Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Í BEINNI
Meistarar meistaranna konur
Valur
90' 1
1
Víkingur R.
Víkingur R.
5
3
KR
Erlingur Agnarsson '31 1-0
Birnir Snær Ingason '36 2-0
2-1 Theodór Elmar Bjarnason '45
Ari Sigurpálsson '55 3-1
3-2 Atli Sigurjónsson '66
3-3 Sigurður Bjartur Hallsson '84 , víti
Helgi Guðjónsson '87 , víti 4-3
Sigurður Steinar Björnsson '89 5-3
18.08.2022  -  20:00
Víkingsvöllur
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Rigning og blankalogn! Völlurinn rennblautur.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Pablo Punyed
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed (f)
17. Ari Sigurpálsson
18. Birnir Snær Ingason ('78)
19. Danijel Dejan Djuric
20. Júlíus Magnússon (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('27)

Varamenn:
9. Helgi Guðjónsson ('27)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
14. Sigurður Steinar Björnsson ('78)
26. Jóhannes Dagur Geirdal
26. Jóhannes Karl Bárðarson
30. Tómas Þórisson

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Sölvi Ottesen
Kári Árnason
Þórður Ingason
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Víkingur fer áfram í 8-liða úrslit eftir átta marka leik gegn KR!! 5-3 sigur staðreynd.
93. mín
Inn:Kjartan Henry Finnbogason (KR) Út:Þorsteinn Már Ragnarsson (KR)
92. mín
Blæðir úr Þorsteini Má sem þarf á aðhlynningu að halda.
91. mín
Þremur mínútum bætt við.
90. mín
KR á horn. Ekkert kom upp úr þessu, Ingvar handsamar boltann.
89. mín MARK!
Sigurður Steinar Björnsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Pablo Punyed
Sigurður Steinar Björnssson!!

Hann er að innsigla sigurinn fyrir Víking. Þeir eru á leið í undanúrslit bikarsins!

Sigurður, sem er átján ára, á skot á milli fóta Arnórs og Beitir ræður ekki við þetta.
88. mín
Inn:Kristján Flóki Finnbogason (KR) Út:Aron Þórður Albertsson (KR)
Áðan fór Ari út af hjá Víkingum fyrir leikmann númer 30 sem ég finn ekki á skýrslunni minni.
87. mín Mark úr víti!
Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Danijel Dejan Djuric
Víkingar aftur komnir yfir!
Helgi ískaldur og leggur boltann í netið!
87. mín Gult spjald: Theodór Elmar Bjarnason (KR)
86. mín
Víkingar fá vítaspyrnu!!!

Danijel fellur í teignum. Það tók góðan tíma að dæma þetta víti. Pontus dæmdur brotlegur.
84. mín Mark úr víti!
Sigurður Bjartur Hallsson (KR)
Sigurður Bjartur tekur vítið og skorar!
83. mín
HVAÐ ER PÉTUR AÐ GERA!!!??????

KR-ingar skora en Pétur er búinn að taka ákvörðun að dæma vítaspyrnu.

Hvar er hagnaðurinn? KR-ingar eru allt annað en sáttir.
82. mín
Sigurður Steinar á sprettinum inná vítateig KR en Arnór Sveinn verst vel og kemur boltanum aftur fyrir.

Danijel með hornspyrnuna en samherjar ná ekki að koma boltanum að marki Víkinga og boltinn endar í markspyrnu.
81. mín Gult spjald: Aron Þórður Albertsson (KR)
Braut á Danijel. Fyrsta gula spjald leiksins.
79. mín
Þorsteinn Már reynir fyrirgjöf en Sigurður Steinar bakar vel til baka og kemur boltanum aftur fyrir.

Atli á svo hornspyrnu en hún fer yfir allan pakkann.
78. mín
Inn:Sigurður Steinar Björnsson (Víkingur R.) Út:Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)
77. mín
Þorsteinn Már reynir fyrirgjöf sem er aðeins of innarlega og fer aftur fyrir endamörk.
76. mín
Ingvar handsamar fyrirgjöf frá Atla af hægri kantinum.
75. mín
Birnir með tilraun í kjölfar hornspyrnu frá Víkingum. Birnir reyndi að lauma boltanum á nærstöngina en Beitir var vel á verði og kom boltanum til hliðar.
72. mín
KR-ingar eru að gera sig líklega!

Stefán nálægt því að vera í dauðafæri eftir sendingu frá Sigurði Bjarti. Aron Kristófer á svo tilraun sem fer í varnarmann og Atli reynir að teygja sig í boltann á fjærstönginni en nær ekki að koma boltanum á mrkið.
69. mín
KR-ingar eiga hornspyrnu en spyrnan frá Atla fer beint aftur fyrir.
67. mín
Víkingar eiga hornspyrnu en hún er ekki vel framkvæmd. Víkingar vinna boltann aftur, fyrirgjöf sem finnur Ara inn á teignum.

Ari á skot sem Beitir ver.
66. mín MARK!
Atli Sigurjónsson (KR)
Stoðsending: Stefán Árni Geirsson
KR minnkar muninn!
Flottur sprettur hjá Stefáni Árna á vinstri kantinum og fyrirgjöfin er frábær.

Atli er aleinn í teignum og skorar með skalla.
64. mín
Inn:Þorsteinn Már Ragnarsson (KR) Út:Kennie Chopart (KR)
Tvöföld skipting hjá KR-ingum. Þorsteinn í bakvörðinn, Stefán á kantinn og Elmar á miðjuna.
64. mín
Inn:Stefán Árni Geirsson (KR) Út:Hallur Hansson (KR)
62. mín
Mjög skrítnir tilburðir hjá Aroni Kristófer í öftustu línu, mögulega um hendi að ræða en það var samt tæpt. Ekkert dæmt.
60. mín
Víkingar koma sér upp völlinn og eiga hornspyrnu.

KR-ingar bjarga á línu!
Aron Kristófer bjargar eftir tilraun frá Helga Guðjónssyni.
59. mín
Atli með skottilraun en Pablo kemst fyrir.
55. mín MARK!
Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Danijel Dejan Djuric
Frábær afgreiðsla

Slúttar vinstra megin úr teignum, leggur boltann í fjærhornið. Virkilega vel klárað. Birnir og Danijel gerðu vel í undirbúningnum.
53. mín
Kyle með skalla eftir hornspyrnuna en hann fer framhjá.
52. mín
Danijel Djuric með fína rispu, á tilraun sem fer af Arnóri og aftur fyrir.
51. mín
KR-ingar tapa boltanum aftarlega á vellinum, Ari Sigurpálsson á skot sem Arnór Sveinn kemst fyrir. Þarna var smá hætta.

Í kjölfarið er Júlíus Magnússon brotlegur og er hann alveg á síðasta séns varðandi að fá gult spjald.
49. mín
KR á hornspyrnu, Kennie kemur með fyrirgjöfina en Júlíus skallar í burtu.

Í kjölfarið kemur svo fyrirgjöf inn á teiginn sem Sigurður Bjartur skallar að marki en Ingvar er vel vakandi og hirðir boltann upp.
48. mín
Helgi Guðjónsson með tilraun sem endar í höndunum á Beiti.
47. mín
Kennie með fyrirgjöf sem Ingvar handsamar.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleik lokið!

Fjörugur hálfleikur að baki.
45. mín
45+2

Atli hreinsar seinni spyrnuna frá Danijel í burtu.
45. mín
45+1

Ari Sigurpálsson leggur boltann út á Helga sem á skot í varnarmann og Víkingur á annað horn.
45. mín
45+1

Tveimur mínutum bætt við. Víkingur á hornspyrnu.
45. mín MARK!
Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Stoðsending: Ægir Jarl Jónasson
KR minnkar muninn!

Theodór Elmar skorar eftir fyrirgjöf frá hægri. Kennie Chopart á fyrirgjöfina, Ægir Jarl reynir hjólhestaspyrnuna en boltinn endar hjá Elmari sem klárar með skoti undir Ingvar.
44. mín
Sigurður Bjartur með skalla sem fer framhjá marki Víkings. Tilraun utarlega úr teignum og það var aldrei hætta.
42. mín
Erlingur Agnarsson með tilraun fyrir utan teig KR sem fer af Pontus Lindgren og aftur fyrir. Víkingur fær hornspyrnu.

KR-ingar ná að skalla hornspyrnu Danijels í burtu.
41. mín
Theodór Elmar með tilraun úr teignum sem Oliver Ekroth kemst fyrir og hreinsar í innkast.
41. mín
Atli Sigurjóns kemst í frábæra stöðu, reynir fyrirgjöf en sendingin fer af Víkingi og aftur í Atla og þaðan aftur fyrir. Þarna var séns fyrir KR!
36. mín MARK!
Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
2-0!

Helgi með flotta fyrirgjöf inná vítateig KR, þar er Birnir í flottu hlaupi og klárar vel.

Virðist vera Kennie sem týnir Birni og skilar honum ekki nægilega vel frá sér á næsta varnarmann.
34. mín
Víkingar hreinsa þetta allt saman í burtu.
33. mín
KR-ingar ná að hreinsa og sækja nú hinumegin.

Fá aukaspyrnu út á vinstri kantinum, fínasta fyrirgjafarstaða.
32. mín
Helgi vinnur aukaspyrnu á hægri kantinum. Aron Kristófer dæmdur brotlegur.
31. mín MARK!
Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Pablo Punyed
Fyrsta markið!

Pablo með flotta fyrirgjöf af vinstri kantinum eftir sendingu frá Danijel.

Erlingur kemst í boltann, sem fór aðeins yfir Helga, á fjærstönginni og kemur boltanum í netið.!
29. mín
Útileikmenn Víkings sem eftir eru á varamannabekknum eru allir fæddir á árunum 2003 og 2004.
27. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
Viktor Örlygur fer í hægri bakvörðinn og Pablo Punyed fer í vinstri bakvörðinn. Miklar hrókeringar.

Helgi kemur á hægri kantinn og Erlingur færist inn á miðjuna.
27. mín
Beitir heldur leik áfram en Helgi Guðjónsson er að koma inná fyrir Karl.
25. mín
Beitir þarf núna aðhlynningu.
24. mín
Karl Friðleifur þarf á aðhlynningu að halda. Virðist geta haldið leik áfram, ja eða hvað.

Biður núna um skiptingu.
23. mín
Kennie nálægt því að skora sjálfsmark!
Föst spryrna frá Danijel sem fer af Kennie sem er stálheppinn að boltinn fari ekki af sér og í eigið net!
22. mín
Kennie brýtur á Birni Snæ úti á vinstri kantinum. Fín fyrirgjafarstaða.
20. mín
Atli með skotið hægra megin úr vítateig Víkings og Ingvar ver í horn.

Ingvar handsamar svo fyrirgjöfina frá Atla.
19. mín
Danijel með hornspyrnuna yfir allan pakkann og Ari kemur með fyrirgjöf hinumegin frá. Beitir handsamar boltann á nær fullri stjórn á boltanum á endanum.
18. mín
Víkingar eiga hornspyrnu.
16. mín
RANGSTAÐA!

Hallur Hansson er dæmdur rangstæður. Hann kom boltanum í netið en eftir talsverðan tíma fer flaggið á loft og rangstaða dæmd.

Lýsararnir á RÚV sjá ekki rangstöðu í þessu atviki við fyrstu sýn!

Virðist bara alls ekki vera rangstaða, mögulega á Ægi í fyrri fyrirgjöfinni frá Atla.
15. mín
Sigurður Bjartur vinnur aukaspyrnu fyrir KR vinstra megin við vítateig Víkings. Karl Friðleifur brotlegur þarna.
13. mín
Karl Friðleifur með tilraun með vinstri fæti við vítateig KR en skotið fer framhjá.

Danijel Djuric átti öflugan sprett á undan og ætlaði að finna Birni í gegn en Arnór Sveinn stoppaði það, boltinn barst á Karl sem leitaði á vinstri löppina en skotið fór framhjá.
9. mín
Theodór Elmar í smá vandræðum, tapar boltanum og Pablo vinnur aukaspyrnu fyrir Víking.

Danijel tók spyrnuna, flott fyrirgjöf inn á Erling sem sneiðir boltann framhjá en er dæmdur rangstæður.
8. mín
Sigurður Bjartur með tilraun í kjölfar hornsins, skot fyrir utan teig en það fer yfir mark Víkings.
7. mín
KR fær sína fyrstu hornspyrnu í þessum leik.

Viktor skallar fyrirgjöf Atla í burtu. Atli fær boltann aftur og kemur boltanum fyrir. Ingvar í brasi inn á teignum, boltinn berst á Hall en skotið frá Halli fer í Karl Friðleif og aftur fyrir. Annað horn.
6. mín
KR-ingar sóttu hratt, Atli kom boltanum á Aron Þórð sem á skot sem fer framhjá nærstönginni.
5. mín
Flott sókn hjá Víkingum sem fá fyrstu hornspyrnu leiksins.

Föst spyrna frá Danijel sem skölluð er út fyrir teig, Viktor reynir að vippa boltanum inn á teig en Kennie hreinsar.
4. mín
Svona stilla KR-ingar upp:
Beitir
Kennie - Arnór - Pontus - Aron Kristófer
Hallur - Aron Þórður - Ægir
Atli - Sigurður - Elmar
3. mín
Svona stilla Víkingar upp:
Ingvar
Karl - Oliver - Kyle - Viktor
Júlíus
Pablo - Ari
Erlingur - Danijel - Birnir
3. mín
Pablo nær ekki að finna Erling inná teignum, fínasta sokn hjá Víkingi.
1. mín
Viktor Örlygur með fyrirgjöf sem Beitir handsamar.
1. mín
Leikur hafinn
Víkingar byrja með boltann!
Fyrir leik
Í viðtölum eftir síðustu leiki þessara liða þá kom fram að Nikolaj Hanen væri að glíma við meiðsli og þeir Kristinn Jónsson og Finnur Tómas Pálmason væru að nálgast endurkomu.

Það vekur athygli að Arnór Borg Guðjohsnen er ekki í leikmannahópi Víkings í dag.
Fyrir leik
Það er byrjað að hellirigna!
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá Víkingum og tvær hjá KR!
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá 1-1 jafnteflinu við Breiðablik í Bestu deildinni á mánudag. Tvær þeirra eru vegna meiðsla því Logi Tómasson og Davíð Örn Atlason fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik á Kópavogsvelli.

Pablo Punyed kemur inn í liðið fyrir Loga en líklegt er að Viktor Örlygur Andrason færist af miðsvæðinu og í vinstri bakvörðinn líkt og hann gerði gegn Blikum. Þá kemur Karl Friðleifur Gunnarsson inn í hægri bakvörðinn og Birnir Snær Ingason kemur inn fyrir Helga Guðjónsson sem sest á bekkinn. Helgi hefur skoraði fimm mörk fyrir Víking í bikarnum í ár og er markahæsti leikmaður liðsins í þeirri keppni.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, gerir tvær breytingar á sínu liði eftir markalaust jafntefli gegn Keflavík á mánudag. Stefán Árni Geirsson og Þorsteinn Már Ragnarsson taka sér sæti á bekknum og inn í liðið koma þeir Theodór Elmar Bjarnason og Aron Kristófer Lárusson sem voru í leikbanni á mánudag. Þá er Pálmi Rafn Pálmason mættur aftur á varamannabekk KR.
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings hefur verið opinbert!

Ein breyting frá líklegu byrjunarliði eins og það var birt hér að neðan. Helgi Guðjónsson byrjar á bekknum!

Fyrir leik
Það verður eitthvað um breytingar á liðunum í kvöld!
Fótbolti.net spáir þremur breytingum á liði Víkings frá leiknum gegn Breiðabliki. Bakverðirnir Logi Tómasson og Davíð Örn Atlason eru meiddir og þá er líklegt að Arnar Gunnlaugsson geri eina breytingu framar á vellinum og setji Birnir Snæ Ingason í liðið. Pablo Punyed kæmi inn á miðsvæðið, Viktor Örlygur Andrason færi í vinstri bakvörðinn og Karl Friðleifur Gunnarsson kæmi inn í hægri bakvörðinn.

Hjá KR er líklegt að þeir Theodór Elmar Bjarnason og Aron Kristófer Lárusson komi inn í liðið eftir leikbann. Líklegast er að þeir Þorsteinn Már Ragnarsson og Stefán Árni Geirsson munu taka sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Leiðin í 8-liða úrslitin:
Bikarmeistararnir byrjuðu á því að vinna 0-7 útisigur á Haukum í 32-liða úrslitunum áður en þeir fóru svo á Selfoss og unnu 0-6 sigur í 16-liða úrslitunum. Helgi Guðjónsson skoraði fimm mörk í þeim leikjum og er hann einu marki á eftir markahæstu mönnum keppninnar fyrir leikinn í kvöld.

KR byrjaði á því að slá út Stjörnuna í Garðabænum, 0-3, í 32-liða úrslitum áður en liðið vann torsóttan 0-1 sigur í Njarðvík í 16-liða úrslitunum. Hallur Hansson skoraði í báðum þessum leikjum og er markahæstur KR-inga í keppninni.
Fyrir leik
Bæði lið gerðu jafntefli í vikunni
Liðin léku bæði í Bestu deildinni á mánudag og gerðu bæði jafntefli. Víkingur fór í Kópavoginn og gerði 1-1 jafntefli við Breiðablik. Danijel Dejan Djuric skoraði mark Víkings í leiknum.

KR fór til Keflavíkur og gerði þar markalaust jafntefli.

Víkingur er í 3. sæti deildarinnar á meðan KR er í sjötta sæti, sex stigum á eftir Víkingi sem á einnig leik til góða.

En staðan í deildinni skiptir svo sem engu máli í dag!
Fyrir leik
Dómarateymið:
Pétur Guðmundsson er með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson.

Björn Guðbjörnsson er eftirlitsmaður KSÍ og Einar Ingi Jóhannsson er fjórði dómari.

Pétur Guðmunds
Fyrir leik
Þriðji leikurinn í 8-liða úrslitunum
Tveimur leikjum er lokið í 8-liða úrslitunum.

FH lagði Kórdrengi í síðustu viku og KA lagði Ægi að velli. Fjórði og síðasti leikur 8-liða úrslitanna fer svo fram á morgun þegar Breiðablik heimsækir nágranna sína í HK í Kórnum.
Fyrir leik
Góðan kvöldið lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá viðureign Víkings og KR í Mjólkurbikar karla. Um leik í 8-liða úrslitunum er að ræða og hefst leikurinn klukkan 20:00 á Víkingsvelli.

Víkingur er ríkjandi bikarmeistari og KR hefur ,,unnið bikarinn oftast, oftar en allir aðrir" eins og segir í laginu.
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Hallur Hansson ('64)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
11. Kennie Chopart (f) ('64)
14. Ægir Jarl Jónasson
15. Pontus Lindgren
16. Theodór Elmar Bjarnason (f)
18. Aron Kristófer Lárusson
23. Atli Sigurjónsson
29. Aron Þórður Albertsson ('88)
33. Sigurður Bjartur Hallsson

Varamenn:
13. Aron Snær Friðriksson (m)
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('64) ('93)
9. Kjartan Henry Finnbogason ('93)
9. Stefán Árni Geirsson ('64)
10. Kristján Flóki Finnbogason ('88)
17. Stefan Ljubicic

Liðsstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson (Þ)
Rúnar Kristinsson (Þ)
Pálmi Rafn Pálmason
Valgeir Viðarsson
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Melkorka Rán Hafliðadóttir

Gul spjöld:
Aron Þórður Albertsson ('81)
Theodór Elmar Bjarnason ('87)

Rauð spjöld: