Þróttur R.
1
2
Valur
0-1 Ásdís Karen Halldórsdóttir '15
Katla Tryggvadóttir '47 1-1
1-2 Cyera Hintzen '48
19.06.2022  -  14:00
Þróttarvöllur
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Hellirigning og rennandi blautt gervigras.
Dómari: Þorvaldur Árnason
Maður leiksins: Ásdís Karen Halldórsdóttir
Byrjunarlið:
1. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
Sóley María Steinarsdóttir
7. Andrea Rut Bjarnadóttir
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f) ('46)
9. Freyja Karín Þorvarðardóttir ('74)
12. Murphy Alexandra Agnew
16. María Eva Eyjólfsdóttir
17. Katla Tryggvadóttir
19. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir ('83)
23. Sæunn Björnsdóttir ('86)
77. Gema Ann Joyce Simon

Varamenn:
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
10. Danielle Julia Marcano ('74)
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('83)
21. Lea Björt Kristjánsdóttir ('46)
24. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
25. Guðrún Gyða Haralz ('86)
29. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Liðsstjórn:
Jamie Paul Brassington
Edda Garðarsdóttir
Andrea Þórey Hjaltadóttir
Angelos Barmpas

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur vinnur 1-2 eftir hörkuspennandi leik.

Viðtöl og skýrslur koma inn á eftir, takk fyrir mig.
93. mín
Ásdís Karen og Cyera ekki að slá í gegn hjá Þrótturum núna, búanr að fara í þrígang upp við hornfánan og dútla þar.
90. mín
Guðrún Gyða með skot inni í vítateig sem Sandra þarf að hafa sig alla við verja.
86. mín
Inn:Guðrún Gyða Haralz (Þróttur R.) Út:Sæunn Björnsdóttir (Þróttur R.)
86. mín
Ásdís tekur hornið en Arna skallar boltann fram hjá.
85. mín
Lára Kristín með skot fyrir utan D-bogan sem Íris ver í horn.
83. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þróttur R.)
83. mín
Ásdís Karen
Fær boltann á kantinum og snýr Elísabet af sér og fer á ferðina leggur botann á Cyeru og Ásdís fær svo boltann aftur og skýtur í þverslánna.

Boltinn berst svo til Bryndísar sem nær ekki að koma boltanum á markið.
79. mín
Ásdís Karen fær boltann út á vinstri vængnum og köttar inn á miðjunna, skýtur á markið en enn og aftur eru Valsarar að setja boltann beint á Írisi í amrki Þróttar.
77. mín
Valur á horn, Ásdís tekur spyrnuna og Mist nær að koma hausnum í boltann en Þróttara fara fyrir skallann, boltinn berst út á Láru Kristínu sem á skot yfir frá D-boganum.
76. mín
Bryndís á skot af stuttu færi beint á Írisi í markinu.
74. mín
Inn:Hailey Lanier Berg (Valur) Út:Ída Marín Hermannsdóttir (Valur)
74. mín
Inn:Danielle Julia Marcano (Þróttur R.) Út:Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þróttur R.)
73. mín
Léleg sending beint á Ídu út úr vörn Þróttar sem leggur boltann til hliðar á Ásdísi sem skýtur af löngu færi en Íris ver.
66. mín
Murphy reynir skot fyrir við D-bogann sem fer yfir.
66. mín
Murphy fær góða sendingu á milli varnarmanna Vals og fær góðann tíma og pláss til að leggja boltann til hliðar á Freyju Karín sem er ein fyrir opnu marki en hittir ekki boltann, hefði ekki þurft meira en eitt pot og boltinn hefði endað í netinu.
64. mín
Sæunn með sendingu yfir vörn Vals ætlaða Murphy en Sandra nær að handsama botlann áður en Murphy nær til hans.
62. mín
Ída Marín með fyrirgjöf en engin Valsari mættur á fjærstöngina og boltinn lekur út af.
58. mín
Þórdís Elva vinnur boltann á miðjunni og kemur sér nokkrum, örugglega þrem eða fjórum, varnarmönnum Þróttar og er kominn ein á móti Írisi en setur boltann í stöngina.
55. mín
Murphy með skot inni í vítateig beint á Söndru.
54. mín
Katla með góða sendingu upp á Murphy sem reynir að koma sér fram hjá Örnu en kemur boltanum í horn.
51. mín
María Eva með fyrirgjöf frá vinstri á kollinn á Murphy sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
48. mín MARK!
Cyera Hintzen (Valur)
Valur ekki lengi að koma sér yfir aftur
Langur bolti fram á Cyeru sem fær nóg tíma í teignum til þess að taka við boltanum og setja hann í netið.
47. mín MARK!
Katla Tryggvadóttir (Þróttur R.)
Stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir
Þróttur jafnar!
Þróttarar vinna boltann hátt á vellinum og boltinn berst til Andreu sem laumar boltanum inn fyrir á Kötlu, Katla leggur boltann fram hjá Söndru í fjærhornið.
47. mín
Ída Marín með svakalega góða móttöku á miðjunni og tekur boltann með sér upp völlin,laumar boltanum á Bryndísi sem á góða móttöku en Sóley bara enn betri tæklingu í kjölfarið.
46. mín
Inn:Lea Björt Kristjánsdóttir (Þróttur R.) Út:Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þróttur R.)
Þróttur gerir eina skiptingu í hálfleik.
46. mín
Leikur hafinn
Þróttur byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Valur leiðir 1-0 í hálfleik.

Bæði lið hafa náð að skapa sér ágætisfæri og leikruinn hefur verið jafn og spennandi.
45. mín
Langur bolti fram ætlaður Murphy en Arna Sif mætir og á góða tæklingu og setur botlann í innkast.
42. mín
Murphy á ffyrirgjöf frá vinstri á Freyju Karínu sem er hársbreidd frá því að koma hausnum í boltann.
40. mín
Anna Rakel með hættulega sendingu upp á Ásdísi, Sóley María gerir hins vegar aggalega vel og eltir Ásdísi uppi og vinnur boltann af henni.
34. mín
Katla með gott hlaup inn fyrir vörn Vals og setur boltann svo til hliðar og Freyja Karín nær að pota í boltann en hann fer fram hjá.
31. mín
Ída Marín gerir vel og kemur sér fram hjá Sóley og er kominn ein á móti Írisi í markinu en Íris Dögg ver mjög vel frá henni.
29. mín
Inn:Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Þórdís lennti í hörðu samstuði áðan en er þó búin að vera nokkuð spræk þrátt fyrir það.
28. mín
Sæunn brýtur á Ásdísi Karen rétt fyrir utan vítateig, Valur á aukaspyrnu.

Ásdís tekur spyrnuna og setur boltann yfir markið.
25. mín
Anna Rakel með góðan bolta upp í horn á Ásdísi sem setur boltann út á Þórdísi. Þórdís á skot á markið sem Íris á í litlum vandærðum með að verja.
22. mín
Þórdís Hrönn á skot inni í vítateig sem Íris ver út í teiginn og Þróttarar koma svo botlanum frá.
21. mín
Áður en að Valur skoraði var Þróttur sterkari apilinn og höfðu verið í stórsókn en nú virðast Valskonur hafa nokkuð góð tök á leiknum.
21. mín
Boltinn berst til Elísu nokkuð fyrir utan teig og hún tekur skotið sem er hættulegt og litlu mátti muna að þetta hafi endað í netinu.
18. mín
Þórdís Hrönn á fyrirgjöf sem Ásdís Karen í gegnum allan teiginn og það munar ekki litlu að Ásdís Karen komist í botlann í gott færi.
15. mín MARK!
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Stoðsending: Cyera Hintzen
Ásdís fær boltann við miðju og ber boltann upp setur hann svo upp í horn á Cyreu sem kemur með fyrirgjöf, Ásdís Karen er mætt og reynir skalla í fyrstu en hittir ekki á markið boltann berst aftur til hennar hún leggur hann fyrir sig og setur hann boltann snyrtillega í fjærhornið, virikilega vel gert hjá Ásdísi.
14. mín
Þróttur á hornspyrnum, þær taka spyrnuna stutt, boltinn berst út á Maríu Evu sem nær fyrirgjöfinni frá hægri en Þóttara ná ekki að koma boltanum á markið.
13. mín
Anna Rakel með afleita sendingu úr vörninni beint á Sæunni sem er framalega á vellinum en Þróttarar ná ekki að nýta þessi mistök.
11. mín
Þær eru nokkuð rólegar fyrstu mínútur þessa leiks og hvorugt lið er að ná að koma sér í hættulegar stöður.
8. mín
Þórdís Hrönn kominn upp að endalínu en missir boltann frá sér og rennur á sama tíma og Sóley mætir í hana og þær skella saman, Þórdís þarf að fá aðhlynningu.
5. mín
Ásís reynir fyrirgjöf, eða skot er ekki alveg viss, eftir góða sendingu frá Cyeru upp í horn en boltinn endar í höndum írisar Daggar í marki Þróttar.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn, Valur byrjar með boltann og það er Cyera Makenzie framherji Vals sem spyrnir leiknum af stað.
Fyrir leik
Nik Chamberlain þjálfari Þróttar er í banni í dag eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik, Edda Garðarsdóttir og Jamie Paul stýra því liði Þróttar í dag.

Edda Garðarsdóttir er reyndar líka skráður varamarkmaður.
Fyrir leik
10 mínútur í leik og liðin hafa lokið upphitun og það hellirignir í Laugardalnum!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár, bæði lið gera eina breytingu á byrjunarliðum sínum frá því í síðasta leik.
Í liði Þróttar kemur Elísabet Freyja Þvorvaldsdóttir inn fyrir Jelenu Tinnu Kujundzic og í liði Vals kemur Þórdís Hrönn Sigrfúsdóttir inn fyrir Elínu Mettu Jenssen.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Liðin hafa mæst þrisvar á árinu fyrir þennan leik. Í febrúar mætust liðin í Reykjavíkurmótinu þar sem Þróttur vann 2-0, liðin mætust svo stuttu seinna í Lengjubikarnum þar sem Valur vann 6-0.
Í 1. umferð deildarinnar tók Valur svo á móti Þrótt á Hlíðarenda og sigarði Valur þann leik 2-0.
Fyrir leik
Valur
Eftir 9. umferðir trónir Valur á toppnum með 22 stig, fjórums tigum á undan Breiðablik sem er í 2. sæti.
Liðið hefur unnið 7 leiki, gert eitt jafntelfi og tapa einum leik.

Í síðustu umferð fóru Valskonur á Selfoss og unnu þar 1-0 í spennandi leik, Anna Rakel Pétursdóttir skoraði eina mark leiksins.


Fyrir leik
Þróttur
Þegar deildin er akkurat hálfnuð eftir 9 umferðir sitja Þróttarar í 5. sæti deildarinnar með 16 stig, þær hafa unnið 5 leiki, gert eitt jafntefli og tapað 3 leikjum.

Í síðustu umferð fékk Þróttur Breiðablik í heimsókn og fór sá leikur 0-3 fyrir Breiðablik.


Fyrir leik
Bæði lið eiga fulltrúa í U23 ára landsliði Íslands
U23 ára landslið Íslands mætir A landsliðið Eistalands í vináttulandsleik föstudaginn 24. júní.
Bæði Þróttur og Valur eiga tvo fulltrúa í þeim hópi, Ásdísi Kareni Halldórsdóttur og Ídu Marín Hermannsdóttur úr Val og úr Þrótt eru það þær Andrea Rut Bjarnadóttir og Sóley María Steinarsdóttir.


Ásdís Karen Halldórsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir
Fyrir leik
Síðasti umferðin fyrir EM frí
Eftir leiki dagsins fer Besta deild kvenna í 7 vikna langt landsleikjahlé vegna EM í Englandi sem fram fer í næsta mánuði.

Á dögunum var tilkynnt hvaða 23 leikmenn færu til Englands með kvennalandsliðið Íslands, þrír leikmenn Vals eru í hópnum, Sandra Sigurðardóttir, Elín Metta Jenssen og Elísa Viðarsdóttir


Elísa Viðarsdóttir og Sandra Sigurðardóttir
Fyrir leik
Velkomin kæru lesendur Fótbolta.net í beina textalýsingu frá leik Þróttar og Vals í 10. umferð Bestu deildar kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 á heimavelli Þróttar í Laugardalnum.
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
6. Mist Edvardsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
9. Ída Marín Hermannsdóttir ('74)
11. Anna Rakel Pétursdóttir
13. Cyera Hintzen
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('29)

Varamenn:
12. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
15. Hailey Lanier Berg ('74)
19. Bryndís Arna Níelsdóttir ('29)
22. Mariana Sofía Speckmaier
24. Mikaela Nótt Pétursdóttir
26. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
María Hjaltalín
Matthías Guðmundsson
Gísli Þór Einarsson
Mark Wesley Johnson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: