Kópavogsvöllur
laugardagur 25. september 2021  kl. 14:00
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Erlendur Eiríksson
Maður leiksins: Höskuldur Gunnlaugsson
Breiðablik 3 - 0 HK
1-0 Kristinn Steindórsson ('51)
2-0 Davíð Ingvarsson ('85)
3-0 Árni Vilhjálmsson ('89)
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('90)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
10. Kristinn Steindórsson ('90)
10. Árni Vilhjálmsson ('90)
14. Jason Daði Svanþórsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson ('90)
30. Andri Rafn Yeoman ('73)

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
3. Oliver Sigurjónsson ('73)
5. Elfar Freyr Helgason
18. Finnur Orri Margeirsson ('90)
19. Sölvi Snær Guðbjargarson ('90)
24. Davíð Örn Atlason ('90)
29. Arnar Númi Gíslason ('90)

Liðstjórn:
Ólafur Pétursson
Marinó Önundarson
Aron Már Björnsson
Særún Jónsdóttir
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)
Alex Tristan Gunnþórsson

Gul spjöld:
Viktor Karl Einarsson ('29)

Rauð spjöld:
@Stefanmarteinn7 Stefán Marteinn Ólafsson
94. mín Leik lokið!
Ívan Óli Santos með lokaskotið í þessum leik. Búið að flauta af bæði hér og í Keflavík.

HK ER FALLIÐ!


Eyða Breyta
92. mín
Arnþór Ari með hræðilega aukaspyrnu.
Eyða Breyta
91. mín
Fáum +4
Eyða Breyta
90. mín Ívan Óli Santos (HK) Ásgeir Marteinsson (HK)

Eyða Breyta
90. mín Bjarni Páll Linnet Runólfsson (HK) Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)

Eyða Breyta
90. mín Arnar Númi Gíslason (Breiðablik) Davíð Ingvarsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
90. mín Davíð Örn Atlason (Breiðablik) Árni Vilhjálmsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
90. mín Sölvi Snær Guðbjargarson (Breiðablik) Kristinn Steindórsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
90. mín Finnur Orri Margeirsson (Breiðablik) Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik)

Eyða Breyta
89. mín MARK! Árni Vilhjálmsson (Breiðablik), Stoðsending: Jason Daði Svanþórsson
Jason Daða er stungið innfyrir og þeir eru tveir á Arnar Freyr markmann.
Jason Daði leggur boltann á Árna Vil sem skorar auðveldlega.
Eyða Breyta
88. mín
Arnþór Ari reynir skot að marki Blika en það er slakt og beint á Anton Ara.
Eyða Breyta
85. mín MARK! Davíð Ingvarsson (Breiðablik), Stoðsending: Alexander Helgi Sigurðarson
BLIKAR TVÖFALDA!!

Alvöru kúla út á væng þar sem Davíð Ingvars tekur við boltanum og keyrir inn á teig og setur hann þéttingsfast í fjærhornið.
Eyða Breyta
79. mín
Höskuldur í tvöföldu dauðafæri en HK nær að bjarga!
Eyða Breyta
77. mín
Það er alvöru dramatík í Keflavík en Skagamenn voru að komast yfir sem þýðir að eins og staðan er núna þá er HK að falla.
Eyða Breyta
73. mín Oliver Sigurjónsson (Breiðablik) Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)

Eyða Breyta
72. mín
Ásgeir Marteins tekur spyrnuna og skotið yfir markið.
Eyða Breyta
72. mín
HK fær aukaspyrnu á flottum stað.
Eyða Breyta
71. mín Jón Arnar Barðdal (HK) Örvar Eggertsson (HK)

Eyða Breyta
67. mín
Hvorugt liðið er að ná að byggja upp neinar sóknir þessa stundina.
Eyða Breyta
61. mín
Blikar með skemmtilega útfærða hornspyrnu sem skapar allskonar vandræði og Arnar Freyr ver frábærlega frá Viktori Erni en á endum fer boltinn af blika og afturfyrir.
Eyða Breyta
60. mín Gult spjald: Martin Rauschenberg (HK)

Eyða Breyta
57. mín
Leikurinn stopp í örskamma þar sem Stefan Ljubicic og Alexander Helgi sýndist mér lentu í samstuði og Stefan Ljubicic virðist hafa blóðgast og þar að fara útaf og skipta um treyju.
Kemur inn í nýrri númerslausri treyju.

Blikar skora svo mark sem er dæmt af vegna rangstöðu.
Eyða Breyta
53. mín
Höskuldur með marktilraun sem Arnar Freyr ver! Örlítið meira líf í þessu núna en í fyrri hálfleik.
Eyða Breyta
51. mín MARK! Kristinn Steindórsson (Breiðablik), Stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson
MAARK!!

Blikar eru komnir yfir!! Vandræðagangur í vörn HK skilar boltanum óvænt til Höskuldar í teignum sem leggur hann á Kidda Steindórs sem setur hann fagmannlega í hægra hornið.
Eyða Breyta
46. mín
Við erum farin af stað aftur. Atli Arnarson á upphafssparkið í seinni hálfleik.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
+3

Bragðdaufur fyrri hálfleikur að baki. Vonandi fáum við meira líf í þann síðari.
Eyða Breyta
45. mín
Fáum +3 í uppbót.
Eyða Breyta
44. mín
Það er smá hiti í mönnum hérna. Martin Rauschenberg og Árni Vil lenda saman og smá kítingur milli liðana sem fylgir í kjölfarið.
Eyða Breyta
41. mín
HK með hættulega tilraun en yfir markið.
Eyða Breyta
38. mín
Eftir að HK stuðningsmenn fóru að syngja um Víkinga þá hefur verulega dregið úr Blikum.
Eyða Breyta
35. mín
HK aðeins að færa sig ofar á völlinn.
Eyða Breyta
33. mín
HK í hörkufæri en skallinn frá Stefan Ljubicic afleitur!
Eyða Breyta
32. mín
HK að komast í færi en Blikar stöðva sóknaraðgerðir þeirra.
Eyða Breyta
29. mín Gult spjald: Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Stöðvar skyndisókn HK með hendi.
Eyða Breyta
27. mín
Anton Ari að leika sér að eldinum en Arnþór Ari náði ekki að nýta sér það. Vinnur þó hornspyrnu.
Eyða Breyta
26. mín
Höskuldur með fínan sprett og sendir fyrir markið en því miður fyrir Blika var enginn mættur til ráðast á boltann og hann rennur í gegnum pakkann.
Eyða Breyta
20. mín
Blikar reyna að finna opnanir á HK en HK eru þéttir fyrir.
Eyða Breyta
15. mín
Ásgeir Marteins með skottilraun sem truflaði aðeins Anton Ara sem heldur þó boltanum.
Eyða Breyta
13. mín
Höskuldur finnur Árna Vil sem á skot en varnarmenn HK ná að koma sér fyrir.
Eyða Breyta
11. mín
Alexander Helgi með frábæran Zidane snúning og snýr af sér Ásgeir Börk.
Eyða Breyta
11. mín
Jason Daði tekur hornið og leggur hann á Höskuld sem gefur boltann fyrir á Damir sem á skallan yfir markið.
Eyða Breyta
10. mín
Blikar fá fyrsta horn leiksins.
Eyða Breyta
6. mín
Blikar eiga fyrsta færi leiksins en frábær bolti fyrir markið finnur Höskuld sem á skot sem Arnar Freyr ver út í teig og hætta skapast en HK koma boltanum að lokum frá.
Eyða Breyta
3. mín
Birkir Valur með ágætis bolta fyrir markið en Stefan Ljubicic ræðst ekki á hann og Anton Ari grípur þetta auðveldlega.
Eyða Breyta
1. mín
Það eru Blikar sem eiga upphafsspark leiksins.Kiddi Steindórs sendir hann á Andra Rafn Yeoman.
Spila í átt að Sporthúsinu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson er heiðraður fyrir leik. 200 mótleikir fyrir Blika.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Rennum yfir byrjunarliðin hjá liðunum í dag. Breiðablik gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik en inn kemur Andri Rafn Yeoman fyrir Gísla Eyjólfsson.
HK gerir þá þrjár breytingar á sínu liði en Birnir Snær Ingason er í banni eftir umdeilt rautt spjald í síðustu umferð, Ívar Örn Jónsson og Leifur Andri detta þá út líka en inn koma Örvar Eggersson, Martin Rauschenberg og Ásgeir Marteinsson.
Eyða Breyta
Fyrir leik
LOKAUMFERÐIN BEINT Á X977

Hitað verður upp frá klukkan 12 þar sem Elvar Geir og Tómas Þór rýna í leikina. Allir leikirnir verða svo flautaðir á klukkan 14 og við verðum með menn á öllum völlum.

Elvar Geir, Benedikt Bóas og Rafn Markús verða í hljóðverinu og heyra í fréttamönnum á völlunum.

Allt í þráðbeinni en hægt er að hlusta á útsendingu Xins með því að smella HÉR


Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Ágúst Þór Ágústsson, Grassi, Framtíðin, þið ráðið hvað þið kallið hann, er spámaðurinn fyrir þessa umferð.

Breiðablik 3 - 1 HK
Blikar verða lengi í gang en sigla svo nokkuð þægilegum 3-1 sigri heim. Árni Vill setur 2 og Gummi Júl skrúfar upp hitann i restina, potar einu og þakkar traustið.
Eyða Breyta
Fyrir leik
HK.

Staða: 10.sæti
Sigrar: 5(24%)
Jafntefli: 5(24%)
Töp: 11(52%)
Markatala: 21:36 (-15)

Markahæstu menn:

Stefan Alexander Ljubicic - 6 Mörk
Birnir Snær Ingason - 6 Mörk
Arnþór Ari Atlason - 3 Mörk
Jón Arnar Barðdal - 2 Mörk
* Aðrir minna



Eyða Breyta
Fyrir leik
Breiðablik.

Staða: 2.sæti
Sigrar: 14(66%)
Jafntefli: 2(10%)
Töp: 5(24%)
Markatala: 52:21(+31)

Markahæstu menn:

Árni Vilhjálmsson - 10 Mörk
Kristinn Steindórsson - 8 Mörk
Viktor Karl Einarsson - 6 Mörk
Jason Daði Svanþórsson - 6 Mörk
Höskuldur Gunnlaugsson - 6 Mörk
* Aðrir minna.



Eyða Breyta
Fyrir leik
Pepsi Max deild karla lítur svona út fyrir lokaumferðina.

1. Víkingur R 45 stig
2. Breiðablik 44 stig
3. KA 39 stig
4. KR 38 stig
5. Valur 36 stig
6. FH 32 stig
7. Stjarnan 22 stig
8. Leiknir R 22 stig
9. Keflavík 21 stig
10. HK 20 stig
11. ÍA 18 stig
12. Fylkir 16 stig

Ljóst er að Fylkismenn eru fallnir en spennan og baráttan er gríðarleg um hverjir falla með þeim og einnig hverjir verða Íslandsmeistarar og ná mögulegu evrópusæti.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Risastór leikur fyrir bæði félög þar sem allt er í húfi.
Heimamenn í Breiðablik geta enn orðið Íslandsmeistarar með sigri á HK en þá verða Leiknismenn að sækja úrslit gegn Víkingi í Víkinni og þá geta HK enn fallið ef ÍA nær í úrslit gegn Keflavík suður með sjó.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Góðan og margblessaðan daginn og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Kópavogsliðana Breiðablik og HK.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('90)
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
6. Birkir Valur Jónsson (f)
7. Örvar Eggertsson ('71)
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson ('90)
17. Valgeir Valgeirsson
18. Atli Arnarson
28. Martin Rauschenberg
30. Stefan Alexander Ljubicic

Varamenn:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson
4. Leifur Andri Leifsson
11. Ólafur Örn Eyjólfsson
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('90)
17. Jón Arnar Barðdal ('71)
20. Ívan Óli Santos ('90)

Liðstjórn:
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Viktor Bjarki Arnarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson

Gul spjöld:
Martin Rauschenberg ('60)

Rauð spjöld: