Selfoss
2
0
Breiðablik
Miranda Nild '32 1-0
Bergrós Ásgeirsdóttir '73 2-0
25.09.2022  -  14:00
JÁVERK-völlurinn
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Vindur en annars fínt veður.
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 313
Maður leiksins: Bergrós Ásgeirsdóttir.
Byrjunarlið:
1. Tiffany Sornpao (m)
3. Sif Atladóttir
4. Íris Una Þórðardóttir
6. Bergrós Ásgeirsdóttir ('85)
10. Barbára Sól Gísladóttir
15. Unnur Dóra Bergsdóttir (f)
16. Katla María Þórðardóttir
20. Miranda Nild
21. Þóra Jónsdóttir ('75)
22. Brenna Lovera ('90)
24. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir

Varamenn:
13. Karen Rós Torfadóttir (m)
2. Brynja Líf Jónsdóttir
9. Embla Dís Gunnarsdóttir ('90)
11. Jóhanna Elín Halldórsdóttir
19. Eva Lind Elíasdóttir ('85)
22. Guðrún Þóra Geirsdóttir ('75)
25. Auður Helga Halldórsdóttir

Liðsstjórn:
Björn Sigurbjörnsson (Þ)
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Erna Guðjónsdóttir
Svandís Bára Pálsdóttir
Hafdís Jóna Guðmundsdóttir
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir
Gunnar Geir Gunnlaugsson

Gul spjöld:
Katla María Þórðardóttir ('8)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Breiðablik að skapa sér meira en Selfoss náðu að nýta sín færi.
90. mín
+2

Birta í góðu færi en Tiffany ver með tánum einu númeri minna og boltinn hefði getað farið inn.
90. mín
Fimm mínútum bætt við.
90. mín
Inn:Embla Dís Gunnarsdóttir (Selfoss) Út:Brenna Lovera (Selfoss)
90. mín
Barbára vinnur boltann og setur hann á Brennu sem á skot en það er framhjá.
85. mín
Inn:Laufey Harpa Halldórsdóttir (Breiðablik) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Breiðablik)
85. mín
Inn:Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz (Breiðablik) Út:Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Breiðablik)
85. mín
Inn:Eva Lind Elíasdóttir (Selfoss) Út:Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfoss)
79. mín
Inn:Rakel Hönnudóttir (Breiðablik) Út:Írena Héðinsdóttir Gonzalez (Breiðablik)
79. mín
Inn:Margrét Brynja Kristinsdóttir (Breiðablik) Út:Clara Sigurðardóttir (Breiðablik)
75. mín
Inn:Guðrún Þóra Geirsdóttir (Selfoss) Út:Þóra Jónsdóttir (Selfoss)
73. mín MARK!
Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfoss)
Langur bolti á Miröndu sem setur boltann í fyrsta í gegn á Brennu sem er ein á móti Evu sem ver en Bergrós tekur frákastið og klárar í frekar tómt mark.
72. mín
Karítas á fast skot en Tiffany grípur boltann.
70. mín
Breiðablik aftur í góðri stöðu en Clara setur boltann framhjá.
70. mín
Boltinn ofan á þaknetið.
69. mín
Breiðablik vinnur horn.
68. mín
Agla með spyrnuna beint á Natöshu sem setur boltann í netið en er fyrir innan vörn Selfoss þegar spyrnan er tekin.
68. mín
Aukaspyrna fyrir Breiðablik á góðum stað.
67. mín
Breiðablik aftur í skotfæri en Tiffany ver.
66. mín
Agla með boltann við hliðarlínuna og á fyrirgjöf sem endar beint hjá Clöru sem setur boltann yfir af stuttufæri.
65. mín
Smá klafs inní teignum en Selfoss hreinsar í innkast.
61. mín
Mishepnuð fyrirgjöf endar í hálfskoti en það er framhjá og fer í markspyrnu fyrir Selfoss.
57. mín
Breiðablik hreinsar.
57. mín
Selfoss fær auka á góðum stað hjá hliðarlínuni.
53. mín
Samstuð á milli Karítas og Brennu og báðar þurfa smá aðhlynningu frekar Brenna samt.
48. mín
Skot á mark en Tiffany ver.
47. mín
Breiðablik fær horn en stuttu seinna fá þær annað horn.
46. mín
Leikur hafinn
Breiðablik hefur seinni hálfleikinn.
45. mín
Inn:Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Breiðablik) Út:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Breiðablik)
45. mín
Hálfleikur
Breiðablik búnar að skapa sér meira en Selfoss samt einu marki yfir.
43. mín Gult spjald: Clara Sigurðardóttir (Breiðablik)
Clara sein í tæklingu og fær gult spjald.
42. mín
Agla með boltann á miðjan teiginn en Tiffany kýlir í burtu og Selfoss ná að setja botlann í innkast.
40. mín
Katla liggur eftir og þarf aðhlynningu.
40. mín
Írena fær tíma til að munda skot fótinn og lætur vaða en Tiffany ver í hron.
36. mín
Helena er ein á kantinum og á sendingu inní en Barbára hreinsar.
32. mín MARK!
Miranda Nild (Selfoss)
Stoðsending: Bergrós Ásgeirsdóttir
Selfoss kemst yfir gegn gangi leiksins mætti segja en Unnur vinnur boltann á miðjunni og á sendingu á Bergrósu á kantinum sem kemur með fyrirgjöf sem endar á kollinum á Miröndu sem setur boltann í tómt markið.
28. mín
Sending inná teiginn en Sif bjargar vel.
26. mín
Lítið að gerast nokkur hálffæri.
20. mín
Spyrnan utarlega en Karítas nær skalla sem er framhjá.
19. mín
Blikar vinna horn.
16. mín
Agla með spyrnuna á fjær en Tiffany kýlir í burtu.
15. mín
Boltinn á fjær þar sem Íris setur hann í horn.
15. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu á góðum stað við hliðarlínuna.
12. mín
Heiðdís á skot en það fer næstum því í innkast.
11. mín
Boltinn dettu fyrir Þóru sem á skot en það er framhjá og yfir.
8. mín Gult spjald: Katla María Þórðardóttir (Selfoss)
Katla stöðvar hraða sókn og fær gult snemma í leiknum.
7. mín
Smá klafs í teignum endar hjá Clöru sem á skot en Sif er fyrir.
5. mín
Helena liggur eftir.
3. mín
Spyrnan á fjær á Barbáru sem skallar framhjá.
2. mín
Miranda með spyrnuna á fjær þar sem Katla skallar í varnarmann Blika og í horn.
2. mín
Selfoss vinnur hornspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Selfoss byrjar með boltann.
Fyrir leik
Kaffi Krús býður stuðningsfólki beggja liða á völlinn í dag og viljum við hvetja fólk til að nýta sér þetta höfðinglega boð frá Tomma á Krúsinni.
Fyrir leik
Síðasta viðureign þessara liða var á JÁVERK-vellinum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í ágúst þar sem að Breiðablik hafði betur og unnu 0-2 með mörkum frá Öglu Maríu og Helenu Ósk Hálfdánardóttur.
Fyrir leik
Blikar hins vegar unnu þægilegan 3-0 heimasigur á hinu fallliði deildarinnar, Aftureldingu. Írena Héðinsdóttir og Agla María Albertsdóttir (2) skoruðu mörkin í seinni hálfleik.
Fyrir leik
Í seinasta leik Selfyssinga sóttu þær KR heim í Vesturbæinn. Selfyssingar sóttu 5-3 sigur í miklum markaleik sem, auk þess að hafa endanlega fellt KR-inga, verður helst minnst fyrir sjúkrabörur sem vantaði þegar á þurfti að halda og eftirmála þess. Íris Una Þórðardóttir (2), Miranda Nild (2) og Katla María Þórðardóttir skoruðu mörk Selfyssinga.
Fyrir leik
Þrátt fyrir að nú liggi fyrir að Valskonur séu Íslandsmeistarar og að Afturelding og KR falli úr deildinni þá er mikið undir hjá báðum liðum í dag. Breiðablik er í harðri baráttu við Stjörnuna um annað sæti deildarinnar sem gefur Evrópusæti á næsta tímabili. Selfyssingar eru einnig í harðr baráttu við Þrótt og ÍBV um 4.-6. sæti deildarinnar.
Fyrir leik
Góðan dag og verið hjartanlega velkomin á JÁVERK-völlinn, fallegasta knattspyrnuvöll landsins.
Í dag tekur Selfoss á móti Breiðablik í 17. umferð Bestu-deildarinnar og er þetta jafnframt seinasti heimaleikur Selfyssinga á tímabilinu.
Byrjunarlið:
1. Eva Nichole Persson (m)
Karitas Tómasdóttir
2. Natasha Anasi (f)
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('85)
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiðdís Lillýardóttir
10. Clara Sigurðardóttir ('79)
14. Karen María Sigurgeirsdóttir ('85)
16. Írena Héðinsdóttir Gonzalez ('79)
23. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('45)
28. Birta Georgsdóttir

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
6. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('79)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('45)
19. Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz ('85)
22. Rakel Hönnudóttir ('79)
22. Melina Ayres
26. Laufey Harpa Halldórsdóttir ('85)

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Aron Már Björnsson
Ágústa Sigurjónsdóttir
Sigurður Frímann Meyvantsson

Gul spjöld:
Clara Sigurðardóttir ('43)

Rauð spjöld: