Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Afturelding
0
1
ÍBV
0-1 Olga Sevcova '44
14.06.2022  -  18:00
Malbikstöðin að Varmá
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Ský í lofti og smá rok. 10 gráður úti.
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Áhorfendur: 106
Maður leiksins: Olga Sevcova (ÍBV)
Byrjunarlið:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Sesselja Líf Valgeirsdóttir
3. Jade Arianna Gentile
8. Sigrún Eva Sigurðardóttir ('46)
8. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
10. Hildur Karítas Gunnarsdóttir
13. Lilja Vigdís Davíðsdóttir
16. Birna Kristín Björnsdóttir
19. Kristín Þóra Birgisdóttir
21. Sigrún Gunndís Harðardóttir (f) ('87)
77. Þórhildur Þórhallsdóttir

Varamenn:
12. Eva Ýr Helgadóttir (m)
2. Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('87)
5. Andrea Katrín Ólafsdóttir
6. Anna Pálína Sigurðardóttir
9. Katrín Rut Kvaran ('46)
11. Guðrún Embla Finnsdóttir
26. Signý Lára Bjarnadóttir

Liðsstjórn:
Alexander Aron Davorsson (Þ)
Ruth Þórðar Þórðardóttir (Þ)
Bjarki Már Sverrisson (Þ)
Svandís Ösp Long
Sigurbjartur Sigurjónsson
Ingólfur Orri Gústafsson
Sævar Örn Ingólfsson

Gul spjöld:
Alexander Aron Davorsson ('87)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Dapur seinni hálfleikur hér i Mosfellsbæ sem endar hér 0-1 fyrir ÍBV sem fara heim með 3 stig.

Takk fyrir mig! Skýrla og viðtöl koma seinna í kvöld
94. mín
Kristín Þóra skrúar boltanum framhjá markinu, mögulega loka sjens hjá Afturelding í þessum leik.
93. mín Gult spjald: Jessika Pedersen (ÍBV)
92. mín
Uppbótartími leiksins er 5 mínútur.
91. mín
Inn:Jessika Pedersen (ÍBV) Út:Ameera Abdella Hussen (ÍBV)
90. mín
Ameera Abdella og Hildur Karítas liggja hér eftir. Hildur fær boltann beint í smettið eftir að leikmaður Afturelding ætlar að hreinsa boltann í burtu
88. mín
Afturelding vinnur hornspyrnu.

Boltinn er bjargaður á línu beint frá horninu.
87. mín
Inn:Karen Dæja Guðbjartsdóttir (Afturelding) Út:Sigrún Gunndís Harðardóttir (Afturelding)
87. mín Gult spjald: Alexander Aron Davorsson (Afturelding)
85. mín
Inn:Berta Sigursteinsdóttir (ÍBV) Út:Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
84. mín
Afturelding vinnur sér aukaspyrnu.

Spyrnan fór vel framhjá.
75. mín
Hanna Kallmaier með skot yfir markið.
74. mín
Inn:Viktorija Zaicikova (ÍBV) Út:Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV)
74. mín
Inn:Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV) Út:Helena Jónsdóttir (ÍBV)
66. mín Gult spjald: Sandra Voitane (ÍBV)
65. mín
Allt annar seinni hálfleikur hjá ÍBV í þessum leik. Það hefur varla sést í færi hjá Afturelding í seinni hálfleiknum.
61. mín
Ameera Abdella dettur í teig Afturelding. Hún mögulega missteig á boltanum og dettur með höfuðið fyrst á grasið. Hún liggur hér eftir á meðan leikurinn er spilaður áfram.
59. mín
Kristín Erna kemst einn gegn markvörð, en skýtur beint á Auður í markinu. Alveg dauðafæri!
56. mín
Birna Kristín dæmd brotleg á Haley Marie í teig ÍBV.
53. mín
Sólveig sendir boltann inn í teig og leikmaður ÍBV skallar boltann næstum því inn í sitt eigið mark, en boltinn fer rétt svo yfir og Afturelding vinnur hornspyrnu.
49. mín
ÍBV vinnur hornspyrnu.

Vandamál fyrir Afturelding að sparka þessum bolta út, en ná því í lokinn.
47. mín
Sólveig Jóhannesdóttir liggur hér eftir með verk í hausnum eftir að hún og Helena Jónsdóttir skullu saman.

Hún var tekinn útaf í ksoðun og er núna mætt aftur á völlinn.
46. mín
ÍBV vinnur hornspyrnu.

Auður tekur þennan bolta!
46. mín
ÍBV byrjar hér seinni hálfleik.
46. mín
Inn:Katrín Rut Kvaran (Afturelding) Út:Sigrún Eva Sigurðardóttir (Afturelding)
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur hér í Mosfellsbæ þar sem Afturelding hafa verið mikið betri, en ÍBV komast yfir í lok fyrri hálfleiks. Úrslitin í hálfleik koma hér vel á óvart
44. mín MARK!
Olga Sevcova (ÍBV)
Stoðsending: Ameera Abdella Hussen
ÍBV kemur hér óvænt yfir
Ameera Abdella með frábæra sendingu frá miðju, vinstri á Olgu sem hleypur að teygnum og klárar færið sitt frábærlega
42. mín
Afturelding vinnur hornspyrnu.

ÍBV nær að sparka boltanum út úr teig.
34. mín
Afturelding með aukaspyrnu. Sigrún Eva tekur spyrnuna sem tekur skotið sem fer beint í slánna.
32. mín
Afturelding hafa verið yfirburða liðið hér á vellinum í kvöld.
30. mín
Sigrún Gunndís með skot sem fer langt yfir markið.
28. mín
Aftuelding vinnur hornspyrnu.

Lítið kemur úr þessu.
24. mín
Ameera Abdella með skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá marki.
23. mín
Sigrún Eva með frábært skot fyrir utan teig sem fer í staungina. Lavinia ´markinu var aldrei að fara ná þessum.
20. mín
Afturelding vinnur aukaspyrnu fyrir brot, vinstra megin af tegnum.
19. mín
Sólveig Jóhannesdóttir með skot á mark, fær svo boltann aftur og dansar framhjá nokkrum arnamönnum og nær annað skot sem fer í Lavinia og framhjá fyrir hornspyrnu.
14. mín
Olga Sevcova með hlaup upp að teygnum og sendir boltanum til hægri að Kristín Ernu sem er með skot beint á Auður í markinu. ÍBV vinnur hornspyrnu.

Þarna áttu ÍBV að vera komin yfir!
10. mín
Bæði lið að ná sér í færi. ÍBV hafa verið aðeins sterkari þessar fyrstu 10 mínútur.
1. mín
Birna Kristín með hlaup inn í teiginn og sendir á Þórhildi sem stendur beint fyrir framan markið. Þórhildur skýtur boltanum beint í slánna og boltinn skoppar línunni. Hörku færi fyrir Afturelding sem byrjar leikinn með hörku.
1. mín
Leikur hafinn
Afturelding byrjar hér leikinn!
Fyrir leik
Byrjunarlið leiksins eru kominn!
Afturelding gerir 4 breytingar í byrjunarliði sýnu eftir 1-6 tap gegn Val í síðustu umferð.

INN: Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m), Sólveig Jóhannesdóttir Larsen, Hildur Karítas Gunnarsdóttir og Sigrún Eva Sigurðardóttir.
ÚT: Eva Ýr Helgadóttir (m), Anna Pálína Sigurðardóttir, Christina Clara Settles og Sara Jimenez Garcia.

ÍBV gerir 3 breytingar eftir 3-2 sigur gegn Keflavík.

INN: Lavinia Elisabeta Boanda (m), Thelma Sól Óðinsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir.
ÚT: Guðný Geirsdóttir (m), Ragna Sara Magnúsdóttir og Viktorija Zaicikova.
Fyrir leik
Helena Ólafsdóttir, fyrrum landsliðsþjálfari, tók það sér að spá í níundu umferð Bestu deild kvenna.

Helena spáir Afturelding 1 - 2 ÍBV
Reikna með að ÍBV taki sigur í dag. Þær hafa komið mér á óvart með skipulögðum leik og skynsömum, og eru greinilega vel þjálfaðar. Staða þeirra í töflunni hefur komið mörgum á óvart og fari þær með sigur í dag geta þær farið að gæla við að keppa við liðin á toppnum. Afturelding hefur verið í miklum vandræðum með mannskapinn þar sem meiðsli hafa sett mikinn svip á liðið og maður hefur á tilfinningunni að sjálfstraustið í liðinu sé lítið. Þær munu þó bíta frá sér og - hafa gefið öllum liðum leik - en ÍBV liðinu líður vel og þess vegna á ég von á sigri hjá þeim. Eina sem ég velti fyrir mér eru meiðslin hennar Guðnýjar, hvaða áhrif það gæti haft; við höfum ekki séð Lavinia Elisabeta Boanda spila en það verður spennandi að fylgjast með henni í kvöld.

Fyrir leik
Dómari leiksins er Ásmundur Þór Sveinsson og með honum til aðstoðar eru Rúna Kristín Stefánsdóttir og Magnús Garðarsson. Eftirlitsmaður leiksins frá KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.

Fyrir leik
ÍBV
ÍBV liggur í 6. sæti eftir 9 leiki með 14 stig í Bestu deild kvenna. Í síðustu umferð kom Keflavík í heimsókn til Eyja og ÍBV sigraði 3-2.

Síðasti leikurinn sem ÍBV spilaði var 8-liða úrslit í Mjólkurbikarnum. ÍBV mætti Stjörnunni á heimavelli og töpuðu þeim leik 1-4. Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV handbrotnaði í þeim leik og hún verður líklega frá út júlí.

Fyrir leik
Afturelding
Afturelding er aðeins með 3 stig eftir 9 leiki í Bestu deild kvenna eftir sigur gegn Keflavík. Í síðustu tvem umferðum hefur Afturelding tapað 6-1 gegn bæði Breiðablik og Val. Christina Clara fékk rautt spjald í síðasta leik gegn Val og verður í leikbanni

Fyrir leik
Góða kvöldið gott fólk og verið velkomin á beina textalýsingu frá Mosfellsbæ þar sem Afturelding tekur á móti ÍBV í 9. umferð Bestu deild kvenna.

Leikurinn hefst kl. 18:00 á Malbikstöðinni á Varmá.

Byrjunarlið:
12. Lavinia Elisabeta Boanda (m)
3. Júlíana Sveinsdóttir
6. Thelma Sól Óðinsdóttir
7. Þóra Björg Stefánsdóttir ('74)
8. Ameera Abdella Hussen ('91)
9. Kristín Erna Sigurlásdóttir ('85)
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
18. Haley Marie Thomas (f)
23. Hanna Kallmaier
24. Helena Jónsdóttir ('74)

Varamenn:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir ('74)
4. Jessika Pedersen ('91)
11. Berta Sigursteinsdóttir ('85)
17. Viktorija Zaicikova ('74)
23. Embla Harðardóttir
27. Erna Sólveig Davíðsdóttir

Liðsstjórn:
Jonathan Glenn (Þ)
Bjartey Helgadóttir
Inga Dan Ingadóttir
Mikkel Vandal Hasling
Eva Rut Gunnlaugsdóttir

Gul spjöld:
Sandra Voitane ('66)
Jessika Pedersen ('93)

Rauð spjöld: