Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Víkingur R.
2
0
The New Saints
Kristall Máni Ingason '29 , víti 1-0
Kristall Máni Ingason '57 , víti 2-0
21.07.2022  -  19:30
Víkingsvöllur
Sambandsdeild UEFA
Aðstæður: Þungskýjað og smá gola.
Dómari: Peter Kralovic (Slóvakía)
Maður leiksins: Kristall Máni Ingason
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson
10. Pablo Punyed (f)
17. Ari Sigurpálsson ('76)
18. Birnir Snær Ingason ('76)
20. Júlíus Magnússon (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
80. Kristall Máni Ingason

Varamenn:
99. Uggi Jóhann Auðunsson (m)
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson ('76)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
12. Halldór Smári Sigurðsson
14. Jóhannes Geirdal
15. Bjarki Björn Gunnarsson
19. Danijel Dejan Djuric
23. Nikolaj Hansen ('76)
24. Davíð Örn Atlason

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Þórður Ingason

Gul spjöld:
Pablo Punyed ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Karl Friðleifur með flotta fyrirgjöf inná teiginn, finnur Helga sem á skalla framhjá.

Í kjölfarið er flautað til leiksloka. Víkingar leiða með tveimur mörkum eftir þennan fyrri leik liðanna!
92. mín
Mcmanus reynir skot við vítateig Víkings en það fer framhjá.
91. mín
Tveimur mínútum bætt við.
90. mín Gult spjald: Pablo Punyed (Víkingur R.)
Gult fyrir tuð!
89. mín
Erlingur fær boltann úti hægra megin, rennir boltanum fyrir en Pask er þar mættur og hreinsar í horn.

Pask skallar spyrnuna frá Pablo í burtu.
88. mín
Kristall vinnur hornspyrnu.

Tekið stutt, Logi reynir að finna Pablo inná teignum en gestirnir koma boltanum í burtu.
86. mín
Inn:Jake Canavan (The New Saints) Út:Josh Daniels (The New Saints)
Síðasta skipting gestanna.
85. mín
Víkingar eru í leit að þriðja markinu.
82. mín
Logi með hættulega fyrirgjöf en gestirnir sleppa þarna.
78. mín
Helgi fær boltann úti á vinstri kantinum, kemst inná teiginn og rennir boltanum út. Hann nær ekki að finna samherja og sóknin rennur út í sandinn.
77. mín
Gestirnir eiga hornspyrnu.

Of hár bolti og engin hætta.
76. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)
76. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
72. mín
Inn:Jon Routledge (The New Saints) Út:Ben Clark (The New Saints)
72. mín
Logi finnur Oliver með hornspyrnu sinni en Oliver er dæmdur brotlegur.
71. mín
Pask kemur í veg fyrir mark!

Og það í tvígang. Ari með frábæran sprett inná teiginn, finnur Kristal sem á skot sem Pask kemst fyrir. Birnir Snær á svo þrumuskot sem Pask kemst fyrir.
69. mín
Kristall fellur við vítateig TNS og ekkert er dæmt, virkaði ekki mikið brot hjá Williams en Víkingar eru kannski ekki á sama máli.
66. mín
Tvær fínar fyrirgjafir hjá gestunum.

Mcmanus nálægt því að koma seinni á markið með höfðinu en stýrir boltanum of mikið til hliðar og sóknin rennur út í sandinn.
66. mín
Inn:Ryan Brobbell (The New Saints) Út:Leo Smith (The New Saints)
63. mín
Logi gerir vel að hreinsa upp eftir mistök frá Oliver.

Slök sending sem varð til þess að gestirnir komust í skyndisókn.

Þeir fá hornspyrnu en ekkert kom upp úr henni, boltinn beint í hendurnar á Ingvari.
62. mín Gult spjald: Declan Mcmanus (The New Saints)
Fyrir tuð!

Lítið gengið hjá Mcmanus í dag.
60. mín
Aðeins mislagðar fætur hjá Erlingi í góðri stöðu við teiginn, hefði getað fundið fyrst Ara og svo Kristal en nær ekki að koma boltanum frá sér.
57. mín Mark úr víti!
Kristall Máni Ingason (Víkingur R.)
Kristall tekur aftur smá hopp, hikar í aðhlaupinu og setur boltann núna í hitt hornið!

2-0!
56. mín
AFTUR VÍTI!!!

Kristall Máni fer niður og fær víti!

Pask dæmdur brotlegur, þetta var ansi harður dómur fannst mér.
56. mín
Víkingar hafa ekki fundið sama taktinn og þeir voru komnir í í fyrri hálfleik.
54. mín
Karl Friðleifur með fyrirgjöf sem fer af leikmanni TNS og afturfyrir. Logi Tómasson tekur hornspyrnu.

Astles skallar í burtu, Kristall á svo fyrirgjöf sem Roberts grípur.
52. mín
Mcmanus með skot úr teignum sem fer í Mclagan og afturfyrir. Gestirnir eiga hornspyrnu.

Spyrnan frá Cieslewicz en Ekroth skallar í burtu.
50. mín
Cieslewicz liggur eftir og þarf aðhlynningu.
48. mín
Kristall vinnur hornspyrnu fyrir Víking.

Tekur spyrnuna stutt á Pablo og reynir fyrirgjöf sem fer í varnarmann og út fyrir hliðarlínu.
46. mín
Seinni hálfleikur fer af stað. Þeir velsku fara í þriggja hafsenta kerfi. Marriott er vinstra megin, Astles fyrir miðju og Pask er hægra megin. Óbreytt hjá Víkingi.
46. mín
Inn:Jordan Williams (The New Saints) Út:Daniel Davies (The New Saints)
Hægri bakvörðurinn Davies fer af velli. Cieslewicz fer af vinstri kantinum í hægri vængbakvörðinn. Williams fer í vinstri vængbakvörðinn.
45. mín
Hálfleikur
Víkingur er miklu betra lið en TNS, heimamenn nýta sér vonandi yfirburði sína í seinni hálfleik og bæta við mörkum.
45. mín
Hálfleikur
45+2

Pablo með háa fyrirgjöf en hún er of há og fer afturfyrir.

Dómari leiksins flautar til hálfleiks þegar Roberts sparkar fram.
45. mín
45+1

Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleikinn.
41. mín
Júlíus með frábæra sendingu innfyrir á Kristal en hann er dæmdur rangstæður!

Logi Tómasson var klár á fjærstönginni, vinstri bakvörðurinn hefur verið líklegur í sóknarleik Víkinga í fyrri hálfleik.
39. mín
Birnir reynir að finna Erling inná teignum en varnarmaður TNS nær að bjarga því að Erlingur komist í dauðafæri.

Svo á Júlíus skot sem Astles kemst fyrir.
39. mín
Pablo dæmdur brotlegur á miðjum vallarhelmingi Víkings.

Marriott tekur spyrnuna inn á teiginn en Ingvar er í engum vandræðum með þetta.

Skömmu síðar á Mcmanus tilraun vel fyrir utanteig og það fer langt framhjá.
37. mín
Ekroth með skallann yfir mark TNS eftir hornspyrnuna frá Pablo.
36. mín
Logi aftur!

Boltinn endar, eftir fyrirgjöf frá Karli, á hægri löppinni á Loga inn á teignum, hann lætur vaða en skotið fer af Davies og þaðan afturfyrir.

Víkingur á horn.
35. mín
Logi!

Með þrumuskot úr teignum eftir fyrirgjöf frá Ara. Pask komst fyrir og kom sennilega í veg fyrir mark.
33. mín
Erlingur dæmdur brotlegur við vítateig gestanna, brotlegur í pressu gegn Redmond.
32. mín
Gestirnir fá sína fyrstu hornspyrnu í leiknum. Karl kemur boltanum aftur fyrir.

Cieslewicz tók spyrnuna en gestirnir dæmdir brotlegir þegar boltinn er í loftinu.
31. mín

Hafliði Breiðfjörð er með myndavélina á lofti
30. mín

Fyrirliðinn og Kristall
30. mín
29. mín Mark úr víti!
Kristall Máni Ingason (Víkingur R.)
Tekur smá hik í aðhlaupinu og rúllar svo boltanum örugglega í hægra markhornið, ekkert vesen!

Virkilega verðskuldað miðað við síðustu tuttugu mínútur af leiknum.
28. mín
Víti!

Brotið á Ara! Víkingur á víti. Smith brýtur á Ara inná vítateignum eftri að Logi flikkaði boltann áfram inná teignum.

Kristall tekur!
25. mín
Davies fær aðhlynningu, sennilega ennþá að finna fyrir skotinu frá Kristali áðan.
24. mín
Karl Friðleifur aftur dæmdur brotlegur eftir horn. Arnar allt annað en sáttur við dóminn.
23. mín
Kristall aftur!
Gæti verið kominn með þrennu! Erlingur röltir framhjá Astles inná teignum, rennir boltanum á Kristal sem leggur boltann fyrir sig og lúðrar svo á markið. Hægri bakvörðurinn Davies hendir sér fyrir skotið og boltinn fer afturfyrir.
22. mín
Pablo reynir tilraun fyrir aftan miðju eftir að hann les sendingu frá Davies. Tilraunin er hins vegar ekkert sérstök og það er engin hætta, boltinn rúllar til Roberts inná vítateig gestanna.
21. mín
Kristall með hornspyrnuna, finnur Oliver sem á skalla en hann er framhjá.
20. mín
Kristall Máni!
Frábærir taktar inná teignum, tekur snúning eftir sendingu frá Erlingi, kemur sér í skotfæri en Roberts ver!

Víkingur á horn.
20. mín
Pablo reynir fyrirgjöf en Astles er vel staðsettur og hreinsar í innkast.
18. mín
Pablo dæmdur brotlegur við hornfánann á vallarhelmingi Víkings. Góð fyrirgjafarstaða fyrir gestina.

Marriott með fyrirgjöfina inná teiginn en Ingvar ekki í neinum vandræðum og grípur boltann.
17. mín
Karl Friðleifur dæmdur brotlegur inná teig gestanna.
16. mín
Kristall Máni með hörkuskot!

Gott skot með vinstri fæti fyrir utan teigeftir sendingu frá Júlíusi. Roberts í markinu nær að verja og Víkingur á horn.
15. mín
Astles kemur í veg fyrir að Kristall finni Erling í gegn. Furðu lipur miðað við stærð!

'An absolute unit' eins og Bretinn myndi segja.
12. mín
Kristall með hornspyrnuna sem Mcmanus skallar yfir eigið mark og Víkingur á aðra hornspyrnu.

Ekkert kom upp úr henni.
11. mín
Erlingur með fyrirgjöf sem Redmond rennir sér fyrir og kemur yfir mark gestanna, alls ekki nálægt því að vera sjálfsmark!

Fyrsta hornspyrna leiksins.
11. mín
Erlingur reynir að finna Kristal inná teignum en sendinginn aðeins of innarlega. Gott spil hjá Víkingum á undan, þeir aðeins að finna taktinn.
10. mín
Pablo!
Virkilega skemmtileg tilraun fyrir utan teig eftir sendingu frá Erlingi.

Reynir að skrúfa boltann í fjærhornið en boltinn fer rétt yfir!
6. mín
Liðin svona aðeins að finna taktinn.

Gestirnir reynt langar sendingar innfyrir sem Ingvar og varnarmenn Víkings hafa leyst úr.
2. mín
Kyle í allskonar brasi!

Færir Daniels gjöf sem hann ákvað að nýta ekki. Ingvar kom út á móti og lokaði á Daniels og leysti svo úr stöðunni.
2. mín
Lið Víkings:
Ingvar
Karl - Oliver - Kyle - Logi
Ari - Júlíus - Pablo - Birnir
Erlingur
Kristall
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann!
Fyrir leik
Liðin ganga inná. Víkingar spila í rauðu og svörtu eins og hefðbundið er og TNS spilar í hvítu og grænu.
Fyrir leik
Þungir miðverðir
Maður velti því fyrir sér þegar maður sér engan Nikolaj Hansen í byrjunarliði Víkings hver pælingin sé.

Arnar sagði við Stöð 2 Sport að hugmyndin væri að vera með meira léttleikandi sóknarmenn þar sem miðverðir þeirra séu stórir og þungir. Ryan Astles er alvöru stykki.
Fyrir leik
Poznan valtaði yfir Dinamo Butami
Sigurvegarinn úr þessu einvígi mætir sigurvegaranum úr einvígi Lech Poznan og Dinamo Butami. Fyrri leik þeirra er lokið og vann Poznan risasigur, 5-0 á heimavelli.
Fyrir leik
Völlurinn er rakur, búinn að vera rigningarúði í höfuðborginni núna síðustu klukkutímana.
Fyrir leik
Dómarinn gaf FH fimm spjöld
Peter Kralovic er dómari leiksins og kemur hann frá Slóvakíu eins og allt dómarateymið. Hann hefur áður dæmt á Íslandi. Það gerði hann árið 2018 þegar hann dæmdi leik FH og Maribor í forkeppni Meistaradeildarinnar. Sá leikur fór 0-1 fyrir Maribor og fóru alls tíu gul spjöld á loft í leiknum, fimm á leikmenn FH og fimm á Maribor.
Fyrir leik
Gestirnir í 4-1-2-2-1, fjórar breytingar
Limbrick gerir fjórar breytingar frá seinni leiknum gegn Linfield. Williams, Brobbel, Routledge og Davies taka sér sæti á bekknum. Inn koma Pask, Cieslweicz, Clark og Daniels.

Roberts
Marriott - Davies - Astles - Pask
Clark
Smith - Daniels
Cieslweicz - - - - Redmond
Mcmanus
Fyrir leik
Byrjunarliðið hefur verið opinberað!
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar frá sigrinum gegn FH í Bestu deildinni. Nikolaj Hansen og Viktor Örlygur Andrason taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Birnir Snær Ingason og Kyle McLagan.

Á vef UEFA er Birni Snæ stilt upp í fremstu víglínu við hlið Kristals Mána í leikkerfinu 4-4-2.
Fyrir leik
Anthony Limbrick er 39 ára gamall Ástrali sem stýrir TNS. Hann tók við liðinu í fyrra. Hann býst við hröðum og opnum leik í dag. Hér að neðan má sjá svör hans á fréttamananfundi í gær.

Fyrir leik
Verður leikurinn á morgun öðruvísi uppettur hjá Víkingi heldur en leikur í Bestu deildinni?

,,Já, þetta eru miklu meiri 'details' einhvern veginn, við þekkjum orðið það mikið þessa stráka sem eru að spila hérna heima og hvernig liðin spila. Þannig fundirnir fyrir þá leiki eru kannski meira til að skerpa á ýmsum atriðum. En í Evrópuleikjum þekkjum við ekki neitt og þetta fer bara í smáatriði varðandi allt; varðandi innköst, hornspyrnur, hvernig þessi hreyfir sig og hvað ef eitthvað ákveðið gerist."

,,Þetta er meiri svona tölvuleikur. Við reynum bara að hlaða strákana eins miklum upplýsingum og hægt er og svo er það þeirra að 'delivera' þegar leikurinn byrjar,"
sagði Arnar.

Smelltu hér til að sjá viðtalið í heild sinni
Fyrir leik
Arnar segir að einhverjir munu verða fúlir þegar byrjunarliðið verður tilkynnt.

,,Það eru allir heilir, Halli (Halldór Smári Sigurðsson) verður á bekknum en er ekki alveg byrjaður að æfa aftur á fullu. En allir aðrir eru heilir, við fáum Kyle (McLagan) til baka og það er erfitt verkefni að velja byrjunarliðið. Það verða nokkrir sem verða súrir og svekktir."
Miðverðirnir Kyle og Oliver.
Fyrir leik
Vill ekki segja það sama eftir þetta einvígi
Eins og fyrr segir féll Víkingur úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku eftir einvígi gegn Malmö. Malmö vann einvígið 6-5 og sýndu Víkingar góða frammistöðu í leikjunum tveimur. Var erfitt að ná svekkelsinu úr kerfinu?

,,Það tók smá tíma, það fóru margir klukkutímar í að hugsa 'ef og hefði' en fyrst og fremst tókum við bara mjög jákvætt úr þessu held ég allir, hvernig við tókum á þessu verkefni og hversu vel við stóðum okkur."

,,Ég vil ekki segja hversu vel við stóðum okkur eftir þennan leik ef við komumst ekki áfram. Núna er engin gulrót eftir ef við föllum úr leik, erum bara úr leik ef við töpum þessu einvígi - engin fallhlíf lengur. Við verðum að ná góðum úrslitum á heimavelli til að eiga séns á að fara áfram."
Fyrir leik
Ég ræddi við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings í gær og spurði hann út í andstæðinginn.

,,Þetta er spennandi, þetta er allt önnur ella þessir Evrópuleikir og við erum að fara spila við andstæðinga sem eru með þekkingu úr Evrópuleikjum - náðu góðum árangri í fyrra," sagði Arnar.

TNS féll úr leik gegn Norður-Írska liðinu Linfield í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrir viku síðan. TNS er velskur meistari sem komst í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra. Þar féll liðið úr lek eftir vítaspyrnukeppni gegn Viktoria Plzen. Velska deildin byrjar eftir þrjár vikur og er TNS því á undirbúningstímabili núna.

,,Við erum að fara mæta allt öðruvísi liði, var að segja við strákana áðan að þetta væri svona 'nineties' breskt lið. Ég ólst upp við að horfa á þannig fótbolta og hafði mjög gaman af, það er allt öðruvísi fótbolti en er spilaður í dag en þeir geta líka spilað. Þeir eru í þeim 'business' að vinna leiki og kunna það mjög vel."

Arnar telur sigurlíkur Víkings mjög góðar. ,,Ég held að leikirnir á móti Malmö, Levadia og Inter hafi gefið okkur mikið sjálfstraust og þekkingu hvernig á að spila Evrópuleiki - hvernig á að nálgast það verkefni. Það eru miklu fleiri smáatriði sem þarf að hafa í huga og við erum orðnir nokkuð sjóaðir eftir þessa fjóra Evrópuleiki. Ég tel möguleika okkar vera mjög góða."
Fyrir leik
TNS er velskur meistari og fer yfir í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir tap gegn norður-írska liðinu Linfield í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Víkingur var líka í forkeppni Meistaradeildarinnar og þar lá liðið gegn sænsku meisturunum í Malmö.
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Um er fyrri leik liðanna er að ræða í 2. umferð. Seinni leikurinn fer svo fram í Wales á þriðjudag.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
25. Connor Roberts (m)
2. Josh Pask
3. Chris Marriott
5. Ryan Astles
7. Josh Daniels ('86)
9. Declan Mcmanus
10. Daniel Redmond
11. Adrian Cieslewicz
19. Ben Clark ('72)
21. Leo Smith ('66)
22. Daniel Davies ('46)

Varamenn:
1. Daniel Atherton (m)
4. Keston Davies
6. Jon Routledge ('72)
8. Ryan Brobbell ('66)
17. Jordan Williams ('46)
27. Jake Canavan ('86)
34. Billy Kirkman
35. Joshua Lock
37. Nicholas Grogan
38. Reece Warder
47. Beau Cornish

Liðsstjórn:
Anthony Limbrick (Þ)

Gul spjöld:
Declan Mcmanus ('62)

Rauð spjöld: