ÍBV
0
3
Víkingur R.
0-1 Oliver Ekroth '8
0-2 Erlingur Agnarsson '29
0-3 Ari Sigurpálsson '76
15.06.2022  -  18:00
Hásteinsvöllur
Besta-deild karla
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Maður leiksins: Kristall Máni Ingason
Byrjunarlið:
Guðjón Orri Sigurjónsson
Andri Rúnar Bjarnason
Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('59)
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson ('80)
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
8. Telmo Castanheira ('80)
9. Sito ('80)
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
25. Alex Freyr Hilmarsson
42. Elvis Bwomono

Varamenn:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
4. Nökkvi Már Nökkvason
5. Jón Ingason
10. Guðjón Pétur Lýðsson ('80)
16. Tómas Bent Magnússon ('80)
19. Breki Ómarsson ('80)
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson
27. Hans Mpongo ('59)

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Björgvin Eyjólfsson
David George Bell
Mikkel Vandal Hasling
Elías Árni Jónsson
Heimir Hallgrímsson

Gul spjöld:
Sigurður Arnar Magnússon ('26)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Góður sigur Víkinga.

ÍBV hefði léttilega getað komið sér inn í þennan leik en það tókst ekki.
90. mín
ÍBV ætlar bara ekki að skora í dag!!

Fyrst á Alex Freyr skot sem Þórður ver vel en Andri Rúnar tekur frákastið og blastar boltanum niðrí dal.
90. mín
Breki Ómarsson sloppinn einn í gegn en Oliver Ekroth, sem spilaði hann réttstæðann, nær honum og kemur boltanum í horn.
89. mín
Hans Mpongo með góðan sprett, leggur boltann út á Tómas Bent sem á skot rétt yfir.
84. mín
Andri Rúnar að prjóna sig í gegn en tekst ekki að koma boltanum framhjá Þórði í markinu.
83. mín
Kristall hittir ekki boltann nánast á línunni.

Vel gert hjá Nikolaj.
80. mín
Inn:Guðjón Pétur Lýðsson (ÍBV) Út:Telmo Castanheira (ÍBV)
80. mín
Inn:Tómas Bent Magnússon (ÍBV) Út:Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
80. mín
Inn:Breki Ómarsson (ÍBV) Út:Sito (ÍBV)
78. mín
ÍBV fær horn.

Sito með hörku skot en Þórður blakar honum yfir, frábær varsla.
76. mín MARK!
Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Kristall Máni Ingason
Kristall að setja Ara einan í gegn.

Ari klárar vel.
69. mín
Önnur aukaspyrna fyrir Eyjamenn, þessi er nær markinu en samt ekki í skotfæri.

Hreinsað í burtu og ÍBV á innkast sem þeir ætla að taka langt.
68. mín
Aukaspyrna sem ÍBV fær út á kanti.

Þórður slær boltann í horn.
67. mín
Hans Mpongo með afleiddustu tilraun leiksins skot af 35 metrum langt yfir.
64. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
64. mín
Inn:Kyle McLagan (Víkingur R.) Út:Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.)
64. mín Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
60. mín
Andri Rúnar í DAUÐAFÆRI eftir góðan undirbúning Telmo.

Hann verður að klára þetta.
59. mín
Inn:Hans Mpongo (ÍBV) Út:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV)
Halldór getur ekki haldið leik áfram.
59. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)
58. mín
Halldór Jón liggur eftir, búinn að vera sprækur í dag og vonandi að hann geti haldið leik áfram.
57. mín
Telmo á nú snyrtilega vippu í gegn á Halldór Jón sem nær ekki að taka boltann niður.
54. mín
TELMO!!!

Þrumuskot í stöngina, Eyjamenn eru að gera sig líklega.
48. mín
Guðjón Ernir á fyrsta skot síðari hálfleik en varið af varnarmanni.

Síðan á Felix þrumuskot í slánna.
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Kaflaskiptur hálfleikur en Víkingarnir verðskuldað yfir.
44. mín
Elvis með afleidda tilraun og boltinn beint upp á Týsvöll.
42. mín
Sito á skot en Þórður ver það auðveldlega.

Eyjamenn eru byrjaðir að pressa og þetta er farið að líta mun betur út.
40. mín
Alex Freyr með skot rétt framhjá eftir góðan sprett hjá Andra Rúnari.

Góðar mínútur hjá ÍBV.
39. mín
Nú er það Telmo sem á skot yfir.

Helgi Sigurðsson fyrrum þjálfari ÍBV væri löngu búinn að segja þeim að halla sér yfir boltann.
38. mín
Andri Rúnar á annað skot en nú fer það enn lengra yfir.
37. mín
Elvis á mjög góðan bolta í gegn sem Andri Rúnar nær. Halldór Smári er í bakinu á honum og truflar hann vel í skotinu sem fer langt yfir markið.
35. mín
Eyjamenn eru að gera hrikalega mikið af mistökum og Víkingarnir eru að nýta sér þau mjög vel.

ÍBV er samt aðeins að vakna til lífsins og eru að ná að koma sér í ágætar stöður inn á milli.
29. mín MARK!
Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
Kristall gerir vel og á skot sem Guðjón ver en Erlingur fylgir vel eftir.
26. mín Gult spjald: Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV)
Tekur Kristal niður.

Fólkið í stúkunni er ekki að elska Kristal þessa stundina.
23. mín
Víkingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig við litla hrifningu Eyjamanna.

Viktor Örlygur á skot yfir vegginn en rétt framhjá.
22. mín
Kristall kominn í enn eitt færið en á laust skot beint á Guðjón.
16. mín
Inn:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.) Út:Pablo Punyed (Víkingur R.)
Pablo fer meiddur af velli, vonandi er þetta ekki alvarlegt.

Hélt utan um aftanvert lærið.
15. mín
Algjört klúður í vörn Eyjamanna.

Eiður og Elvis renna á hvorn annan og Erlingur einn í gegn. Reynir að fara framhjá Guðjóni Orra en Guðjón handsamar boltann.
12. mín
ÍBV fær horn eftir flottan sprett hjá Halldóri Jón.

Boltinn inní og skot sem Telmo á í varnarmann og annað horn. Ekkert kemur upp úr því.
8. mín MARK!
Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Stoðsending: Pablo Punyed
Mark!!

Pablo tekur hornið og á fjærstöngina er mættur Oliver Ekroth sem skallar boltann þar sem Guðjón Orri nær ekki til hans.
7. mín
Víkingar fá horn. Þeir eru að leita mikið af Kristal í gegnum vörnina.
5. mín
Kristall Máni sloppinn í gegn en lyftir boltanum rétt framhjá.

Stórhættulegt!
4. mín
ÍBV fær horn eftir fína sókn.

Það er ekki nógu gott og markspyrna fyrir gestina.
2. mín
Fyrstu sókn leiksins eiga heimamenn.

Telmo stingur boltanum inn á Guðjón Ernir sem reynir að setja hann út á Halldór Jón en Víkingarnir komast inn í boltann.
1. mín
ÍBV stilla upp í 4-4-2 með Sito og Andra Rúnar saman frammi.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimamenn sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Arnar Gunnlaugsson gerir fimm breytingar á liði sínu frá síðasta deildarleik gegn KA.

Ingvar Jónsson meiddist í landsliðsverkefninu og kemur því Þórður Ingason í rammann. Viktor Örlygur Andrason, Halldór Smári SIgurðsson, Birnir Snær Ingason, Erlingur Agnarsson koma allir inn í liðið.

Nikolaj Hansen, Ari Sigurpálsson, Helgi Guðjónsson og Kyle McLagan setjast á bekkinn.

Hermann Hreiðarsson gerir tvær breytingar á liði Eyjamanna en Atli Hrafn Andrason tekur út leikbann og þá kemur Tómas Bent Magnússon á bekkinn.

Elvis Okello Bwomono snýr aftur í liðið og þá kemur Sito einnig inn í byrjunarliðið. Guðjón Pétur Lýðsson er á bekknum en hann var ekki í hóp í síðustu tveimur leikjum eftir að honum lenti saman við Hermann í leik gegn ÍA.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Arnar meðal áhorfenda


Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, verður meðal áhorfenda í Vestmannaeyjum en hann tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald í 2-1 sigrinum gegn KA. Atli Hrafn Andrason er ekki með ÍBV en hann afplánar fyrri leik sinn í tveggja leikja banni.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
ÍBV eru nýliðar í deildinni þetta sumarið og því mættust liðin ekki á síðasta tímabili.

Þau mættust síðast í efstu deild 11. ágúst 2019 en þá vann Víkingur 3 - 1 heimasigur . Óttar Magnús Karlsson skoraði tvö fyrir Víkinga og Kwame Quee eitt. Telmo skoraði fyrir ÍBV.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli þetta sumarið og Víkingur sló ÍBV einnig út úr bikarnum með 2-3 sigri í Eyjum.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍBV er í næst neðsta sæti deildarinnar og hefur aðeins fengið þrjú stig úr fyrstu 8 leikjum Íslandsmótsins. Öll stigin komu úr jafnteflum.

Víkingar eru í 4. sætinu með 16 stig, stigi frá 2. sætinu en 8 stigum frá toppliði Breiðabliks.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Liðin eru að koma út úr mjög löngu landsleikjahléi og spiluðu síðast í maí.

Síðasti leikur ÍBV var 1 -0 tap úti gegn Stjörnunni 29. maí en á saman tíma vann Víkingur 2 - 1 sigur á KA heima.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Einar Ingi Jóhannsson dæmir leikinn í dag og er með þá Svein Þórð Þórðarson og Eystein Hrafnkelsson sér til aðstoðar á línunu. Egill Arnar Sigurþórsson er skiltadómari og KSÍ sendi Sigurð Óla Þórleifsson til að hafa eftirlit með umgjörð og störfum dómarateymisins.
Einar Ingi dæmir í dag.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Víkings Reykjavík í Bestu-deild karla.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
16. Þórður Ingason (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason (f)
10. Pablo Punyed ('16)
12. Halldór Smári Sigurðsson ('64)
18. Birnir Snær Ingason ('59)
20. Júlíus Magnússon (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('64)
80. Kristall Máni Ingason

Varamenn:
5. Kyle McLagan ('64)
9. Helgi Guðjónsson
11. Stígur Diljan Þórðarson
17. Ari Sigurpálsson ('16)
19. Axel Freyr Harðarson
23. Nikolaj Hansen ('59)
24. Davíð Örn Atlason ('64)

Liðsstjórn:
Hajrudin Cardaklija
Benedikt Sveinsson
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Markús Árni Vernharðsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Karl Friðleifur Gunnarsson ('64)

Rauð spjöld: