Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Mjólkurbikar karla
Augnablik
15' 0
0
Stjarnan
Mjólkurbikar karla
Þróttur R.
46' 0
1
HK
Mjólkurbikar karla
Valur
46' 2
0
FH
Mjólkurbikar karla
45' 1
3
KR
Breiðablik
1
0
Valur
Ísak Snær Þorvaldsson '63 1-0
05.09.2022  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla - 20. umferð
Aðstæður: Frábærar aðstæður, nokkuð hlýtt og logn.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1511
Maður leiksins: Dagur Dan Þórhallsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
10. Kristinn Steindórsson ('84)
11. Gísli Eyjólfsson
14. Jason Daði Svanþórsson ('92)
16. Dagur Dan Þórhallsson
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Mikkel Qvist
5. Elfar Freyr Helgason
8. Viktor Karl Einarsson ('92)
13. Anton Logi Lúðvíksson
19. Sölvi Snær Guðbjargarson
25. Davíð Ingvarsson ('84)

Liðsstjórn:
Gunnleifur Gunnleifsson (Þ)
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)
Marinó Önundarson
Aron Már Björnsson
Alex Tristan Gunnþórsson
Ásdís Guðmundsdóttir

Gul spjöld:
Oliver Sigurjónsson ('45)
Davíð Ingvarsson ('89)
Damir Muminovic ('97)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Blikar vinna 1-0 sigur á Val!
97. mín Gult spjald: Aron Jóhannsson (Valur)
97. mín Gult spjald: Damir Muminovic (Breiðablik)
Hiti inn á vítateig Blika. Aukaspyrna dæmd á Val.
97. mín
Boltinn endar í höndunum á Antoni Ara!
96. mín
Valsmenn fá innkast hátt á vellinum!
96. mín
Blikar ná að hreinsa í innkast.
95. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu, allir fram!
95. mín
Blikarnir að gera vel í þessum uppbótartíma.

Samt örugglega 90 sek eftir.
93. mín
Birkir Már kemur í veg fyrir að Ísak Snær nái að keyra með boltann í gegn eftir sendingu frá Höskuldi. Rennir sér fyrir, kemur boltanum í innkast en fer líka í Ísak se kveinkar sér aðeins.
92. mín
Inn:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) Út:Jason Daði Svanþórsson (Breiðablik)
Leikurinn verið stopp í rúma mínútu.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við.
90. mín
Ágúst Hlynsson með skot fyrir utan sem Anton Ari er ekki í neinum vandræðu með.

Gísli liggur eftir og þarf á aðhlynningu að halda.
90. mín
Andri Rafn með frábæran varnarleik gegn Guðmundi Andra á sprettinum og vinnur boltann af honum.
89. mín
Inn:Heiðar Ægisson (Valur) Út:Arnór Smárason (Valur)
89. mín Gult spjald: Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
87. mín
Blikar í séns, Jason reynir að finna Dag á sprettinum en sendingin er of framarlega og Frederik er vel á tánum.
86. mín
Andri náði að stela einhverjum 20 metrum þegar hann tók þetta innkast.

Valsmenn eru að leita að jöfnunarmarki.
84. mín
Inn:Davíð Ingvarsson (Breiðablik) Út:Kristinn Steindórsson (Breiðablik)
Dagur færist upp völlinn.
84. mín
Leikurinn stöðvaður þar sem Dagur heldur um höfuðið á sér.
83. mín
Leikurinn var stoppaður þegar Valsmenn voru með boltann við vítateig Blika þar sem Viktor lá eftir.

Valsmenn náðu ekki að gera sér mat úr þessu.
82. mín
Valsmenn vilja fá vítaspyrnu. Viktor Örn og Sebastian lenda eitthvað saman. Fannst þetta ekki vera mikið.
81. mín
Valur á hornspyrnu.
80. mín
Ísak Snær brýtur af sér á vallarhelmingi Blika. Tækifæri fyrir Val.

Arnór með boltann inn á teiginn, hann hrekkur af tveimur áður en Anton Ari handsamar hann.
78. mín
Frábær varnarleikur hjá Gísla á sprettinum gegn Birki Má. Vinnur aukaspyrnu.
77. mín
1511 áhorfendur á Kópavogsvelli í kvöld. Flott mæting.
76. mín
Damir og Guðmundur Andri skella saman og leikurinn er stöðvaður.

Þeir geta báðir haldið leik áfram.
75. mín
Anton Ari að brasa einhvern óþarfa þarna. Kemur út úr teig og þrumar boltanum upp völlinn. Boltinn fór reyndar ekkert mjög langt, ekki að miðlínu og Birkir Heimis reyndi að skjóta að marki Blika en hitti ekki. Blikar ná svo að hreinsa.
73. mín Gult spjald: Sebastian Hedlund (Valur)
Brýtur á Gísla sem þarf aðhlynningu. Keyrði í bakið á Gísla.
73. mín
Guðmundur Andri sleppur í gegn er dæmdur rangstæður.
71. mín Gult spjald: Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Brýtur á Ísaki við miðlínu.
70. mín
Kristinn í góðu færi
Hröð sókn hjá Blikum, Höskuldur laumar boltanum inn á Kristinn sem er við vítateiginn og með Frederik fyrir framan sig en skotið hans fer framhjá.
68. mín

Unnu vel saman Mosfellingarnir
Skot frá Jöklinum?

66. mín
Valsmenn ná að verjast þessu ágætlega.
65. mín
Jason vinnur aukaspyrnu úti á hægri kantinum.
63. mín MARK!
Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Stoðsending: Jason Daði Svanþórsson
FYRSTA MARKIÐ!!!

Fyrsta mark Ísaks í rúman mánuð. Að sjálfsögðu var það Jason sem lagði það upp.

Blikarnir sækja up eftir skotið frá Aroni, Höskuldur kemur boltanum út á Jason sem á sendingu á fjær og Ísak kemur boltanum yfir línuna. Skotið er í jörðina, úr þröngu færi en Frederik er að færa sig yfir og ver boltann inn.
62. mín
Aron Jó með skot rétt við D-bogann á teig Blika en það fer beint á Anton sem grípur í annarri tilraun.
61. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (Valur) Út:Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Þjálfarateymi Vals fljótt að taka Hauk af velli.
61. mín
Inn:Sebastian Hedlund (Valur) Út:Orri Hrafn Kjartansson (Valur)
Ekki alveg leikurinn hans Orra.
59. mín
Valsmenn ná að verjast aukaspyrnunni og sækja hratt upp. Dagur Dan hleypur Orra uppi á sprettinum og Orri brýtur svo á Degi. Spurning líka með spjald þarna.
58. mín
ÚFF Haukur Páll....

Rennir sér og brýtur á Andra Rafni. Haukur er á spjaldi en sleppur við spjald í þetta skiptið! Það var lykt þarna af spjald.
55. mín
Aftur er Orri í álitlegri stöðu en nú er það Viktor Örn sem hreinsar. Spurning með fyrstu snertinguna þarna hjá Orra.
52. mín
Hætta inn á teig Blika. Arnór með hornið og hann finnur Hólmar aleinan inn á teignum. Hólmar á skalla í Damir og Blikar hreinsa.
51. mín
Dagur Dan!

Virkilega vel útfærð hröð sókn hjá Val. Aron lyftir boltanum inn á Orra sem er grunsamlega einn á leið í gegn. Áður en Orri nær að taka almennilega við boltanum er Dagur búinn að ná honum og hreinsar í horn. Frábærlega bjargað.
50. mín
Jesper!

Boltinn dettur fyrir Gísla inn á teig Vals og hann lætur vaða en Jesper kemst fyrir og kemur í veg fyrir að boltinn fari að marki.
49. mín
Höskuldur með skot fyrir utan teig sem fer af Jesper og aftur fyrir.

Blikar taka hornið stutt og Valsmenn ná að hreinsa í innkast.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Engin breyting á liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Frederik Schram hefur í hálfleik verið að fá skot á sig til að halda sér heitum.
45. mín
Hálfleikur
45. mín
Hálfleikur
Jafnt í hálfleik á Kópavogsvelli.
45. mín
45+1

Einni mínútu bætt við. Jesper tekur aukaspyrnuna en hún endar í höndunum á Antoni.
45. mín Gult spjald: Oliver Sigurjónsson (Breiðablik)
Blikar allt annað en sáttir. Vildu meina að Oliver hefði komist í boltann þegar hann renndi sér nálægt Orra.
44. mín
Sigurður Egill vinnur horn fyrir Val.

Jesper tekur hornið fast meðfram jörðinni inn á teiginn, þar er Sigurður og hann lætur vaða. Skotið fer í Andra og svo á Hólmar skalla yfir mark Blika.
43. mín
Hröð sókn hjá Blikum sem endar á skoti Jason eftir sendingu frá Ísaki. Skotið frá Jasoni fer yfir mark Vals.
41. mín
Jason vinnur horn fyrir Blika.

Oliver reynir að finna Jason á sprettinum eftir að hornið var tekið stutt en boltinn er of langur og endar í höndum Frederik.
40. mín
Ísak Snær!
Blikar fengu hagnað í sókn sinni sem endaði með fyrirgjöf frá Kristni sem fann Ísak inn á teignum en skalli hans fór rétt framhjá nærstönginni á marki Vals!
40. mín Gult spjald: Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Kominn tími til segja Blikarnir í stúkunni.
39. mín
Fínasta sókn hjá Valsmönnum en sendingin frá Birki Má sem ætluð var Aroni inn á teignum er of löng.

Hinumegin á Dagur Dan fyrirgjöf sem fór hátt yfir mark Vals.
37. mín
Jason Daði reynir að taka Sigurð á inn á teignum en Sigurður verst vel og vinnur boltann.
34. mín
Fín sókn hjá Blikum sem endar með skoti frá Kristni eftir undirbúning frá Ísaki. Skotið fór yfir mark Vals, spurning hvort Ísak hefði mátt taka ákvörðun fyrr en hann var með nokkra möguleika í kringum sig.
32. mín
Kristinn hreinar í burtu eftir hornspyrnu Vals. Valsarar sækja áfram en sókninni lýukur þegar brotið er á Ísaki við vítateig Blika.
31. mín
Ágúst með fyrirgjöf inn á teig Breiðabliks sem Viktor Örn kemur aftur fyrir og í hornspyrnu. Góð sending frá Aroni í aðdragandanum.
30. mín
Gísli með skot framhjá marki Vals.
29. mín
Höskuldur með skalla eftir fyrrigjöf frá Kristni en skallinn fer yfir markið og ofan á þaknetið.
27. mín
Frederik ýtir boltanum í burtu á línunni!
Ísak Snær, Oliver og Höskuldur höfðu átt skottilraunir í sókn Blika og svo átti Andri Rafn tilraun sem Frederik var í vandræðum með, varði boltann aftur fyrir sig, náði aftur til og kastaði svo boltanum frá sér þegar hann var að falla inn í markið.
27. mín
Blikarnir verið talsvert meira með boltann og eru að skapa sér skotfæri við og við en hafa ekki náð að skapa dauðafæri til þessa. Valsmenn hafa ekkert skapað.
26. mín
Álitleg sókn hjá Val en Arnór er dæmdur rangstæður við vítateiginn.
21. mín
Kristinn með skot fyrir utan teig Vals sem fer í varnarmann og aftur fyrir. Blikar eiga horn.

Viktor kemst í boltann frá Höskuldi en nær bara að skalla til hliðar.
20. mín
Frederik!
Frederik með frábæra vörslu frá Kristni. Vel spilað hjá Blikum, Dagur reyndi að finna Gísla en tókst ekki, boltinn hrökk á Kidda sem reynir að skrúfa boltann í fjær en Frederik sér við honum.

Blikar fengu horn en voru dæmdir brotlegir og því tekur Frederik nú aukaspyrnu inn á vítateig Vals.
19. mín
Höskuldur með skot með vinstri utarlega úr teignum eftir sendingu frá Degi. Skotið misheppnast og fer hátt yfir.
17. mín Gult spjald: Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Brýtur á Jasoni Daða.
16. mín
Orri fær boltann frá Birki við vítateig Blika en Oliver verst vel.
14. mín
Ísak reynir að taka Hólmar á við vítateig Vals en kemst ekki áfram. Haukur hjálpaði Hólmari þarna og sóknin rennur út í sandinn.
13. mín
Gísli með þrumuskot!
Höskuldur sker boltann af hægri vængnum út fyrir teiginn og þar er Gísli sem lætur vaða í fyrsta. Skotið er gott en Frederik ver það til hliðar.

Gísli á svo aðra tilraun en Haukur rennir sér fyrir það skot.
10. mín
Frederik kýlir horn númer tvö í burtu og grípur svo fyrirgjöf í kjölfarið.
9. mín
Dagur!
Hætta eftir hornið, sending út á Dag frá Andra og Dagur tekur boltann á lofti, á skot sem fer tiltölulega beint á Frederik sem ver í horn.
9. mín
Dagur vinnur hornspyrnu fyrir Blika.
8. mín
Haukur Páll rennir sér og Höskuldur fellur. Ívar Orri ræðir við Hauk Pál og aðvarar hann.
7. mín
Fínt upphlaup frá Blikum sem endar á of fastri sendingu frá Kristni fyrir fram Jason.
5. mín
Dagur gerir vel úti vinstra megin, fíflar Orra en nær ekki að koma boltanum inn á samherja á teignum. Hólmar hreinsar í innkast.
3. mín
Uppstilling Vals (4-2-3-1)
Frederik
Birkir M - Hólmar - Jesper - Sigurður
Haukur - Bikrir H
Orri - Arnór - Ágúst
Aron
2. mín
Blikar (4-3-3) - Dagur í vinstri bakverði
Svona stilla heimamenn upp:

Anton
Andri - Damir - Viktor - Dagur
Höskuldur - Oliver - Gísli
Ísak - Kristinn - Jason
1. mín
Leikur hafinn
Breiðablik byrjar með boltann!
Fyrir leik
Þrjár og þrjár - Enginn Tryggvi
Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og gerir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, þrjár breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Víkingi á fimmtudag. Viktor Karl Einarsson, Mikkel Qvist og Davíð Ingvarsson taka sér sæti á bekknum. Inn koma Kristinn Steindórsson, Viktor Örn Margeirsson og Andri Rafn Yeoman.

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, gerir þrjár breytingar frá leiknum gegn Fram síðasta mánudag. Patrick Pedersen tekur út leikbann, Tryggvi Hrafn Haraldsson er ekki í hóp og Guðmundur Andri Tryggvason tekur sér sæti á bekknum. Inn koma þeir Birkir Heimisson, Arnór Smárason og Orri Hrafn Kjartansson.

Tryggvi glímir við meiðsli eftir því sem ég best veit.
Fyrir leik
Ísak og Jason kólnað
Ísak Snær Þorvaldsson byrjaði mótið frábærlega og var fyrstu mánuði þess besti leikmaður deildarinnar. Hann var kominn með ellefu mörk í júní en hefur einungis skorað eitt mark síðan og það kom í 3-1 sigri gegn ÍA fyrir rúmlega mánuði síðan. Hann hefur misst út leiki vegna meiðsla og til að gæta allrar sanngirni hefur hann haldið áfram að koma að mörkum, eitthvað lagt upp, en aðeins misst dampinn þegar kemur að markaskoruninni.

Það sem minna hefur verið talað um er að Jason Daði Svanþórsson, sem hefur skorað sjö mörk í sumar, hefur ekki skorað síðan í júní. Hann hefur ekki virkað í sama takti og hann var upp á sitt besta.

Það má segja að það sé mikið styrkleikamerki hjá Breiðabliki að vera þrátt fyrir minnkandi markaskor þessara tveggja leikmanna langefst í deildinni.
Fyrir leik
Viktor Örn snýr úr banni - Lasse Petry og Patrick í banni
Viktor Örn Margeirsson hefur misst út síðustu tvo leiki vegna leikbanns. Hann snýr til baka í dag og er líklegur til þess að byrja.

Hjá Val verða þeir Lasse Petry og Patrick Pedersen fjarri góðu gamni þar sem þeir taka út leikbann.

Byrjunarliðin verða opinberuð klukkutíma fyrir leik.
Fyrir leik
Óskar Smári spáir þrennur frá Jasoni
Óskar Smári Haraldsson er spámaður Fótbolta.net þessa umferðina. Hann spáir heimasigri í kvöld.

Breiðablik 3 - 1 Valur
Hvað gera góð lið þegar þau fá kjaftshöggið? Óskar kom þessu vel frá sér eftir leikinn gegn Blikunum: "þetta snýst ekki um höggið sjálft, heldur hvernig þú bregst við því" og það sem Blikarnir munu gera er að bregðast við því með því að sigra Val sannfærandi í stórleik umferðarinnar.

Jason Daði var vægast sagt slakur í leiknum gegn Víkingi, ég man ekki eftir 2 slökum leikjum í röð frá honum þannig ég set þrennu á hann. Arnór Smára fær 5 min undir lokin og setur mark á þeim tíma, enda er það svosem það sem hann gerir þegar hann fær að spila - kemur með impact.
Fyrir leik
Ívar Orri með flautuna
Ívar Orri Kristjánsson er með flautuna í leiknum í kvöld og honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.

Þorvaldur Árnason er varadómari og Kristinn Jakobsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Ívar Orri
Fyrir leik
Staðan í deildinni og síðustu leikir:
Breiðablik er á toppi deildarinnar og hefur unnið tvo síðustu deildarleiki sína. Liðið vann Leikni örugglega í síðustu umferð, 4-0. Síðasti leikur liðsins var þó í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þar sem liðið tapaði 0-3 gegn Víkingi, úrslit sem eflaust svíða talsvert. Forskot Breiðabliks á KA, liðið í 2. sæti, fyrir leikinn í kvöld er átta stig.

Valur er í fjórða sæti deildarinnar, þrettán stigum á eftir Breiðabliki. Liðið er taplaust í síðustu sex leikjum en hefur gert tvö jafntefli í röð. Síðasti leikur endaði með 1-1 jafntefli gegn Fram þar sem Fram jafnaði undir lokin.

Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með 3-2 sigri Vals á Origo vellinum og var það fyrsta tap Breiðabliks í sumar.
Pedersen skoraði sigurmark Vals í uppbótartíma í fyrri leiknum
Fyrir leik
Umferðinni lýkur með risaleik!
Góða kvöldið lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Breiðabliks og Vals í lokaleik 20. umferðar í Bestu deild karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Kópavogsvelli, heimavelli Breiðabliks.
Byrjunarlið:
1. Frederik Schram (m)
Haukur Páll Sigurðsson ('61)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Jesper Juelsgård
5. Birkir Heimisson
7. Aron Jóhannsson
8. Arnór Smárason ('89)
11. Sigurður Egill Lárusson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
19. Orri Hrafn Kjartansson ('61)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
4. Heiðar Ægisson ('89)
6. Sebastian Hedlund ('61)
13. Rasmus Christiansen
14. Guðmundur Andri Tryggvason ('61)
21. Sverrir Þór Kristinsson
23. Arnór Ingi Kristinsson

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Haraldur Árni Hróðmarsson
Örn Erlingsson
Helgi Sigurðsson

Gul spjöld:
Sigurður Egill Lárusson ('17)
Haukur Páll Sigurðsson ('40)
Hólmar Örn Eyjólfsson ('71)
Sebastian Hedlund ('73)
Aron Jóhannsson ('97)

Rauð spjöld: