Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
HK
0
2
Fylkir
0-1 Mathias Laursen '73
0-2 Mathias Laursen '81
23.08.2022  -  19:15
Kórinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Alltaf bongó inn í Kórnum!
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Mathias Laursen
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
7. Örvar Eggertsson
8. Arnþór Ari Atlason
9. Oliver Haurits ('74)
10. Ásgeir Marteinsson ('74)
11. Ólafur Örn Eyjólfsson ('62)
18. Atli Arnarson ('74)
21. Ívar Örn Jónsson
24. Teitur Magnússon ('11)
44. Bruno Soares

Varamenn:
2. Kristján Snær Frostason ('11)
3. Ívar Orri Gissurarson ('74)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('62)
15. Hákon Freyr Jónsson
23. Hassan Jalloh ('74)
29. Karl Ágúst Karlsson ('74)

Liðsstjórn:
Ómar Ingi Guðmundsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Ólafur Örn Ásgeirsson
Ísak Jónsson Guðmann
Kári Jónasson

Gul spjöld:
Ólafur Örn Eyjólfsson ('23)
Leifur Andri Leifsson ('47)
Bruno Soares ('67)
Arnar Freyr Ólafsson ('73)
Kristján Snær Frostason ('91)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sigurður Hjörtur Þrastarson flautar til leiksloka, 2-0 sigur Fylkis staðreynd. Fylkir eykur með þessum sigri forystu sína á toppi deildarinnar og munar nú 5 stigum á HK og Fylki.
Viðtöl og skýrsla koma innan skams.
94. mín
Mathias Laursen sloppinn einn í gegn en dæmd rangstaða.
93. mín
Oskar Borgþórs með hörkuskot en Arnar Freyr ver vel!
93. mín
Oskar Borgþórs með hörkuskot en Arnar Freyr ver vel!
92. mín
Inn:Daði Ólafsson (Fylkir) Út:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
91. mín Gult spjald: Kristján Snær Frostason (HK)
90. mín
HK fær hér horn, Ívar tekur en Orri Sveinn skallar boltann frá.
87. mín
HK fær hér aukaspyrnu í fínasta skotfæri, Ívar Örn tekur spyrnuna en boltinn fer vel yfir markið.
87. mín
Inn:Frosti Brynjólfsson (Fylkir) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)
85. mín Gult spjald: Arnór Gauti Jónsson (Fylkir)
81. mín MARK!
Mathias Laursen (Fylkir)
Stoðsending: Þórður Gunnar Hafþórsson
Mathias að tvöfalda forystu Fylkis!!!

Þórður Gunnar fær háann bolta inn fyrir, kemst framhjá Arnari í marki HK en er í of þröngu skotfæri. Þórður gefur á Mathias sem er vel staðsettur og setur boltann í autt netið.
Fylkir búnir að ná að galopna vörn HK á síðustu mínútum!
74. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Ásgeir Marteinsson (HK)
74. mín
Inn:Ívar Orri Gissurarson (HK) Út:Atli Arnarson (HK)
74. mín
Inn:Hassan Jalloh (HK) Út:Oliver Haurits (HK)
73. mín Gult spjald: Arnar Freyr Ólafsson (HK)
73. mín MARK!
Mathias Laursen (Fylkir)
Mathias að koma Fylki yfir!!!

Þórður Gunnar er kominn í góða stöðu inn í teig HK, Ívar Örn rennir sér fyrir hann og kemst í boltann en boltinn fer beint á Mathias Laursen sem er staðsettur á markteig nánast fyrir opnu marki og hann getur ekki annað en skorað.
Mikilvægt mark fyrir Fylki til að auka forystu sína á toppi deildarinnar!
72. mín
Fylkir að gefa í!

Nikulás Val með boltann fyrir utan teig HK rennir honum til hliðar á Óskar Borgþórs sem er nánast einn hann tekur skotið í fyrsta en skotið er lélegt og Arnar Freyr ver.
67. mín Gult spjald: Bruno Soares (HK)
67. mín
ÞVÍLÍKT FÆRI!!

Oskar Borgþórs keyrir upp vinstri kantinn í skyndisókn kemur með bolta fyrir Mathias Laursen nær ekki til boltans en Þórður Gunnar gerir það hann er nánast fyrir opnu marki en boltinn er aðeins fyrir aftan hann og Þórður skýtur yfir.
Stuðningsmenn Fylkis voru byrjaðir að fagna!
62. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (HK) Út:Ólafur Örn Eyjólfsson (HK)
61. mín
Draumatækling!

Boltinn dettur fyrir Nikulás Val sem er í frábærri stöðu inn í teig HK en þá kemur Atli Arnars til bjargar fyrir HK með frábærri tæklingu!
60. mín
Inn:Óskar Borgþórsson (Fylkir) Út:Arnór Breki Ásþórsson (Fylkir)
58. mín Gult spjald: Rúnar Páll Sigmundsson (Fylkir)
57. mín
Oliver Haurits í dauðafæri!

Haurits fær háann bolta inn í teig Fylkis þar sem hann er í einn á einn stöðu við Ólaf Kristófer, boltinn er skoppandi og Haurits reynir að lyfta boltanum yfir Ólaf en boltinn fer yfir.
Besta færi leiksins hingað til.
55. mín
Arnþór Ari nær skallanum úr horninu en hittir ekki boltann nógu vel og Fylkir fær boltann.
55. mín
Kristján Snær reynir fyrirgjöf en Nikulás Val fer fyrir boltann og í horn.
54. mín
Arnór Breki liggur niðri og þarfnast aðhlynningar, 4. skiptið í leiknum sem leikur er stöðvaður vegna meiðsla.
53. mín
HK vinnur hér horn, Ásgeir Marteins tekur og finnur Örvar sem skallar boltann hátt yfir.
49. mín
Gott færi HK!
Ívar Örn Jónsson tekur spyrnuna sem er frábær og fer beint á kollinn á Bruno Soares sem skallar boltann rétt framhjá. Bruno hefði getað nýtt þetta skallafæri betur!.
48. mín
HK fær aukaspyrnu utarlega á miðjum vallarhelming Fylkis.
47. mín Gult spjald: Leifur Andri Leifsson (HK)
Leifur fær verðskuldað gult spjald fyrir að rífa Mathias Laursen niður.
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað og eru það gestirnir sem byrja með boltann.
Vonandi fáum við einhver mörk á næstu 45 mínútum!
45. mín
HK liðið komið út á völl og eru þeir að mér sýnist að taka liðsfund, Fylkismenn láta ekki sjá sig.
45. mín
Hálfleikur
Sigurður Hjörtur flautar hér til hálfleiks.
Ekkert mark komið til að skilja liðin að, greinilega tvö mjög jöfn lið að etja hér kappi við hvort annað.
45. mín
Mathias Laursen á skalla framhjá á lokasekúndum fyrri hálfleiks.
44. mín
Atli Arnars með laust skot rétt fyrir utan teiginn, boltinn fer framhjá engin hætta.
42. mín
Ásgeir Marteins tekur hornið og finnur Bruno Soares sem skallar boltann rétt yfir markið.
42. mín
Örvar á fyrirgjöf sem er komið í burtu og í horn.
39. mín
Haurits kominn aftur inná.
37. mín
Oliver Haurits liggur niðri, virðist vera sárþjáður. Sá ekki hvað gerðist.
34. mín
Arnór Gauti á frábæra sendingu í gegnum vörn HK, sendingin er ætluð Þórði en Arnar Freyr les sendinguna vel og er mættur til að handsama boltann rétt áður en Þórður komst í boltann.
33. mín
Nikulás Val með lúmskt skot langt fyrir utan teig en Arnar Freyr ver örugglega.
29. mín
Vandræðagangur í vörn HK!

Þórður Gunnar sólar tvo varnarmenn HK upp úr skónum hann er kominn á teyginn en þá kemur Leifur Andri með frábæra tæklingu. Fylkir heldur í boltann en Arnar Freyr í marki HK er farinn langt úr markinu, boltinn berst á Benedikt sem skýtur á markið en Bruno Soares skallar boltann frá.
25. mín
Ásgeir Marteins tekur hornið og finnur Örvar á nærhorninu sem tekur skotið í fyrsta en boltinn fer framhjá, ágætis tilraun.
24. mín
Ólafur Örn reynir fyrirgjöf eftir frábæran undirbúning Kristjáns Snæs, boltinn fer í Arnór Breka og í horn.
23. mín
Góðar fréttir fyrir HK, Leifur Andri er kominn aftur inn á völlinn.
23. mín Gult spjald: Ólafur Örn Eyjólfsson (HK)
20. mín
Leifur Andri liggur niðri, þetta gæti orðið dýrt fyrir HK ef þeir missa annan leikmann úr varnarlínu sinni. Leifur neyðist til að fara útaf vellinum í smá tíma til að fá aðhlynningu.
16. mín
Haurits með skot á vítateigshorninu sem Ólafur Kristófer ver örugglega.
12. mín
Oliver Haurits á skot utarlega inn í teig Fylkis sem fer framhjá.
11. mín
Inn:Kristján Snær Frostason (HK) Út:Teitur Magnússon (HK)
Teitur fer útaf vegna meiðsla í bakinu, í hans stað kemur Kristján Snær Frostason ungur og spennandi leikmaður sem hefur spilað fyrir u17 ára landslið Íslands.
10. mín
HK búnir að byrja þessar fyrstu 10 mínútur mun betur, leikurinn nánast alfarið búinn að fara fram á vallarhelmingi Fylkis.
7. mín
Teitur kominn aftur inná völlinn.
5. mín
Teitur Magnússon liggur niðri eftir skallabarráttu við Benedikt Daríus, Teitur virðist hafa lent illa á bakinu, vonum að þetta sé ekki alvarlegt.
2. mín
HK fær fyrsta horn leiksins, en ekkert kemur úr því og endar Ólafur Kristófer markmaður Fylkis með boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Sigurður flautar leikinn af stað og eru það heimamenn sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn, nú eru aðeins nokkrar mínútur í að þessi toppslagur hefjist!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!

Seinasti leikur HK var erfiður bikarleikur gegn Breiðablik sem tapaðist 1-0 en Ómar Ingi gerir 3 breytingar á sínu liði, inn koma Ólafur Örn Eyjólfsson, Atli Arnarson og Bruno Soares sem var í banni gegn Breiðablik.
Ívar Orri, Eiður Atli og Bjarni Páll Linnett fara út.

Seinasti leikur Fylkis var sterkur 4-3 sigur á Selfossi en Rúnar Páll gerir eina breytingu á liðinu Mathias Laursen kemur aftur inn í liðið eftir úttekt á banni í síðasta leik og kemur hann í stað fyrir Emil Ásmundsson sem skoraði 2 mörk gegn Selfossi.
Fyrir leik
Þríeykið
Dómari leiksins er Sigurður Hjörtur Þrastarson en honum til halds og trausts eru þau Andri Vigfússon og Rúna Kristín Stefánsdóttir.
Eftirlitsmaður leiksins er enginn annar en Kristinn Jakobsson.


Fyrir leik
Fylkir

Fylkir hefur verið á frábærri siglingu í deildinni en þeir hafa unnið 8 leiki í röð og eru á toppnum í Lengjudeildinni.
Síðasti leikur sem Fylkir tapaði var gegn HK þann 16. júní, leikurinn fór 0-1 fyrir HK og skoraði Ásgeir Eyþórsson þar sjálfsmark.
Markahæstu leikmenn Fylkis eru jafnir á mörkum með 9 mörk hvor en það eru þeir Mathias Laursen og Benedikt
Daríus Garðarsson sem deila þessari nafnbót.

Fyrir leik
HK

Heimamenn í HK eru í 2. sæti deildarinnar aðeins 2 stigum á eftir Fylki og má því búast við hörkuleik hér í kvöld.
HK hafa tapað tveimur leikjum í röð gegn Þór og Breiðablik í bikarnum. Ómar Ingi þjálfari HK hafði orð á því að leikurinn gegn Þór var versta frammistaða HK í sumar. HK voru á hinn bóginn flottir á móti Blikum og sýndu góða frammistöðu þrátt fyrir tap.
HK hefur misst tvo af sínum bestu leikmönnum þá Stefán Inga sem fór út í skóla og Valgeir Valgeirsson sem var seldur út til Örebro, einnig er mikilvægur leikmaður HK ekki með vegna meiðsla, Birkir Valur en hann viðbeinsbrotnaði gegn Þór fyrir rúmri viku síðan.


Fyrir leik
Toppslagur!

Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og veriði velkomin í þráðbeina textalýsingu beint úr Kórnum.
Hér í kvöld mun fara fram sannkallaður toppslagur þar sem HK tekur á móti Fylki í 18. umferð Lengjudeild karla.


Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
9. Mathias Laursen
10. Benedikt Daríus Garðarsson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('87)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson ('92)
27. Arnór Breki Ásþórsson ('60)

Varamenn:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
6. Frosti Brynjólfsson ('87)
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
16. Emil Ásmundsson
22. Ómar Björn Stefánsson
77. Óskar Borgþórsson ('60)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Olgeir Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Michael John Kingdon
Ágúst Aron Gunnarsson
Smári Hrafnsson

Gul spjöld:
Rúnar Páll Sigmundsson ('58)
Arnór Gauti Jónsson ('85)

Rauð spjöld: