Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Þór/KA
3
2
Keflavík
Tiffany Janea Mc Carty '43 1-0
Sandra María Jessen '53 2-0
2-1 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir '64
Margrét Árnadóttir '71 3-1
3-2 Caroline Mc Cue Van Slambrouck '77
01.06.2022  -  18:00
SaltPay-völlurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Tiffany McCarty
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
4. Arna Eiríksdóttir
6. Unnur Stefánsdóttir
8. Andrea Mist Pálsdóttir
10. Sandra María Jessen (f)
14. Margrét Árnadóttir
14. Tiffany Janea Mc Carty ('74)
18. Rakel Sjöfn Stefánsdóttir ('65)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('65)

Varamenn:
25. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (m)
2. Angela Mary Helgadóttir ('65)
5. Steingerður Snorradóttir
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('65)
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
22. Hulda Karen Ingvarsdóttir
23. Iðunn Rán Gunnarsdóttir
44. Vigdís Edda Friðriksdóttir ('74)

Liðsstjórn:
Perry John James Mclachlan (Þ)
Jón Stefán Jónsson (Þ)
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir
Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir
Iðunn Elfa Bolladóttir

Gul spjöld:
Andrea Mist Pálsdóttir ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þór/KA fer með sigur af hólmi! Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld.
90. mín
Aðeins tveimur mínútum bætt við.
90. mín Gult spjald: Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
88. mín
Þór/KA staðráðnar í því að bæta við marki. Sandra María hleypur með boltann upp vinstri kanntinn og köttar inn á teiginn og á skotið í fjærhornið en boltinn fer framhjá.
87. mín
Fyrirgjöfin alltof innarlega og beint í fangið á Samönthu.
86. mín
Hulda Ósk fékk að valsa með knöttinn inn á teig Keflavíkur full auðveldlega. Á skotið sem Samantha ver vel í horn.
84. mín
Margrét með skotið, ætlaði að leggja boltann í fjærhornið en miðið ekki nægilega gott og boltinn fer framhjá.
83. mín
Þór/KA fær hornspyrnu.
81. mín
Sigurrós Eir hleður í skotið en hittir ekki boltann og boltinn fer útaf.
77. mín Gult spjald: Ana Paula Santos Silva (Keflavík)
Ýtir í Hörpu sem er að týna boltann út úr markinu.
77. mín MARK!
Caroline Mc Cue Van Slambrouck (Keflavík)
VÁÁÁÁ ÞVÍLÍKT SKOT!!

Caroline vinnur boltann á stórhættulegum stað og hleður beint í skotið sem fer í bláhornið óverjandi fyrir Hörpu! Rosalegur leikur!
76. mín
Keflvíkingar nálægt því að minnka muninn en boltinn fer í hornspyrnu. Ekkert kom út úr henni.
74. mín
Inn:Vigdís Edda Friðriksdóttir (Þór/KA) Út:Tiffany Janea Mc Carty (Þór/KA)
Glæsilegur leikur hjá Tiffany í kvöld!
71. mín MARK!
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Tiffany Janea Mc Carty
MAARK!

Vel spilað hjá Þór/KA!
Sandra María sendir boltann á TIffany sem á síðan gæsilega sendingu innfyrir á Margréti sem setur boltann framhjá Samönthu. 3-1!
68. mín
Ana Paula með skotið en Harpa ver vel.
65. mín
Inn:Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (Þór/KA) Út:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Þór/KA)
65. mín
Inn:Angela Mary Helgadóttir (Þór/KA) Út:Rakel Sjöfn Stefánsdóttir (Þór/KA)
64. mín MARK!
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Keflavík)
STÓRKOSTLEGT MARK!!!

Gestirnir minnka muninn! Stórkostleg vippa innfyrir vörn Þórs/KA frá Önu á Vigdísi Lilju sem rennir boltanum snyrtilega framhjá Hörpu í marki Þórs/KA!
62. mín
Inn:Silvia Leonessi (Keflavík) Út:Maria Corral Pinon (Keflavík)
59. mín
Ana Paula með skallann. Þarf að sækja boltann svolítið aftur og skallinn því slakur og hátt yfir markið.
57. mín
Keflavík fær hornspyrnu. Ekkert varð úr henni.
53. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
MAAARK!!

Hulda Ósk með skot sem Samantha ver út í teiginn beint á kollinn á Söndru Maríu sem skallar boltann í opið markið.
49. mín
Boltinn laus inn á teignum, Sandra María fyrst til að átta sig og á skotið en beint í hendurnar á Samönthu.
49. mín
Þór/KA fær hornspyrnu.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikur
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma.
43. mín MARK!
Tiffany Janea Mc Carty (Þór/KA)
Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir
MAAAARK!

Þór/KA komið yfir! Frábær fyrrigjöf hjá Huldu Ósk og Tiffany stekkur í skallann og skorar! Hún var algjörlega óvölduð í teignum.
37. mín
Liðin ekki að skapa sér neitt. Keflvíkingar komast ekki framhjá vörn Þór/KA og Þór/KA að leita af úrslitasendingunni full hratt.
33. mín
Sigurrós með skotið á svipuðum stað hinu megin og sama niðurstaða, beint á Hörpu.
33. mín
Margrét með slaka tilraun fyrir utan vítateig, auðvelt fyrir Samönthu.
29. mín
Algjörir yfirburðir Þór/KA fyrstu 20 mínúturnar en þær hafa ekki náð að nýta sér það. KEflvíkingar að komast betur og betur inn í leikinn.
25. mín
Margrét með skotið úr erfiðu færi og boltinn fer beint á Samönthu.
24. mín
Vigdís Lilja með skalla en Harpa alveg í henni og hún nær ekki að stýra boltanum á markið.
22. mín
Keflavík fær hornspyrnu.
18. mín
Andrea Mist aleinn inn á teig Keflavíkur og fær boltann en varnarmaður Keflavíkur nær boltanum af henni af harðfylgi. Boltinn berst út úr teignum og Margrét á skot hátt yfir.
16. mín
Margrét Árna með skot framhjá eftir að Keflvíkingar komu boltanum frá eftir hornspyrnu.
15. mín
Ísfold Marý með fyrirgjöf sem virðist hættulaus, boltinn fer hins vegar af varnarmanni Keflavíkur og fer í átt að marki en Samantha fljót að hugsa og nær knettinum.
13. mín
Andrea Mist með hörku skot fyrir utan teig en vel varið hjá Samönthu í horn. Samantha nær að handsama knöttinn eftir hornspyrnuna.
10. mín
Frábært samspil hjá Tiffany og Andreu Mist sem endar með því að Andrea reynir skotið rétt fyrir utan vítateig en hittir ekki boltann. Boltinn endar hjá Margréti sem á skot yfir.
5. mín
Dröfn Einarsdóttir komin í frábært færi en Harpa ver vel. Keflvíkingar halda boltanum en Maria Pinon með hrikalega tilraun langt framhjá.
3. mín
Keflvíkingar komnir í færi stuttu seinna. Sigurrós Eir á sendingu fyrir á Ana Paula Santos Silva en hún á slakt skot framhjá.
1. mín
Þór/KA með hornspyrnu, Tiffany fær stutta sendingu inn á teiginn, hælar boltann á Söndru sem á skot úr dauðafæri en tiltölulega auðvelt fyrir Samönthu í marki Keflavíkur.
1. mín
Leikur hafinn
Tiffany McCarty sparkar leiknum af stað.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga hér út á völl. Það styttist í leikinn. Fólk að týnast í stúkuna og svona.
Fyrir leik
Sigurður Hjörtur Þrastarson er með flautuna í dag. Patrik Freyr Guðmundsson og Marinó Steinn Þorsteinsson eru honum til aðstoðar. Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ og Aðalsteinn Tryggvason varadómari.
Fyrir leik
Liðin hafa gengið í gegnum svipað prógram í upphafi tímabils. Keflavík vann sterkan 4-0 sigur á KR í fyrstu umferð, fylgdi því eftir með sigri á Blikum en Valskonur settu þær á jörðina með 3-0 sigri. Síðan þá hefur Keflavík tapað tveimur og gert eitt jafntefli.

KR 0-4 Keflavík
Keflavík 1-0 Breiðablik
Valur 3-0 Keflavík
Keflavík 1-2 Afturelding
Selfoss 0-0 Keflavík
Keflavík 1-2 Þróttur

7. sæti


Ana Paula Santos Silva skoraði þrennu gegn KR
Fyrir leik
Heimakonur í Þór/KA töpuðu gegn Blikum á útivelli í fyrstu umferð. Þær unnu síðan sterkan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Val í næstu umferð, svo kom sigur gegn Aftureldingu en síðan þá hefur liðið tapað þremur leikjum í röð. Liðið er því í 8. sæti með sex stig.

Breiðablik 4-1 Þór/KA
Þór/KA 2-1 Valur
Afturelding 1-2 Þór/KA
Þór/KA 0-1 Selfoss
Þróttur 4-1 Þór/KA
ÍBV 5-4 Þór/KA

Sandra María Jessen er markahæst með 4 mörk
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Keflavíkur í 7. umferð Bestu deildar kvenna.

Leikurinn fer fram á SaltPay-Vellinum á Akureyri og hefst kl 18.
Byrjunarlið:
1. Samantha Leshnak Murphy (m)
Amelía Rún Fjeldsted
Sigurrós Eir Guðmundsdóttir
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
4. Caroline Mc Cue Van Slambrouck
4. Maria Corral Pinon ('62)
10. Dröfn Einarsdóttir
11. Kristrún Ýr Holm (f)
14. Ana Paula Santos Silva
17. Elín Helena Karlsdóttir
34. Tina Marolt

Varamenn:
13. Sigrún Björk Sigurðardóttir (m)
7. Elfa Karen Magnúsdóttir
7. Silvia Leonessi ('62)
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
20. Saga Rún Ingólfsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir
28. Gunnhildur Hjörleifsdóttir

Liðsstjórn:
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Benedikta S Benediktsdóttir
Hjörtur Fjeldsted
Katrín Jóhannsdóttir

Gul spjöld:
Ana Paula Santos Silva ('77)

Rauð spjöld: