Laugardalsvöllur
Undankeppni HM kvenna
Aðstæður: Síðsumarskvöld í Reykjavík í sól og blíðu
Dómari: Karoline Wacker (Þýskaland)
Áhorfendur: 4543
Djöfull er gaman að horfa á þær spila https://t.co/XgnFBzPEin
— Hörður Ãgústsson (@horduragustsson) September 2, 2022
Við fáum aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi gestanna. Brotið á Dagný
Stelpurnar eru ekki hættar
Stoðsending: Alexandra Jóhannsdóttir
Selma búin að koma sterk inná miðjuna
Selma Sól Magnúsdóttir bætir við sjötta markinu - 6-0 takk fyrir! pic.twitter.com/HLDXqm3NBF
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
Frábærir taktar hjá SveindÃsi Jane! Leggur hér upp 37. landsliðsmark Dagnýjar Brynjarsdóttur sem er nú orðin næst markahæsta landsliðskonan frá upphafi ásamt HólmfrÃði Magnúsdóttur. 5-0! pic.twitter.com/MeEXavPxh0
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Hvít Rússar í vandræðum með að koma boltanum í burtu en það gengur að lokum
Stoðsending: Amanda Andradóttir
Hin átján ára gamla Amanda Andradróttir með frábæra hornspyrnu og GlódÃs Perla stangar boltann à netið! 4-0 eftir 70. mÃnútur 💣 pic.twitter.com/F4Wsku3ZkN
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Sveindís í teignum eftir sendingu frá Elínu,skotið framhjá. Flott tilraun
Dauðafæri. Selma Sól með góðan sprett og frábær sending frá ElÃnu Mettu en boltinn rétt framhjá! pic.twitter.com/Sus3eoFlpA
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Hornið fer beint útaf
Stutt horn sem rennur út í sandinn. Stutt horn virka aldrei segja sumir
Varnarmistök og Dagný og Sara komast í 2 á 1 stöðuna. Ná ekki að nýta það nógu vel, sendingin slök.
Við fáum horn sem ekkert verður úr
Skalli frá Sveindísi kraftlaus og ekkert verður úr þessu.
Amanda tekur, út á Áslaugu Mundu sem kemur með boltann fyrir, boltanum komið í burtu
Sveindís kemst upp að endamörkum, skot frá Amöndu úr teignum en Maria ver í markinu
Stoðsending: Sara Björk Gunnarsdóttir
Darraðadans í teignum og Dagný kemur boltanum yfir línuna.
Frábær byrjun á seinni
ÞvÃlÃk byrjun á seinni hálfleik! Dagný Brynjarsdóttir bætir við þriðja marki Ãslands, 3-0 🇮🇸 ðŸ‘🽠- Hennar 36. landsliðsmark! pic.twitter.com/AGku8Sw0QG
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Flott frammistaða hjá stelpunum okkar.
Sláarkeppni Icelandair, því miður engin á leið til útlanda eftir þennan leik.
Áfram gakk
Staðan er 2-0 à hálfleik og yfirburðir Ãslenska liðsins à fyrri hálfleiknum töluverðir. pic.twitter.com/U0OYB1UtvE
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Flautað til hálfleiks
Fór í tæklingu í d-boga gestanna.
Skotið frá Karynu sem betur fer framhjá.
Þarna mátti ekki miklu muna
Sara ekki nálægt sjónlÃnu markvarðar lÃka
— Magnus Bodvarsson (@MBodvarsson) September 2, 2022
Áslaug Munda stuttu síðar en gestirnir koma boltanum frá
Þessi dómari er bara að giska eitthvað, Amanda rænd fyrsta landsliðsmarkinu #fotboltinet pic.twitter.com/JlOzVQa9wT
— Guðmundur Ãsgeirsson (@gummi_aa) September 2, 2022
Laugardalsvöllur fagnar ákaflega en aðstoðardómarinn lyftir flaggi sínu til marks um rangstöðu. Dæmir á að Sara Björk hafi verið í sjónlínu Mariu í marki Hvít-Rússa sem er í besta falli vafasamt. Held við getum samt verið öll sammála um að dómurinn er hreint bull.
ÃÂfram heldur ÃÂslenska liðið að þjarma að HvÃÂt-Rússum. Amanda Andradóttir á skot sem endar àmarkinu en rangstaða dæmd. pic.twitter.com/m1YXdZpTWq
— RÚV ÃÂþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Taka það stutt, Áslaug Munda með fínan bolta inn á teig og skalli frá Söru rétt framhjá.
Komst í góða stöðu inn á teignum, var óviss hvað hún ætti að gera og endar á því að skjóta í hliðarnetið
Sara Björk eftir að hafa verið gagnrýnd fyrir frammistöðuna á EM pic.twitter.com/smhARmpJP4
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) September 2, 2022
ÞvÃlÃk kona. ÞvÃlÃkur leikmaður!#dottir #fotboltinet
— Elmar Torfason (@elmarinn) September 2, 2022
Sara Björk bara búin að ganga frá þessum leik á korteri 👑 pic.twitter.com/2J9BA3CqeK
— Guðmundur Ãsgeirsson (@gummi_aa) September 2, 2022
Stelpurnar líklegar að bæta við mörkum.
Dæmd aukaspyrna á Gunnhildi í teignum.
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
Stangar boltann í netið eftir frábæra sendingu frá Sveindísi.
Stelpurnar verið gríðarlega kraftmiklar þetta fyrsta korter og forystan verðskulduð.
SARA BJÖRK! Tveimur mÃnútum sÃðar tvöfaldar fyrirliðinn forystu Ãslands eftir frábæra fyrirgjöf SveindÃsar Jane. 2-0 eftir 15 mÃnútur 🇮🇸 pic.twitter.com/kIGJqFZ15w
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Öruggt hjá fyrirliðanum.
Fast niðri í vinstra hornið
Sara Björk! Amanda Andradóttir nær àvÃÂtaspyrnu og fyrirliðinn fer á punktinn og SKORAR! 1-0 pic.twitter.com/U6XcTPlUKk
— RÚV ÃÂþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Sara með góðan bolta á Sveindísi sem reynir að taka vinstri bakvörðinn á.
Inn með boltann!
Skallinn frá Berglindi yfir markið
Frábær bolti frá Söru inn á teig, Sveindís tæklar hann yfir markið.
Dauðafæri! Sara Björk með góða sendingu fyrir en SveindÃÂs Jane næst ekki að teygja sig àboltann. ÃÂslenska liðið byrjar af miklum krafti. pic.twitter.com/OcjGu8YrDp
— RÚV ÃÂþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Leikur stelpnanna okkar gegn Belarús á Laugardalsvelli er hafinn!#alltundir #dottir pic.twitter.com/kCGK4eew21
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 2, 2022
Liðsmyndatökum að ljúka.
Íslenska liðið í sínum bláum búningum og gestirnir í hvítum.
Fyrrum landsliðskonan Hallbera Guðný GÃÂsladóttir, sem lagði skóna á hilluna eftir EM àsumar, var heiðruð fyrir leik ÃÂslands og HvÃÂta-Rússlands sem er að byrja á RÚV. Hallbera segir skrÃÂtið að mæta sem áhorfandi en þó ekki jafn erfitt og hún bjóst við. pic.twitter.com/UdbJrv1J1w
— RÚV ÃÂþróttir (@ruvithrottir) September 2, 2022
Takk fyrir allt Hallbera Guðný, frábær landsliðsferill að baki!
Röddin að fara yfir byrjunarliðin. Allt upp á 10 þar eins og venjulega.
Vökvunargræjurnar komnar af stað.
Liðið gekk til vallar nú áðan til þess að skoða leikvöllinn. Það var létt yfir stelpunum og ljóst að andinn í hópnum er mjög góður.
Íslenska liðið tekur liðkunarhringinn góða.
Aðstæður til fyrirmyndar.
Fólk farið að koma sér fyrir í stúkunni, ennþá miðar í boði. Hvetjum alla sem eru að hugsa um að mæta að láta sjá sig í Laugardalnum.
Karólína Lea er markahæst með 4 mörk en hún bætir ekki við mörkum í dag vegna meiðsla.
Gunnhildur Yrsa, Dagný og Sveindís hafa allar skorað 3 mörk. Spurning hvort einhver þeirra nái að setja mark sitt á leikinn í dag.
Sitja í fjórða sæti riðilsins af fimm liðum með sjö stig eftir sex leiki.
Markatalan 7-13.
Þær töpuðu síðasta leik sínum 3-0 á móti Hollandi en sá leikur var spilaður í lok júní.
Held að Sonný hitti naglann á höfuðið þar.
Það er tvennt öðruvísi frá líklegu byrjunarliði sem var birt hér á síðunni í dag.
Hin 18 ára gamla Amanda Andradóttir kemur inn í liðið fyrir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur sem er meidd. Þá byrjar Ingibjörg Sigurðardóttir áfram í hjarta varnarinnar og Guðrún Arnardóttir er því á bekknum.
â˜€ï¸ pic.twitter.com/8z7tUGQRQE
— Guðmundur Ãsgeirsson (@gummi_aa) September 2, 2022
âš½ Leikdagur!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 2, 2022
😃 Við mætum Belarús à dag à undankeppni HM 2023. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli kl. 17:30.
🎫 Miðasala à fullum gangi á https://t.co/iwyH4UEb7x!
👉 https://t.co/tdaB991VsN
👀 We play Belarus today in the @FIFAWWC qualifiers!#alltundir #dottir pic.twitter.com/HKl0YUhwFZ
Fyrri leikur liðanna í riðlinum fór fram í höfuðborg Serbíu af ástæðum sem flestum ættu að vera kunnar. Íslenska liðið mætti af gríðarlegri ákveðni til leiks og má til sanns vegar færa að Hvít Rússar hafi aldrei séð til sólar í Belgrad.
Dagný Brynjarsdóttir sem lék sinn hundaðasta landsleik þann dag gerði fyrsta mark leiksins á 14.mínútu er hún kom boltanum í netið af stuttu færi eftir langt innkast Sveindísar Jane sem Gunnhildur Yrsa flikkaði á Dagnýju.
Tíu mínútum síðar tvöfaldaði íslenska liðið forystu sína þegar að Gunnhildur Yrsa fylgdi á eftir skoti Dagnýjar sem var varið og skilaði boltanum af öryggi í netið. Það var síðan aðeins mínútu síðar eða á 25.mínútu sem Berglind Björg Þorvaldsdóttir gerði þriðja mark Íslands eftir góðan undirbúning Sveindísar Jane. Þannig stóðu leikar í hálfleik og Íslenska liðið í kjörstöðu eftir frábæran fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur var rétt nýhafin þegar Ísland bætti enn í. Í þetta sinn var það Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sem skoraði með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu. Karólína var svo aftur á ferðinni á 57.mínútu þegar hún skoraði sitt annað mark með frábæru skoti eftir undirbúning Sveindísar.
Meira var ekki skorað í leiknum en 5-0 sigur Íslands staðreynd og góð þrjú stig í vegferðinni á HM í húsi.
Hin 31 árs gamla Karoline Wacker frá Þýskalandi er dómari leiksins í kvöld. Hún er ekkert sérlega reynslumikil þegar kemur að því að vera aðaldómari í alþjóðlegri knattspyrnu en hefur verið að fá fleiri og betri tækifæri á undanförnum árum auk þess að dæma í efstu deild kvenna í heimalandinu.
Henni til aðstoðar eru Melissa Joos og Daniela Göttlinger sem aðstoðaradómarar. Þá er Miriam Schwermer fjórði dómari en líkt og Karoline eru þær allar þýskar.
Hallbera Guðný Gísladóttir verður heiðruð fyrir framlag sitt til knattspyrnu fyrir leikinn í kvöld.
Hallbera lagði skóna á hilluna eftir síðasta leik Íslands á EM á Englandi í sumar. Hún spilaði samtals 131 leik fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim þrjú mörk. Hallbera lék sinn fyrsta landsleik í 2-0 sigri gegn Póllandi á Algarve cup árið 2008 og tók hún þátt í þremur stórmótum á ferlinum, EM 2013, EM 2017 og EM 2022.
Hallbera hóf knattspyrnuferil sinn með ÍA og spilaði einnig með Val og Breiðablik á Íslandi. Erlendis lék Hallbera með fjórum félögum í Svíþjóð, Piteå, Djurgårdens, AIK og IFK Kalmar og með Torres á Ítalíu. Knattspyrnusamband Íslands þakkar Hallberu fyrir framlag sitt til íslenskrar knattspyrnu.
Þá verður kvennalið FH frá 1972 einnig heiðrað en þær voru fyrstu Íslandsmeistarar kvenna hér á landi fyrir 50 árum síðan.
Sara Björk: Væri alveg geggjað að sjá allavega eina fulla stúku
Óvissa hjá Alexöndru eftir EM - Seinustu tvær vikur hafa verið flottar"
Dagný datt inn og út á fundi í gær: Þetta er ekkert eðlilega grillað dæmi
Berglind um PSG: Geggjað að þau hafi áfram fylgst með mér
Arna mætt aftur: Átta mig alveg á stöðunni sem ég er í
Sveindís Jane: Ég er heppin að fá þennan eiginleika
Glódís: Steini fékk nóg af okkur í gær og lét okkur hlaupa
Tók á andlega - Er eiginlega bara brjáluð og vil ná í úrslit hér"
Ásdís Karen: Eitthvað sem mann dreymir um að gera
Sandra Sig: Það var geggjað, hann er frábær tónlistamaður
Gunnhildur og Sveindís á æfingu í gær.
Stærsta spurningamerkið er líklega hver kemur inn í liðið fyrir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, sem er meidd. Það er búist við því að Þorsteinn Halldórsson verði með sömu miðju og í fyrstu tveimur leikjunum á EM og muni setja inn nýjan kantmann.
Steini hefur mikið verið að setja Svövu Rós Guðmundsdóttur, leikmann Brann, inn af bekknum en við spáum því að hún muni byrja í kvöld.
Við spáum því jafnframt að Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir muni taka stöðu Hallberu Guðnýjar Gísladóttur í vinstri bakverðinum og að Guðný Árnadóttir komi inn í hægri bakvörðinn.
Í dag spilar íslenska kvennalandsliðið gríðarlega mikilvægan leik gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM. Með sigri þá förum við í efsta sæti riðilsins fyrir lokaumferðina þar sem stelpurnar okkar mæta Hollandi í Utrecht í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins.
Stelpurnar ætla sér á HM í fyrsta sinn. Það yrði risastórt fyrir lítið land eins og Ísland.
Þetta er eini heimaleikurinn hjá stelpunum okkar á þessu ári. Við hvetjum auðvitað alla til að skella sér á völlinn og syngja sig hása.
ÁFRAM ÍSLAND!