Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Fylkir
4
3
Selfoss
Emil Ásmundsson '4 1-0
Birkir Eyþórsson '41 2-0
Emil Ásmundsson '45 3-0
3-1 Gary Martin '47
3-2 Valdimar Jóhannsson '60
Birkir Eyþórsson '63 4-2
4-3 Hrvoje Tokic '90 , víti
18.08.2022  -  19:15
Würth völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Maður leiksins: Emil Ásmundsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('71)
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('79)
16. Emil Ásmundsson ('67)
17. Birkir Eyþórsson ('71)
18. Nikulás Val Gunnarsson ('79)
27. Arnór Breki Ásþórsson

Varamenn:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
6. Frosti Brynjólfsson
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('71)
22. Ómar Björn Stefánsson ('79)
77. Óskar Borgþórsson ('71)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Daði Ólafsson
Ragnar Bragi Sveinsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Michael John Kingdon
Ágúst Aron Gunnarsson
Olgeir Sigurgeirsson
Smári Hrafnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Viðtöl og umfjöllun á leiðinni.
90. mín
Selfoss fékk hornspyrnu í uppbótartíma en Fylkir kom boltanum í burtu. Það hefði verið rosalega svekkjandi fyrir Fylkismenn ef þeir hefðu skorað.
90. mín Mark úr víti!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Ásgeir Börkur braut á Gonzalo Zamorano sem keyrði inn á teig Fylkismanna. Hrvoje Tokic setti boltan upp í vinkilinn vinstrameginn.
88. mín
Inn:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss) Út:Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
88. mín
Inn:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss) Út:Danijel Majkic (Selfoss)
81. mín Gult spjald: Adam Örn Sveinbjörnsson (Selfoss)
Óskar Borgþórsson fór einn á móti einum á Adam sem missti Óskar framhjá sér en stöðvaði för hans með tæklingu rétt fyrir utan vinstri hlið vítateigs Selfyssinga.
79. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (Fylkir) Út:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
79. mín
Inn:Daði Ólafsson (Fylkir) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)
71. mín
Inn:Þormar Elvarsson (Selfoss) Út:Guðmundur Tyrfingsson (Selfoss)
71. mín
Inn:Óskar Borgþórsson (Fylkir) Út:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
71. mín
Inn:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir) Út:Birkir Eyþórsson (Fylkir)
67. mín
Inn:Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir) Út:Emil Ásmundsson (Fylkir)
64. mín Gult spjald: Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
Valdimar var of seinn í tæklingu á Orra Svein, réttilega dæmd aukaspyrna og gult.
63. mín MARK!
Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Fylkismenn spiluðu sig upp að endamörkum hægra meginn. Boltinn skorinn út í teiginn þar sem Birkir stóð einn og óvaldaður fyrir framan markteig gestanna.
60. mín MARK!
Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
Boltinn hrökk fyrir fætur Valdimars sem stóð við stöngina hægra meginn. Selfyssingar tóku aukaspyrnu aðeins vinstra megin á miðjum vallarhelming Fylkismanna. Selfyssingar skölluðu boltann að marki. Ólafur varði boltann, það var ekki nóg vegna þess að boltinn hrökk til Valdimars og eftirleikurinn auðveldur.
58. mín
Hrvoje Tokic með skot af vítateigslínunni eftir að hafa fengið boltann frá Gonzalo Zamorano sem fékk boltann á vinstri kantinum og kom með sendinguna inn á miðjann völlinn á vítateigslínunni.
55. mín
Gonzalo Zamorano með skot framhjá markinu eftir að hafa sótt inn af vinstri kantinum og prjónað sig inn á miðjan teig Fylkismanna.
50. mín
Þórður Gunnar með skot framhjá marki gestanna rétt fyrir utan markteig einn og óvaldaður, eftir að boltinn hrökk til hans eftir frábæra sókn upp hægri kantinn.
47. mín MARK!
Gary Martin (Selfoss)
Já! Gary Martin með skot upp í samskeytin eftir að hafa fengið boltann vinstra megin í teignum. Selfoss sótti upp vinstra meginn, boltinn sendur inn í teiginn, Gary tók eina snertingu og skaut frábæru skoti á markið með fyrrnefndum afleiðingum.
47. mín
Nikulás Val með skot beint á Stefán Þór. Nikulás var einn og óvaldaður inni í teig gestanna. Nokkarar sekúndur liðnar af seinni hálfleik og heimamenn strax komnir í dauðafæri.
46. mín
Inn:Gonzalo Zamorano (Selfoss) Út:Aron Darri Auðunsson (Selfoss)
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
45. mín MARK!
Emil Ásmundsson (Fylkir)
Vippar boltanum yfir Stefán Þór! Orri Sveinn með frábæra sendingu inn fyrir vörn Selfyssinga sem stóð hátt á vellinum þrátt fyrir að engin pressa hafi verið á boltamanninum. Fylkir lét boltann ganga langa stund án þess að leikmenn Selfoss sýndu lítinn áhuga á að vinna boltann.
43. mín Gult spjald: Aron Darri Auðunsson (Selfoss)
Selfoss í sókn. Aron Darri nálgaðist teig Fylkismanna en missti boltann of langt frá sér og endaði á að tækla Fylkismann.
41. mín MARK!
Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Renndi boltanum í markið af stuttu færi. Benedikt Daríus með fyrirgjöf með jörðinni frá endalínu vinstra megin. Frábært spil Fylkismanna og loksins setja þeir annað markið eftir að hafa brennt af nokkrum.
35. mín
Selfoss með skot að marki Fylkis eftir hornspyrnu frá vinstri. Boltinn hafði viðkomu í Selfyssing á leiðinni á mitt markið, þar sem mikill pakki manna stóð.
33. mín
Langur bolti fram yfir vörn gestanna á Nikulás Val sem sendi boltann fyrir markið á Benedikt Daríus sem var nánast einn fyrir opnu marki en þurfi að teygja sig aðeins of mikið í boltann og setti hann framhjá markinu.
31. mín Gult spjald: Þorsteinn Aron Antonsson (Selfoss)
Þorsteinn braut á Birki rétt fyrir utan teig eftir að hafa misst boltann klaufalega. Aukaspyrnunaa tók Arnór Breki en varnarveggur Selfyssinga kom í veg fyrir að boltinn færi að markinu. Boltinn hrökk hinsvegar til Þórðar Gunnars sem átti máttlítið skot að marki gestanna. Boltinn endaði í fangi Stefáns Þór eftir viðkomu í varnarmanni gestanna.
30. mín
Eftir 30 mínútur hafa Fylkismenn haft algjöra yfirburði úti á vellinum. Selfyssingar eiga erfitt með að halda boltanum og eru langt frá heimamönnum varnarlega.
24. mín
Fylkir í sókn. Nikulás Val einn á móti Stefáni Þór með Þorstein Aron í bakinu. Birkir Eyþórs laumaði boltanum innfyrir vörn Selfyssinga. Stefán Þór lokaði vel á Nikulás. Selfyssingar heppnir að vera ekki lentir 2-0 undir.
16. mín
Þórður Gunnar í þröngu færi hægra megin í markteig Selfyssinga eftir að Birkir Eyþórs þræddi bolann í gegn. Þórður setti boltann framhjá markinu fjær.
14. mín
Benedikt Daríus komst einn á móti Stefáni Þór þgar hann tók Adam Örn auðveldlega á vinstra megin í teig gestanna. Stefán lokaði markinu vel og fékk boltann beint í sig.
11. mín
Hrvoje Tokic með fyrsta skot Selfoss nokkrum metrum fyrir utan teig heimamanna. Boltinn var allan tímann á leiðinni yfir markið. Engin hætta.
9. mín
Birkir Eyþórsson leggur boltann með vinstri beint á Stefán Þór í marki Selfyssinga. Aftur fara Fylkismenn upp hægra meginn, Þórður Gunnar fékk boltann úti á kanti einn á móti Þór Llorens, vinstri bakverði Selfyssinga, Þórður Gunnar tók á þegar hann nálgaðist endamörkin skar hann boltann út í miðjan teiginn þar sem Birkir mætti.
6. mín
Emil Ásmundsson með skalla framhjá marki Selfyssinga. Emil var einn og óvaldaður þegar Þórður Gunnar fékk boltann við endalínu hægramegin eftir frábært spil heimamanna. Fyrirgjöf Þórðar var frábær beint á Emil sem hefði viljað gera betur.
4. mín MARK!
Emil Ásmundsson (Fylkir)
Arnór Breki tók aukaspyrnu frá hægri nálægt endalínu með vinstri fæti. Boltinn fór inn á miðjan markteginn þar sem Ásgeir Eyþórsson sneiðir boltann aftur fyrir sig þar sem Emil Ásmundsson setur boltann í Stefán Þór í marki Seflyssinga, þaðan í slánna og inn!
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað, það eru Selfyssingar sem hefja leik. Góða skemmtun.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár. Rúnar Páll, þjálfari Fylkis gerir eina breytingu á sínu liði. Út fer Mathias Laursen Cristensen sem er í banni og inn kemur Benedikt Daríus Garðarsson.

Dean Martin, þjálfari Selfoss, gerir tvær breytingar á sínu liði, Jón Vignir Pétursson er í leikbanni og Gonzalo Zamorano fer einnig út og inn koma Valdimar Jóhannsson og Þór Llorens Þórðarsson.
Fyrir leik
Með heimasigri kemst Fylkir í efsta sæti deildarinnar og hoppar þar með yfir HK sem missteig sig í síðustu umferð á móti Þórsurum. Selfoss er með 11 stigum minna en Fylkir og eru í 5.sæti deildarinnar.
Fyrir leik
Góða kvöldið og hjartanlega velkomin til leiks á Würth völlinn í Árbænum. Framundan er stórleikur Fylkis og Selfoss í 17.umferð Lengjudeildar karla.
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
6. Danijel Majkic ('88)
7. Aron Darri Auðunsson ('46)
8. Ingvi Rafn Óskarsson
9. Hrvoje Tokic
10. Gary Martin
17. Valdimar Jóhannsson ('88)
20. Guðmundur Tyrfingsson (f) ('71)
22. Adam Örn Sveinbjörnsson
22. Þorsteinn Aron Antonsson
23. Þór Llorens Þórðarson

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson
3. Þormar Elvarsson ('71)
3. Reynir Freyr Sveinsson
4. Jökull Hermannsson
19. Gonzalo Zamorano ('46)
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('88) ('88)

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Stefán Logi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Guðjón Björgvin Þorvarðarson
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir

Gul spjöld:
Þorsteinn Aron Antonsson ('31)
Aron Darri Auðunsson ('43)
Valdimar Jóhannsson ('64)
Adam Örn Sveinbjörnsson ('81)

Rauð spjöld: