Laugardalsvöllur
Undankeppni HM
Aðstæður: Rigning og alvöru haustveður
Dómari: Nikola Dabanovic
Áhorfendur: 1697
Við tekur blaðamannafundur og mun umfjöllun um leikinn koma inn á Fótbolta.net eftir því sem líður á kvöldið.
Mig langar að hlaupa inná og tækla dómarann tveggja fóta, shit hvað hann er lélegur!
— Baldvin Borgars (@Baddi11) October 8, 2021
Gaurinn er 18 ára og að skora sitt fyrsta mark fyrir landsliðið, hleypur beint til baka og ætlar að vinna leikinn. Geggjaður Ãsak!
— Hrannar Björn (@hrannarbjorn) October 8, 2021
Stoðsending: Birkir Már Sævarsson
ÃÂÂÂSAK BERGMANN! skorar sitt fyrsta landsliðsmark, 18 ára gamall! Staðan er 1-1 pic.twitter.com/fPl8lV6oI0
 RÚV ÃÂÂÂþróttir (@ruvithrottir) October 8, 2021
Geggjuð skipting frá Alberti beint á Birki Má sem gerir vel að koma sér inn á teiginn. Finnur þar Ísak dauðafrían í teignum sem bregst ekki bogalistinn og setur boltann í netið af markteigslínunni.
Armenía á horn.
Skal ekki segja um réttmæti þess.
Guðlaugur fer í hafsentinn og Sveinn upp á topp.
Lélegu liðin fá lélegu dómarana. Erum þvà miður aftur komin þangað.
— Henry Birgir (@henrybirgir) October 8, 2021
Ejub for Iceland!
— Viðar Ingi Pétursson (@vidarip) October 8, 2021
Sem varð þó ekki raunin.
Gestirnir hefja leik hér. Við höfum 45 mínútur til að snúa þessum leik.
Ég held að Armenarnir myndu komast upp með að drippla helvÃtis tuðrunni. Standardinn á þessu maaar
— Ãrni Jóhannsson (@arnijo) October 8, 2021
Armenar komnir yfir á Laugardalsvelli. Kamo Hovhannisyan skorar á 35. mÃÂÂÂnútu. pic.twitter.com/QwrTHdqkYp
 RÚV ÃÂÂÂþróttir (@ruvithrottir) October 8, 2021
Þetta var óþarfi og alltof auðvelt.
Armenar fá að valsa með boltann við vítateiginn. Boltinn berst út á hægri vænginn sem kemur með fyrirgjöf á fjær, Birkir Már horfir bara á boltann og missir algörlega af Kamo sem setur boltann yfir línuna úr nokkuð þröngu færi þó.
Ísland átti þó klárlega að fá hornspyrnu þegar Armenar hófu sókn sína.
Beint á íslenskan haus og afturfyrir, annað horn.
Jákvæð byrjun.
Stefnir àmjög neyðarlegt vÃÂkingaklapp eftir nokkrar mÃÂn.
— Henry Birgir (@henrybirgir) October 8, 2021
Birkir Bjarna skallar frá en Armennar halda pressunni.
Brynjar dæmdur brotlegur eftir hornið.
Um 2 þúsund á landsleik Ãslands og ArmenÃu. Af sem áður var. En Ãfram Ãsland! #fotboltinet pic.twitter.com/ZmFGlJYDnD
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) October 8, 2021
Þetta er farið af stað. Ísland hefur leik og sækir að Laugardalshöllinni. Ekkert annað eftir en að segja.
Áfram Ísland!
Það er rétt um korter í að Nikola Dabanovic flauti hér til leiks í Laugardal. Það verður að viðurkennast að maður hefur verið á vellinum í betri stemmingu svona fyrir leik en það er þó handfylli af fólki mætt í stúkuna.
Það er þó langt í frá hætta á því að stúkan fyllist en fyrr í dag höfðu um 2000 miðar verið seldir.
Klárum formsatriðin, þjóðsöngva og annað tilheyrandi og hefjum svo leik.
Andri Lucas Guðjohnsen, sem er á mála hjá stórveldinu Real Madrid, hefur verið tæpur vegna meiðsla í aðdraganda leiksins og hann er ekki á skýrslu. Bróðir hans, Sveinn Aron, tekur treyjunúmerið sem Andri var með í síðasta verkefni, númer 22.
Hinn 19 ára gamli Andri kom mjög sterkur inn í síðasta landsliðsverkefni - sem var hans fyrsta með A-landsliðinu - og skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir Ísland gegn Norður-Makedóníu.
Miðjumaðurinn Andri Fannar Baldursson var einnig tæpur fyrir leikinn og hann er ekki með í kvöld; hann er utan hóps.
Henrikh Mkhitaryan er fyrirliði Armena og hann er stærsta stjarnan á vellinum. Mkhitaryan er leikmaður Roma á Ítalíu og hefur áður leikið með Arsenal, Manchester United, Dortmund og Shakhtar.
Hinn 21 árs gamli Elías Rafn Ólafsson byrjar í kvöld sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætir Armeníu í undankeppni HM á Laugardalsvelli.
Elías Rafn, sem er stór og stæðilegur, hefur slegið í gegn að undanförnu með Midtjylland, sem er besta liðið í Danmörku í augnablikinu.
Hann fær tækifæri í kvöld og verður gaman að sjá hvernig hann kemur inn í liðið.
Þá byrjar Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Lecce, sinn annan landsleik í röð. Þessi uppaldi Haukamaður kom ágætlega inn gegn Þýskalandi og heldur sæti sínu.
Kröftugur sóknarbolti Armena mun gera út um vonir Ãslands à kvöld ef spá @Jon_Gnarr rætist #fotboltinet https://t.co/iIaxJIXn2R
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) October 8, 2021
Elías Rafn Ólafsson hefur átt virkilega góðan mánuð eða svo hjá danska félaginu FC Midtjylland. Það ríkir óvissa um hver verði næsti aðalamarkvörður landsliðsins eftir að Hannes Þór Halldórsson hætti með landsliðinu. Ásamt Elíasi eru þeir Patrik Sigurður Gunnarsson og Rúnar Alex Rúnarsson í hópnum núna.
"Já, ef kallið kemur þá er ég auðvitað klár. Við erum líka með flotta markmenn í Patta og Rúnari, þjálfararnir þurfa að velja á milli," sagði Elías á fréttamannafundi í vikunni.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson var spurður út í fyrri leikinn gegn Armeníu í mars. Sá leikur var annar leikur Arnars og Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfarar A-landsliðsins. Leikurinn endaði 2-0 fyrir Armeníu sem voru mikil vonbrigði.
Hvaða lærdóm er hægt að draga af þeim leik og hvernig verður leikurinn þessi leikur?
"Ég held að lærdómurinn af Armeníuleiknum úti sé stærsti lærdómurinn hingað til í riðlinum. Við töpuðum þeim leik og við sögðum strax eftir leik að þetta var leikur sem við þurftum ekki að tapa," sagði Arnar.
"Þeir taka tvö hraðaupphlaup á okkur og vinna 2-0. Við fengum 2-3 færi en þetta var lokaður leikur. Þó að þeir séu með þjálfara frá Spáni þá eru þeir mjög þéttir, skipulagðir, spila yfirleitt 4-4-2. Þetta verður mjög líklega lokaður leikur. Það verður mikilvægt fyrir okkur að finna rétt augnablik á að sækja og verjast."
"Við þurfum að læra sem fyrst, með okkar unga lið, að það er rosalega stutt á milli í þessum A-landsliðs fótbolta. Sérstaklega í þessum riðli, við sjáum að með tveimur jafnteflum í viðbót hefðum verið nánast í ákjósanlegri stöðu."
"Þetta er eitthvað sem Birkir og þeir sem eru eldri þekkja mjög vel. Það er nánast bannað að gefa andstæðingunum eitthvað því það er svo stutt á milli. Ef þú getur útilokað það þá fáum við alltaf okkar færi. Við höfum fengið færi í öllum leikjum. Þetta ræðst allt á smáatriðum og því fyrr sem við lærum það því fyrr munum við byrja að taka stig," sagði Arnar.
Birkir Bjarnason er fyrirliði Íslands í þessu landsliðsverkefni en hann sat fyrir svörum á fréttamannafundi í gær.
Hvernig leggst það í þig að leiða liðið sem fyrirliði?
Mjög vel, ég er mjög stoltur af því. Ég hef verið það áður en er augljóslega mjög stoltur að fá þetta hlutverk.
Hvernig er að vera með alla þessa nýju menn í kringum þig?
Auðvitað er þetta svolítið skrítið, eftir að hafa spilað með sömu leikmönnum í 10-15 ár. En svona er bara fótboltinn. Það koma nýir leikmenn inn og aðrir fara út. Við verðum að aðlagast því. Þetta eru ungir strákar en ótrúlega efnilegir. Það er okkar verk að reyna hjálpa þeim að læra inn á landsliðsfótboltann, hann er ekki sá sami og félagsliðaboltinn. Því fyrr því betra og við reynum að gera okkar besta.
Íhugaðir þú einhvern tímann, verandi kominn í nýtt félagslið, að halda þig utan hóps í landsliðinu til að einbeita þér að verkefninu hjá nýju félagsliði?
Nei, ég gerði það ekki. Mér hefur alltaf fundist alveg ótrúlega gaman að koma í landsliðsverkefni. Öll umgjörðin, starfsliðið og margir af leikmönnunum eru þeir sömu og þegar ég byrjaði fyrir 11-12 árum síðan. Það er alltaf fínt að geta komist aðeins heim þó að það sé kalt. Mér hefur alltaf fundist gott að koma heim og kúpla mig aðeins út hjá félagsliðinu.
Albert Brynjar Ingason, leikmaður Fylkis, spáir í leikinn:
Ísland 1-1 Armenía: Armenar einungis búnir að tapa einum leik í þessum riðli og hafa komið manni á óvart, hafa þó aðeins verið að koma niður á jörðina og ekki unnið leik í síðustu 5 leikjum. Skellur gegn Þjóðverjum er kannski ekki eitthvað sem kom manni á óvart en væntanlega gríðarlega vonbrigði fyrir þá að ná einungis jafntefli heima gegn Liechtenstein.
Reikna með smá stressi í upphafi leiks hjá okkar mönnum, ungur hópur og þjálfarinn hefur verið að pressuminnka leikina tvo fyrir leikmenn með sínum yfirlýsingum fyrir þessa tvo leiki, okkur vantar leikmenn í ákveðnar stöður á vellinum með reynslu sem gefa af sér þá yfirvegun sem myndi gefa ró fyrir aðra leikmenn.
Tel að Armenar munu finna lyktina af þessu og ríða á vaðið og skora fyrsta mark leiksins, Arsenal legendið Henrich Mkhitaryan mun skora það mark, en við það droppa Armenar og reyna að halda og þá munum við fá smá sjálfstraust á boltann sem skilar sér með marki frá Fylkis fan nr1 Albert Guðmundssyni.
1-1 Lokatölur leiksins, vonandi ræðst þó leikurinn ekki á því hvor þjálfarinn krefst sigurs.
Sjá einnig:
Hvernig fer í kvöld? - Álitsgjafar spá í landsleikinn
Hvernig fer ÃÂsland - ArmenÃÂa àkvöld? #fotboltinet
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) October 8, 2021
Þeir Andri Fannar Baldursson og Andri Lucas Guðjohnsen verða að öllum líkindum hvíldir í leiknum í kvöld en þeir hafa verið að glíma við meiðsli.
1. Þýskaland 15 stig
2. Armenía 11 stig
3. Rúmenía 10 stig
4. Norður-Makedónía 9 stig
5. Ísland 4 stig
6. Liechtenstein 1 stig
Aðrir leikir í riðlinum í kvöld:
18:45 Þýskaland - Rúmenía
18:45 Liechtenstein - N-Makedónía
Dabanovic er 39 ára gamall og dæmir reglulega í Evrópudeildinni auk þess að dæma landsleiki. Landar hans Milovan Djukic og Vladan Todorovic verða aðstoðardómarar.
Hollendingar sjá um VAR dómgæsluna. Kevin Blom er VAR-dómari á leiknum og VAR-aðstoðardómari er Clay Ruperti.