Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
Í BEINNI
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
Valur
13:00 0
0
Breiðablik
Stjarnan
0
2
Valur
0-1 Mist Edvardsdóttir '24
0-2 Arna Sif Ásgrímsdóttir '56
13.05.2022  -  19:15
Samsungvöllurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Arna Sif Ásgrímsdóttir og Mist Edvardsdóttir
Byrjunarlið:
1. Chante Sherese Sandiford (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('57)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Betsy Doon Hassett
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir
30. Katrín Ásbjörnsdóttir ('81)
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir

Varamenn:
20. Aníta Ólafsdóttir (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir
4. Eyrún Embla Hjartardóttir
9. Alexa Kirton ('81)
14. Snædís María Jörundsdóttir
19. Elín Helga Ingadóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('57)
25. Rakel Lóa Brynjarsdóttir

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Andri Freyr Hafsteinsson
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir

Gul spjöld:
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('46)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur vinnur 2-0 í mjög rólegum leik.

Minni á viðtöl og skýrslu sem koma inn í seinna í kvöld.
91. mín
Sædís nær að skalla boltann í horninu en boltinn fer yfir.
91. mín
Hildigunnur tók hornspyrnuna sem Sandra varði í annað horn.
90. mín
Sædís með skot af vítateigslínu sem Sandra ver í horn.
90. mín
Inn:Þórdís Elva Ágústsdóttir (Valur) Út:Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
Fínn leikur hjá Ídu.
85. mín
Lára brýtur á Alexu rétt fyrir utan vítateig og Stjarnan fær aukaspyrnu á hættulegaum stað.

Sædís tekur spyrnuna stutt á Gyðu sem skýtur hátt yfir.
82. mín
Stjarnan á hornspyrnu, Sandra slær boltann frá en rekst á Mist í leiðinni og Mist þarf aðhlynningu.
81. mín
Inn:Alexa Kirton (Stjarnan) Út:Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
Katrín búin að vera á annari löpinni allan seinni hálfleikinn en Alexa kemur inn í sínum fyrsta leik fyrir Stjörnuna.
80. mín
Elín Metta tekur vel á móti háum bolta og kemur sér í skotfæri inni í tei en skotið er slakt.
78. mín
Elín Metta gerir vel og tekur Önnu Maríu í bakaríið og er með fullt af plássi en nær ekki að koma sér í nógu góða skotstöðu áður en Heiða Ragney mætir og kemst fyrir boltann.
71. mín
Inn:Cyera Hintzen (Valur) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Þórdís búin að vera lífleg í dag en Cyera kemur inn á í sínum fyrsta leik fyrir Val í sumar.
70. mín
Fín sókn hjá Stjörnunni, eftir gott spil leggur Betsy boltann út í teig á Gyðu sem ágætt skot sem Sandra ver í horn.
67. mín
Ída Marín á skot rétt fyrir utan vítateg, en nær ekki alveg nóg krafti í skotið og Chante á í litlum vandræðum með það.
65. mín
Sædís með boltan inn fyrir á Katrínu en Sandra er á undann henni í boltann.
62. mín
Valur fær hornspyrnu eftir fyrirgjöf frá Ídu.

Chante slær boltann út í teig til Þórdísar sem á skot sem fer rétt fram hjá.
60. mín
Elísa með reynir skot inni í teig sem Mæalfríður fer fyrir.
60. mín
Inn:Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Valur) Út:Hailey Lanier Berg (Valur)
58. mín
Hildigunnur með fínan bolta út til hægri en Betsy nær ekki til hans.
57. mín
Inn:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
56. mín MARK!
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Valur)
Stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir
Ásdís setur boltann á fjærstöngina, þar er Arna Sif sem skallar boltann í netið.
56. mín
Ásdís setur boltann bara í slánna, Chante setur puttana í boltann og Valur fær annað horn.
55. mín
Ásdís reynir fyrigjöf sem fer í Sædísi og útaf, hornspyrna.
50. mín
Ásdís fær boltann á miðjum velli og hefur fullt af plássi og rekur boltann hátt upp á völlinn og á skot sem er ekki gott og fer langt fram hjá.
49. mín
Ingibjörg með skot utan að velli sem fer yfir en alls ekki galin tilraun.
46. mín Gult spjald: Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
Brýtur á Þórdísi á vallarhelmingi Vals.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er hafinn.
45. mín
Hálfleikur
Valur leiðir í 1-0 í hálfleik eftir frekar tíðindalítinn fyrri hálfleik, það var jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar en eftir að Valur komast yfir hafa þær stjórnað leiknum.
43. mín
Brokelynn vinnur boltann við miðju og ber hann upp allan völlin og á slakt skot sem rúllar til Chante.
42. mín
Hildigunnur með skot utan úr teig sem Sandra á auðvelt með að handsama.
36. mín
Valur vinnur boltann af Stjörnunni á miðjunni Elín Metta fær mikinn tíma og rennir boltanum til Þórdísar sem skýtur á markið en Anna María kemst fyrir og boltinn berst á Ásdísi sem hittir ekki á markið.
34. mín
Elín Metta á skot frá vítateigslínu sem fer yfir.
34. mín
Stjarnan fær hornspyrnu, Sædís tekur spyrnuna sem fer aftur fyrir.
30. mín
Betsy með boltann á vinstri vængnum og reynir að koma sér í fyrirfjafa stöðu en Elísa og Ásdís gera vel í að stoppa hana.
24. mín MARK!
Mist Edvardsdóttir (Valur)
Stoðsending: Ásdís Karen Halldórsdóttir
Valur kemst yfir!
Valur á hornspyrnu, Ásdís tekur spyrnuna Mist rís LANG hæst í teignum og skallar boltann í fallegum sveig í markið alveg upp í samskeytin!
24. mín
Stjarnan á horn, Valsskonur skalla frá og Þórdís vinnur boltann og geysist upp völlinn finnur Elínu Mettu sem hefur nóg pláss á miðjunni en sendingin yfir á Ídu er ekki nógu góð.
22. mín
Hildigunnur með fyrirgjöf sem Sandra slær yfir, Stjarnan á horn.
19. mín
Stjarnan fær á draumastað fyrir Sædísi, hægra megin við teig Vals, spyrnan er góð og eftir smá darraðardans í teignum á Hildigunnur skot sem fer fram hjá.
18. mín
Hildigunnur með takta inn í teig og reynir svo skot sem Arna kemst fyrir.
17. mín
Katrín reynir að renna boltanum í halupið hjá Jasmín en Arna Sif er með allt á hreinu og kemst inn í sendinguna.
15. mín
Anna Rakel með frábæran bolta upp á Elínu sem leggur hann á Þórdísi, Þórdís kemur með góða fyrirgjöf og munar litlu að Ásdís nái að reka hausinn í boltann.
13. mín
Anna Rakel með sendingu upp í horn á Ídu sem nær fyrirgjöf sem rúllar í gegnum allan teiginn og fer út af hinum megin á vellinum.
11. mín
Hildigunnur með fyrigjöf sem Sandra slær út í teiginn, boltinn berst til sóknarmanns Stjörnur sem skýtur yfir, ekki mjög sannfærandi hjá Söndru.
10. mín
Elín Metta fær mikið pláss á miðjunni og ætlar að renna bolatanum inn á ásdísi en Anna María les og vinnur boltann.
9. mín
Uppstilling Stjörnunar

Chante
Sædís- Málfríður - Anna María - Arna Dís
Betsy - Ingibjörg - Heiða - Hildigunnur
Jasmín - Katrín
6. mín
Valskonur sækja stíft núna og varnarmönnum Stjörnur gengur illa að koma boltanum frá.
4. mín
Sýnist Valskonur spila svona í dag.

Sandra
Elísa - Arna - Mist - Anna Rakel
Brookelynn - Lára Kristín
Ásdís - Ída Marín - Þórdís
Elín Metta
3. mín
Hildigunnur á fyrirgjöf sem Valsarar koma aftur fyrir og Stjarnan á hornspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Katrín Ásbjörnsdóttir spyrnir leiknum af stað.
Fyrir leik
Málfríður Erna fær viðurkennignu frá Stjörnunnin fyrir leik en hún leikur sinn 400 meistaraflokks leik í kvöld.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár, Stjarnan gerir eina breytingu á breytingu á byrjunarliði sínu frá tapinu í Kópavogi, Heiða Ragney kemur inn fyrir Ölmu Mathisen.

Valur gerir einnig eina breytingu á sínu byrjunarliði, Elín Metta Jenssen kemur inn fyrir Mariönu Sofíu Speckmaier sem er ekki með í dag.
Fyrir leik
Tveir leikir til viðbótar fara fram í Bestu deild kvenna í kvöld, KR tekur á móti Breiðablik í Vesturbænum og Keflavík mætir Aftureldingu í Keflavík.

Báðir leikirnir eru að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Fyrir leik
Dómarinn
Dómari leiksins er Twana Khalid Ahmmad. Ahmad er frá Írak en kom til Íslands fyrir tæpum fimm árum. Í frétt sem birtist á Fótbolta.net er hægt að lesa um merkilega sögu Ahmad.
Fréttina má skoða hér: Draumur Twana Khalid að dæma í efstu deild á Íslandi



Aðtoðardómarar eru þeir Ragnar Arelíus Sveinsson og Bjarni Víðir Pálmason, eftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson
Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn
Félagsskiptagluggin lokaði á miðnætti á miðvikudaginn og nældu bæði lið sér í erlendan liðsstyrk fyrir gluggalok.

Stjarnan
Bandaríski varnarmaðurinn Alexa Kirton gekk til liðs við Stjörnunar. Alexa er 23. ára og kemur úr Háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hún spilaði fyrir University of New Mexico.


Valur
Cyera Hintzen komin aftur til Vals en hún lék með liðinu seinna hluti síðasta tímabils. Cyera er sæoknarmaður sem spilaði með Perth Glory í Ástralíu.
Cyera skoraði 4 mörk í 10 leikjum fyrir Val á síðasta tímabili.
Þá fóru þær Sólveig Jóhannesdóttir Larsen og Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving á láni frá Val til Aftureldingar.

Cyera varð Íslandsmeistari með Val á síðasta tímabili.
Fyrir leik
Valur
Eftir þrjár umferðir situr valur í 3. sæti deildarinnar með 6 stig eftir tvo sigra og eitt tap.

Í síðustu umferð unnu Valsstúlkur öruggan 3-0 sigur á Keflavík þar sem Elísa Viðarsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Elín Metta Jenssen sáu um markaskorun Vals.


Elísa Viðarsdóttir skoraði fyrsta mark Vals.
Fyrir leik
Stjarnan
Eftir þrjár umferðir situr Stjarnan í 6. sæti deildarinnar með 4 stig en þær hafa unnið ein leik, gert eitt jafntefli og tapað einum leik.

Síðasti leikur Stjörnunar var á móti Breiðablik á Kópavogsvelli þar Stjarnan tapaði 3-0.

Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur og hjartanlega velkominn í beina textalýsingu frá Samsung vellinum í Garðabæ þar sem viðureign Stjörnunar og Vals í Bestu deild kvenna hefst klukkan 19:15.


Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
6. Mist Edvardsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
9. Ída Marín Hermannsdóttir ('90)
10. Elín Metta Jensen
11. Anna Rakel Pétursdóttir
15. Hailey Lanier Berg ('60)
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('71)

Varamenn:
12. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
13. Cyera Hintzen ('71)
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir ('90)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir
24. Mikaela Nótt Pétursdóttir
26. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
María Hjaltalín
Matthías Guðmundsson
Gísli Þór Einarsson
Mark Wesley Johnson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: