Fylkir
2
2
Afturelding
Mathias Laursen '14 1-0
Orri Sveinn Stefánsson '21 2-0
2-1 Elmar Kári Enesson Cogic '50
2-2 Aron Elí Sævarsson '93 , víti
01.07.2022  -  19:15
Würth völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 389
Maður leiksins: Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
4. Arnór Gauti Jónsson ('76)
5. Orri Sveinn Stefánsson
9. Mathias Laursen ('86)
10. Benedikt Daríus Garðarsson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('76)
17. Birkir Eyþórsson ('82)
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Hallur Húni Þorsteinsson
27. Arnór Breki Ásþórsson

Varamenn:
30. Guðmundur Rafn Ingason (m)
3. Unnar Steinn Ingvarsson ('82)
6. Frosti Brynjólfsson ('76)
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('76)
15. Axel Máni Guðbjörnsson
22. Ómar Björn Stefánsson ('86)
77. Óskar Borgþórsson

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Þórður Gunnar Hafþórsson ('70)
Arnór Breki Ásþórsson ('88)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('92)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þessari miklu skemmtun lokið. Þvílík dramatík í lokin hérna.

Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
93. mín Mark úr víti!
Aron Elí Sævarsson (Afturelding)
Setur boltann í mitt markið.

Ólafur fer í hægra hornið og náði ekki til boltans.
92. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)
92. mín
VÍTASPYRNA FYRIR AFTURELDINGU!!

Brot í teig eftir hornspyrnu klaufalegt hjá Ásgeiri.
90. mín
Venjulegum leiktíma lokið.

Það er talað um 5 mínútur í uppbót.
89. mín
Inn:Sigurður Gísli Bond Snorrason (Afturelding) Út:Hrafn Guðmundsson (Afturelding)
88. mín Gult spjald: Arnór Breki Ásþórsson (Fylkir)
Fyrir leiktöf
86. mín
Inn:Sævar Atli Hugason (Afturelding) Út:Jökull Jörvar Þórhallsson (Afturelding)
86. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (Fylkir) Út:Mathias Laursen (Fylkir)
82. mín
Inn:Unnar Steinn Ingvarsson (Fylkir) Út:Birkir Eyþórsson (Fylkir)
81. mín Gult spjald: Jökull Jörvar Þórhallsson (Afturelding)
80. mín
Frosti með góðan sprett upp kantinn og setur boltann fyrir þar sem Benedikt nær til boltans en skotið er hrikalega slakt og fer nær innkasti en markinu.
78. mín
Elmar Kári með fínan skalla á fjærstöng sem er varið af Ólafi.
77. mín
Andi Hoti hársbreidd frá því að skora sjálfsmark eftir að reyna verjast fyrirgjöf. Það gerðist þó ekki en hann gaf horn sem ekkert varð úr.
76. mín
Inn:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)
76. mín
Inn:Frosti Brynjólfsson (Fylkir) Út:Arnór Gauti Jónsson (Fylkir)
72. mín
Hrafn með skot fyrir utan teig rétt yfir.
70. mín Gult spjald: Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)
65. mín
Þetta var alveg skelfilegt hjá honum Mathias Laursen.

Fylkismenn setja langan bolta fram og eru allt í einu orðnir 4 á móti einum. Mathias ákveður hinsvegar að gera þetta bara sjálfur og missir boltann í stað þess að gefa á samherja.

Hrikalega illa farið með gott færi.
60. mín
Aukaspyrna fyrir Fylki í mjög góðri skotstöðu.

Skotið frá Arnóri Breka hátt yfir.
58. mín
Boltinn fer endana á milli núna og þetta er að verða mjög skemmtilegur leikur.
57. mín
Inn:Gísli Martin Sigurðsson (Afturelding) Út:Pedro Vazquez (Afturelding)
Var farinn að virka mjög þreytulegur.
56. mín
DAUÐAFÆRI fyrir Benedikt!

Vörn Aftureldingar alveg með allt niðrum sig. Andi Hoti reynir sendingu yfir á Gunnar en Benedikt kemst inn á milli og er einn á móti markmanni. Esteve Pena gerir mjög vel að verja þetta.
54. mín
Fylkismenn sækja hratt upp hægri kantinn en boltinn er aðeins of lengi að koma inn í teig. Skotið verður því erfiðara fyrir Benedikt en hann vinnur horn.

Hornin urðu 2 og var töluverð hætta af báðum en gestirnir fá aukaspyrnu fyrir brot á markmanni.
50. mín MARK!
Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Stoðsending: Jökull Jörvar Þórhallsson
Frábært skot fyrir utan teig!

Gestirnir leika skemmtilega á milli sín á hægri kantinum með stuttum sendingum. Jökull færir hann svo út á Elmar sem lætur bara vaða og hann siglir í fjærhornið.

2-1 við erum komin með leik!
46. mín
Fylkir byrjar af áreiðni. Benedikt tekur mikinn sprett upp vinstri kantinn og setur hann svo út á Nikúlás sem tekur skotið en það fer í varnarmann.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikurinn farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Þá er kominn hálfleikur í þessum leik. Fín færi á báða bóga en mistök gestana í vörninni hafa verið þeim að falli.

Sjáumst eftir korter.
43. mín
Afturelding vinnur hornspyrnu.

Hún er tekin lágt meðfram jörðinni á Aron sem kemur með skemmtilega sendingu inn á miðja teiginn þar sem Andi Hoti nær skallanum.

Ólafur Kristófer þarf þá að hafa sig allan við að verja skotið.
39. mín
Þetta var virkilega huggulegt frá Pedro.

Tekur þríhyrninginn með Kára og hælar boltann yfir á hann. Færið er hinsvegar full þröngt þannig það er varið.
36. mín
Gestirnir aðeins að ógna eins og oftast í gegnum Pedro. Sendingin hans inn á teig nær á Elmar en skotið hans í varnarmann.
32. mín
Þetta var frábær sending frá Hrafn yfir á Elmar. Elmar tekur gott hlaup og er rétt svo réttstæður og er þá sloppinn í gegn. Fylkismenn eru hinsvegar fljótir að bregðast við og gera skotið frá Elmari erfitt og því fer það framhjá.
28. mín
Pedro tekur á sprettinn upp vinstri kantinn og reynir skotið fyrir utan teig en það fer vel framhjá.
21. mín MARK!
Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
Stoðsending: Arnór Breki Ásþórsson
Einföld hornspyrna og mark

Arnór Breki tekur hornspyrnuna og setur boltann mjög nálægt marki á fjærstöng. Þar er Orri frekastur og stangar boltan inn.

Spurning hvort að Esteve Pena hefði átt að ná í þennan bolta.
18. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ AFTURELDINGU!!

Elmar Kári fær boltan ínn í teig og er aleinn gegn markmanni en skotið hans er varið en beint út í teig þar sem Aron Elí tekur skotið viðstöðulaust en það fer í slánna.

Þetta var ótrúleg atburðarrás.
14. mín MARK!
Mathias Laursen (Fylkir)
Hrikaleg mistök hjá gestunum!

Esteve Pena tekur markspyrnu og setur hann stutt á Gunnar. Mathias pressar strax á hann og vinnur bara boltan af honum.

Þá var eftirleikurinn einfaldur og hann skorar auðveldlega.
10. mín
Leikurinn fer nokkuð hægt af stað bæði lið aðeins að finna tempóið í leiknum
8. mín
Lið Aftureldingar:

Albons
Georg - Gunnar - Andi - Aron
Kári - Ásgeir - Jökull
Elmar - Hrafn - Pedro
6. mín
Lið Fylkis:

Ólafur
Hallur - Orri - Ásgeir - Arnór Breki
Arnór Gauti - Nikulás
Þórður - Birkir - Benedikt
Mathias
5. mín
Arnór Gauti tekur langt innkast sem er mjög gott en Fylkismenn í teignum ekki nógu grimmir og gestirnir hreinsa.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta farið af stað. Vona að við fáum hörkuleik!
Fyrir leik
Þá labba dómararnir fremstir í röð inn á völlinn og leikmenn þar í fylgd. Leikurinn fer að hefjast!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin

Fylkir gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði 1-0 fyrir Ægi í bikarnum á dögunum. Það eru þeir Arnór Gauti Jónsson og Matthias Laursen sem koma inn í liðið á kostnað Frosta Brynjólfssonar sem sest á bekkinn og Daða Ólafssonar sem er ekki í hóp.

Afturelding gerir enga breytingu á liðinu sem tapaði fyrir Kórdrengjum í bikarnum en þá er áhugavert að Siggi Bond heldur áfram að sitja á bekknum.
Fyrir leik
Dómari leiksins

Pétur Guðmundsson mun sjá um dómgæslu hér í kvöld og honum til halds og trausts verða þeir Óli Njáll Ingólfsson og Friðleifur Kr Friðleifsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.
Fyrir leik
Fyrsta skipti sem liðin mætast í deildarleik

Í ár er fyrsta skiptið sem þessi lið eru í sömu deild og því sögulegur leikur sem fer hér fram. Liðin hafa þó mæst í bikarnum 4 sinnum en Fylkir hefur unnið alla þá leiki með samanlagða markatölu 13-4. Hinsvegar er frekar langt síðan síðasti leikur fór fram en það var árið 2000.
Fyrir leik
Afturelding að komast í gírinn

Afturelding hóf tímabilið mjög illa og voru ekki komnir með sigur eftir 6 leiki. Nú hafa þeir unnið 2 leiki í röð en þeir leikir voru gegn Þór og Þrótti Vogum sem sitja í 10. og 12. sæti deildarinnar. Markaskorun hefur verið aðal vandalmál liðsins en þeir hafa bara skorað 10 mörk í deildinni í allt sumar og 4 þeirra marka kom í síðasta leik gegn Þór.
Aron Elí Sævarsson er markahæsti leikmaður Aftureldingar með 2 mörk.
Fyrir leik
Fylkir spilað undir væntingum

Flestir bjuggust við því fyrir tímabil að Fylkir myndi ganga frá þessari deild. Það hefur hinsvegar ekki alveg verið sagan og deildin verið mjög jöfn. Fylkir situr í 4. sæti með 14 stig og hafa unnið 4 af þeim 8 leikjum sem þeir hafa spilað. Þeir eiga þó möguleika að komast í efsta sætið með sigri í dag.

Benedikt Daríus Garðarsson er markahæsti leikmaður Fylkis hingað til.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá Wurt vellinum í Árbænum. Leikurinn hefst klukkan 19:15
Byrjunarlið:
1. Esteve Pena Albons (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
10. Kári Steinn Hlífarsson
14. Jökull Jörvar Þórhallsson ('86)
17. Ásgeir Frank Ásgeirsson
21. Elmar Kári Enesson Cogic
23. Pedro Vazquez ('57)
25. Georg Bjarnason
26. Hrafn Guðmundsson ('89)
33. Andi Hoti

Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
3. Ísak Atli Kristjánsson
5. Oliver Beck Bjarkason
7. Sigurður Gísli Bond Snorrason ('89)
8. Guðfinnur Þór Leósson
9. Javier Ontiveros Robles
11. Gísli Martin Sigurðsson ('57)

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Wentzel Steinarr R Kamban
Heiðar Númi Hrafnsson
Enes Cogic
Amir Mehica
Davíð Örn Aðalsteinsson

Gul spjöld:
Jökull Jörvar Þórhallsson ('81)

Rauð spjöld: