Valgeir brýtur á Frey Jónssyni. Sleppur með spjald en var alltof seinn þarna.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann. Góða skemmtun!
Fyrir leik
Liðin hafa lokið sinni upphitun og halda til búningsklefa. Styttist í leik! Veðrið í Mosfellsbæ er gott! Skýjað, logn og 11 stigi hiti. Vel vökvað gervigras og Kaleo í græjunum - Allt upp á 10!

Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar. Hrafn Guðmundsson er í hóp hjá Aftureldingu. Strákur fæddur árið 2006 sem var á dögunum valinn í u15 ára landslið Ísland fyrir leiki gegn Finnlandi.

Fyrir leik
Þjálfaramál.

Sigurbjörn Hreiðarsson mun ekki halda áfram með lið Grindavíkur á næsta tímabili. Greint var frá þessu fyrir nokkru síðan. Sigurbjörn var ráðinn í október 2019 og stýrði liðinu í tvö ár. Stefnan var sæti í Pepsi Max deildinni en það markmið hefur ekki náðst og nú skilja leiðir. Spurning hvað tekur við hjá Sigurbirni eftir þetta.

Magnús Már þjálfari Aftureldingar hefur unnið gott starf síðan hann tók við liðinu árið 2019 af Arnari Hallsyni þar sem Magnús var aðstoðarþjálfari fyrir. Ungur og spennandi þjálfari sem vill spila skemmtilegan fótbolta. Magnús rennur út á samning í lok tímabils og engar fréttir hafa borist af stöðu mála.


Fyrir leik
Afturelding og Vestri gerðu 2-2 jafntefli í síðustu umferð á meðan Grindavík tapaði 2-0 fyrir Fram.

Leikur dagsins er þýðingalítill í stóra samhenginu en bæði lið vilja eflaust enda mótið vel og eins ofarlega og mögulegt er.


Fyrir leik
Leikurinn hefst kl 14 á Fagverksvellinum í Mosfellsbæ. Fyrir leik sitja liðin í 7. og 8.sæti deildarinnar með 23 stig. Afturelding á þó leik inni á Grindavík. Fyrri leikurinn liðana í sumar endaði með 3-3 jafntefli í Grindavík.

Fyrir leik
Velkomin á beina textalýsingu frá leik Aftureldingar og Grindavíkur í 21.umferð Lengjudeild karla.
Byrjunarlið:
Jósef Kristinn Jósefsson
1. Aron Dagur Birnuson
6. Viktor Guðberg Hauksson
7. Sindri Björnsson
8. Tiago Fernandes
9. Josip Zeba
10. Dion Acoff ('75)
15. Freyr Jónsson
23. Aron Jóhannsson (f)
26. Sigurjón Rúnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson

Varamenn:
2. Gabriel Dan Robinson
5. Nemanja Latinovic
11. Símon Logi Thasaphong ('75)
27. Luka Sapina

Liðsstjórn:
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (Þ)
Benóný Þórhallsson
Marinó Axel Helgason
Maciej Majewski
Haukur Guðberg Einarsson
Vladimir Vuckovic
Oddur Ingi Bjarnason
Óliver Berg Sigurðsson
Ólafur Tryggvi Brynjólfsson

Gul spjöld:
Freyr Jónsson ('45)
Aron Jóhannsson ('70)

Rauð spjöld: