Vestri
3
3
Kórdrengir
0-1 Alex Freyr Hilmarsson '11
0-2 Axel Freyr Harðarson '20
Martin Montipo '30 1-2
Pétur Bjarnason '45 2-2
2-3 Leonard Sigurðsson '74
Nacho Gil '90 3-3
24.09.2021  -  16:15
Olísvöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Alexander Pedersen
Byrjunarlið:
1. Steven Van Dijk (m)
Daniel Osafo-Badu ('65)
5. Chechu Meneses
9. Pétur Bjarnason
10. Nacho Gil
11. Nicolaj Madsen
17. Luke Rae
18. Martin Montipo
22. Elmar Atli Garðarsson
55. Diogo Coelho
77. Sergine Fall

Varamenn:
2. Sindri Snæfells Kristinsson
15. Guðmundur Arnar Svavarsson
19. Casper Gandrup Hansen
21. Viktor Júlíusson ('65)

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Daníel Agnar Ásgeirsson
Jón Hálfdán Pétursson
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
Brenton Muhammad
Atli Þór Jakobsson
Friðrik Rúnar Ásgeirsson
Margeir Ingólfsson

Gul spjöld:
Daniel Osafo-Badu ('8)
Nacho Gil ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Svakalegum leik lokið! Alvöru endir á Lengjudeildartímabilinu.
90. mín
Dauðafæri! Alexander fer út og missir af boltanum og Martin Montipo hittir ekki boltann og hann fer aftur til Alexanders. Jón Þór afar reiður með sína menn þarna að klára þetta ekki!
90. mín MARK!
Nacho Gil (Vestri)
Stoðsending: Nicolaj Madsen
Loks ná Vestramenn að finna leið framhjá Alexander í seinni hálfleik! Nacho mætir á fjær eftir að Nicolaj framlengir boltann eftir hornspyrnu.
90. mín
Pétur í dauðafæri en skalli hans varinn. Reyndar búið að flauta, dæmt á bakhrindingu.
90. mín Gult spjald: Nacho Gil (Vestri)
Stimpingar, óþarfa tafir og óþarfa spjöld fannst mér hjá dómaranum.
90. mín Gult spjald: Alex Freyr Hilmarsson (Kórdrengir)
88. mín
Inn:Magnús Andri Ólafsson (Kórdrengir) Út:Daníel Gylfason (Kórdrengir)
87. mín
Luke með skot nokkuð hátt yfir.
86. mín
Sending fyrir en aðeins of há fyrir Pétur. Vestramenn að ógna hér undir lokin.
84. mín
Viktor gerir afar vel og kemst á sinn vinstri fót. Skot hans fer rétt framhjá.
83. mín
Fínn sprettur hjá Luke upp að endamörkum en sending hans fyrir er skölluð frá.
78. mín
Alex Freyr með skot rétt fyrir utan teig, rétt framhjá.
74. mín MARK!
Leonard Sigurðsson (Kórdrengir)
Stoðsending: Þórir Rafn Þórisson
Sýndist Þórir eiga þarna flotta sendingu í gegn og Leonard fer utan á van Dijk og afgreiðir þetta vel, það hlaut að koma aða marki hér í seinni hálfleik!
73. mín
Annað færi Kórdrengja en Alex með skot rétt yfir! Menn vaða í færum hérna!
72. mín
Ég missti af þessu en mér sýndist van Dijk vera að verja úr góðu færi.
71. mín
Ég hef ekki undan! Daníel Gylfason sleppur einn í gegn en frábær tækling Fall bjargar málum. Vestramenn bruna í sókn og Montipo kemst aftur einn í gegn en nú setur hann hárfínt framhjá.
69. mín Gult spjald: Fatai Gbadamosi (Kórdrengir)
Hans þriðja brot held ég. Dómarinn gefur til kynna að þetta sé uppsafnað.
67. mín
Jeminn! Alexander hefur lokað markinu. Vestri spilar sig í gegn og Martin Montipo kemst einn í gegn en Alexander teygir fótinn í boltann og ver í horn.
65. mín
Hornspyrna Vestra skölluð að marki og Alexander ver mjög vel! Hann er að leika afar vel. Næsta hornspyrna endar hjá Nacho í dauðafæri og hann setur hann yfir.
65. mín
Inn:Viktor Júlíusson (Vestri) Út:Daniel Osafo-Badu (Vestri)
62. mín
Van Dijk er að lenda í bobba í hornspyrnunum. Vill frá brot en boltinn laus í teignum en Alex skýtur vel yfir.
61. mín
Frábært hlaup og sending á hárréttum tíma frá Badu og Nicolaj sleppur einn í gegn. Alexander lokar vel og ver skot hans í nærhorninu.
59. mín
Martin með skot sem Alexander ver vel í horn. Vestri að gera sig afar líklega.
58. mín
Ondo í smá rugli hérna og laus bolti frá honum aftur á markmann veldur usla. Pétur á undan í boltann en þarf að teygja sig í hann.
57. mín
Aftur eru Vestri að spila vel upp völlinn. Nicolaj með hættulega sendingu sem Arnleifur rétt nær að setja framhjá í horn. Hornið veldur hættu sem Kórdrengir sleppa með.
55. mín
Flott uppspil hjá heimamönnum sem endar með skoti Luke Rae við vítateigshornið. Það siglir yfir.
52. mín
Leonard sleppur í gegn en dæmdur rangstæður. Þetta var ansi tæpt!
48. mín
Alex Freyr kemst einn gegn van Dijk en þetta er varið. Vestramenn fengu hornspyrnu en Alex vann boltann og fékk að hlaupa óáreittur nánast upp allan völlinn. Hann var sennilega orðinn þreyttur þegar kom að því að klárra færið.
47. mín
Pétur í þröngu færi en vinstrifótarskot hans fer í hliðarnetið.
46. mín
Rættist ágætlega úr mætingunni, fólk er að fá fínustu skemmtun fyrir peninginn. Reyndar er frítt inn.
46. mín
Leikur hafinn
Vestramenn byrja með knöttinn.
46. mín
Inn:Leonard Sigurðsson (Kórdrengir) Út:Axel Freyr Harðarson (Kórdrengir)
Axel hlýtur að vera meiddur.
45. mín
Hálfleikur
Fínasta skemmtun hér í dag, vítaspyrnan var síðasta verk fyrri hálfleiksins.
45. mín MARK!
Pétur Bjarnason (Vestri)
Hægri fótur, vinstra horn! Öruggt, Alexander í hitt hornið.
45. mín Gult spjald: Alexander Pedersen (Kórdrengir)
45. mín
Víti! Alexander brýtur á Pétri Bjarnasyni! Sending í gegn og Pétur lyftir honum framhjá Alexander sem tekur hann niður. Virtist rakin vítaspyrna.
40. mín
Sendingar Vestra upp í vindinn valda Kórdrengjum vandræðum í vörninni ansi oft. Þannig eru þeir að fá sína möguleika.
38. mín
Aukaspyrna hér 25 metra fyrir utan. Vestramenn framkvæma hana stutt og afar illa og Kórdrengir vinna boltann.
36. mín
Ágætis möguleiki hjá Kórdrengjum. Aukaspyrna utan af kanti berst á fjærstöngina en enginn nær að komast almennilega í botann.
30. mín MARK!
Martin Montipo (Vestri)
Stoðsending: Pétur Bjarnason
Vel spilað hjá heimamönnum og þeir búnir að minnka muninn! Þeir eru að hressast. Flott sending fyrir hjá Nicolaj, Pétur teygir sig í boltann og potar honum fyrir fætur Martin Montipo, sem leggur hann í fjær. Alexander í boltanum.
26. mín
Pétur Bjarnason sleppur í gegn, en var frekar lengi að þessu og Alexander kemur út og ver vel. Þarna fannst mér Pétur eiga að gera betur.
20. mín MARK!
Axel Freyr Harðarson (Kórdrengir)
Axel Freyr kemst í gegn og boltinn af van Dijk og aftur til hans og fer í netið. Kórdrengir 2-0 yfir gegn andlausum heimamönnum!
19. mín
Fall með sendingu fyrir sem er skölluð frá. Youtube útsendingin er komin inn aftur.
17. mín
Kórdrengir með aðra hornspyrnu en nú er hún of löng. Þeir eru betri aðilinn.
13. mín
Útsendingin liggur niðri eins og er. Unnið er að viðgerð.
11. mín MARK!
Alex Freyr Hilmarsson (Kórdrengir)
Kórdrengir komnir yfir beint úr hornspyrnu! Alex Freyr með boltann sem siglir yfir markvörðinn og í fjærhornið. Þarna leit van Dijk afar illa út.
8. mín Gult spjald: Daniel Osafo-Badu (Vestri)
Fór í tæklingu. Tók boltann og taldi að ekki væri um aukaspyrnu að ræða. En dómarinn og Kórdrengir á öðru máli og fyrsta gula komið strax.
7. mín
Nicolaj Madsen í tveimur fínum sénsum. Báðar tilraunir hans í varnarmann stutt frá marki.
5. mín
Þetta byrjar rólega. Þónokkuð um daprar sendingar og jafnræði með liðunum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað. Hvítklæddir Kórdrengir byrja með boltann og eru með goluna í bakið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin. Athyglisvert að Steven van Dijk fær leik í marki Vestra, Brenton Muhammad hefur átt gott tímabil og er þá væntanlega verið að spara hann fyrir bikarleikinn gegn Víkingi. Davíð Þór Ásbjörnsson er á bekknum hjá gestunum og þá er Davíð Smári þjálfari þeirra upp í stúku eftir að hann seildist eftir spjöldum dómara eins og kunnugt er.
Fyrir leik
Hann er napur. Ísköld norðaustanátt en annars bjart og þurrt. Virðist ætla að verða fámennt en góðmennt hér í stúkunni í dag.
Fyrir leik
Óhætt er að segja að spennan sé ekki í algleymingi fyrir þennan leik, en bæði liðin enda í efri hlutanum en geta ekki farið upp.

Vestri þarf 6 marka sigur til að fara upp fyrir gestina, en stig dugar þeim til að færa sig upp fyrir Gróttu í fimmta sæti. Kórdrengir komast ekki hærra, Fjölnir er fjórum stigum á undan.
Fyrir leik
Heil og sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vestra og Kórdrengja. Þetta er lokaleikur Lengjudeildarinnar þetta árið. Fyrri leikurinn endaði 2-0 fyrir Kórdrengi og er aðallega minnisstæður fyrir að vera leikurinn þar sem Albert Brynjar Ingason meiddist illa og lauk leik í sumar.
Byrjunarlið:
1. Alexander Pedersen (m)
4. Fatai Gbadamosi
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Hákon Ingi Einarsson
9. Daníel Gylfason ('88)
10. Þórir Rafn Þórisson
15. Arnleifur Hjörleifsson
16. Alex Freyr Hilmarsson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
18. Axel Freyr Harðarson ('46)
22. Nathan Dale

Varamenn:
2. Endrit Ibishi
3. Goran Jovanovski
8. Davíð Þór Ásbjörnsson
19. Connor Mark Simpson
33. Magnús Andri Ólafsson ('88)

Liðsstjórn:
Hilmar Þór Hilmarsson
Andri Steinn Birgisson
Leonard Sigurðsson
Heiðar Helguson
Jóhann Ólafur Schröder

Gul spjöld:
Alexander Pedersen ('45)
Fatai Gbadamosi ('69)
Alex Freyr Hilmarsson ('90)

Rauð spjöld: