Afturelding
1
1
Selfoss
0-1 Ingvi Rafn Óskarsson '73
Ýmir Halldórsson '88 1-1
20.05.2022  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Aðstæður: Skýjað og 12 gráður, frábært fótboltaveður
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 416
Maður leiksins: Gísli Martin Sigurðsson
Byrjunarlið:
1. Esteve Pena Albons (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Sigurður Gísli Bond Snorrason
8. Guðfinnur Þór Leósson
10. Kári Steinn Hlífarsson
11. Gísli Martin Sigurðsson (f)
17. Ásgeir Frank Ásgeirsson ('67)
25. Georg Bjarnason
26. Hrafn Guðmundsson ('74)
33. Andi Hoti

Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
14. Jökull Jörvar Þórhallsson ('67)
21. Elmar Kári Enesson Cogic
23. Pedro Vazquez
32. Sindri Sigurjónsson
34. Enes Þór Enesson Cogic
40. Ýmir Halldórsson ('74)

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Enes Cogic
Sævar Örn Ingólfsson
Amir Mehica
Davíð Örn Aðalsteinsson

Gul spjöld:
Gísli Martin Sigurðsson ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þrælskemmtilegur leikur hér á enda 1-1 jafntefli.
Viðtöl og skýrsla koma eftir skamma stund.
92. mín Gult spjald: Gary Martin (Selfoss)
90. mín
Þremur mínútum bætt við!
90. mín
Gísli Martin fær boltann inn fyrir og tekur skotið í teig selfyssinga en Stéfán ver vel!
88. mín MARK!
Ýmir Halldórsson (Afturelding)
Stoðsending: Jökull Jörvar Þórhallsson
AFTURELDING AÐ JAFNA!!!

Ýmir fær hér boltann í teiginn eftir sendingu frá Jökli, Ýmir gerir sér lítið fyrir og setur boltann stöngina inn.

Frábært mark!
86. mín Gult spjald: Gísli Martin Sigurðsson (Afturelding)
83. mín Gult spjald: Jón Vignir Pétursson (Selfoss)
82. mín
Heimamenn vilja fá hendi hér þar sem þeir skjóta í varnarmann selfyssinga en Arnar dómari dæmir ekki víti heldur horn fyrir Aftureldingu.
80. mín
Leikurinn orðinn mjög líflegur eftir mark selfyssinga!
75. mín
Mark tekið hér af Aftureldingu!!!

Heimamenn fá tvö horn í röð, boltinn fer út fyrir teiginn en kemur aftur inn í teiginn þar sem Ýmir fær boltann og skallar hann inn en er dæmdur rangstæður!

Afturelding fljótir að reyna að ná að jafna leikinn óheppnir þarna!
74. mín
Inn:Ýmir Halldórsson (Afturelding) Út:Hrafn Guðmundsson (Afturelding)
73. mín MARK!
Ingvi Rafn Óskarsson (Selfoss)
MAARK!!!

Ingvi fær boltann beint fyrir framan markið eftir hornið og setur hann auðveldlega inn í netið!

Selfyssingar komnir hér yfir ósanngjarnt, Afturelding búnir að vera mun betri!
72. mín
KLÚÐUR!!!!

Gonzalo Zamorano kemst hér í gegn og sendir á Gary Martin sem er nánast á móti opnu marki og tekur snertingu en Gunnar Bergmann nær að skalla boltann frá meðan hann liggur, ótrúleg björgun!!!
Gary Martin hefði átt að skjóta í fyrsta. Horn fyrir Selfyssinga!
71. mín Gult spjald: Chris Jastrzembski (Selfoss)
67. mín
Inn:Jökull Jörvar Þórhallsson (Afturelding) Út:Ásgeir Frank Ásgeirsson (Afturelding)
63. mín
Ekkert kom úr horninu en Selfyssingar keyra upp völlinn og er það Valdimar Jóhannson sem fékk boltann í góðu færi en framhjá fór skotið.
62. mín
Afturelding fær hér aftur horn.
59. mín
Hornið skallað frá.
59. mín
Horn fyrir heimamenn, hafa fengið 10 horn í leiknum
59. mín
Inn:Aron Einarsson (Selfoss) Út:Hrvoje Tokic (Selfoss)
57. mín
STÖNGIN!

Eftir mikinn darraðadans í teig Selfyssinga nær Andi Hoti skalla í stöngina og Stefán Þór grípur boltann í kjölfarið.
57. mín
Afturelding fær hér horn.
54. mín
Tæpt!!
Hrafn í frábæru skotfæri í vítateig Selfyssinga en sendir á Georg og tekur skot sem Stefán ver þægilega. Hrafn hefði frekar átt að skjóta þarna!
53. mín
Afturelding nær að verjast horninu vel.
53. mín
Horn fyrir gestina
51. mín
VÁÁÁ!!

Geggjaður skalli frá Andi Hoti en Stefán ver frábærlega í marki Selfyssinga.
50. mín
Afturelding fær horn.
49. mín
Afturelding ná að spila hérna vel í teig Selfyssinga en þung snerting veldur því að Stefán Þór markvörður gestanna nær að handsama boltann.
46. mín
Leikur hafinn
Arnar Ingi flautar hér seinni hálfleikin af stað. Gestirnir byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur hér á Malbikstöðinni að Varmá, heimamenn búnir að vera líflegri fyrstu 45 mínúturnar.
45. mín
Leikurinn aðeins að róast hér rétt fyrir hálfleik.
41. mín
Aukaspyrna fyrir Aftureldingu góð fyrirfjöf .Gísli er einn á fjærstöng en skallar boltann yfir markið.
40. mín
Alvöru bolti hjá Jón Vigni en Valdimar nær ekki að koma snertingu á boltann, Valdimar var í góðri stöðu til að koma skalla á markið.
37. mín
Kári Steinn tekur laust skot fyrir utan teig en fer framhjá. Markspyrna fyrir Selfoss.
29. mín
Hér kemur Gísli Martin með góða fyrirgjöf en enginn úr Aftureldingu kominn til að stanga boltann inn.
27. mín
Góður skalli sem fer rétt framhjá, Afturelding búnir að vera hættulegri hingað til.
27. mín
Afturelding fær horn
24. mín
Gísli Martin tekur gott skot í teig Selfyssinga en Stefán Þór ver vel.
23. mín
Ekkert kom úr þessu horni Selfyssinga
22. mín
Valdimar nær skallanum en fer í varnarmann og hann fær boltann aftur og tekur skotið beint í varnarmann Aftureldingar annað horn!
21. mín
Horn fyrir Selfyssinga
20. mín
Gary Martin með lélega aukaspyrnu beint í vegg heimamanna
19. mín
ÞARNA MUNAÐI MJÓU

Heimamenn keyra upp hægri kantinn og fyrirgjöf fyrir en þá kemur varnamaður Selfoss sem ætlar að hreinsa en næstum búinn að skora í sitt eigið net!
17. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Selfoss) Út:Danijel Majkic (Selfoss)
Stutt stopp hér hjá Danijel, fór meiddur af velli
16. mín
Mikill snúningur á horninu og boltinn fór beint útaf.
16. mín
Horn fyrir Aftureldingu
16. mín Gult spjald: Aron Darri Auðunsson (Selfoss)
14. mín
Sigurður Gísli með alvöru skot rétt fyrir utan teig og Stefán Þór er í vandræðum með að halda því en nær því á endanum.
14. mín
Þeir taka hornið einnig stutt en Selfoss vinnur boltann og keyrir í skyndisókn, sem ekkert verður úr.
13. mín
Afturelding fær hér horn.
12. mín
Þeir taka það stutt, Jón Vignir nær skoti en Esteva Albons í marki heimamanna er í engum vandræðum með skotið.
11. mín
Selfyssingar aðeins að lifna við fá horn.
9. mín
Stefán Þór kýlir boltann út.
8. mín
Horn fyrir heimamenn!
4. mín
Andi Hoti nær skallanum úr horninu en boltinn fer rétt framhjá
3. mín
Aron er í fyrirgjafastöðu og kemur boltanum fyrir en selfyssingar verjast vel og boltinn fer í horn.
2. mín
Heimamenn ná að halda boltanum mjög vel hér í byrjun leiks
1. mín
Leikur hafinn
Arnar Ingi flautar til leiks heimamenn byrja hér með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn, örfáar mínútur í leikinn!
Fyrir leik
Liðin komin inn!

Heimamenn gerir eina breytingu Hrafn Guðmundsson kemur inn í staðinn fyrir Pedro Vazquez.

Selfoss liðið helst óbreytt eftir síðasta leik gegn Gróttu.
Fyrir leik
Selfoss

Selfoss eru í mjög góðum málum með 2 sigra í tveimur leikjum. Þeir eru í 4. sæti deildarinnar en með sigri geta þeir tyllt sér á topp deildarinnar.

Markahæsti maður Selfoss er enginn annar en Gary Martin með 3 mörk í 2 leikjum!
Fyrir leik
Afturelding

Afturelding eiga enn eftir að sækja fyrsta sigurinn í Lengjudeildinni í ár. Þeir sitja í níunda sæti deildarinnar með 1 stig.

Sigurður nokkur Bond er eini markaskorari Aftureldingar með eitt mark í deildinni hingað til.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik milli Aftureldingar og Selfoss.

Leikurinn hefst kl 19:15 og verður leikurinn spilaður á Malbikstöðinni að Varmá, heimavelli Aftureldingar.
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
2. Chris Jastrzembski
3. Þormar Elvarsson
5. Jón Vignir Pétursson (f)
6. Danijel Majkic ('17)
7. Aron Darri Auðunsson
8. Ingvi Rafn Óskarsson
9. Hrvoje Tokic ('59)
10. Gary Martin
19. Gonzalo Zamorano
22. Adam Örn Sveinbjörnsson

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
4. Jökull Hermannsson
15. Alexander Clive Vokes
17. Valdimar Jóhannsson ('17)
18. Kristinn Ásgeir Þorbergsson
21. Aron Einarsson ('59)
24. Elfar Ísak Halldórsson

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Stefán Logi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Atli Rafn Guðbjartsson
Guðjón Björgvin Þorvarðarson

Gul spjöld:
Aron Darri Auðunsson ('16)
Chris Jastrzembski ('71)
Jón Vignir Pétursson ('83)
Gary Martin ('92)

Rauð spjöld: