Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Vestri
2
2
Selfoss
0-1 Gonzalo Zamorano '43
Nicolaj Madsen '45 1-1
Christian Jiménez Rodríguez '77 , sjálfsmark 1-2
Martin Montipo '91 2-2
10.09.2022  -  14:00
Olísvöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Góðar, þurrt, gola, 10 gráður
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Áhorfendur: 150
Maður leiksins: Silas Songani
Byrjunarlið:
Daniel Osafo-Badu
Brenton Muhammad
10. Nacho Gil ('74)
11. Nicolaj Madsen
14. Deniz Yaldir
19. Pétur Bjarnason ('83)
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Silas Songani ('74)
25. Aurelien Norest
27. Christian Jiménez Rodríguez
77. Sergine Fall ('74)

Varamenn:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
7. Vladimir Tufegdzic ('74)
13. Toby King
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('74)
16. Ívar Breki Helgason
18. Martin Montipo ('74)
26. Friðrik Þórir Hjaltason
44. Rodrigo Santos Moitas ('83)

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Daníel Agnar Ásgeirsson
Jón Hálfdán Pétursson
Patrick Bergmann Kaltoft

Gul spjöld:
Elmar Atli Garðarsson ('14)
Nicolaj Madsen ('80)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Hornið er skallað frá og leikurinn endar með 2-2 jafntefli.
94. mín
Vestri fær horn.
91. mín MARK!
Martin Montipo (Vestri)
Stoðsending: Deniz Yaldir
Vestri virkuðu ekkert sérlega líklegir til að jafna en gera það samt! Deniz með sendingu utan af kanti og Martin skallar hann í netið.
83. mín
Inn:Rodrigo Santos Moitas (Vestri) Út:Pétur Bjarnason (Vestri)
83. mín
Inn:Danijel Majkic (Selfoss) Út:Jón Vignir Pétursson (Selfoss)
81. mín
Dean Martin með afar ljótt orbragð hérna upp í stúkuna. F-orðið og C-orðið og börnin í stúkunni gráti næst sem þurfa að heyra þetta.
80. mín Gult spjald: Nicolaj Madsen (Vestri)
79. mín
Norest bjargar því að Martin sleppi í gegn með flottri tæklingu.
77. mín SJÁLFSMARK!
Christian Jiménez Rodríguez (Vestri)
Afar aulalegt sjálfsmark hjá Christian. Á lélega sendingu í vörninni og Selfoss komast þrír á tvo. Sendingin fyrir slegin af Brenton, Christian tekur snertingu sem er of föst og boltinn lekur yfir línuna.
74. mín
Inn:Óliver Þorkelsson (Selfoss) Út:Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
74. mín
Inn:Vladimir Tufegdzic (Vestri) Út:Silas Songani (Vestri)
74. mín
Inn:Martin Montipo (Vestri) Út:Sergine Fall (Vestri)
74. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Nacho Gil (Vestri)
67. mín
Vestri mikið með boltann en ekki að ná að skapa sér neitt undanfarnar mínútur.
61. mín
Inn:Alexander Clive Vokes (Selfoss) Út:Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)
61. mín
Inn:Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss) Út:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss)
60. mín
Madsen með skalla eftir aukaspyrnu, af frekar löngu færi og þetta siglir yfir.
59. mín Gult spjald: Gary Martin (Selfoss)
58. mín
Silas með skot í stöng! komast 3 á 2, enginn fer í Silas sem er með boltann og þéttingsfast skot hann glymur í stönginni.
56. mín
Vá! Hvílíkt spil hjá Vestra, upp allan völlin og sirka 5 sendingar innan vítateigs sem enda í dauðafæri hjá Deniz sem hamrar boltann af stuttu færi í slánna og niður. Þarna átti hann að skora.
50. mín
Silas fer hér laglega framhjá þremur leikmönnum en er kominn að endamörkum þegar hann setur boltann að markinu og Stefán er fyrir.
48. mín
Byrjar fjörlega, bæði lið komist í fínar stöður en engin færi komið úr því.
46. mín
Vestri hefur síðari hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið.
45. mín
Ingvi Rafn með skot fyrir utan, fast en beint á Brenton.
45. mín MARK!
Nicolaj Madsen (Vestri)
Stoðsending: Deniz Yaldir
Hornspyrna Deniz og margir reyna við boltann á nær, enginn nær til hans og hann skoppar til Madsen sem er aleinn á fjær og skorar þægilega!
44. mín
Silas með skalla af varnarmanni og yfir.
43. mín MARK!
Gonzalo Zamorano (Selfoss)
Glæsilega gert hjá Gonzalo! Tekur þríhyrning við vítateigshornið, sá nú ekki við hvern og leggur boltann í fjærstöngina og inn.
41. mín
Badu með slakt skot fyrir utan, yfir og framhjá.

Elvar Geir Magnússon
33. mín
Valdimar afar nálægt því að koma Selfoss yfir. Gonzalo gerir afar vel og kemst upp að endamörkum rennir boltanum á Valdimar sem setur tánna í boltann og hann rennur rétt framhjá fjærstönginni.
30. mín
Fall hleypur nánast óáreittur inn í teig og í fínu færi á hann sendingu/skot sem Pétur er hársbreidd frá að ná að teygja sig í.
25. mín
Badu í hörkufæri eftir að Pétur skallaði hornspyrnu Deniz yfir á fjær. Tekur boltann á lofti stutt frá marki en setur hann hátt yfir.
25. mín
Fyrsta hornspyrna Vestra.
18. mín
Silas hleypur með boltann einhverja 40 metra og leikur á varnarmann Selfoss og á svo fínt skot fyrir utan sem Stefán slær til hliðar. Fín byrjun á þessum leik.
17. mín
Silas hittir ekki boltann í afar góðu skallafæri, góð fyrirgjöf hjá Deniz.
16. mín
Gonzalo á skot á vítateigshorninu eftir hornspyrnu en Brenton grípur.
15. mín
Brenton gerir vel að kýla knöttinn frá og heimamenn fara í afar laglega sókn sem endar með því að Fall leggur hann út fyrir teig þar sem Badu á vinstrifótarskot sem fer hárfínt framhjá.
14. mín Gult spjald: Elmar Atli Garðarsson (Vestri)
Elmar togar sóknarmann Selfoss niður út á kanti. Selfoss á aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.
11. mín
Selfoss fá aðra hornspyrnu leiksins. Boltinn endar hjá markverði Vestra.
11. mín
Selfoss fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
9. mín
Fyrsta skipti sem dómarinn fær að láta til sín taka. Sleppir tveimur afar augljósum brotum á Vestramönnum og bendir á innkast fyrir Selfoss.
8. mín
Fín sókn hjá Vestra, Nacho stingur innfyrir á Silas sem sendir fyrir á Pétur sem skallar boltann yfir, kannski aðeins of hátt fyrir Pétur svo hann gæti stýrt þessum á markið.
5. mín
Silas í fínu skotfæri við miðju marki en við vítateigslínuna, en hann hittir knöttinn illa.
3. mín
Gonzalo í ágætis séns, tekur boltann á lofti eftir að fyrirgjöf var skölluð yfir á fjær, en hann hittir knöttinn illa.
1. mín
Leikur hafinn
Selfoss byrjar þetta.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á. Afar fáir mættir á völlinn en vonandi skánar það brátt, Ísfirðingar þekktir fyrir að mæta mátulega seint. Vestri leika í sínum alkunnu dökkbláu og rauðu treyjum en Selfyssingar eru í hvítum og ljósbláum búning.
Fyrir leik
Veðrið eins og best verður á kosið. Þurrt, nánast logn hiti um 10 gráður.
Fyrir leik
Liðin eru klár. Enginn Tokic hjá Selfoss en Gary Martin treystir sér á völlinn þrátt fyrir fráfall drottningar. Hjá Vestra er liðið nálægt sínu sterkasta en Friðrik Hjaltason varnarmaður er ekki með í dag, grunar að hann þurfi lengri tíma að jafna sig á fréttunum frá Bretlandi.
Fyrir leik
Þórður Þorsteinn Þórðarson er dómari í dag. Verður áhugavert að fylgjast með þessum unga dómara sem er með talsverða reynslu sem leikmaður á efsta stigi íslenskrar knattspyrnu.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna í júlíbyrjun endaði með 1-0 sigri Ísfirðinga. Deniz Yaldir var þá allt í öllu, skoraði sigurmarkið og var rekinn út af.
Fyrir leik
Selfoss er stigi fyrir ofan Vestra í sjötta sæti. Eftir góða byrjun misstu þeir af lestinni í toppbaráttunni og Fylkir og HK stungu af. Selfyssingar unnu 5-3 sigur á Grindavík í síðustu umferð, ég sá þann leik ekki en grunar að það hafi verið mikill markaleikur.
Fyrir leik
Vestri er í níunda sæti með 27 stig en einvörðungu tvö stig eru upp í Aftureldingu í fimmta sæti. Vestri gerði jafntefli við fallna KV menn í síðustu umferð.
Fyrir leik
Komið heil og jafnvel sæl á leik Vestra og Selfoss í 21.umferð Lengjudeildar karla. Það er við hæfi að þessi leikur fari fram þar sem lognið á lögheimili þar sem þau sigla bæði lygnan sjó nú þegar tvær umferðir eru eftir í mótinu.
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson ('61)
4. Jökull Hermannsson
5. Jón Vignir Pétursson (f) ('83)
8. Ingvi Rafn Óskarsson
10. Gary Martin
17. Valdimar Jóhannsson ('74)
19. Gonzalo Zamorano
22. Þorsteinn Aron Antonsson
23. Þór Llorens Þórðarson
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('61)

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('61)
6. Danijel Majkic ('83)
15. Alexander Clive Vokes ('61)
21. Aron Einarsson
24. Elfar Ísak Halldórsson
99. Óliver Þorkelsson ('74)

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Guðjón Björgvin Þorvarðarson

Gul spjöld:
Gary Martin ('59)

Rauð spjöld: