Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
14' 0
0
Valur
Valur
1
1
ÍBV
0-1 Sandra Voitane '48
Ásdís Karen Halldórsdóttir '93 1-1
02.06.2022  -  17:00
Origo völlurinn
Besta-deild kvenna
Aðstæður: 8 gráður og skýjað, fínasta fótboltaveður.
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Áhorfendur: 72
Maður leiksins: Guðný Geirsdóttir
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir ('73)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
6. Mist Edvardsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
9. Ída Marín Hermannsdóttir
10. Elín Metta Jensen
11. Anna Rakel Pétursdóttir ('81)
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('61)

Varamenn:
12. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
13. Cyera Hintzen ('61)
15. Hailey Lanier Berg ('73)
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
19. Bryndís Arna Níelsdóttir ('81)
24. Mikaela Nótt Pétursdóttir
26. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Ásta Árnadóttir
María Hjaltalín
Matthías Guðmundsson
Gísli Þór Einarsson

Gul spjöld:
Mist Edvardsdóttir ('40)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Guðmundur Páll flautar hér til leikloks eftir dramatískar lokamínútur hér á Origo vellinum.
93. mín MARK!
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Ásdís Karen skorar hér á lokamínútum leiksins!!!

Mikill darraðadans inn í teig ÍBV skot sem Guðný fær á sig hún ver og boltinn fellur til Ásdísar sem rennur boltanum í netið!
90. mín
Inn:Selma Björt Sigursveinsdóttir (ÍBV) Út:Olga Sevcova (ÍBV)
88. mín
Valur sækir grimmt en ná ekki að skapa sér nein almennileg færi.
88. mín
Elín Metta með þrusu langt fyrir utan teig en boltinn fer rétt framhjá.
86. mín
Inn:Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV) Út:Viktorija Zaicikova (ÍBV)
83. mín
Brookelynn á hér fínasta skot fyrir utan teig en Guðný ver vel í marki gestanna.
81. mín
Inn:Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur) Út:Anna Rakel Pétursdóttir (Valur)
75. mín
Olga kemst hér í gegn eftir hreinsun frá Júlíönu, tveir varnarmenn í Olgu en hún keyrir inn á hægri og á skot sem fer rétt svo yfir samskeytin. Olga gerði þetta frábærlega!
73. mín
Inn:Hailey Lanier Berg (Valur) Út:Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Valur)
73. mín
Inn:Jessika Pedersen (ÍBV) Út:Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
73. mín
Inn:Thelma Sól Óðinsdóttir (ÍBV) Út:Helena Jónsdóttir (ÍBV)
68. mín
Mist með þrumuskot!

Mist fær boltann langt fyrir utan vítateig ÍBV og tekur skotið sem fer rétt yfir samskeytin, þetta hefði verið rosalegt mark!
64. mín
Valur sækja og sækja þessa stundina!
61. mín
Ásdís tekur hornið en Eyjakonur ná að hreinsa.
61. mín
Inn:Cyera Hintzen (Valur) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
60. mín
Valsarar fá horn!
59. mín
Elísa tekur hér skot sem Guðný ætlar að kýla frá en nær því ekki, boltinn á leiðinni inn í markið en Guðný rétt svo bjargar þessu.
Þetta var tæpt!
57. mín
Elín Metta tekur skotið hægra megin í teignum en skotið fer framhjá.
Valskonur eru að gefa í!
55. mín
Elín Metta fær hér boltann utarlega í teignum tekur skotið á nær en Guðný ver frábærlega í horn.
54. mín
Cyera Hintzen komin í gott færi en flögguð rangstæð.
51. mín
Guðný grípur boltann úr horninu vel.
50. mín
Valskonur fá hér annað horn.
49. mín
Boltinn úr horninu kemur á fjær þar sem Mist er en hún skýtur framhjá.
49. mín
Horn fyrir Valskonur, ná þær að svara strax?
48. mín MARK!
Sandra Voitane (ÍBV)
EYJAKONUR KOMNAR YFIR!!!

Lára Kristín gefur skelfilegan bolta til baka sem ratar beint á Söndru sem er komin ein í gegn og klárar frábærlega fast, niðri og til vinstri.

ÍBV komið óvænt yfir!
46. mín
Leikur hafinn
Guðmundur Páll flautar hér síðari hálfleikinn af stað og nú eru það Valskonur sem byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Allt markalaust í hálfleik, Valskonur búnar að vera mun betri aðilinn hingað til.
43. mín
Hornið er hreinsað frá.
42. mín
Horn fyrir Val
41. mín
Ameera kemur með frábæran bolta í teigin á Olgu sem gefur boltann út á Söndru sem tekur skotið yfir, stórhættulegt færi úr góðri sókn ÍBV.
40. mín Gult spjald: Mist Edvardsdóttir (Valur)
Mist fær hér gult spjald fyrir að taka Olgu niður.
35. mín
Haley Thomas lá niðri eftir baráttu í horninu Haley er nú staðin upp og leikurinn heldur áfram.
35. mín
Valur fær hér horn eftir að Júlíana hreinsaði aftur fyrir endamörkin.
32. mín
Eyjakonur byrjuðu með 5 manna vörn en eru núna komnar í 4 manna. Ragna Sara komin í hægri bakvörð og Sandra komin upp á kantinn.
29. mín
Ásdís tekur frábæran bolta á fjær og er það Mist sem nær skallanum en skallar beint í hendurnar hjá Guðnýju. Þriðja góða skallafærið hjá Val!
28. mín
Ída fer hér framhjá Rögnu sem nær svo að pota boltanum í horn.
25. mín
Þórdís Hrönn fær hér galopinn skalla í teig ÍBV eftir geggjaðan bolta frá Elísu en þetta er vægast sagt lélegur skalli, þarna þarf Þórdís að gera betur.
23. mín
Valskonur spila hérna flottan fótbolta í góðri sókn sem endar þó með misheppnaðri fyrirgjöf frá Ásdísi sem endar í markspyrnu.
21. mín Gult spjald: Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV)
20. mín
Olga Sevcova keyrir hér á vörn Vals frá vinstri kanti og tekur hún skot sem fer framhjá.
16. mín
VÍTI?

Anna Rakel á hér skot sem fer í Ameeru Hussen og ég sé ekki betur en svo að boltinn fari í hendina hjá Ameeru en Guðmundur dæmir ekki víti heldur horn. Valskonur ekki sáttar.
14. mín
Ásdís tekur hornið og Ída nær kröftugum skalla sem nánast sleikir stöngina. Þarna mjóaði munu!
14. mín
Elín Metta fær boltann tekur einn varnarmann á og tekur skotið sem fer af varnarmanni ÍBV og í horn.
11. mín
Olga Sevcova tekur skot lengst fyrir utan vítateig en skotið fer framhjá
10. mín
Ásdís tekur en boltinn fer af varnarmanni ÍBV og í fangið hjá Guðný markverði ÍBV.
9. mín
Valskonur fá hér Aukaspyrnu utarlega í fyrirgjafastöðu.
7. mín
Valskonur í dauðafæri!

Elísa kemur með frábæran bolta og Elín Metta er nánast ein þegar hún nær skallanum en þetta er frekar slakur skalli sem Guðný í marki ÍBV ver örugglega. Þarna þarf Elín Metta að gera betur.
3. mín
Ásdís tekur hornið en Júlíana nær að hreinsa boltann frá.
2. mín
Hér fá Valskonur horn, strax í upphafi leiks.
1. mín
Leikur hafinn
Guðmundur Páll flautar leikinn af stað og eru það Eyjakonur sem byrja með boltann.
Fyrir leik
ÍBV

Eyjakonur eru í 6. sæti deildarinnar með 10 stig. Með sigri í dag gætu þær komið sér upp í 3. sæti. Þær hafa unnið 3 leiki, tapað 2 og gert jafntefli í 1 leik það sem af er að tímabili.


Fyrir leik
Valur

Valskonur eru í 1. sæti deildarinnar fyrir þennan leik með einn leik til góða á öll liðin nema ÍBV. Valur eru með 15 stig 5 sigrar og 1 tap, í 6 leikjum.


Fyrir leik
Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu beint frá Origo vellinum!

Hér í kvöld mun fara fram leikur á milli Vals og ÍBV í 7. umferð Bestu-deild kvenna.


Byrjunarlið:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir
3. Júlíana Sveinsdóttir
8. Ameera Abdella Hussen
9. Kristín Erna Sigurlásdóttir ('73)
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova ('90)
17. Viktorija Zaicikova ('86)
18. Haley Marie Thomas (f)
23. Hanna Kallmaier
24. Helena Jónsdóttir ('73)

Varamenn:
12. Lavinia Elisabeta Boanda (m)
Selma Björt Sigursveinsdóttir ('90)
4. Jessika Pedersen ('73)
6. Thelma Sól Óðinsdóttir ('73)
7. Þóra Björg Stefánsdóttir ('86)
11. Berta Sigursteinsdóttir

Liðsstjórn:
Jonathan Glenn (Þ)
Inga Dan Ingadóttir
Mikkel Vandal Hasling
Eva Rut Gunnlaugsdóttir
Guðrún Marín Viðarsdóttir

Gul spjöld:
Ragna Sara Magnúsdóttir ('21)

Rauð spjöld: