Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
15:00 0
0
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
15:00 0
0
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
15:00 0
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
15:00 0
0
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
15:00 0
0
Þór
Mjólkurbikar karla
Höttur/Huginn
16' 0
0
Fylkir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
13' 1
0
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Árbær
13' 0
1
Fram
Mjólkurbikar karla
Haukar
5' 1
1
Vestri
Leiknir R.
1
2
Breiðablik
0-1 Ísak Snær Þorvaldsson '28
0-2 Ísak Snær Þorvaldsson '49
Róbert Hauksson '55 1-2
29.05.2022  -  19:15
Domusnovavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Maður leiksins: Ísak Snær Þorvaldsson
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
5. Daði Bærings Halldórsson (f) ('72)
8. Árni Elvar Árnason ('72)
9. Róbert Hauksson
11. Brynjar Hlöðversson
15. Birgir Baldvinsson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Emil Berger
23. Dagur Austmann ('90)
80. Mikkel Jakobsen ('77)

Varamenn:
3. Ósvald Jarl Traustason
8. Sindri Björnsson ('72)
9. Mikkel Dahl ('72)
10. Kristófer Konráðsson ('77)
19. Jón Hrafn Barkarson
23. Arnór Ingi Kristinsson ('90)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Valur Gunnarsson
Gísli Friðrik Hauksson
Sólon Breki Leifsson
Hlynur Helgi Arngrímsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Halldór Geir Heiðarsson
Atli Jónasson

Gul spjöld:
Dagur Austmann ('41)
Brynjar Hlöðversson ('59)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið. Skotið það seinasta í leiknum. Blikar landa sigrinum. Erfið fæðing og Leiknismenn geta verið nokkuð svekktir miðað við seinni hálfleikinn.
90. mín
90+6

Uppbótartíminn er liðinn en Leiknismenn fá horn. Kristófer Konráðsson var svooooo nálægt því að jafna en skotið yfir.
90. mín
90+4

Leiknismenn reyna hvað þeir geta að finna jöfnunarmark. Vantar herslumuninn
90. mín
Fimm mínútur í uppbót
90. mín
Inn:Arnór Ingi Kristinsson (Leiknir R.) Út:Dagur Austmann (Leiknir R.)
90. mín
Blikar í álitlegri sókn. Kiddi Steindórs rennir boltanum fyrir en Viktor markvörður er á undan Höskuldi í boltann.
86. mín
Ekkert verður úr horninu og blikar fá markspyrnu. Brynjar Hlöðversson liggur eftir, ekki í fyrsta sinn í leiknum. Virðist vera í lagi
86. mín
Leiknismenn fá hornspyrnu og stuðningsmenn taka við sér
82. mín
Inn:Adam Örn Arnarson (Breiðablik) Út:Jason Daði Svanþórsson (Breiðablik)
Varnarskipting
79. mín
Kristófer ekki lengi að koma sér í færi. Nær skoti eftir fínt spil Leiknismanna en skotið er yfir markið. Leiknismenn líklegri
77. mín
Inn:Kristófer Konráðsson (Leiknir R.) Út:Mikkel Jakobsen (Leiknir R.)
Lánsmaðurinn úr Garðabænum kemur inná
74. mín
Meira líf í Leiknismönnum þessa stundina. Eru hættulegri
72. mín
Inn:Sindri Björnsson (Leiknir R.) Út:Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Tvöföld skipting hjá heimamönnum
72. mín
Inn:Mikkel Dahl (Leiknir R.) Út:Árni Elvar Árnason (Leiknir R.)
71. mín
Dagur með fína skottilraun sem Anton ver út í teig. Enginn lleiknismaður mættur í frákastið
66. mín
Blikar fá horn en Leiknismenn hreinsa frá.
62. mín
Inn:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik) Út:Omar Sowe (Breiðablik)
Eina í stöðunni fyrir Blika. Omar ansi tæpur í brotum og á gulu
59. mín Gult spjald: Brynjar Hlöðversson (Leiknir R.)
Brýtur á Ísaki og er gjörsamlega brjálaður yfir spjaldinu enda nýbúinn að fá olnboga frá Omari
57. mín
Núna átti Omar Sowe að fjúka útaf.. Gefur Brynjari Hlöðvers svakalegt olnbogaskot í andlitið og Binni steinliggur. Dómararnir virðast þó ekki hafa séð neitt. Þetta var algerlega galið hjá Omari. Stálheppinn að hanga inná
55. mín MARK!
Róbert Hauksson (Leiknir R.)
Stoðsending: Dagur Austmann
Róbert bætir upp fyrir klúðrið áðan. Dagur Austmann á góða fyrirgjöf fyrir og Róbert skallar boltann í netið. Birgir Baldvinsson reyndi einnig við boltann og hann og Róbert skölluðu hvorn annan við markið og lágu báðir eftir. Stóðu á lappir á endanum og geta haldið leik áfram.
52. mín
Þarna áttu Leiknismenn að minnka muninn. Róbert Hauksson vann boltann af Viktori Erni og var einn gegn Antoni. Hafði allan heimsins tíma en virtist ekki þora að skjóta á markið. Var allt of lengi að hlutunum og Blikar náðu að verjast.. Afar klaufalegt hjá Róberti
49. mín MARK!
Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Ísak Snær!! Drengurinn bara getur ekki hætt að skora. 9 mörk í átta leikjum í deild.

Sérstakur aðdragandi að markinu. Blikar í sókn og Leiknismönnum gekk bölvanlega að hreinsa frá. Stór hrúga af leikmönnum og allt í einu barst boltinn til Ísaks sem skoraði með hnitmiðuðu skoti.
46. mín
Leikur hafinn
Lets go. Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir úr Kópavogi einu marki yfir í hálfleik
45. mín
Eftir aukaspyrnu Blika steinliggur Binni Hlö inni í eigin vítateig. viðrist hafa fengið högg. Jafnar sig og stendur á fætur
41. mín Gult spjald: Dagur Austmann (Leiknir R.)
39. mín
Höskuldur með skemmtilega skottilraun utan af velli en boltinn yfir markið
35. mín
Brynjar Hlöðvers fer hér í mjög fulliorðins tæklingu á Omar Sowe. Einar Ingi dómari dæmir ekkert og bekkurinn hjá Blikum allt annað en sáttur. Ég skil pirringin vel enda hefði ég haldið að tækling af þessu tægi verðskuldaði að minnsta kosti aukaspyrnu og líklega spjald.
28. mín MARK!
Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Stoðsending: Jason Daði Svanþórsson
Einfalt og huggulegt hjá Blikum sem eru komnir yfir. Höskuldur með langa sendingu aftur fyrir varnarlínu Leiknis og þar er Jason Daði á fullri ferð. Hann renniri boltanum svo á Ísak sem vippar laglega yfir Viktor í markinu.
25. mín
Þarna var Viktor Freyr tæpur í marki Leiknis. Það kemur stungusending og hann fer út úr markinu til að handsama boltann. Virðist hinsvegar missa hann undir sig. Sem betur fer fyrir Leiknismenn voru þeir fyrri til að átta sig á aðstæðunum og komu boltanum í burtu
21. mín
Skemmtilegur einnar snertingar bolti Blika verður til þess að Höskuldur er kominn í ákjósanlega stöðu en hann virðist renna aðeins í grasinu og ekkert verður úr sókninni. Skemmtilegt spil samt
16. mín Gult spjald: Jason Daði Svanþórsson (Breiðablik)
Reyndi að stoppa sókn fyrir svona tveimur mínútum. Hagnaður og boltinn fór ekkert útaf í millitíðinni. Einar hafði þó ekki gleymt þessu og spjaldar hann réttilega
15. mín
Emil Berger á skot eftir fyrstu sókn Leiknis en skotið beint á Anton í markinu
11. mín
Blikar búnir að fá tvö horn á seinustu mínútum en Leiknismenn eru þéttir fyrir og koma boltanum í burtu
10. mín Gult spjald: Omar Sowe (Breiðablik)
Hef ekki hugmynd um hvers vegna. Hlýtur að hafa sagt eitthvað
9. mín
Eins og við var að búast eru Blikar meira með boltann en hafa ekki náð að skapa sér færi ennþá. Leiknismenn , með þrjá miðverði, verjast vel.
4. mín
Leikurinn fer annars rólega af stað.
4. mín
Þétt setið í stúkunni. Vallarþulurinn talar um bestu mætingu sumarsins til þessa á Leiknisvelli
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Dómaraskipti.. Þorvaldur er settur dómari á þessum leik. Hann er hinsvegar hvergi sjáanlegur. Var á svæðinu áðan í upphitun. Einar Ingi dæmir í staðinn
Fyrir leik
Tap KA í dag þýðir að Blikar geta með sigri náð 7 stiga forystu á toppi deildarinnar
Fyrir leik
Hjá Leikni koma m.a. Bjarki Aðalsteinsson og Mikkel Jakobsen inn í byrjunarliðið frá seinasta deildarleik. Maciej Makuszewski er ekki í hóp heimamanna í dag vegna meiðsla
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár. Hjá Blikum er Omar Sowe aftur í byrjunarliðinu. Gísli Eyjólfsson og Viktor Karl Einarsson eru ennþá frá vegna meiðsla
Fyrir leik
Bæði lið spiluðu í bikarnum í vikunni sem leið. Leiknismenn eru úr leik eftir tap gegn Fram en Blikar fóru áfram eftir að hafa tekið Valsmenn í kennslustund og unnið 6-2
Fyrir leik
Það var vægast sagt fjör þegar þessi sömu lið mættust hér í Breiðholtinu í fyrra. Þá lauk leiknum með 3-3 jafntefli. Leiknismenn virtust þá vera að landa óvæntum sigri en Blikar jöfnuðu á lokamínútunni. Þegar liðin mættust svo á Kópavogsvelli seinna um sumarið unnu Blikar sannfærandi 4-0 sigur
Fyrir leik
Það er óhætt að segja að liðin tvö hafi átt ólíku gengi að fagna enda er hér botnlið deildarinnar að taka á móti toppliðinu. Blikar eru efstir með fullt hús stiga og en Leiknismenn eru með þrjú stog í neðsta sæti. Leiknismenn eru enn í leit að sínum fyrsta sigri í sumar
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Leiknis og Breiðabliks hér á DomusNova vellinum
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
10. Kristinn Steindórsson
14. Jason Daði Svanþórsson ('82)
16. Dagur Dan Þórhallsson
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson
25. Davíð Ingvarsson
67. Omar Sowe ('62)

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Mikkel Qvist
7. Viktor Andri Pétursson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Adam Örn Arnarson ('82)
27. Viktor Elmar Gautason
30. Andri Rafn Yeoman ('62)

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)
Ólafur Pétursson
Aron Már Björnsson
Alex Tristan Gunnþórsson
Ásdís Guðmundsdóttir

Gul spjöld:
Omar Sowe ('10)
Jason Daði Svanþórsson ('16)

Rauð spjöld: