Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Keflavík
LL 2
1
Breiðablik
KR
0
0
FH
28.08.2022  -  17:00
Meistaravellir
Besta-deild karla - 19. umferð
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Atli Gunnar
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
Pálmi Rafn Pálmason ('65)
4. Hallur Hansson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('46)
7. Finnur Tómas Pálmason
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson (f)
16. Theodór Elmar Bjarnason (f) ('84)
18. Aron Kristófer Lárusson
23. Atli Sigurjónsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson ('84)

Varamenn:
13. Aron Snær Friðriksson (m)
8. Þorsteinn Már Ragnarsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Kristján Flóki Finnbogason ('84)
15. Pontus Lindgren ('46)
19. Kristinn Jónsson ('84)
29. Aron Þórður Albertsson ('65)

Liðsstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson (Þ)
Rúnar Kristinsson (Þ)
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Halldór Fannar Júlíusson
Melkorka Rán Hafliðadóttir

Gul spjöld:
Theodór Elmar Bjarnason ('81)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
0-0 jafntefli í hundleiðinlegum leik hér í Frostaskjólinu og var þetta bara sanngjörn niðurstaða.

Þakka samfylgdina í dag og minni á viðtöl og skýrslu hér á eftir.
93. mín
Finnur Tómas reynir fyrirgjöf en endar í markspyrnu...
92. mín Gult spjald: Haraldur Einar Ásgrímsson (FH)
90. mín
BEITIR!!

Aukaspyrnan beint í vegginn en Lennon fær boltann aftur og nær skoti með vinstri en Beitir ver rosalega og blakar boltanum í horn!

Ætla einhverjir að stela þessu?
89. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað fyrir FH!
87. mín
Inn:Davíð Snær Jóhannsson (FH) Út:Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
87. mín
Inn:Haraldur Einar Ásgrímsson (FH) Út:Björn Daníel Sverrisson (FH)
84. mín
Aron Kristófer með stórhættulega fyrirgjöf inn á teig sem að Óli Guðmunds skallar frá, Atli Sigurjóns var klár á fjær að stanga boltann í netið
84. mín
Inn:Kristján Flóki Finnbogason (KR) Út:Sigurður Bjartur Hallsson (KR)
84. mín
Inn:Kristinn Jónsson (KR) Út:Theodór Elmar Bjarnason (KR)
83. mín
Jæja þessi fór bara beint í vegginn

Atli Sigurjóns með skotið
82. mín
ÓBEIN AUKASPYRNA

Atli Gunnar rennur, missir boltann og tekur hann svo upp aftur!
81. mín Gult spjald: Theodór Elmar Bjarnason (KR)
79. mín
Síðan að Kennie átti gott skot framhjá fyrir 10 mínútum hefur nákvæmlega ekkert gerst

Rúmar 10 eftir af þessum leik + uppbót og eins og staðan er núna stefnir allt í steindautt 0-0 jafntefli

Eða hvað?
78. mín
Inn:Vuk Oskar Dimitrijevic (FH) Út:Oliver Heiðarsson (FH)
76. mín Gult spjald: Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
72. mín
Inn:Guðmundur Kristjánsson (FH) Út:Kristinn Freyr Sigurðsson (FH)
68. mín
UM AÐ GERA!!

Bolti inn á teig sem er skallaður út fyrir teiginn og Kennie fær boltann skoppandi fyrir sig og "kontrar" boltann rééétt framhjá markinu af einhverju 30 metra færi

FH að undirbúa skiptingu
65. mín
Inn:Aron Þórður Albertsson (KR) Út:Pálmi Rafn Pálmason (KR)
63. mín
Hætta á ferðum!

Ástbjörn keyrir í átt að teignum og missir hann frá sér en á liðsfélega sinn Oliver sem kemst inn á teig og á fasta sendingu fyrir markið en aftur er engin Blá treyja sem ræðst á knöttinn...
62. mín
Kiddi Freyr með mjög hættulega aukaspyrnu inn á teig sem enginn Blá treyja ræðst á og Beitir handsamar þetta
61. mín
58. mín
ATLI!!

Hallur Hansson gerir rosalega vel í að halda í boltann með tvo í kringum sig, leggur boltann á Theódór Elmar sem gefur á Atla sem er inn á teignum, óvænt þá fer Atli á hægri fótinn sinn og á fast skot rétt framhjá markinu!

Núna má koma eitthvað líf í leikinn!
54. mín
Það er bara sama upp á teningnum í þessum seinni hálfleik, allavega til að byrja með..

Ekkert að frétta.....
48. mín
Hornspyrna frá vinstri sem FH eiga.

Kiddi Freyr tekur hana, spyrnan er ágæt inn á nærsvæðið en KR-ingar skalla frá.
46. mín
Fyrsta færi seinni hálfleiksins komið!

Aron Kristófer með skemmtilega utanfótar sendingu inn á teig á Sigga Hall sem á slakan skalla langt yfir markið

Fínasta færi
46. mín
Inn:Pontus Lindgren (KR) Út:Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
46. mín
Seinni farinn af stað

Og það er skipting hjá KR
45. mín
Hálfleikur
Jæja 0-0 eftir ansi tíðindalítinn fyrri hálfleik en KR fengu besta færið. Leikurinn verið ansi jafn en vonast eftir gæðameiri seinni hálfleik.

Sjáumst aftur eftir rúmt korter.
45. mín
Kennie með aukaspyrnu rétt fyrir utan teig sem Atli gerir mjög vel í að grípa þetta skot!
44. mín
BESTA FÆRI LEIKSINS!!

Sending á Sigga Hall sem tekur frábærlega á móti boltanum framhjá Jóhanni Ægi, á svo sendingu á Atla sem er í kringum vítapunktinn og tæklar boltann réééétt yfir slánna...

Sigurður Bjartur hefði getað farið niður og fengið víti en ákvað að standa þetta af sér..
42. mín
Arnór Sveinn með fyrirgjöf frá hægri á fjærsvæðið sem Theódór Elmar nær að skalla en framhjá markinu fór boltinn...
40. mín
Hætta á ferðum!

Kiddi Freyr kemst upp að endamörkum og á sendingu fyrir markið sem Beitir ætlar að handsama en Kennie neglir yfir markið og þaðan í hornspyrnu
37. mín
Pálmi Rafn reynir skot frá svona 25 metra færi en skotið er alltof nálægt Atla í markinu sem grípur þetta ansi örugglega
33. mín
Eftir rúman hálftíma leik er rosalega lítið um marktækifæri

Besta "færið" var skyndisókn FH þegar að Oliver og Matti komust tveir gegn einum sem rann út í sandinn..

Óska eftir frekari gæðum hjá báðum liðum
31. mín
Úlfur Ágúst liggur niðri eftir samstuð við Kennie og virðist hafa misst andann
24. mín
Oliver.......

Arnór Sveinn með hræðilegt touch á miðjunni sem veldur því að Matti Villa og Oliver komast í tveir á einn stöðu, Oliver fær svo boltann hægra megin í teignum og reynir sendingu inn á teiginn á Matta en hún er alveg rosalega slök og á engan

Lítið sjálfstraust í þessari sókn
20. mín
Hornspyrna frá vinstri sem KR-ingar eiga.

Kennie tekur hana, spyrnan er tekin stutt á Atla og þaðan berst boltinn inn á teig en Björn Daníel hreinsar boltanum frá.
17. mín
HEYRÐU!!

Hallur Hansson keyrir upp hægri kantinn og reynir fyrirgjöf sem endar bara með skoti og Atli þarf verja rosalega og blaka boltanum yfir markið!

Þarna mátti litlu muna!
11. mín
"ÞAÐ HEYRIST EKKI RASSGAT" Öskra FH stuðningsmenn

KR stuðningsmennn svara með "ÞIÐ GETIÐ EKKI RASSGAT

Það er að færast aðeins meira líf í þennan leik, ánægjulegt.
10. mín
Kiddi klaufi..

FH-ingar komast í 4 vs 3 stöðu en Kiddi er alltof fljótur á sér og ætlar að senda inn fyrir á Oliver en sendingin er bara slök og Aron Kristófer kemst inn í þetta..
7. mín Gult spjald: Jóhann Ægir Arnarsson (FH)
Ja hérna hér!

Jóhann Ægir með rosalegt brot á miðjunni þar sem að Kennie var að komast nánast einn inn fyrir

Appelsínugult spjald
7. mín
FH fá hornspyrnu frá hægri, Lennon tekur þessa hornspyrnu.

Virkaði fyrir að vera eitthvað af æfingasvæðinu en gekk alls ekki upp!
4. mín
Ekki mikið að gerast til að byrja með

Eina sem hefur gerst er að Björn Daníel kom með hættulega sendingu inn fyrir á Matta Villa en hún var of kraftmikil og endaði hjá Beiti í markinu
1. mín
Leikur hafinn
Þessi veisluleikur er farinn af stað!

Megi þetta vera frábær skemmtun!
Fyrir leik
ÖLL SEM EITT

"Við erum KR" með Bubba er lag sem allir þekkja en það var tekið upp nýtt lag með Bubba og Selmu Björn, sama lag bara í nýjum búning, textinn aðeins öðruvísi.

Það var verið að frumflytja það í þessum skrifuðu orðum og ég ætla gefa þessu faglega 7/10 einkunn
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin

Eiður Smári Guðjohnsen gerir engar breytingar á sínu liði eftir 3-0 sigurinn á móti Keflavík.

Rúnar Kristinsson gerir tvær breytingar frá 4-3 tapinu gegn Leikni R. í 18.umferð en Stefán Árni og Pontus Lindgren detta út og í þeirra stað koma Finnur Tómas og Pálmi Rafn.

Fyrir leik
Maðurinn með flautuna

Það verður enginn annar en Helgi Mikael Jónasson sem dæmir þennan rosalega leik í Frostaskjólinu en honum til aðstoðar verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Andri Vigfússon. Ef til þess kemur að Helgi tognar aftan í læri þá er varadómarinn enginn annar en Pétur lögga.
Fyrir leik
Spámaðurinn

Jasmín Erla Ingadóttir, markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna spáði í spilin fyrir þessa 19.umferð og svona spáir hún leiknum.

KR 2 - FH 0
"Þetta verður erfiður leikur fyrir bæði lið en Atli Sigurjóns setur tvö í vinkilinn og klárar dæmið fyrir KRinga"

Fyrir leik
KR fengu skell í Breiðholti

Í þessari frægu 18.umferð voru óvæntustu úrslitin í Breiðholti þar sem að Leiknismenn gerðu sér lítið fyrir og unnu KR 4-3 á dramatískan hátt þar sem að það var lánsmaðurinn Zean Dalugge sem skoraði sigurmark Leiknismann á 90 mínútu, þetta var að ég held fyrsta tap KR í sögunni gegn Leikni R.

Það má heldur ekki gleymast að KR eru ennþá í bullandi möguleika á að vera í neðri hluta Bestu deildarinnar en þeir sitja eins og er í 6. sæti aðeins 3 stigum á undan Fram. Það væri eitthvað ef bæði KR og FH væru í neðri hlutanaum eftir 22 leiki..
Fyrir leik
Góð 18.umferð fyrir FH.... en samt ekki?

Eindurreisn FH-inga byrjaði að krafti í síðustu umferð þar sem að þeir unnu góðan 3-0 heimasigur á Keflavík og var þetta fyrsti sigurleikur Eiðs Smára í deildinni á þessari leiktíð.

En samt er FH á nákvæmlega sama stað og þeir voru fyrir leikinn gegn Keflavík, 1 stigi frá fallsæti og 3 stigum frá botnsæti Bestu deildarinnar þar sem að ÍA og Leiknir unnu einnig í þessari 18. umferð þnnig FH eru ennþá í rosalegri fallbaráttu.
Fyrir leik
Dömur mínar og herrar verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá leik KR og FH hér í Frostaskjólinu. Rosalegur leikur framundan það er bara svoleiðis.
Byrjunarlið:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
2. Jóhann Ægir Arnarsson
4. Ólafur Guðmundsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
7. Steven Lennon
8. Kristinn Freyr Sigurðsson ('72)
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson ('87)
22. Oliver Heiðarsson ('78)
22. Ástbjörn Þórðarson
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('87)

Varamenn:
1. Gunnar Nielsen (m)
3. Haraldur Einar Ásgrímsson ('87)
11. Davíð Snær Jóhannsson ('87)
16. Guðmundur Kristjánsson ('72)
17. Baldur Logi Guðlaugsson
23. Máni Austmann Hilmarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('78)

Liðsstjórn:
Eiður Smári Guðjohnsen (Þ)
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Ólafur H Guðmundsson
Róbert Magnússon
Fjalar Þorgeirsson
Jóhann Emil Elíasson
Steinar Stephensen

Gul spjöld:
Jóhann Ægir Arnarsson ('7)
Úlfur Ágúst Björnsson ('76)
Haraldur Einar Ásgrímsson ('92)

Rauð spjöld: